Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 27
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 27 RSH.is Dalvegi 16b • 201 Kópavogur Sími 544 5570 • Fax 544 5573 www.rsh.is • rsh@rsh.is Handtalstö›var VERSLUN • VERKSTÆ‹I Radíófljónusta Sigga Har›ar Drægni allt a› 5 km Ver› frá kr. 5.900,- UHF talstö›var í miklu úrvali w w w .d es ig n. is © 20 03 Stórsekkir Helstu gerðir á lager. Útvegum allar stærðir og gerðir. Tæknileg ráðgjöf. HELLAS ehf. Skútuvogur 10F, Reykjavík, símar 568 8988, 892 1570, fax 568 8986. e-mail hellas@simnet.is HELLAS ÞJÓÐMINJASAFN Íslands, Nesstofusafn og Félag áhuga- manna um sögu læknisfræðinn- ar vilja heiðra minningu dr. Jóns Steffensen með því að veita styrk að upphæð kr. 200.000 til háskólanema sem hyggst vinna lokaverkefni tengt sögu heilbrigðismála. Styrkn- um verður úthlutað í þriðja sinn nú í haust. Þriggja manna nefnd skipuð af styrkveitendum sér um úthlutun. Umsóknir um styrk þennan skulu berast Þjóð- minjasafni Íslands, Lyngási 7, 210 Garðabæ fyrir 25. október næstkomandi í umslagi merktu „styrkumsókn“. Umsókninni skal fylgja greinargerð um verkefni og um- sögn umsjónarkennara. Nánari upplýsingar gefur Hrefna Róbertsdóttir, sviðs- stjóri rannsókna- og varðveislu- sviðs, netfang hrefna@natmus- .is. Styrkur til rannsókna á sögu heil- brigðismála Reykjavíkurdeild Rauða krossins verður með kynningarfund á morgun, þriðjudagskvöldið 16. sept- ember kl. 20, fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða með þátttöku í sjálf- boðnu starfi félagsins 6–12 tíma á mánuði. Með sjálfboðastarfi á vegum Rauða krossins gefst tækifæri til að leggja íslensku samfélagi lið, taka þátt í hjálparstarfi, segir í fréttatilkynn- ingu. Á MORGUN FULLTRÚARÁÐ Knattspyrnufélagsins Víkings afhjúpaði nýlega legstein í Fossvogskirkjugarði, til minningar um Axel Andrésson, frumkvöðul í ís- lenskri knattspyrnu. Axel stofnaði Víking ásamt nokkrum ungum piltum 21. apríl 1908. Hann var fyrsti formaður félagsins. Þá var hann leikmaður félagsins og þjálfari, auk þess að gegna dómarastörfum. Um árabil ferðaðist Axel um landið og kenndi knattspyrnu eftir kerfi sem við hann var kennt. Axel bjó um tíma á Akranesi og þjálfaði þar unga knattspyrnumenn. Viðstaddir athöfnina voru stjórn fulltrúaráðs, heiðursfélagar, gamlir formenn og ættingjar Axels. Að athöfn lokinni var móttaka í Víkinni. Morgunblaðið/Jim Smart Forystumanns Víkings minnst FÁSKRÚÐ hefur tekið góðan kipp að undanförnu. Þar veiddist lítið framan af sumri vegna þess að áin rann varla í þurrkunum, en hollin síðustu vikurnar hafa verið að gera það gott. „Guðmundur Stefán Maríasson og félagar hans voru að koma úr Fáskrúð og fengu 12 laxa. Þeir sögðu það með minnsta móti, því þeir hefðu aldrei séð ána jafn líf- lega, en laxinn hefði tekið grannt. Þeir voru samt alveg í skýjunum því það var fiskur stöðugt við hjá þeim. Með þeirra afla voru komn- ir 154 laxar á land,“ sagði Bergur Steingrímsson framkvæmdastjóri SVFR í samtali undir helgina. Það er sama hvert er litið vestur í Döl- um, alls staðar veiðist vel þar sem enn er opið á annað borð. Skot í Hrútu Holl sem hætti nýlega í Hrúta- fjarðará náði að landa 20 löxum á þremur dögum og er það besta holl sumarsins. Fengu umræddir veiðimenn kjörskilyrði, vatn að sjatna eftir vatnavexti og grugg. Sáu þeir víða mikið af laxi, m.a. þrjátíu stykki í Bálki. Með þessum pakka voru komnir um 140 laxar á land og hugsa menn nú til þess hvað hefði getað verið ef smálaxagöngur í landshlutanum hefðu ekki brugðist. Þetta er þó að nálgast að vera þokkalegt í Hrútu og til bóta hefur verið óvenjugóð bleikju- veiði. Til tíðinda tald- ist fyrir nokkru, er veiðimaður einn setti í og landaði 15 punda grútlegnum hæng í Dumbafljóti, sem er neðsti veiðistaður ár- innar. Þótti mönnum lítill dugur í þeim fiski að hafa sig ekki ofar í ána, heldur liggja fram á haust í hálfsöltu vatni bleikjuhylsins. Hins vegar var hann fjarri því kraftlaus and- spænis veiðimanni og væntanlegum dauða sínum, því hann barðist hatram- lega í 45 mínútur. Smálax að koma? Nokkrir grálúsugir smálaxar hafa veiðst í Breiðdalsá allra síð- ustu daga og vona menn að fram- hald verði á. Um 160 laxar hafa veiðst í ánni í sumar, en fjölmarg- ir þeirra stórfiskar þar eð smálax hefur vantað að mestu. Stefnir vegna þessa í nokkuð lægri tölu en í fyrra. Nýverið veiddust bæði 17 og 18 punda laxar í ánni. Veitt er út september og vonast menn til að áin hali inn 200 stykki eða svo. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Fáskrúð tók góðan kipp Morgunblaðið/Einar Falur Arnór Gísli Ólafsson með vænan hæng sem hann veiddi í Þjófastrengjum í Flekkudalsá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.