Morgunblaðið - 24.08.2003, Side 3
var eftir ströndinni þar sem okkur
voru sagðar sögur af hvalveiðimönn-
um, sem þarna höfðu rekið veiðistöð,
og smávaxin hreindýr urðu sömu-
leiðis á vegi okkar. Athygli vakti að
þau hreyfðu sig mjög lítið, sem lík-
lega skýrist, að sögn sérfræðinga, af
því að vera ekki að eyða óþarfa orku.
Eftir grillmat, skelltum við ráðherr-
arnir okkur í hrollkaldan sjóinn upp
á grín enda í góðum flotgöllum og
sigldum síðan á ný af stað norður á
bóginn þar sem stefnt var að því að
vera í Nýja-Álasundi að morgni.“
Alþjóðlegar rannsóknir
Skipið náði höfn í Nýja-Álasundi í
bítið, en þar er rekin stórmerkileg
vísinda- og rannsóknastöð, þar sem
um tíu ríki halda úti alþjóðlegum
rannsóknaverkefnum, segir Siv.
„Við hlustuðum á Peter Johan Schei
segja frá líffræðilegri fjölbreytni í
norðri, fórum síðan með kláfum upp
á Zeppelinfjallið, þar sem stundaðar
eru mikilvægar rannsóknir svo sem
á kvikasilfri, koltvíildi, PCB, DDT,
blýi og á fleiru í andrúmsloftinu, en
mælingar þessar eru m.a. nauðsyn-
leg undirstaða þekkingar okkar á
loftslagsbreytingum og á hættuleg-
um efnum, sem fara upp fæðukeðj-
una.
Menn hafa orðið vaxandi áhyggjur
af kvikasilfri, sem berst með bruna á
kolum aðallega frá Afríku og Asíu
með loftstraumum á norðlægar slóð-
ir. Þar leysist kvikasilfrið út í and-
rúmsloftið með úrkomu og áfram út í
fæðukeðjuna, aðallega í fitu sjávar-
dýra. Helst myndast hættuleg efna-
sambönd kvikasilfurs á vorin þegar
sól fer að skína og til verður fyrir-
bæri, sem kallast Polar Sunrise
Phenomen. DDT er á hinn bóginn
skordýraeitur, sem notað er í þróun-
arríkjunum til að halda niðri plágum
í garðyrkju og landbúnaði, en ferðast
engu að síður með loftstraumum til
norðurs. Nú er búið að gera alþjóða-
samning gegn notkun og losun á þrá-
virkum lífrænum efnum eftir að vís-
indamenn voru farnir að mæla þessi
efni í talsvert hækkuðum gildum, en
ljóst er að fleira þarf að koma til.
Grípa þarf t.d. inn í með því að tak-
marka bruna á kolum og bæta tækni,
en eins og málum er nú víða háttað í
heiminum, er verið að brenna kol
með mjög frumstæðum hætti. Finna
þarf svo í staðinn nýja og endurvinn-
anlega orkugjafa á borð við vatns-
orku, jarðvarma, vind- og sólorku.“
Eftir hádegið var siglt frá Nýja-
Álasundi og farið í hraðbátum að
Blomstrandjökli. „Þar fórum við í
land og gengum upp jökulinn teymd
saman í bandi þar sem hann er nokk-
uð sprunginn. Heyra mátti háa hvelli
þegar ísinn var að bresta því jökull-
inn hefur hopað umtalsvert á síðustu
árum þannig að Blomstrandnesið er
orðið að Blomstrandeyju. Útsýni af
jöklinum var stórfenglegt. Þaðan
mátti sjá skriðjöklana falla fram í fló-
ann umkringda afar fallegum fjöll-
um. Eftir jöklagönguna sigldum við
aftur út í skipið, sem lagði svo af stað
áfram norður á bóginn.“
Stórhættulegir ísbirnir
Flotgallarnir voru á ný teknir
fram að morgni miðvikudagsins og
farið í land til að skoða Grafnesið í
Magdalenufirði, sem íslenski um-
hverfisráðherrann segist ekki ætla
að reyna að lýsa með orðum. Feg-
urðin sé slík að menn verði að upplifa
sjálfir. „Í Grafnesinu eru merkilegar
minjar um gamla hvalveiðitímann.
M.a. er þar stór grafreitur þar sem
hvalveiðimenn voru jarðsettir og
staðurinn dregur nafn sitt af. Þarna
hittum við tvo menn, lögreglumann
og landvörð, sem fylgjast með staðn-
um, en um 20 þúsund ferðamenn
koma í land á átta vikum á sumrin.
Vegna átroðnings þurfti að girða
nesið af fyrir skömmu, en Grafnesið
er vinsælasti ferðamannastaðurinn á
Svalbarða. Á þessum slóðum ber þó
að varast ísbirni, en þeir geta verið
stórhættulegir ferðamönnum og
granda að meðaltali einum ferða-
manni á fjögurra ára fresti.“
Næsti viðkomustaður ráðherr-
anna var Virgohöfn, en þar geta þeir
einir farið í land sem hafa skriflegt
leyfi héraðsstjórans á Svalbarða og
þá mega aðeins tólf manns fara í land
í einu. „Þessar takmarkanir á land-
göngu voru settar til að verja menn-
ingarminjar fyrir ágangi ferða-
manna, en frá Virgohöfn lögðu
langflestir leiðangrar á sínum tíma
upp sem freistuðu þess að ná til
norðurpólsins á loftbelgjum. Virgo-
höfn er í einum af þremur þjóðgörð-
um Svalbarða, þjóðgarðinum norð-
vestur af Svalbarða sem stofnaður
var árið 1973. Þar er stórfenglegt
landslag, fjölbreytt plöntu- og dýra-
líf á landi og í sjó. Margir sjófuglar
verpa í þjóðgarðinum auk þess sem
þar er að finna rostunga, hreindýr,
ísbirni og heimskautarefi. Margar
menningarminjar frá hvalveiðitím-
anum frá um 1600 eru þarna og rúst-
ir norskra og rússneskra veiði-
manna.
Seinnipart dags var akkerum hent
út og farið í land í Músahöfn, þar sem
reyndar aldrei hafa fundist mýs
frekar en annars staðar á Svalbarða.
Brýnt var fyrir mannskapnum að
fara varlega og vera vel vopnaður
þar sem ísbirnir væru í sjónmáli. Í
Músahöfn mun ungur veiðimaður,
Tommy Sandal, að nafni, búa aleinn í
vetur ásamt átta grænlenskum
sleðahundum, en hann hefur m.a. að-
stoðað við rannsóknir á heimskaut-
arefnum. Eftir spjall við hann fór
hluti hópsins í þriggja tíma fjall-
göngu, sem lauk ekki fyrr en um
miðnætti, og á leið til skips gátum við
skoðað í kíki ísbjörn sem var að
spóka sig á ströndinni áður en áð var
eftir langan, skemmtilegan og
óvenjulegan dag.“
Rostungar og hvalir
Vaknað var snemma að morgni
fimmtudagsins til að sjá Moffen,
friðaða eyju norðarlega á Svalbarða
þar sem heldur sig fjöldi rostunga og
því má ekki fara nær eyjunni en í 300
metra færi. Þarna var skipið Lance
sífellt að rekast á ísjaka og skömmu
síðar var hægt að henda út stiga á
fastan ís. „Við skemmtum okkur
konunglega við að ganga um á ísn-
um, sér í lagi ráðherrarnir frá Kína
og Suður-Afríku. Um miðjan dag
hífðum við inn lítið troll til að sjá
dýralífið í sjónum. Þegar svo kvöld-
vaka stóð sem hæst, fengum við út-
kall um að hvalir væru í nánd og
sáum þá á sveimi fram á nótt.“
Um hádegi næsta dag var siglt inn
til Longyearbæjarins á ný þar sem
leiðangursmenn yfirgáfu skipið
Lance, sem siglt hafði með þá um
Svalbarða og norður fyrir 80. breidd-
argráðu. Þar með var kominn tími til
að kveðja og pakka niður vetrarföt-
unum.
á Svalbarða
Tignarlegur á toppnum í Grafnesi. Þar eru merkilegar minjar um gamla hvalveiðitímann.
Lena Sommestad, umhverfisráðherra Svíþjóðar, kælir tærnar í Grafnesi.
join@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 B 3
Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á
hreint frábærum kjörum með beinu flugi í haust. Alls staðar nýt-
ur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar, sem eru á heimavelli á
söguslóðum og bjóða spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni
stendur. Notaðu tækifærið og kynnstu mest spennandi borgum
Evrópu, mannlífi og menningu og upplifðu ævintýri í haust.
Fegurstu
borgirnar
í beinu flugi í haust
frá kr. 28.550
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Róm
1.-5. okt.
Heimsferðir bjóða nú einstakt tæki-
færi til borgarinnar eilífu í beinu flugi
þann 1. okt. frá Íslandi til Rómar. Nú
getur þú kynnst þessari einstöku borg
sem á engan sinn líka í fylgd farar-
stjóra Heimsferða og upplifað árþús-
undamenningu og andrúmsloft sem er
einstakt í heiminum. Péturstorgið og
Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku
tröppurnar, Colosseum, Forum
Romanum og Pantheon hofið.
Sjá www.heimsferðir.is
Verð frá kr.65.850
Búdapest
október
fimmtud. og mánud.,
3, 4 eða 7 nætur
Stórkostleg borg í hjarta Evrópu,
sem Íslendingum býðst nú að kynn-
ast í beinu flugi frá Íslandi. Hér
getur þú valið um góð 3 og 4
stjörnu hótel í hjarta Budapest og
spennandi kynnisferðir með farar-
stjórum Heimsferða.
Verð kr. 28.550
Flugsæti til Budapest 20. okt. með
8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir.
Gildir frá mánudegi til fimmtudags.
Verona
17. sept., 5 nætur
Fegursta borg Ítalíu, þar sem þú
getur notið hins besta af ítalskri
menningu um leið og þú gengur
um gamla bæinn, skoðar svalir
Júlíu og kynnist frægasta útileik-
húsi Ítalíu, Arenunni í Verona eða
ferðast um Gardavatn og Feneyjar.
Verð kr. 29.950
Flugsæti með sköttum. Völ um 3 og 4
stjörnu hótel. Ekki innifalið: Forfalla-
gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og
frá flugvelli kr. 1.800.
Prag
Okt. og nóv.
fimmtud. og mánud.,
3, 4 eða 7 nætur
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti
Íslendinga sem fara nú hingað í
þúsundatali á hverju ári með Heims-
ferðum. Fararstjórar Heimsferða gjör-
þekkja borgina og kynna þér sögu
hennar og heillandi menningu.
Góð hótel í hjarta Prag.
Verð kr. 29.950
Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í her-
bergi á Quality Hotel, 3. nóv. með 8.000
kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá
mánudegi til fimmtudags. Ferðir til og
frá flugvelli kr. 1.800.
Barcelona
2. okt. 3 nætur
22./26./30. okt. 4 nætur
Einn vinsælsti áfangastaður Íslend-
inga í 11 ár. Heimsferðir bjóða nú
bein flug í október, sem er einn
skemmtilegasti tíminn til að heim-
sækja borgina. Menningarlífið er í
hápunkti og ótrúlegt úrval listsýn-
inga og tónleika að heimsækja
ásamt spennandi næturlífi og ótrú-
legu úrvali verslana. Fararstjórar
Heimsferða kynna þér borgina á
nýjan hátt, enda hér á heimavelli.
Verð kr. 49.950
Flug og hótel í 4 nætur.
M.v. 2 í herbergi á Aragon, 22. okt.
Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug-
velli kr. 1.800.
Sorrento
30. sept., 5 nætur
Heimsferðir bjóða nú í fyrsta sinn á
Íslandi beint flug til Napolí og dvöl
í Sorrento, þessum frægasta sumar-
leyfisstað Ítalíu. Hér kynnist þú
hinni ótrúlega fögru Amalfi strönd,
eyjunni Capri, Pompei og Napolí.
Ótrúlega fallegt umhverfi og heill-
andi andrúmsloft á þessum fagra
stað. Völ um úrvalshótel í hjarta
Sorrento.
Verð kr. 63.650
Flug og hótel í 5 nætur. M.v. 2 í her-
bergi á La Meridiana með morgunmat.
Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug-
velli kr. 1.800.
Verð m.v. 2 í herbergi, Hotel Villa
Torlonia, flug, gisting, skattar, íslensk
fararstjórn. Ekki innifalið: Forfalla-
gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og
frá flugvelli kr. 1.800.