Morgunblaðið - 24.11.2002, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 24.11.2002, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 61 Frábær grínhasar með hinum eina sanna Jackie Chan. Frá framleiðendum Men in Black og Gladiator Sjáið Jackie Chan í banastuði Þegar tveir ólíkir menn deila getur allt gerst. ÁLFABAKKI AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 479 Sýnd kl. 10. Vit 479 ÁLFABAKKI AKUREYRI Sýnd kl. 2 og 4. Mán 4 Vit 429 Íslenskt tal Kl. 6, 8 og 10. Vit 474 Kl. 2 og 6. Mán 6. Vit 474 1/2 HK DV  RadíóX  SV Mbl Sýnd kl. 2 og 4. Mán 4 Vit 448 Sýnd kl. 4 og 8. Mán 8. Vit 448 AKUREYRIÁLFABAKKI Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10. Mán 4, 6, 8 og 10. Vit 468 E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P kl. 12, 4 og 8. Mán 4 og 6. B. i. 16. Vit 469. ÁLFABAKKIÁLFABAKKI Sýnd kl. 10, 2, 5, 8 og 11. Mán kl. 5, 8 og 11. Vit 468 Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10. Mán 6, 8 og 10. Vit 468 KEFLAVÍK AKUREYRI  Roger Ebert Kvikmyndir.is  DV TEXTASMIÐIR í íslensku hip- hopi kalla sig rímnamenn enda eru þeir sífellt að eltast við rímið, að ná að njörva svo fast í rím að illt og helst ómögu- legt sé sundur að rekja. Kemur því í sjálfu sér ekki á óvart sú hugdetta að stefna saman rímnamönnum og röppurum líkt og gert var á Menn- ingarnótt Reykjavíkur síðsumars. Það kom og í ljós að hugdettan var góð, mun færri komust að en vildu en þeir sem hörfuðu undan troðn- ingnum geta glaðst yfir diskinum sem hér er tekinn til kosta, en á honum eru upptökur frá uppákom- unni. Það er ekki nýtt að rímnakveð- skap sé fléttað saman við fram- sækna tónlist, flestir þekkja ef- laust samstarf Sigur Rósar og Steindórs Andersen, en þeir sem eldri eru en tvævetur muna rokk- byltinguna íslensku, sem sumir vilja kalla pönk. Á tónleikum þar sem slík tónlist var í öndvegi, á ní- unda áratugnum, kom oft fyrir að fluttar voru rímur áður en hama- gangurinn hófst svona rétt eins og til að undirstrika að sú góða bylt- ing var fyrst og fremst þjóðernis- menningarleg. Nú um stundir er aftur á móti annað upp á teningnum; íslenska hiphopið er annars eðlis, menn eru ekki að reka af höndum sér ensku- vælandi popphænsn heldur er ver- ið að taka upp alþjóðlega hugsun og lífsstíl og færa í íslenskan bún- ing, oftar en ekki með rammpóli- tískum textum og harkalegri ádeilu. Þar skilur og á milli rímna- kveðskapar fyrri alda og nútíma hiphops; rímakveðskapurinn var ekki byltingarkenndur, rímunum ekki ætlað að bylta eða breyta, ögra eða angra; þær voru frekar spegilmynd ríkjandi ástands sem menn voru býsna sáttir við eða höfðu ekki forsendur til að gagn- rýna. Í sumum rímum var vissu- lega verið að typta menn til réttr- ar breytni með dæmisögum eða beinni forskrift, en yfirleitt voru þær þrungnar rómantískri þrá eft- ir liðnum tíma þegar menn voru menn með mönnum. Rappið/hip- hop er aftur á móti tónlist bylt- ingar, krefst þjóðfélagsbreytinga og ef ekki með góðu þá með illu. Ekki má þó skilja þessi orð svo að rímakveðskapur fyrri tíma hafi verið bragðdaufur; á Rímum og rappi er að finna býsna krassandi hendingar, þar á meðal þessa úr „Andrarímum“: „Benja iður belja þar / brátt tók við þeim hauður / fleins í hviðu fylkir snar / féll svo niður dauður“; íslensk hiphopskáld lesi og læri! Ýmsir koma við sögu á diskinum Rímur og rapp og er getið í inn- gangi að þessum pistli en á honum mætast meðal annars þrjár kyn- slóðir rímnavina ef svo má segja, Hilmar Örn, sem er meðal frum- herja í íslenskri tilraunatónlist, tók á sínum tíma þátt í rokkbylt- ingunni íslensku. Steindór Ander- sen hefur lagt drjúgt af mörkum til að tryggja að hefðin haldi velli sem for- maður Kvæðamanna- félagsins Iðunnar og ekki síst fyrir það hve hann hefur verið opinn fyrir ýmiskon- ar samstarfi við unga tónlistarmenn. Loks er það svo rapparinn Erpur Eyvindarson, sem hefur, að öðrum ólöstuðum, verið tákngervingur ís- lensks hiphops, há- vær, ögrandi og atorkusamur. Þeir fé- lagar bræða saman það sem einna for- vitnilegast verður að teljast á þessum diski, rafsoðnar rímur fornar og nýjar. Annað er upp og ofan, framlag Bæjarins bestu skemmtilega flutt en rímurnar rýrar, Vivid Brain og Bangsi eru góðir, „Barnagælur“ þeirra Ásu Ketilsdóttur og Kippa Kaninus virðast stinga í stúf við fyrstu hlustanir en falla síðan bet- ur og betur að eftir því sem oftar er hlustað, „Ást“ Erps Eyvindar- sonar og Bjarts er sannkölluð perla, „Bréf frá guði“ sem Af- kvæmin flytja er snilldarlag og lít- ið síðra „Orðin standa eftir ósögð“ með sömu sveit. Þetta er orðinn býsna langur dómur sem skýrist einfaldlega af því að diskurinn kallar á meira pæl en flestir aðrir; á köflum er hann bráðforvitnilegur, stundum miður, en alltaf stórskemmtilegur. Tónlist Rafsoðnar rímur Ýmsir Rímur og rapp Edda/Ómi Rímur og rapp, diskur með upptökum frá samnefndri uppákomu á Menningarnótt Reykjavíkur í sumar. Á diskinum koma fram Hilmar Örn Hilmarsson, Steindór Andersen, Blazroca, Afkvæmi guðanna, Bangsi, Bjartur, Bæjarins bestu, Vivid Brain, Kippi Kaninus, Ása Ketilsdóttir, Hallgrímur V. Árnason, Hildur Kristín Þor- varðardóttir, Ingimar Halldórsson, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Lilja Þorvarðar- dóttir, Pétur Björnsson, Róbert Sigurð- arson, Sigurbjörn Einarsson og Sigurður Sigurðarson. Hilmar Örn stýrði upptökum en upptökumenn voru Tómas Tómasson og Georg Bjarnason. Árni Matthíasson „Steindór Andersen hefur lagt drjúgt af mörkum til að tryggja að hefðin haldi velli sem formaður Kvæða- mannafélagsins Iðunnar og ekki síst fyrir það hve hann hefur verið opinn fyrir ýmiskonar samstarfi við unga tónlistarmenn,“ segir í dómnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.