Morgunblaðið - 07.04.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003 13
Er „óþekkt“ á þínum vinnustað?
Óþekkt á vinnustað (Organizational Misbehaviour) er það sem
starfsmenn gera í vinnutíma sem ekki er ætlast til að þeir geri.
Félag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
Verð með hádegisverði er 2.800 kr. fyrir félagsmenn og 3.800 kr. fyrir aðra.
Vinsamlega skráið þátttöku með tölvupósti fvh@fvh.is eða í síma 551 1317.
Á hádegisverðarfundi FVH 9. apríl verður fjallað um
• birtingarform óþekktar
• ástæður óþekktar
• leiðir til að bregðast við óþekkt
Það er mikilvægt fyrir stjórnendur að gera sér grein fyrir óþekkt á
vinnustað og að þeir þekki leiðir til úrbóta.
Hádegisverðarfundur Félags viðskipta- og hagfræðinga verður haldinn
miðvikudaginn 9. apríl nk. í Hvammi Grand Hótel Reykjavík kl. 12-13:30.
Fundurinn er opinn öllum.
Fyrirlesarar:
Árelía Eydís Guðmundsdóttir,
dósent við Háskólann í Reykjavík
Hjalti Sölvason,
starfsþróunarstjóri Nýherja.
Fundarstjóri:
Andrés Magnússon,
starfsmannastjóri Íslandspósts.
Árelía Eydís
Guðmundsdóttir
Hjalti
Sölvason
Andrés
Magnússon
Frítt fyrir þig!
SÓLGLER* í þínum styrkleika er
KAUPAUKI
með öllum nýjum gleraugum
OPTICAL STUDIO - LEIFSSTÖÐ
OPTICAL STUDIO RX - SMÁRALIND
GLERAUGNAVERSLUNIN Í MJÓDD
GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR
GLERAUGNAVERSLUN SUÐURLANDS
Við pöntun fylgir frítt par
af sólglerjum í þínum
fjærstyrkleika í eigin
umgjörð eða við bjóðum
þér nýja á hagstæðu verði.
BRESKA fyrirtækið Context Ltd.
og íslenska fyrirtækið Spurn sf.
hafa í sameiningu ákveðið að veita
fjórum íslenskum háskólum, sem
kenna lögfræði, frían og ótak-
markaðan aðgang í eitt ár að
gagnagrunnum Context á sviði
Evrópuréttarins. Skólarnir eru
Háskóli Íslands, Háskólinn í
Reykjavík, Háskólinn á Akureyri
og Viðskiptaháskólinn Bifröst.
Um er að ræða þrjá gagna-
grunna. Í fyrsta lagi er CELEX
(Communitatis Europeaen Lex),
sem er opinber lagagagnagrunnur
Evrópusambandsins. Í annan stað
er OJC (Official Journal C Series),
sem er C-deild stjórnartíðinda
ESB. Loks er ECJ Proceedings
sem hefur að geyma upplýsingar
um mál sem eru fyrir Evrópudóm-
stólnum. Gagnagrunnarnir eru að-
gengilegir á vefnum.
„Þarna er að finna allar grund-
vallarréttarheimildir Evrópurétt-
arins sem eru nauðsynlegar öll-
um þeim sem fást við Evrópurétt,
hvort sem er við nám, kennslu,
almenn lögfræðistörf eða lög-
mennsku,“ segir í tilkynningu frá
Context og Spurn.
Þá segir í tilkynningunni að
hugbúnaðurinn sem Context hef-
ur þróað til að nota við gagna-
grunnana sé talinn einn sá full-
komnasti sem völ sé á en um leið
auðveldur í notkun. Leitarmögu-
leikar séu mjög fjölbreyttir og
sömuleiðis upplýsingar um vensl
skjala sem sé mikilvægt þar sem
um gífurlegan fjölda skjala sé að
ræða.
44 áskrifendur
í 13 löndum
Jón Steindór Valdimarsson hjá
Spurn sf. segir að með gjöf sinni
vilji Context og Spurn leggja
áherslu á mikilvægi Evrópurétt-
arins á Íslandi og stuðla að því að
við kennslu og rannsóknir í lög-
fræði sé stuðst við bestu fáanleg
gögn. Hann segir að Context hafi
verið í fararbroddi á sviði raf-
rænna upplýsinga í lögfræði í
Bretlandi allar götur frá árinu
1986 og að þetta sé í fyrsta skipti
sem fyrirtækið gefi háskólum að-
gang að gagnagrunnum sínum.
Meðal viðskiptavina Context séu
116 háskólar víða um heim. Þar af
séu 44 áskrifendur að Celex í 13
löndum, flestir í Bretlandi.
Jón Steindór segir að Spurn sf.
bjóði einnig áskrift að Common
Market Law Reports á sviði Evr-
ópuréttarins. Þá megi jafnframt
nefna gagnagrunninn Tenders,
sem sé öflugasti og áreiðanlegasti
gagnagrunnur um evrópsk útboð.
Hann henti vel þeim fyrirtækjum
sem hyggi á landvinninga á evr-
ópskum markaði með vörur og
þjónustu eða þátttöku í verklegum
framkvæmdum. Hægt sé að nota
hann samhliða CELEX, en þar sé
oftar en ekki vísað í tilskipanir og
reglugerðir ESB.
Besta notenda-
viðmótið
Einar Páll Tamimi, forstöðu-
maður Evrópuréttarstofnunar Há-
skólans í Reykjavík, segir að að-
gangur að gagnagrunnum um
Evrópurétt á rafrænu formi sé
ekkert annað en bylting fyrir þá
sem vinni við þessi mál. Hann seg-
ir að margir aðilar bjóði upp á
gagnagrunna þar sem hið undir-
liggjandi efni sé það sama, en not-
endaviðmót þeirra sé misgott.
Ekki fari á milli mála að notenda-
viðmótið sem Context og Spurn
bjóði upp á sé það besta sem hann
hafi komist í tæri við.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, deild-
arstjóri lögfræðideildar Við-
skiptaháskólans Bifröst, segir að
aðgangur að gagnagrunninum hafi
mjög mikla þýðingu, sérstaklega
fyrir nýjar deildir sem séu að
koma sér upp gögnum. Gagna-
grunnurinn sé sérstaklega not-
endavænn og eigi eftir að koma að
miklum notum fyrir skólann.
Frá afhendingu gagnagrunns á sviði Evrópuréttarins. Einar Páll Tamimi,
forstöðumaður Evrópuréttarstofnunar HR, Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
deildarstjóri lögfræðideildar Viðskiptaháskólans á Bifröst, Stefán Már
Stefánsson, prófessor við HÍ, og Jón Steindór Valdimarsson, frá Spurn hf.
Frír og ótak-
markaður að-
gangur í eitt ár
Lagadeildir fjögurra háskóla hér á landi fá að-
gang að gagnagrunnum á sviði Evrópuréttar
hlutur Skeljungs hefði aukist úr
5,75 í 7,75 frá 11. febrúar. Hið
rétta er að hlutur Skeljungs í
Eimskipafélaginu er 5,75 og hefur
hann ekki breyst frá 11. febrúar.
Beðist er velvirðingar á þessum
leiðu mistökum.
RANGT var farið með hlut Skelj-
ungs í Eimskipafélagi Íslands í
frétt sem birtist í Morgunblaðinu
á laugardag.
Í töflu sem fylgdi með fréttinni
kom fram að hlutur Skeljungs
væri 7,75 og var sagt í fréttinni að
Hluthafar í Eimskipi