Morgunblaðið - 15.09.2003, Side 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BJÖRGVIN Frede-
riksen vélvirkjameist-
ari og fyrrverandi
borgarfulltrúi lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ hinn 12.
september síðastlið-
inn, tæplega 89 ára að
aldri. Björgvin fædd-
ist 22. september árið
1914 í Reykjavík, son-
ur hjónanna Aage
Martins Christians
Frederiksen vélstjóra
og Margrétar Hall-
dórsdóttur frá Botna-
stöðum í Svartárdal í
Austur-Húnavatnssýslu.
Hann kvæntist Hallfríði Björns-
dóttur, f. 24. mars 1916, árið 1939.
Hún lést 21. september 1994. Þau
eignuðust fjögur börn.
Björgvin lauk sveinsprófi í vél-
virkjun árið 1935, stundaði fram-
haldsnám í Danmörku í þeirri grein
og fékk meistararéttindi árið 1938.
Hann stofnaði vélsmiðju og vélasölu
í Reykjavík árið 1937, sem hann rak
til ársins 1962.
Björgvin gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir Meistarafélag járn-
iðnaðarmanna og var formaður
1950–1953 og 1957–
1958. Hann var forseti
Landssambands iðnað-
armanna 1952–1960 og
prófdómari í málmiðn-
aði við Iðnskólann frá
1961, svo fleira sé
nefnt. Einnig var hann í
stjórn Iðnaðarmála-
stofnunar Íslands til
skamms tíma, sem og
varaformaður og for-
maður.
Björgvin var jafn-
framt í stjórn Vinnu-
veitendasambands Ís-
lands 1954–1962 og
borgarfulltrúi í Reykjavík 1954–
1962. Þá var hann borgarráðsmaður
1960–1962. Árið 1960 var Björgvin
gerður að heiðursfélaga Landssam-
bands iðnaðarmanna, einnig hlaut
hann heiðursmerki Iðnaðarmanna-
félagsins á 100 ára afmæli þess
1967. Hinn 1. janúar 1989 hlaut
Björgvin riddarakross fálkaorðunn-
ar og einnig var hann tilnefndur
heiðursfélagi í Iðnaðarmannafélagi
Reykjavíkur sama ár. Á 90 ára af-
mæli Iðnskólans, árið 1994, var
hann jafnframt sæmdur heiðurs-
merki Iðnskólans í Reykjavík.
Andlát
BJÖRGVIN
FREDERIKSEN
ELDING, félag smábátasjómanna
á norðanverðum Vestfjörðum,
stóð fyrir fjölmennum fundi um
línuívilnum í gær. Markmið fund-
arins var að þrýsta á stjórn-
arflokkana að fylgja eftir lands-
fundasamþykktum sínum og efna
samþykktir í stjórnarsáttmála um
að koma á línuívilnun.
Fundurinn hófst kl. 14 í íþrótta-
húsinu á Torfnesi og mættu á
fjórða hundrað manns. Fundurinn
hófst á ávarpi Guðmundar Hall-
dórssonar, formanns Eldingar,
sem sagði að mjög hefði hallað á
strandbyggðir Íslands undanfarin
ár og tími væri til kominn að hlut-
ur þeirra væri réttur.
Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar, tók fram að
hann talaði sem einstaklingur en
vísaði til samþykkta sveitarfélag-
anna á Vestfjörðum sem hefðu
samþykkt við sína vinnu við
byggðaáætlun Vestfjarða 2002 að
komið skyldi á línuívilnun fyrir
dagróðrabáta, sem var að auki
áréttað í samþykkt Fjórðungs-
þings Vestfirðinga árið 2002.
Sagði Halldór að mikil togstreita
hefði verið innan sjávarútvegsins
og vonandi yrði þessi fundur til að
auka skilning milli mismunandi
hópa útvegsmanna. Hann bætti
því við að viss sjávarútvegsfyr-
irtæki hefðu leitað kerfisbundið
að lausum kvóta, innlimað hann í
sína starfsemi og tekið hann frá
fólkinu í viðkomandi byggðum.
Þessi sjávarútvegsfyrirtæki hefðu
með þessu komið óorði á kvóta-
kerfið.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins og
þingmaður Norðvesturkjördæmis,
tók einnig til máls og sagði meðal
annars mikið hafa verið rætt um
það í sambandi við línuívilnun að
með henni væri verið að færa ein-
um hóp útvegsmanna aukin rétt-
indi, sem væru frá öðrum tekin.
Guðjón vísaði því sjónarmiði á bug
og kallaði það grátkór LÍÚ. Guð-
jón sagði að á síðustu árum hefðu
stórútgerðirnar í LÍÚ verið að
bæta á sig aflaheimildum í teg-
undum utan Íslandsmiða, sem
jafngiltu um 80.000 þorskígildis-
tonnum. Í krafti þessarar úthlut-
unar hefðu þeir síðan keypt aukin
réttindi á Íslandsmiðum.
Ásakanir um ofveiði á ýsu
úr lausu lofti gripnar
Snorri Sturluson, útgerð-
armaður á Suðureyri, kom fram
fyrir hönd smábátasjómanna.
Hann talaði um að það hefði verið
mikill harmagrátur á meðan ýsa
hjá smábátum var utan kvóta. Þá
hefðu smábátasjómenn verið sak-
aðir um að ofveiða stofninn. Hins
vegar væri allur sjávarútvegurinn
í dag að uppskera auknar veiði-
heimildir í ýsu, 70.000 tonn á yf-
irstandandi fiskveiðiári, sem hefði
verið um 35.000 áður. Hann sagði
krókaveiðina vistvæna, hún veiddi
jafnt úr öllum stærðarflokkum og
fiskurinn tæki best á þegar hann
væri svangur og lítið æti í sjónum.
Einnig tóku til máls þingmenn-
irnir Jóhann Ársælsson, Kristinn
H. Gunnarsson, Jón Bjarnason og
Einar Oddur Kristjánsson. Sam-
mæltust þingmennirnir um að
styðja við línuívilnun.
Smábátasjómenn
verði ekki sviknir
Í fyrirspurnartíma sátu þing-
menn Norðvesturkjördæmis fyrir
svörum og blaðamaðurinn Árni
Snævarr stýrði umræðum. Fund-
armönnum var heitt í hamsi og
var fyrirspurnartíminn enda líf-
legur að sögn viðstaddra. Einar
Oddur sagði að á valdaferli Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra
hefðu andstæðingar hans mikið
reynt að finna því stað að hann
hefði gengið bak orða sinna, en
engum tekist það hingað til. Einar
sagðist hafa fulla trú á því að svo
yrði áfram og Davíð brygðist ekki
kjósendum sínum. Vísaði Einar
þar til ummæla smábátasjómanna
um að það væru svik við smábáta-
sjómenn að koma ekki á línuíviln-
un í haust.
Niðurstaða fundarins var sú að
skorað var á Alþingi að lögfesta
án tafar landsfundasamþykktir
stjórnarflokkanna um línuívilnun
og tryggja þar með ákvæði þar
um í stjórnarsáttmála komi til
framkvæmda eigi síðar en fyrsta
nóvember n.k.. Að auki var skorað
á ríkisstjórnina að festa í lög gólf
á fjölda sóknardaga krókabáta.
Halldór Halldórsson bæjarstjóri á fjölmennum fundi um línuívilnun
Stórar útgerðir hafa
komið óorði á kvótakerfið
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Bekkurinn var þétt setinn, enda er línuívilnunin Vestfirðingum hitamál.
Ísafirði. Morgunblaðið.
HAFSTEINN Þór Hauksson var
kjörinn formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna á þingi sambands-
ins í Borgarnesi í gær til tveggja ára.
Hlaut hann tæp
78% gildra at-
kvæða en alls
greiddu 138 at-
kvæði. Í kjöri til
varaformanns
náði Þorbjörg Vig-
fúsdóttir kjöri og
hlaut hún 50%
gildra atkvæða.
Ingvi Hrafn
Óskarsson, sem
gegnt hefur embætti formanns SUS
síðastliðin tvö ár, gaf ekki kost á sér
til endurkjörs. Hafsteinn hafði einn
gefið formlega kost á sér í formanns-
embættið og sama er að segja um
Þorbjörgu í varaformannssætið.
Þetta var í 37. sinn sem þing Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna er
haldið. Um 160 þingfulltrúar alls
staðar að af landinu tóku þátt í mál-
efnastarfi alla helgina.
Hafsteinn þakkaði þingfulltrúum
stuðninginn að loknu kjöri og sagðist
ætla að beita sér næstu tvö árin í
þágu hugsjóna ungra sjálfstæðis-
manna, sem mótaðar voru á fjöl-
mennu og glæsilegu þingi í Borgar-
nesi. Hann sagði að síðustu tvö ár
hafi eðlilega einkennst af kosninga-
baráttu vegna sveitarstjórna- og al-
þingiskosnina. Þótt sú kosningabar-
átta sé að sjálfsögðu hugsjónabar-
átta í eðli sínu, fari alltaf mikil orka í
önnur verkefni í tengslum við kosn-
ingar.
„Næstu tvö ár gefst okkur hins
vegar tækifæri til að leggja eingöngu
áherslu á hugsjónabaráttuna og það
er nauðsynlegt að grípa það tæki-
færi,“ sagði Hafsteinn. „SUS hefur
ávallt barist fyrir auknu frelsi ein-
staklinganna og minni ríkisafskipt-
um. Það er mikilvægt að hlúa að
þeim hugsjónum og kynna þær vel,
auk þess sem SUS á ekki að hika við
að taka skýra afstöðu til þjóðfélags-
mála hverju sinni út frá þessum hug-
sjónum.“
Hafsteinn Þór Hauksson
kjörinn formaður SUS
Hafsteinn Þór
Hauksson
Hugsjóna-
barátta er
næsta
verkefni
HANNES G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir það undir verkalýðs-
hreyfingunni komið hvort hún vilji
gera launakjör starfsmanna við Kára-
hnjúka að miðpunkti kjaraumræð-
unnar á komandi vetri. Það sé trú for-
svarsmanna SA, að þegar kjarasamn-
ingar verði lausir verði þau mál sem
fram að þessu hafi verið til umræðu á
svæðinu, uppbygging starfsmannaað-
stöðu og launamál, komin í viðunandi
farveg.
„Ég sé ekki alveg hvers vegna ætti
að beina öllum kjaradeilum þjóð-
félagsins akkúrat í þennan litla samn-
ing sem virkjanasamningurinn er. Ég
sé ekki alveg hvaða tilgangi það ætti
að þjóna og finnst það í raun og veru
algerlega fráleitt, segjum ef að þessi
málefni sem kvartað sé yfir séu komin
í viðunandi farveg, að sá samingur
eigi að hafa áhrif á aðra saminga.“
Hannes segir Guðmund Gunnars-
son, formann Rafiðnaðarsambands-
ins, fara með rangt mál í Morgun-
blaðinu í gær þegar hann ræði um
túlkun SA á lágmarkslaunum. Hann
segir að SA hafi aldrei haldið því fram
að til lágmarks-
launa eigi að telja
orlof og bónusa.
„Við höfum sagt
sem svo að lág-
markjörum geti
verið fullnægt
samkvæmt ís-
lenskum lögum
með því að þau
séu samsett úr
fleiri en einni tölu
ef heildarkjörin eru þau sömu eða
hærri. […] Þetta er okkar afstaða og
um þetta er ágreiningur.“
Hann segir að starfsmenn gætu til
að mynda verið með föst mánaðar-
laun fyrir skilgreindan vinnutíma sem
væru jafn há eða hærri en þeir fengju
miðað við tímakaup eða yfirvinnu-
greiðslu með vaktaálagi. „Síðan höf-
um við í öðrum tilvikum haldið því
fram að það sé heimilt að greiða t.d.
fasta greiðslu á mánuði sem megi þá
kalla staðaruppbót eða dagpeninga,
segjum 250 þúsund krónur, og síðan
eitthvert tímakaup sem sé lægra en
virkjanasamningstímakaupið ef, mið-
að við skilgreindan vinnutíma, að
þessi heildarfjárhæð fyrir launatíma-
bilið sé jafnhá eða hærri en sam-
kvæmt virkjunarsamningi.“
Afkastahvetjandi launakerfi
Hannes bendir á að í virkjana-
samningi sé ákvæði um afkastahvetj-
andi launakerfi og um það sé enginn
ágreiningur, hvorki milli SA og
verkalýðshreyfingarinnar né milli
verktakans Impregilo og verkalýðs-
hreyfingarinnar, að það beri að greiða
bónus samkvæmt þessum kafla virkj-
anasamningsins í tilteknum stærri
verkum. Það liggi fyrir að það verði
gert. Um gagnrýni Rafiðnaðarsam-
bands Íslands í tengslum við kjör
starfsmanna við Kárahnjúka á heima-
síðu þess segir Hannes:
„Þessi gagnrýni Guðmundar er í
raun ekki gagnrýni á Samtök at-
vinnulífsins heldur gagnrýni á um-
fjöllun um launaseðil portúgalskra
verkamanna sem Samtök atvinnulífs-
ins hafa ekki fjallað sérstaklega um.“
Hannes segist vona að að þau mál
sem verið hafi til umræðu að undan-
förnu varðandi starfsmannaleigufyr-
irtæki muni leysast á næstu vikum.
Aðstoðarframkvæmdastjóri SA um deiluna við Kárahnjúka
Fráleitt að samningur-
inn hafi víðtækari áhrif
Hannes G.
Sigurðsson