Morgunblaðið - 24.11.2002, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 24.11.2002, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 59 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Hverfisgötu  551 9000 Hann er með 1000 andlit... en veit ekkert í sinn haus! Dana Carvey fer á kostum í geggjaðri gamanmynd sem er framleidd af Adam Sandler. Sýnd kl. 4 og 6. Mán kl. 6. Það er ekkert eins mikilvægt og að vera Earnest, það veit bara enginn hver hann er! Frábær rómantísk gamanmynd með Reese Witherspoon, Rupert Everett, Judi Dench og Colin Firth úr Bridget Jones Diary í aðalhlutverkum. Min Søsters Børn Sýnd sunnud. kl. 4. 3 0 0 k r. t i l b o ð a l l a h e l g i n a Tilboð 300 kr. Tilboð 300 kr. Tilboð 300 kr. Tilboð 300 kr. Sýnd kl. 10.30. FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER  Kvikmyndir.com  HK DV  SV Mbl Sýnd kl. 10. B. i. 16. Þegar tveir ólíkir menn deila getur allt gerst. Stórbrotin og óvenjuleg spennumynd með Samuel L. Jackson og Óskarsverðlaunahafanum, Ben Affleck. Margir vilja meina að hér sé á ferðinni ein besta og eftirminnilegasta kvikmynd ársins. Sjáið Jackie Chan í banastuði Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Mán kl. 6 og 8. Sýnd sunnudag kl. 2 og 4. með íslensku tali. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. www.laugarasbio.is SV Mbl 1/2HKDV RadíóX 1/2 Kvikmyndir.is  SK RadíóX  ÓHT Rás 2 UNDANFARIÐ hafa vakið talsverða at- hygli hiphoplög þar sem spunnið er um undirheima Reykja- víkur. Sá sem það ger- ir kallar sig Móra og sendi frá sér fyrstu breiðskífuna fyrir skemmstu. Móri vakti fyrst at- hygli fyrir framlag sitt til fyrstu skífu Rottweilerhundanna, en hann kemur við sögu í laginu „XII Vandamál“. Í sumar átti hann svo lag á safnplötunni Rímna- míni, en fyrsta breiðskífan kom loks út fyrir stuttu og heitir einfaldlega Móri. Í hundana Móri hefur verið í hiphopinu í all- nokkur ár, en starfaði framan af með hljómsveitinni Delphi. Hann segist hafa hætt í þeirri sveit af persónu- legum ástæðum og hafi ekkert verið að spá neitt sérstaklega í að byrja ein- hvern sólóferil um það leyti. „Þá hringdi Erpur úr Rottweilerhundun- um í mig og fékk mig til að rappa í einu lagi á fyrstu plötunni þeirra. Þegar ég svo sá hvað þeim gekk vel og hvað það var mikil uppsveifla í ís- lensku rappi ákvað ég að kýla á það.“ Í framhaldi af því segist Móri hafa samið við forðum félaga sína í Delphi snemma á þessu ári um að þeir myndu setja saman fyrir hann tón- listina og fyrsti ávöxtur þess sam- starfs var lagið „Hljóðtæknir“ sem var á Rímnamínsdisknum sem Edda gaf út í sumar. Bófarapp Móri hefur ekki síst vakið athygli fyrir yrkisefni sitt, en sumir flokka texta hans sem bófarapp. Hann segir og að fólk eigi það til að taka textana of alvarlega, þeir séu fyrst og fremst blanda af raunveruleika og fantasíu en það setji greinilega margir sama- semmerki á milli hans og þeirrar persónu sem hann er að leika í textunum. „Það er bara ágætt,“ segir hann, „eykur bara plötusöluna.“ Móri segist hafa valið á plötuna eftir ákveðnu þema, hann eigi alls kyns texta en fyrsta lagið sem hann setti í spilun, „At- vinnukrimmi“, hafi fengið svo góðar við- tökur að hann ákvað að láta það gefa tón- inn. „Annars á ég alls konar rímur og það er ýmislegt í vinnslu,“ segir hann án þess þó vilja segja meira frá því en bendir á að hann eigi sér fleiri nöfn en Móri. Gróskan er mikil í hiphopinu og sumir halda því fram að það sé búið að ná eins langt og hægt er, vinsældir þess eigi eftir að minnka ört á næsta ári. Móri er á öðru máli, segir að þetta sé rétt að byrja. „Það eru allir að verða betri og betri og íslenskt hip- hop á eftir að ná mun lengra.“ Móri gefur plötuna sjálfur út og segir að það gangi bráðvel, en aldrei kom til greina, að því hann segir, að fá stórfyrirtæki til að gefa hana út. „Þessi stóru plötufyrirtæki taka svo fáránlega mikið af því sem kemur inn, það er bara rugl,“ segir hann ákveð- inn en bætir svo við að með því að gera hlutina sjálfur sé hann líka skipulagðari og vandi sig betur en ella, þetta sé bara góður agi og æfing. Það er ýmisleg spilamennska framundan hjá Móra, 27. nóvember hita hann og Mezzías MC upp fyrir Looptroop á Gauknum og síðan held- ur hann tónleika 12. desember á Grandrokk, en á þeim tónleikum koma auk hans fram þeir Mezzías MC, Vivid Brain, MC Mauze, Resist- ance, Delphi, DJ Bangsi, Ras Kay og ef til vill fleiri. Morgunblaðið/Þorkell Móri hljóðtæknir Breiðskífan Móri er komin í verslanir. MICHAEL Jackson tók við heiðurs- verðlaunum fyrir framlag sitt til tónlistar á Bambi-verðlaunahátíðinni í Þýskalandi. Í þakkarræðu sinni hvatti Jackson þýsk ungmenni til að „vinna að draumum sínum og hugsjónum“. Skyggt hefur á verðlaunin athygl- in sem poppstjarnan fékk eftir að hafa haldið yngsta barni sínu, Prince Michael II, fram af svölum á fjórðu hæð. Lögregla tilkynnti á föstudag að hún ætlaði ekki að rannsaka atvikið, eftir að hafa skoðað myndir af því sem gerðist. „Rannsókn lögregl- unnar hefur leitt í ljós að aðgerðir Jacksons eru ekki refsiverðar,“ sagði talsmaður lögreglunnar. Jackson heiðr- aður í Berlín Michael Jackson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.