Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 17 BESTI EVRÓPSKI LEIKSTJÓRINN BESTI EVRÓPSKI LEIKARINN BESTA EVRÓPSKA LEIKKONAN Evrópska kvikmynda- akademían og mbl.is bjóða þér að taka þátt í kosningu um besta leikstjórann, besta leikarann og bestu leikkonuna í evrópskum kvikmyndum síðasta árs. Kjóstu með því að merkja í hringinn við nafn þess sem þú vilt kjósa í hverjum flokki, fylltu út formið og sendu á heimilisfangið hér að neðan. Þannig átt þú möguleika á að komast á verðlaunaathöfn Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2003 sem haldin verður 6. desember í Berlín. Á mbl.is getur þú líka kosið með því að smella á hnappinn "Evrópsku kvikmyndaverðlaunin 2003" á forsíðu mbl.is SKILAFRESTUR Á INNSENDINGUM OG ÞÁTTTÖKUFRESTUR Í NETKOSNINGU ER 31. OKTÓBER 2003. Klippið auglýsinguna út og sendið á eftirfarandi heimilisfang: NAFN HEIMILISFANG PÓSTFANG HEIMASÍMI/GSM NETFANG LAND Taktu þátt í vali fólksins! UNDANFARNA daga hefur ver- ið blásið til mikils liðssafnaðar gegn sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverja- hrepps í því skyni að taka af sveitarfé- laginu sjálfsákvörð- unarréttinn í skipu- lagsmálum og að því er virðist til að hnekkja ákvörðun stjórnar Lands- virkjunar frá 5. september sl. um að fresta framkvæmdum við Norð- lingaölduveitu, a.m.k. fram yfir mesta framkvæmdakúfinn við Kára- hnúka. Ég á sæti í stjórn Landsvirkjunar sem einn af þremur fulltrúum Reykjavíkurborgar, en borgin á sem kunnugt er um 45% eignarhlut í Landsvirkjun. Ég tel nauðsynlegt að fram komi að í stjórninni fylgi ég að sjálfsögðu stefnu Reykjavík- urborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga að standa beri vörð um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga í skipulagsmálum, sbr. samþykktir síðasta landsþings Sambandsins haustið 2002. Því virði ég niðurstöðu hreppsnefndar Skeiða- og Gnúp- verja sem hafnaði 19. ágúst sl. til- lögu Landsvirkjunar um 568 m lón- hæð, enda er það rétt tekin ákvörðun af til þess bæru stjórn- valdi. Landsvirkjun ber að virða þá niðurstöðu. Rétt er að fram komi að það var ekki aðeins afstaða Skeiðamanna og Gnúpverja sem varð til þess að stjórn Landsvirkjunar ákvað að fresta framkvæmdum við Norð- lingaölduveitu. Margt annað kom til. Rannsóknum á vegum Landsvirkj- unar á krapamyndun í ánni lauk t.a.m. ekki fyrr en í lok ágúst en þeir sýndu að rekstraröryggi veitunnar við 566 m lónhæð væri verra en við 568 m h.y.s. Hvað þýðir það? Jú, hugsanlega að veitan yrði óhag- kvæmari, arðsemin minni eða raf- magnið dýrara, en þessir útreikn- ingar liggja einfaldlega ekki fyrir enn. Þá hefur komið fram að ekki hefði verið hægt að bjóða út hönnun veitunnar, eins og þó er skylt lögum samkvæmt, fyrir tilsettan tíma. Tímapressan er aftur til komin vegna hinna miklu framkvæmda fyr- ir austan; eiginfjárstaða Landsvirkj- unar og þenslan í þjóðfélaginu leyfa ekki að framkvæmdir við Norð- lingaölduveitu beri upp á sama tíma og mest gengur á fyrir austan. Forstjóri Norðuráls hefur lagt mikla áherslu á að flýta verði raf- orkuöflun svo hægt verði að stækka álverið á Grundartanga fyrir tiltek- inn tíma. Forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suð- urnesja eru bjartsýnir á að þeir geti afhent orku á tilsettum tíma og er það vel hversu hratt og örugglega þeir brugðust við. Ummæli forstjóra Norðuráls um afstöðu Skeiða- og Gnúpverja og ákall hans til stjórn- valda um að „höggva á hnútinn“ eru hins vegar smekklaus og ekki til þess fallin að bæta ímynd fyrirtæk- isins. Reyndar hafa fleiri verið í þeim kór, m.a.s. sveitarstjórn- armenn í öðrum landshlutum. Ég skora á sveitarstjórnarmenn um land allt að hvika ekki frá varðstöðu um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfé- laga í skipulagsmálum, enda þótt þeim sé sumum heitt í hamsi nú út af ákvörðun Skeiða- og Gnúpverja. Það getur hæglega komið í bakið á þeim síðar í heimabyggð. Skipulags- og byggingalög nr. 73/ 1997 taka á því hvernig leysa beri ágreining milli sveitarfélaga og við framkvæmdaaðila. Má þar nefna. 11. gr., 12. gr. 6. málsgr., 12. gr. a, 15. gr. og 22. gr., en að auki fjallar 8. grein um það hvernig kæra má stjórnvaldsúrskurði í skipulags- og byggingamálum. Ég tel mjög óheppilegt að erindi Landsvirkjunar um óbreytta veitutilhögun við Norð- lingaöldu var lagt fyrir Sam- vinnunefnd um skipulag miðhálendis 8. september sl. í andstöðu við hreppsnefnd Skeiðamanna og Gnúp- verja og eftir að stjórn Landsvirkj- unar hafði einróma ákveðið að fresta framkvæmdum þar, a.m.k. fram yfir meginframkvæmdatíma Kára- hnjúkavirkjunar. Það er enda mikið álitamál hvort nefndinni er heimilt að taka við og auglýsa erindi beint frá framkvæmdaaðila. Um það fjallar 15. gr. skipulags- og bygg- ingamála, sem var beitt við svæð- isskipulag Kárahnjúka þar sem mörg sveitarfélög komu að málum. Samvinnunefnd um skipulag miðhá- lendisins er eina svæðisnefndin þar sem afl atkvæða ræður niðurstöðu, enda er rauði þráðurinn í núgildandi skipulagslögum sá að hvert sveitar- félag hefur í raun neitunarvald um skipulag og framkvæmdir á sínu svæði. Beiðni Landsvirkjunar um óbreytta veitutilhögun þrátt fyrir samþykkt hreppsnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps má því túlka sem beiðni um að Samvinnunefndin taki fram fyrir hendurnar á heimamönn- um. Þetta var og er að mínu viti óþörf ráðstöfun. Eðlilegra hefði verið að draga erindið formlega til baka vegna breyttra aðstæðna og nýta tímann sem nú gefst til að leita sam- komulags við hreppsnefndir Skeiða- og Gnúpverja og Ásahrepps um nýja veitutilhögun. Tímapressunni hefur verið aflétt, stækkun Norðuráls hvíl- ir ekki lengur á framkvæmdum í Þjórsárverum einum og því loks tóm til að ná aftur sátt í þessu viðkvæma deilumáli. Ég vona að Landsvirkjun og Samvinnunefnd um skipulag miðhálendis gefi sér tíma til þess. Náum sátt um Þjórsár- verin Eftir Álfheiði Ingadóttur Höfundur er fulltrúi Reykjavík- urborgar í stjórn Landsvirkjunar. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík Laugavegi 63 • sími 5512040 Vönduðu silkiblómin fást í Fíkustré LJÓSMYNDIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.