Morgunblaðið - 24.08.2003, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 B 15
börn
Skilafrestur er til föstudagsins 29. ágúst. Nöfn vinningshafa verða birt sunnudaginn 7. september.
Vinninga má nálgast í afgreiðslu Morgunblaðsins, Kringlunni 1, Reykjavík, alla virka daga milli kl. 8 og 17.
Vinningshafar utan Reykjavíkursvæðisins geta óskað eftir því að fá vinninga senda. Uppl. í síma 569 1324 eða 569 1384.
Vinningar óskast sóttir innan mánaðar frá birtingu úrslita.
Anna Ágústa, 9 ára,
Hjallabraut 11, 220 Hafnarfirði.
Áróra Ósk Einarsdóttir, 5 ára,
Lautasmára 5, 201 Kópavogi.
Dagur Ómar Ásgeirsson, 3 ára,
Blikaási 7, 220 Hafnarfirði.
Gyða Ásdís Kristinsdóttir, 2½ árs,
Birkiási 39, 210 Garðabæ.
Írena Játvarðardóttir, 10 ára,
Berjarima 32, 112 Reykjavík.
Verðlaunaleikur vikunnar
Kristófer Máni Axelsson, 8 ára,
Vesturbergi 118, 111 Reykjavík.
Rafn Orri 5 ára og Hrannar Ari, 3 ára,
Hringbraut 65, 220 Hafnarfirði.
Ragnar Páll Sigurðsson, 2 ára,
Jóruseli 6, 109 Reykjavík.
Sigrún Alúa, 5 ára,
Kaplaskjólsvegi 55, 107 Reykjavík.
Telma Dögg, 10 ára,
Ástúni 12, 200 Kópavogi.
Tumi þumall og Þumalína - Vinningshafar
Til hamingju krakkar þið hafið unnið bíómiða fyrir tvo á myndina ævintir Tuma þumals og Þumalínu.
Spurning:
Hvað heitir litli bróðir Móglís?
Nafn:
Aldur:
Heimili:
Staður:
Nú er komið nýtt
myndband um
Skógarlíf. Sagan hefst
þar sem SKÓGARLÍF
skildi við, þegar Móglí,
litli drengurinn sem
ólst upp í frumskóginum yfirgefur vini sína, dýrin, og flytur í
„þorp mannanna.“ Þar hefur Móglí nýtt líf hjá ástríkri
fjölskyldu, Ranjan, litla bróður sínum og besta vini sínum,
brúneygðu fegurðardísinni Sjöntu. En í frumskóginum
saknar Balli björn vinar síns sárt og sama má segja um
Móglí. Þegar Móglí laumast aftur inn í skóginn, lendir hann
í ýmsum ævintýrum. Hann glímir við snákinn Kaa og mætir
hinum forna fjandmanni sínum, tígrisdýrinu Sere Kan.
Þegar Sjanta og Ranjan vita að Móglí er í hættu, slæst Balli
með í för í uppgjörinu við tígrisdýrið ógurlega. Á endanum
þarf Móglí að gera upp við sig hvort hann kjósi að vera
áfram í skóginum og hjá Balla, eða hjá mönnunum sem
hann veit nú að eru hin sanna fjölskylda hans.
Svaraðu spurningunni hér fyrir neðan og þú gætir unnið.
10 heppnir krakkar fá myndbandsspóluna um Skógarlíf í
verðlaun.
Sendið okkur svarið, krakkar.
Utanáskriftin er:
Barnasíður Moggans
Skógarlíf,
Kringlan 1, 103 Reykjavík
Halló krakkar!
Bjarni Theodórsson, fimm
ára, sendi þessa flottu mynd í
blómamyndasamkeppnina.
Bjarni segir að þistill stingi og
vaxi við skólann hans á Kjal-
arnesi.
Hún Hanna Björk Hilmars-
dóttir, tíu ára, sem á heima í
Keflavík sendi þessa fínu
mynd í ljósmyndasam-
keppnina „Úti er fjör“.
Speglun
ÞJÓÐSAGAN um Sindbað sæfara er
meira en þúsund ára gömul. Sagan er
í Þúsund og einni nótt en það er
meira en þúsund ára gamalt þjóð-
sagnasafn með sögum frá Egypta-
landi, Indlandi, Írak, Íran og Tyrk-
landi. Þjóðsagan um Sindbað er
sennilega byggð á ævintýrum íraskra
sjómanna sem sigldu til Indlands og
Kína á árunum 750 til 850 en sagan í
myndinni er bara að hluta byggð á
þjóðsögunni um Sindbað.
Sindbað myndarinnar á þó ýmis-
legt sameiginlegt með Sindbað þjóðsögunnar eins og það að hann lendir á
eyju sem reynist vera risastór hvalur. Svo lenda þeir líka báðir í slagsmálum
við risafugl.
Þjóðsagan um Sindbað sæfara
Darri Bergmann Davíðsson, sex
ára, fór nýlega með vini sínum að
sjá myndina um Sindbað.
„Hún var
rosalega
skemmtileg og
fyndin,“ segir
hann. „Það var
fyndið þegar
Sindbað stakk í
tunguna á sæ-
skrímslinu og
þegar hundurinn
stökk á kær-
ustuparið þegar þau voru að kyss-
ast. Svo var líka skemmtilegt þeg-
ar þeir voru að skylmast!“
Darri segir Sindbað hafa verið
ræningja sem hafi verið að reyna
að ræna friðarbók. „Vinur hans
neitaði að láta hann fá hana og
svo kom sæskrímsli og þeytti
Sindbað ofan í sjóinn,“ segir hann.
„Hann var næstum drukknaður en
vonda gyðjan leyfði honum að lifa.
Svo rændi hún bókinni af því að
hún vildi ráða yfir heiminum og lét
alla halda að Sindbað hefði gert
það. Þá þurfti hann að fara og
reyna að ná bókinni aftur fyrir
fólkið.“
„Skemmtilegt
þegar þeir voru
að skylmast“
Krakkarýni: Sindbað
Þistill