Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 24
MINNINGAR 24 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Héraðsdómur Reykjavíkur óskar eftir að ráða starfsmann í afgreiðslu. Um er að ræða fullt starf við almenna afgreiðslu og upplýsingagjöf í móttöku dómstólsins. Laun eru samkvæmt kjarasamningi SFR og fjármála- ráðherra. Umsóknarfrestur er til 30. september nk. en viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. október nk. Umsóknir skal senda Barböru Björnsdóttur skrifstofustjóra, Dómhúsinu við Lækjartorg, en hún veitir nánari upplýsingar í síma 562 8546. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR NI-dagur á Íslandi 16. september kl. 13:15 - 17:00 í sal 4 í Háskólabíói Verkfræðistofan Vista heldur NI dag og kynnir nýjustu útgáfu LabVIEW 7Express. Meðal nýjunga eru: * Öflugar Express víur * Auðveldari leiðir til að þróa hugbúnað fyrir lófatölvur (PDA) * State Engine tól fyrir hugbúnaðarþróun * Öflug tól fyrir tölvusjón * Vefviðmót. Aðgangur er ókeypis. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir Nánari upplýsingar eru að finna á www.vista.is. TILKYNNINGAR Allsherjaratkvæðagreiðsla Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör fulltrúa á ársfund Starfsgreinasambands Íslands sem haldinn verður í Reykjavík 9. og 10. október 2003. Tillögur skulu vera um 41 aðalmann og 41 til vara. Tillögum, ásamt meðmælum 120 fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu Eflingar- stéttarfélags, Sætúni 1, Reykjavík, eigi síðar en kl. 12. mánudaginn 22. september 2003. Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags. SMÁAUGLÝSINGAR DULSPEKI Miðill sem svarar þér í dag. Hringdu og fáðu einkalestur og svör við vandamálum í starfi eða einkalífi í síma 001 352 624 1720. FRÉTTIR mbl.is Fullorðinsfræðsla Laugarneskirkju NÚ fáum við góðan gest í heimsókn í Fullorðinsfræðslu Laugarnes- kirkju, sem marga langar til að sjá og hlýða á. Þriðjudagskvöldið 16. sept. kl. 19.30 (athugið breyttan tíma) mun ævintýramaðurinn og kristniboðinn Helgi Hróbjartsson koma og segja sögu sína. Eins og al- þjóð veit hefur hann um langt skeið gefið krafta sína í þágu bágstaddra Afríkubúa og skipulagt gríð- arvíðtækt hjálparstarf sem náð hef- ur til tugþúsunda. Verður fróðlegt og uppbyggilegt að hlýða á mál hans og komast að því hvað rekur manninn áfram. Allt fólk er vel- komið, aðgangur ókeypis. Gengið er inn um dyr á austurgafli kirkj- unnar. Sr. Felix í Grensáskirkju Í TILEFNI af 40 ára afmæli Grens- ássafnaðar tekur fyrsti sóknar- prestur safnaðarins, sr. Felix Ólafs- son, þátt í kirkjustarfinu þessa dagana. Á morgun, þriðjudag 16. sept., kl. 15, hittir hann væntanleg ferming- arbörn safnaðarins í kirkjunni og kynnir þeim kristniboðsstarf Ís- lendinga í Eþíópíu en sr. Felix og eiginkona hans, frú Kristín Guð- leifsdóttir, sem lést fyrir nokkrum árum, voru fyrstu fulltrúar ís- lenskra kristniboðsvina á kristni- boðsakrinum í Konsó. Miðvikudaginn 17. sept. tekur sr. Felix þátt í samverustund aldraðra í Grensáskirkju og sýnir þar mynd- ir frá fyrstu árum starfsins í Grens- ássöfnuði meðan enn var starfað í Breiðagerðisskóla og Miðbæ við Háaleitisbraut. Auk þess tekur hann þátt í helgi- haldi á stofnunum í söfnuðinum þessa viku en hápunktur heimsókn- arinnar er um næstu helgi þegar hann prédikar við almenna messu sunnudaginn kl. 11 árdegis og aftur í kvöldmessunni kl. 20. Alfa-námskeið í Óháða söfnuðinum ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 16. sept- ember kl. 19 til 21.30 verður kynn- ingarkvöld á alfa-námskeiði, sem er að fara af stað í Óháða söfnuðinum. Farið verður í aðalatriðin, svo sem: Hvað er bæn, Biblían sem orð Guðs, Hvernig starfar Heilagur andi og Til hvers dó Jesús? Þeir, sem hafa sótt þessi alfa-námskeið segjast fá dýpri skilning á mörgum þeim atriðum, sem hafa verið fram- andi fyrir þeim, og þeir ræki sam- félag sitt við Krist betur á eftir. Allir eru hjartanlega velkomnir. Barna- og unglingakórar Bústaðakirkju Í BÚSTAÐAKIRKJU eru barna- og unglingakórarnir að hefja göngu sína þessa dagana. Enn er hægt að taka inn nemendur í Stúlknakór og Kammerkór. Auk þess að syngja hin kirkjulegu lög verða í vetur sungin lög úr söngleikjum og sett upp söngleikjadagskrá eftir ára- mót. Einnig verður kennsla í að syngja í hljóðnema. Lagt er áhersla á að nemendur syngi með nátt- úrulegri og óþvingaðri tækni. Kórstjóri og söngkennari er Jó- hanna V. Þórhallsdóttir og undir- leikari hjá Stúlkna- og Kammerkór er Aðalheiður Þorsteinsdóttir. All- ar upplýsingar eru í Bústaðakirkju og á kirkja.is. KIRKJUSTARF/ÞJÓNUSTA prímusinn tók áskoruninni og fór að suða. Ketilkaffið var á þeim árum nánast eina brjóstbirtan sem Hlíða- menn höfðu að ylja sér við í óupphit- uðu sæluhúsi. Minningarnar eru margar, og bjartar. Laugi og ljósið er samtengt í huga nágrannanna. Lítil stúlka horfði út um eldhús- gluggann heima hjá sér, og sá tungl- ið koma upp yfir Hlíðartúni, hún kallaði í heimilisfólkið, til að sýna því hvað hann Laugi væri búinn að fá fínt útiljós. Síðan hefur tunglið oftast verið nefnt ljósið hans Lauga hjá fjölskyldu okkar. Góðir grannar eru lífæð sveitanna, án þeirra gætum við ekki búið. Það var kærkomin viðbót í gott samfélag þegar Laugi og Rúna völdu að setja saman bú hér uppi við Hlíðar. Grannarnir, ungir sem aldnir, fylgd- ust með uppbyggingu nýbýlisins Hlíðartúns, og dáðust að elju ungu hjónanna. Dugnaður þeirra varð til að hvetja fleira ungt fólk til að feta í sporin og hefja búskap. Laugi var alla tíð hjálpsamur og fljótur að koma ef einhvern vantaði aðstoð. Ófá handtökin átti hann við uppbyggingu nýbýlanna sem seinna risu með Hlíðinni. Öll þökkum við honum hjálpina, og léttleikann sem með honum kom, að hverju sem unn- ið var. Árin sem Laugi var sundlaug- arvörður var komin þriðja kynslóð nágranna, sem þakka af alhug hlýjuna og alúðina sem hann sýndi þeim. Þegar svíður sorgarstund og sýnist fátt til varnar, sefa best og létta lund ljúfu minningarnar. (Halla L. Loftsd.) Kæra Rúna, börn, tengdabörn og barnabörn, systkinin frá Hvítár- bakka og aðrir aðstandendur. Okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur öll. Nágrannarnir á Brekku, Brekkuskógi, Efri-Brekku og Rauðaskógi. HÁRLAUG- UR INGV- ARSSON LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRA- HÚS SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000. BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050. BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími 543 1000. BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími 543 4050. NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími 543 2085. EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222. ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085. LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upp- lýsingar í s. 563 1010. LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn- arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helg- ar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá- tíðir. Símsvari 575 0505. VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369. LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn- isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl. í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8– 24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. NEYÐARÞJÓNUSTA BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep- urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trún- aði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar- og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að- standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjald- frjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek- ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif- stofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar- hringinn. Vímulaus æska-Foreldrahús. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 Laugarneskirkja. Góðar mömmur, kynningarfundur kl. 12. María Íris Guð- mundsdóttir, BA í sálarfræði, og Krist- jana Þorgeirsdóttir Heiðdal líkams- ræktarþjálfari bjóða til samveru með mæðrum ungbarna, þar sem unnið er með fæðingarþunglyndi. Opinn 12 spora fundur kl. 18 í safnaðarheim- ilinu. Allt fólk velkomið. Vinir í bata. Kynningarfundur á 12 sporastarfinu kl. 20. Nú er tækifæri til að koma og huga að þátttöku í þessu einstaka starfi. Gengið inn um aðaldyr safnaðarheim- ilisins. Aðgangur og öll þátttaka ókeyp- is. Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.30. Sög- ur, söngur, leikir og föndur. Uppl. og skráning í síma 511 1560. TTT-starf kl. 16.30. Starf fyrir 10–12 ára börn. Leikir, ferðir o.fl. Umsjón Munda og Sigfús. 12 sporin, andlegt ferðalag, kl. 20. Kynningarfundur. Allir velkomnir. Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir full- orðna í safnaðarheimilinu kl. 13– 15.30 í umsjón Lilju G. Hallgrímsdótt- ur djákna. Þar verður fræðsla, föndur, spilað, spjallað og kaffiveitingar verða í boði. Þeir sem óska eftir akstri láti vita í síma 557-3280 fyrir hádegi. Fyr- irbænastund í kapellu kirkjunnar kl. 15.30–15.45. Bænaefnum má koma til djákna, presta eða annarra starfs- manna kirkjunnar. Seljakirkja. KFUK 9–12 ára kl. 17.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 16 ára og eldri kl. 20–22. Lágafellskirkja. Bænastund í Lága- fellskirkju kl. 20. Þórdís djákni þjónar og tekur við bænarefnum í síma 691- 8041 alla daga frá kl. 9–16. Al-Anon- fundur í Lágafellskirkju kl. 21. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16 æskulýðsfélag fatlaðra, yngri hópur. Hulda Líney Magnúsdóttir og sr. Þor- valdur Víðisson. Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30– 16.30. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 15 heimilasamband, allar konur velkomn- ar. Kl. 17 Örkin hans Nóa, fyrir 1., 2. og 3. bekk. Kl. 18 KK fyrir 4. og 5. bekk. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Brynjar GautiLaugarneskirkja Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minn- ing@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birt- ingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.