Morgunblaðið - 07.04.2003, Síða 14
STRÍÐ Í ÍRAK
14 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKAR herþotur vörp-
uðu í gær vegna mistaka sprengju á
kyrrstæða bílalest kúrdískra her-
manna og bandarískra sérsveitar-
manna um 50 kílómetra frá borginni
Mósul í norðurhluta Íraks. Allt að
18 Kúrdar féllu og 45 særðust, einn
hinna særðu er bróðir annars af
helstu leiðtogum Kúrda, Massouds
Barzanis. Mennirnir voru fluttir á
sjúkrahús í Kúrdaborginni Irbil en
Mósúl er í höndum Írakshers.
Heimildarmenn AFP-fréttastofunn-
ar úr röðum Kúrda sögðu að auk
Kúrdanna hefðu fjórir bandarískir
sérsveitarmenn fallið en talsmenn
Bandaríkjahers vildu ekki staðfesta
tölurnar um mannfallið í gær.
Íraskir Kúrdar hafa síðustu vik-
urnar í samstarfi við fámenna hópa
bandarískra sérsveitarmanna
þrengt smám saman að íröskum
hersveitum á svæðinu og átt gott
samstarf við Bandaríkjamenn. Einn
af ráðamönnum flokks Barzanis,
Hoshyar Zebari, sagði í Irbil að at-
vikið myndi ekki grafa undan sam-
starfinu en að sjálfsögðu hefðu áföll
af þessu tagi slæm áhrif á liðsand-
ann. Hann sagði ekki vitað hvað
hefði valdið mistökunum.
Bróðir Barzanis, Wajy Barzani,
er sagður hættulega særður og er
talið að hann hafi verið fluttur á
bandarískt hersjúkrahús í Þýska-
landi. Þrír háttsettir leiðtogar herja
Kúrda voru meðal þeirra sem særð-
ust í árásinni, einnig liðlega tvítug-
ur sonur Massouds Barzanis og
mun hann hafa særst en ekki
hættulega.
Mikill mannfjöldi safnaðist saman
utan við sjúkrahúsið í gær og Barz-
ani, sem er leiðtogi KDP-flokksins,
kom á staðinn, einnig voru banda-
rískir herbílar fyrir utan.
Túlkur fréttamanns BBC féll
John Simpson, fréttamaður
breska ríkisútvarpsins, BBC, var í
einum bílnum ásamt túlki sínum er
féll í árásinni, sjálfur fékk Simpson
sprengjubrot í annan fótinn og
særðist lítillega. Simpson segir að
tveir bílar sérsveitarmanna hafi
bæst í hópinn er lestin, um tugur
bíla, var komin nokkuð áleiðis til
borgarinnar Dibagan sem er við að-
alveginn milli Mósul og annarrar
mikilvægrar olíuborgar, Kirkuk,
sem Írakar ráða. Einn sérsveitar-
mannanna sá þá íraskan skriðdreka
í nokkurri fjarlægð og bað um að
gerð yrði sprengjuárás á hann úr
lofti. Flugmaðurinn virðist hafa tal-
ið að bílalestin væri skotmarkið.
Hoshyar Zebari sagði að liðsmenn
bílalestarinnar hefðu verið þátttak-
endur í „kröftugum“ bardögum við
Íraka um 40 kílómetra við Dibagan.
Simpson segir að það sem síðan
gerðist líkist helst „Myndum úr
Víti“, segir á fréttavef BBC.
Sprengja hafi lent aðeins um fjóra
metra frá honum, kviknað hafi í öll-
um bílunum, særðir og látnir Kúrd-
ar og Bandaríkjamenn hafi verið
hvarvetna. Sumir hafi brunnið til
bana fyrir framan augun á honum.
Þeir sem komust lífs af sluppu þó
flestir með skrámur og sprungnar
hljóðhimnur. Kúrdískur túlkur
Simpsons fékk sprengjubrot í fæt-
urna og tilraunir bandarískra
sjúkraliða á staðnum dugðu ekki til
að bjarga lífi hans.
Sprengjuárás á bílalest
Kúrda vegna mistaka
Allt að 18 Kúrdar féllu og bróðir Massouds Barzanis illa særður
Irbil. AP.
AP
Brunnar leifar bílalestarinnar sem bandarísku þoturnar réðust á í Kúrda-
héruðum Norður-Íraks á sunnudag. Ekki er vitað hvað olli mistökunum.
"#"$ "%& & ' "
( $)&
"
*(
+ ,"
"
"
- .//
"
,
% 0 1
% "
2 % 3
( 4 054 0'
674' 0(
8' 9 : 4 ( %;<93
3 = 4 % 0 '
'
- > 0$
?
?@
1 1
% A
? A
% ? 1
? 4
B
C
D 1 *%
%
E NOKKRIR Rússar særðust í gær þegar bílalest
rússneskra sendiráðsmanna og blaðamanna varð
fyrir skothríð skammt frá Bagdad.
Talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins
sagði að fimm hefðu særst en þeir væru ekki í lífs-
hættu og sendiherra Rússlands í Írak, Vladímír
Títorenko, hefði fengið skrámur.
Embættismenn ráðuneytisins kölluðu sendi-
herra Íraks og Bandaríkjanna í Moskvu á sinn
fund og kröfðust þess að gerðar yrðu ráðstafanir
til þess að tryggja öryggi rússneskra borgara í
Írak.
Rússneskir embættismenn sögðu að ekki væri
vitað hvort bílalestin hefði orðið fyrir árás innrás-
arliðs bandamanna eða íraskra hermanna. Yfir-
stjórn Bandaríkjahers sagði að talið væri að bíla-
lestin hefði verið á yfirráðasvæði Íraka og fyrstu
fregnir hermdu að hermenn bandamanna hefðu
ekki verið nálægt henni.
Rússneskur blaðamaður, sem var í bílalestinni,
sagði hins vegar að bílarnir hefðu verið að fara
framhjá varðstöð íraskra hermanna þegar hún
hefði orðið fyrir árás innrásarliðs bandamanna.
Írösku hermennirnir hefðu skotið á móti og bíla-
lestin hefði lent í skothríðinni.
Voru á leið til Sýrlands
Gert er ráð fyrir því að Condoleezza Rice, þjóð-
aröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, ræði atvikið
við rússneska embættismenn í Moskvu í dag.
Bílalestin var á leiðinni að landamærunum að
Sýrlandi eftir að ákveðið hafði verið að loka rúss-
neska sendiráðinu í Bagdad vegna loftárásanna á
borgina.
Rússneska utanríkisráðuneytið sagði að 23
Rússar hefðu verið í bílalestinni, þeirra á meðal
nokkrir blaðamenn. Fréttastofan Interfax sagði
að bílalestin hefði fyrst orðið fyrir skothríð um
átta km frá Bagdad. Hún hefði síðan numið staðar
þegar herjeppar hefðu sést á veginum um fimm-
tán km frá borginni. Einum bílanna var ekið að
jeppunum með fána til að sýna hverjir væru á ferð.
„Þeir tóku að skjóta á bílinn,“ sagði einn heimild-
armanna Interfax. „Guði sé lof að enginn beið
bana. Síðan fóru jepparnir á brott.“
Óljóst hverjir skutu á bíla
rússneskra sendiráðsmanna
Moskvu. AFP, AP.
ÍRASKI hershöfðinginn Nizar al-
Khazraji strauk frá Danmörku
með aðstoð bandarísku leyniþjón-
ustunnar, CIA, að sögn danska
blaðsins Politiken sem vitnar í
skýrslu fyrrverandi leyniþjón-
ustumanns í Bandaríkjunum. Á
sínum tíma flýði al-Khazraji, sem
var um hríð yfirhershöfðingi
Íraka, frá heimalandinu með fjöl-
skyldu sinni og var í varðhaldi í
Danmörku vegna ásakana um
stríðsglæpi. En hann hvarf spor-
laust 17. mars sl., nokkrum dög-
um fyrir innrás bandamanna í
Írak.
Leyniþjónustumaðurinn fyrr-
verandi heitir Victor Cannistraro
og var á níunda áratugnum hátt-
settur hjá þjóðaröryggisráðinu
bandaríska en stýrði síðar deild
baráttu gegn hryðjuverkum hjá
leyniþjónustunni, CIA.
Vitnað er í skýrslu hans í sádi-
arabísku tímariti og segir hann
að hershöfðinginn sé nú í Kúveit
þar sem honum hafi verið ætlað
að nota sér tengsl innan íraska
hersins til að fá upplýsingar um
ferðir Saddams Husseins og sona
hans. Þá yrði hægt að drepa þá
strax í upphafi átakanna. Einnig
hafi verið ætlunin að hann reyndi
að fá íraska hershöfðingja til að
gera uppreisn gegn Saddam. Al-
Khazraji mun hafa orðið lítið
ágengt og valdið Bandaríkja-
mönnum vonbrigðum.
Dularfullur flótti írasks hershöfðingja
úr stofufangelsi í Danmörku í mars
Veitti CIA Al-
Khazraji hjálp?
MEIRA en sex mánuðir munu
líða þar til að ný írösk ríkis-
stjórn getur tekið völdin í land-
inu að stríðinu loknu.
Þetta mat kom í gær fram hjá
Paul Wolfowitz, aðstoðarvarn-
armálaráðherra Bandaríkjanna.
Fréttamaður Fox-sjónvarps-
stöðvarinnar spurði Wolfowitz
hvort vænta mætti þess að
valdaskipti gætu farið fram inn-
an sex mánaða frá lokum stríðs-
ins í Írak. „Það mun líklega taka
lengri tíma,“ svaraði hann.
Bráðabirgðastjórn
kynnt í dag
Bandaríkjamenn hyggjast
koma á bráðabirgðastjórn í
Írak. Skipan hennar verður
kynnt í dag, mánudag, en fyrir
henni mun fara Jay Garner,
fyrrverandi hershöfðingi. Meg-
inhlutverk stjórnarinnar verður
að skipuleggja hjálparstarf í
landinu og auk Bandaríkja-
manna er búist við að bæði Bret-
ar og Ástralar taki sæti í henni.
„Hugmyndin er að við vinnum
okkur sem fyrst út úr vandanum
og hverfum úr stjórnarstólum
eins fljótt og unnt er,“ sagði
Nathan Jones, talsmaður Gar-
ners, í gær.
Bandaríkjamenn hafa lýst yf-
ir því að lýðræðislega kjörin
írösk stjórn muni taka við af
bráðabirgðastjórninni svo fljótt
sem auðið reynist.
Meira en
hálft ár
í valda-
skipti
Washington. AFP.
STJÓRNVÖLD í Íran sögðu í gær
að um það bil helmingur líkams-
leifa um 200 manna, sem breskir
hermenn fundu í vöruskemmu
Írakshers í borginni Basra, væri
leifar íranskra hermanna sem
hurfu í stríði Írana og Íraka á ár-
unum 1980-88.
Íranski hershöfðinginn Mir-Fei-
sal Baqerzadeh skoraði á Alþjóða-
ráð Rauða krossins að koma lík-
amsleifunum í hendur Írana sem
fyrst. Hann sagði að staðið hefði
til að Írakar afhentu líkin en því
hefði verið frestað áður en stríðið í
Írak hófst.
Íran vill fá
100 líkanna
í Basra
Teheran. AFP.