Morgunblaðið - 15.09.2003, Page 15
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 15
ÞAÐ er í sjálfu sér vel hægt að
taka undir með talsmönnum hvers-
dagslegrar meðalhegðunar í Línu
Langsokk. Ef það er rétt að börn eigi
að heyrast en ekki sjást, eins og
barnaverndarforkólfurinn frú
Prússólín heldur fram, er Sigurlína
Rúllugardína vitaskuld ekki í húsum
hæf. En á hitt ber að líta að hún er
réttsýn og heiðarleg, hjálpsöm við
minni máttar, hvort sem það eru
blankir innbrotsþjófar eða sigraðir
kraftajötnar, sjálfstæð, glaðlynd,
frumleg í hugsun, og þó ekki sé allt
satt sem út úr henni kemur, er það
ævinlega fyrst og fremst til að tappa
af óstýrlátu hugmyndafluginu og
krydda tilveruna, aldrei til að
blekkja eða fá sínu framgengt. Og
svo er hún auðvitað skemmtileg svo
af ber. Nýlendína Krúsímunda er
kannski óþolandi barn, en hún er
framúrskarandi manneskja.
Allt þetta er skýrt í uppfærslu
Maríu Reyndal, og svo hitt að öll eig-
um við eitthvað af þessum eiginleik-
um, mismunandi vel földum undir
vana, uppeldi og góðum siðum.
Þannig eru Anna, Tommi og hin
börnin fljót að leysast úr læðingi, en
meira að segja frú Prússólín sleppir
sér (andartak) þegar dansinn dunar.
Oftast er það dans sem losar um
pönkarann í persónunum, aldrei þó
eins skemmtilega og í gersamlega
óborganlegum dansi kennslukon-
unnar. Ef sýningin hefur boðskap til
viðbótar við skemmtilegheitin þá er
hann sá að öll þurfum við að passa
Línurnar okkar, rækta þær og
sleppa þeim lausum sem oftast.
Sýningin ber þessa merki á öllum
póstum. Það er langt síðan ég hef séð
sýningu í íslensku atvinnuleikhúsi
sem er eins við það að fara á líming-
unum af fjöri. Reyndar er ekki laust
við að stundum sé svo mikið í gangi
að aðalatriðin týnist í hamagangin-
um. Fyrir vikið vantaði stundum dá-
lítið upp á óskipta athygli yngstu
kynslóðarinnar. En sýningin er stút-
full af skemmtilegum hugmyndum,
og tilfinningin er að María hafi náð
vel að leysa sköpunarkraft hópsins
úr læðingi. Nánast eina feilnótan í
hugdettunum er að mínu mati upp-
haf sýningarinnar, sem væri ekki
sanngjarnt að ljóstra upp um hvern-
ig er, en ég verð þó að taka fram:
Lína er EKKI göldrótt, hæfileikar
hennar eru ekki yfirnáttúrulegir, og
að gefa það í skyn dregur dálítið nið-
ur í áhrifamættinum af afrekum
hennar og eiginleikum. Sem betur
fer gleymist það fljótt, og um leið og
upphafssöngurinn byrjar eru áhorf-
endur í góðum höndum.
Það var strax ljóst í Nemendaleik-
húsinu í fyrra að mikils var að vænta
af Ilmi Kristjánsdóttur, og hún
springur svo sannarlega út í þessari
frumraun sinni utan veggja skólans.
Geislandi af leikgleði og öryggi held-
ur hún athygli áhorfenda, það er hún
sem öðrum fremur heldur orkustigi
sýningarinnar jafn háu og raun ber
vitni. Líkamsmál skemmtilega brjál-
að og „teiknimyndalegt“. Fleiri eiga
góðan dag. Anna og Tommi eru
ágætlega útfærð af Eddu Björgu
Eyjólfsdóttur og Bergi Þór Ingólfs-
syni, þau náðu jafnvel að vera dálítið
spaugileg á eigin fórsendum, þó prúð
séu. Sigrún Edda Björnsdóttir var
skemmtileg frú Prússólín, og röddin
sem birtist þegar hún missir stjórn á
skapi sínu ansi mögnuð. Hanna
María Karlsdóttir var frábær
kennslukona. Þá mátti ekki á milli
sjá hvorir væru grunnhyggnari og
hlægilegri, Halldór Gylfason og
Gunnar Hansson sem þjófarnir eða
Þór Tulinius og Guðmundur Ólafs-
son sem löggurnar. Allavega áttu
þessa tvær stéttir hvor aðra skilið.
Og hvort sem það var Vaka Dags-
dóttir eða nafna hennar Vigfúsdóttir
sem fór með Hr. Níels á frumsýning-
unni þá var það vel af hendi leyst.
Tónlist er nokkuð plássfrek í verk-
inu, og er ekki nema í meðallagi
skemmtileg, það er ástæða fyrir því
að enginn þekkir nema upphafssöng-
inn.
Flutningur Geirfuglanna er fínn,
en sérkennileg ráðstöfun að hafa
tónlistina á bandi en hljóðfæraleik-
ara á sviðinu að spila með, eða þykj-
ast spila.
Galgopalegur stíll sýningarinnar
finnst mér kalla á hrárri flutning
sem hefði fengist með lifandi undir-
leik, og fáguninni vel fórnandi fyrir
þá orku sem slíkt hefði leyst úr læð-
ingi. Dansar Láru Stefánsdóttur eru
skemmtilegir eins og áður sagði.
Leikmynd Sigurjóns Jóhannssonar
er þénug og búningar hefðbundnir.
Ungfrú Efraímsdóttir Langsokk-
ur er mikil ágætis fyrirmynd fyrir
okkur öll – áminning um að vera
maður sjálfur, lifa lífinu lifandi, vera
almennilegur við náungann og láta
engan eiga neitt inni hjá sér. Lína
Langsokkur er prýðisskemmtun hjá
Leikfélagi Reykjavíkur.
Þorgeir Tryggvason
Pössum Línurnar LEIKLIST Leikfélag Reykavíkur
Höfundur: Astrid Lindgren, leikgerð Ast-
rid Lindgren og Staffan Götestam, þýð-
ing: Þórarinn Eldjárn, leikstjóri: María
Reyndal, dansar: Lára Stefánsdóttir, leik-
mynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson,
lýsing: Elfar Björnsson, tónlist: Georg
Riedel og Geirfuglarnir, tónlistarstjóri:
Þorkell Heiðarsson. Borgarleikhúsinu
14. september 2003.
LÍNA LANGSOKKUR
Morgunblaðið/Kristinn
„Lína Langsokkur er prýðisskemmtun hjá Leikfélagi Reykjavíkur,“ segir í umsögn Þorgeirs Tryggvasonar.