Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Skógarhlíð 18, sími 595 1000 – www.heimsferdir.is Fegursta borg Evrópu og eftir- læti Íslendinga sem fara nú hing- að í þúsunda tali á hverju ári með Heimsferðum. Fararstjórar Heimsferða gjör- þekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag, frábærir veitinga- og skemmtistaðir. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 39.950 Flug og hótel í 3 nætur, helgarferð 25. sept. M.v. 2 í herbergi á Quality Hotel. Skattar innifaldir. Hvenær er laust 25. sept.– 17 sæti 28. sept.– laust 2. okt. – uppselt 6. okt. – laust 9. okt. – 7 sæti 13. okt. – laust 16. okt. – uppselt 20. okt. – 22 sæti 23. okt. – 32 sæti 27. okt. – laust 30. okt. – 25 sæti 3. nóv. – laust 6. nóv. – uppselt Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Verð kr. 29.950 Flug og skattar. Almennt verð kr. 31.450 Prag helgarferð 25. sept. frá kr. 29.950 Október og nóvember Fimmtudaga og mánudaga 3, 4 eða 7 nætur BANKASTJÓRI Landsbankans, Halldór J. Kristjánsson, segir gagn- rýni Friðriks Pálssonar, fráfarandi stjórnarformanns SÍF á ummæli sín um sameiningu SÍF og SH á mis- skilningi byggða. Í viðtali í Morgun- blaðinu sagði Friðrik að það hafi ver- ið óheppilegt og hleypt illu blóði í menn þegar Halldór hafi gefið í skyn að SH og SÍF yrðu sameinuð með góðu eða illu. Halldór segir að það hefði verið rétt af sér og nauðsynlegt að ítreka skýra afstöðu bankans til þessara mála, úr því að opinber umræða um málið var hafin. „Reyndar höfðu aðr- ir hluthafar í félögunum haft frum- kvæðið og tjáð sig um málið opinber- lega án vitundar Landsbankans. Í umræddu viðtali í Morgunblaðinu 24. ágúst og viðtali sem birtist tveimur dögum síðar kom sérstaklega fram að vilji Landsbankans stóð til sam- einingar félaganna í víðtækri sátt. Reyndar tel ég aðalatriði málsins vera að skynsamlegt er að sameina félögin og að því beri að stefna. Hugsanlega má gera það í áföngum en endamarkmiðið ætti að vera skýrt. Faglegt viðhorf Landsbank- ans hefur ekkert breyst og allir sem málið hafa skoðað í kjölinn eru sam- mála þessu mati Landsbankans. Landsbankinn hefur frá því í janúar unnið að sameiningu SH og SÍF í eitt öflugt markaðs-og sölufyrirtæki á sjávarafurðum sem hefði burði til að takast á við harða samkeppni á al- þjóðlegum mörk- uðum.“ Fagleg framganga Landsbankans Halldór segist á hinn bóginn eðlilega vera sam- mála því mati Friðriks, sem fráfarandi formanns SÍF, í umræddu viðtali að Lands- bankinn hafi „komið vel fram í þess- um málum og framganga hans [ver- ið] fagleg“. Varðandi hlut Lands- bankans í SH segir Halldór að aðkoma Landsbankans að SH og kaup á 25% hlut hafi verið ákveðin og kynnt 6. janúar 2003, tveimur dögum áður en samningur um ráðgjöf bank- ans vegna samruna SÍF og SH var staðfestur af félögunum en samning- ur þar að lútandi hafi verið undirrit- aður 8. janúar og kynntur á Verð- bréfaþingi að morgni næsta dags. „Fullt samkomulag var um þessa vinnu bankans. Því er það afar ósanngjarnt að gagnrýna Lands- bankann síðar fyrir þátt hans sér- staklega af þeim sem að því sam- komulagi stóðu þá.“ Halldór segir að síðsumars, þegar ljóst var að minnihluti eigenda í SÍF gæti vegna andstöðu sinnar við sam- einingu tafið sameiningaráformin, hafi Landsbankinn talið rétt að gera aðilum málsins grein fyrir því að bankinn mundi ekki una óbreyttri stöðu og vildi hraða niðurstöðu í mál- inu. Yfirlýsing um að bankinn myndi leita „annarra leiða“ næðist ekki samkomulag um samruna í sátt við helstu aðila hafi þjónað þeim tilgangi. Landsbankinn vildi alltaf samruna á jafnréttisgrunni „Ein slík leið er nú komin fram og þó svo bankinn hafi ekki náð megin- markmiðum sínum að sinni er hann fullkomlega sáttur við niðurstöðu málsins. Landsbankinn vann af full- um heilindum í þessu máli – hann var alltaf samkvæmur sjálfum sér og gætti ávallt að hagsmunum hluthafa, starfsfólks og viðskiptavina í SH, SÍF og Landsbankanum. Minnihlut- anum í SÍF var alltaf ljóst að vilji bankans stóð til samruna á jafnrétt- isgrunni og voru útfærðar hugmynd- ir þar að lútandi kynntar aðilum. Gagnrýni einstaka hluthafa SÍF á bankana er mér því ekki skiljanleg.“ Halldór segir mestu skipta að skýr eignaraðild sé nú á SÍF og hluthafar SH uni hlut sínum vel. Hann telur lít- ils virði að velta fyrir sér hvað hefði getað gerst ef hlutirnir hefðu þróast á annan veg en þeir gerðu. „Mikil- vægast nú er að halda áfram að leita leiða til að styrkja starfsemi þessara mikilvægu félaga en endamarkmiðið ætti að vera skýrt,“ segir Halldór. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans Ósanngjarnt að gagnrýna bankann fyrir hans þátt Halldór J. Kristjánsson UMMÆLI Friðriks Pálssonar, frá- farandi stjórnarformanns SÍF, í við- tali í Morgunblaðinu á föstudaginn vekja furðu og getgátur hans um markmið Íslandsbanka eru fráleit- ar. Þetta segir Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka. Í viðtalinu heldur Friðrik því fram að Íslandsbanki hafi aldrei gefið færi á öðru en yfirtöku SH á SÍF og að bankinn hafi látið stjórn- ast af þröngum hagsmunum sínum og samstarfsaðila sinna í Kanada. Þetta hafi öðru fremur komið í veg fyrir sameiningu félaganna. „Vangaveltur um að Íslandsbanki gangi erinda ákveðinna hópa eða fyrirtækja, hvort sem er innlendra eða erlendra, eiga sér enga stoð í veru- leikanum,“ segir Bjarni. „Mark- mið Íslandsbanka var það eitt að ná samstöðu um að efla fyrirtækin. Eins og fram hef- ur komið náðist hins vegar ekki að mynda samstöðu innan SÍF um samrunann og því varð niðurstaða okkar að selja hlutabréf okkar í SÍF.“ Þá segir Bjarni það alltaf hafa legið ljóst fyrir að Íslandsbanki hafi stutt það viðhorf meirihluta eigenda SH og SÍF að samruni fyrirtækj- anna myndi verða hluthöfum og við- skiptavinum beggja félaga til hags- bóta. Óumdeilt sé að samruni myndi bæta arðsemi félaganna verulega og skapa afar öflugt fyrirtæki í sölu sjávarfangs á alþjóðavísu. Sameining ein af þeim leiðum sem eigendur skoði „Forsendur fyrir aukinni hag- kvæmni í rekstri félaganna með sameiningu þeirra hafa hins vegar ekki breyst og sameining, að hluta eða í heild, hlýtur því áfram að vera ein af þeim leiðum sem eigendur fé- laganna skoða,“ segir Bjarni. Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka Getgátur Friðriks Pálssonar eru fráleitar Bjarni Ármannsson FORSVARSMENN Norður- orku eru að skoða þann mögu- leika að virkja Glerá á nýjan leik. Fyrirtækið hefur sent bæj- arráði Akureyrar erindi þar sem óskað er eftir einkaleyfi til rannsókna og virkjana í ánni. Bæjarráð fól bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Norður- orku hf. um málið. Franz Árna- son, forstjóri Norðurorku, sagði að líkurnar væru meiri en minni á því áin yrði virkjuð á þeim stað sem hún var virkjuð á sín- um tíma. Hann sagði að verulegar líkur væru á því að slík virkjun gæti borgað sig en að öðrum kosti yrði ekki ráðist í framkvæmdir. Komi til þess að Glerá verði virkjuð verður ráðist í fram- kvæmdir á næsta ári, á 100 ára afmæli rafvæðingar á Íslandi. Franz sagði að framleiðslugeta virkjunarinnar yrði um 1,5 GWst. Göngubrú er yfir stífluna á Glerá sem Rafveita Akureyrar lét hanna í tilefni af 75 ára af- mæli veitunnar árið 1997. Stífl- an er fyrsta mannvirki Rafveit- unnar og hluti af Glerárstöð, sem var fyrsta virkjun veitunn- ar. Stíflan var byggð 1921, stöðv- arhúsið 1922 og virkjunin tekin í notkun það ár. Stíflan á Glerá var endurbyggð 1986 og gegnir því hlutverki að hefta sand- og malarburð ofan á eyrarnar. Áður en stífla var gerð þarna fylltist farvegur árinnar oft af möl á eyrunum og olli það flóð- um. Norðurorka vill virkja Glerá ÞESSI myndarlegi svarti sauður skar sig úr hópnum þegar smala- menn á Fossá á Síðu voru að smala í síðustu viku. Özur Lár- usson, framkvæmdastjóri Lands- samtaka sauðfjárbænda, sagði í samtali við Morgunblaðið að fé kæmi víðast hvar vænt af fjalli, enda tíðarfar með eindæmum gott og gróður hafi tekið snemma við sér í vor. Réttirnar gríðarlega vinsælar hjá almenningi Özur var nýkominn út tveimur réttum, í Gnúpverjahreppi og Skaftholtshreppi, með hóp af Dön- um og Bandaríkjamönnum. „Það liggur við að segja að það sé meira af fólki í þessum réttum en sauðfé, réttir eru greinilega gríðarlega vinsælar og heilu rúturnar sem koma með fólk,“ segir Özur. Hann segir að fjölskyldufólk sé einnig duglegt að sækja réttirnar sem komi oftast á einkabílum. Ekki þurfi að spyrja að því að stemmn- ingin í réttum sé með eindæmum góð og mikil gleði í mannskapnum. Réttað var um helgina í Brekku- rétt í Norðurárdal, Fellsendarétt í Miðdölum, Hlíðarrétt í Bólstað- arhlíðarhreppi, Kirkjufellsrétt í Haukadal og Skrapatungurétt í Vindhælishreppi. Í dag verður réttað í Svigna- skarðsrétt, Svignaskarði, á morg- un í Grímsstaðarétt á Mýrum og á miðvikudag verður m.a. réttað í Klausturhólarétt í Grímsnesi. Morgunblaðið/Alfons Finnsson Fé kemur vænt af fjalli á þessu hausti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.