Morgunblaðið - 24.11.2002, Page 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 55
Finnst þér lífið
gleðisnautt?
Esbericum®
er náttúrulyf
við vægu
þunglyndi,
framtaksleysi
og depurð
Náttúrulyf við: Vægu þunglyndi, framtaksleysi og depurð. Innihald í hverju hylki: Staðlaður extrakt af jóhannesarjurt (jónsmessurunna, Hypericum
perforatum, St.John’s Wort) samsvarandi 25 míkróg af heildar hypercini. Skammtar handa fullorðnum: Fullorðnir: 1–2 hylki tvisvar sinnum á dag.
Skammtinn má auka í 6 hylki á dag. Börn yngri en 12 ára eiga ekki að nota náttúrulyfið nema að ráði læknis. Meðganga og brjóstagjöf: Þungaðar konur
og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið án samráðs við lækni. Varúðarreglur við notkun: Ef árangur næst ekki á 4–6 vikum á að hætta
meðferð. Leitið ráða hjá lækni ef vafaatriði koma upp. Varúð við samtímis notkun annarra lyfja eða annars/milliverkanir: Talið er að náttúrulyf sem
innihalda jóhannesarjurt geti skert eða aukið umbrot sumra annarra lyfja og samtímis notkun á því almennt ekki að eiga sér stað, nema að höfðu samráði
við lækni. Lestu vandlega fylgiseðilinn sem fylgir hverri pakkningu náttúrulyfsins.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi: Schaper & Brümmer GmbH & Co KG, Bahnhofstr.35, 38259 Salzgitter, Þýskalandi
Umboð á Íslandi: PharmaNor h.f., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ
Esbericum® fæst í apótekum án lyfseðils
Finnur þú fyrir depurð,
framtaksleysi
og þunglyndi?
ÞAÐ þarf fólk eins og þig, Rúnar.
Um það efast fáir sem á annað borð
er annt um íslenska dægurtónlist.
Enda leyfi ég mér
að fullyrða að það
er varla til sá tón-
listarmaður ís-
lenskur sem stund-
ar tónlistarsköpun
af eins brennandi
ástríðu og Rúnar hefur gert í fjóra
áratugi linnulaust. Og það sem nýj-
asta plata hans staðfestir svo um
munar er að karlinn er hvergi nærri
af baki dottinn og hljómar það sem
meira er frísklegri og yfirhöfuð betur
en hann hefur gert í lengri tíma. Ekki
verður hér farið útí getgátur hvers
vegna en ein augljós ástæða er vinnu-
ferli plötunnar. Einn af helstu kost-
um Rúnars hefur alltaf verið hversu
örlátur hann er á tónlist sína og
óhræddur við að starfa með öðrum
tónlistarmönnum. Þannig samdi
hann lögin á Það þarf fólk eins og þig
og lét þau síðan í hendur hljómsveit
sinni sem skipuð er ungum liðsmönn-
um tveggja annarra sveita, sem eru á
mála hjá útgáfu Rúnars, nefnilega
Gálunni og Fálkum. Það verður ekki
annað sagt en að sú ráðstöfun hafi
heppnast fullkomlega því platan
kraumar af spilagleði og útsetning-
arnar eru í senn hugmyndaríkar, af-
slappaðar og með öllu lausar við til-
gerð. Um leið er þetta alveg
dæmigerður Rúnarsstíll, alltaf fullur
af brennandi ástríðu, alltaf svalur. En
það er ekki nóg að hafa útsetning-
arnar í lagi, án góðra laga eru þær lít-
ils virði. Og þar kemur kannski að
helsta styrk plötunnar sem eru laga-
smíðar Rúnars. Platan inniheldur 10
lög, þar af níu eftir Rúnar. „Gott er að
gefa“ og „Er mátturinn dýrðin?“ eru
í sannfærandi og sígildum reggístíl,
„Þitt tvöfalda líf“ yndislega loðið og
hrynheitt, „Ég les í tær“, „Ástríðan
inni brennur“ og „Báðar hliðarnar“
feitir blúsrokkarar. Veiku hlekkirnir
eru „Á leið í gegn“, „Hunangsilmur“
– sem þó inniheldur snilldar orgelsóló
frá Þóri Baldurs – og síðan „Ljósa-
nótt í Reykjanesbæ“, lag sem Rúnar
sendi inn í söngvakeppni sem haldin
var í heimabæ hans á árinu og fer
engan veginn saman við heildina.
Eina lagið sem ekki er eftir Rúnar
er sjálft titillagið en hann og hljóm-
sveit hans fara alveg einstaklega vel
með þetta fallega lag sveitarokks-
frumherjans Bucks Owens.
Rúnari virðist og hafa legið nóg á
hjarta. Lipurlega samdir og
skemmtilegir textar hans einkennast
af lúmskum húmor, sérstaklega hvað
viðkemur ríminu en þar hefur hann
áskilið sér rétt til þess að steypa að
vild, sbr. fríkaðan texta í „Ég les í
tær“. En Rúnar sýnir líka á sér alvar-
legri og beittari hliðar t.d. þar sem
hann veltir trúmálum fyrir sér og
gagnrýnir þröngsýni og trúarofstæki
á áhrifaríkan máta í „Gott er að
gefa“.
Ekki verður gripið til neinna gíf-
uryrða eða stórra yfirlýsinga hér,
enda ekki í anda Rúnars eins fádæma
hógvær og hann nú er, en þó verður
ekki hjá því komist að velta vöngum
yfir því hvort hann sé ekki búinn að
senda frá sér eina af sínum allra
sterkustu plötum á ferlinum. Hún er í
það minnsta bráðskemmtileg,
áheyrileg mjög og staðfestir enn og
aftur að það þarf fólk eins og Rúnar.
Tónlist
Brennandi ástríða
Rúnar Júlíusson
Það þarf fólk eins og þig
Geimsteinn
Sólóplata Rúnars Júlíussonar Það þarf
fólk eins og þig. Lög og textar eftir Rún-
ar, nema lagið við „Það þarf fólk eins og
þig“ sem er eftir Buck Owens. Rúnar
söng lögin og útsetti þau ásamt hljóm-
veit sinni sem sá þar að auki um hljóð-
blöndun og upptökur. Júlíus Guðmunds-
son lék á trommur, slagverk og söng,
Sigurður Guðmundsson orgel, rhodes,
gítar, bassa og söng, Guðm. Kristinn
Jónsson gítar, Guðmundur F. Vigfússon
bassa, Þórir Baldursson orgel í „Hun-
angsilmur“, Baldur Þ. Guðmundsson
nikku og píanó í „Ljósanótt í Reykja-
nesbæ“, María Baldursdóttir bakraddir
og eldamennska fyrir „Ljósanótt í
Reykjanesbæ“.
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Jim Smart
Rúnar Júlíusson
BANDARÍSKI
tónlistarmað-
urinn Stevie
Wonder hótaði
að stöðva út-
gáfu á bók sem
móðir hans
skrifaði, en í
bókinni átti að
upplýsa að
Wonder hefði misst sveindóminn
hjá vændiskonu.
Bókin heitir Faith: The
Miraculous Journey of Lula
Hardaway. Er Wonder sagður hafa
tekið fullyrðingarnar í bókinni svo
nærri sér að hann fól lögmönnum
sínum að krefjast lögbanns á útgáfu
bókarinnar. Eftir nokkurt þóf var
ákveðið að fella þennan kafla út.
Stevie
Wonder
öskureiður
ÞÝSKI tískuhönnuðurinn Karl Lag-
erfeld hefur verið í megrun að und-
anförnu og misst 42 kíló á 13 mán-
uðum.
„Ég var alveg sáttur við að vera
feitlaginn og var við góða heilsu, en
skyndilega langaði mig til að klæða
mig öðruvísi og vera í fötum sem
Hedi Slimane hannaði. Ég sagði við
sjálfan mig: Þú vinnur í tískuheim-
inum og tíska er breytingar,“ segir
Lagerfeld, sem er 64 ára.
Lagerfeld er 1,80 metrar á hæð
og vegur nú 60 kg. Hann var áður
102 kg og segist hafa fitnað smátt
og smátt án þess að taka eftir því
enda hafi hann borðað það sem
hann langaði í.
Nettur
Lagerfeld
Reuters
Tískutröllið Karl Lagerfeld.