Morgunblaðið - 15.09.2003, Síða 21
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 21
Vinur okkar í yfir 50 ár, Ari Guð-
mundsson, lést að morgni 6. septem-
ber eftir erfið veikindi. Erfitt er að
sætta sig við að slíkar þjáningar séu
lagðar á nokkurn mann, en þá eins og
áður kom fram hinn æðrulausi maður
sem tók örlögum sínum með jafnaðar-
geði.
Aldrei töluðum við um Ara án þess
að um leið kæmi upp nafn Kötlu, eig-
inkonu hans, þau voru sem einn mað-
ur í huga okkar, svo samrýmd voru
þau.
Vinskapur okkar við Ara og Kötlu
hófst þegar þau buðu okkur heim til
sín á Barónsstíg. Þá vorum við á leið á
árshátíð í Landsbankanum. Síðan þá
höfum við átt alveg ótrúlega
skemmtilegar samverustundir.
Ari og Katla áttu alla tíð mjög
glæsilegt heimili, hvort heldur var
litla kjallaraíbúðin þeirra á Baróns-
stíg í húsi foreldra Ara þar sem þau
hófu búskap sinn eða heimilið þeirra í
Garðabæ. Alltaf var yndislegt að
heimsækja þau og streyma nú fram
ljúfar minningar frá okkar löngu
kynnum.
Ari var mikill íþróttamaður. Á unga
aldri var hann þekktur fyrir sundaf-
rek sín og átti hann mörg Íslandsmet.
Síðar varð hann mikill áhugamaður
um golfíþróttina og deildu þau hjónin
því áhugamáli. Bæði eru þau miklir
keppnismenn, eins og sjá má á verð-
launagripum sem þau hafa fengið.
Samstarf okkar Ara í Landsbank-
anum var alla tíð með ágætum. Þegar
við kynntumst starfaði hann í spari-
sjóðsdeild bankans. Síðar starfaði
hann í hinum ýmsu deildum, svo sem í
afurðaeftirlitinu, skipulagsdeild, sem
útibússtjóri á Suðurnesjum og síð-
ustu 20 árin sem framkvæmdastjóri
starfsmannasviðs bankans.
Ari átti mjög auðvelt með að lynda
við fólk, ekki vegna þess að hann væri
alltaf á sama máli og viðmælandi, því
hann lét skoðanir sínar í ljós skýrt og
skorinort. Ég veit að þeir sem áttu
samstarf við Ara fundu að hjálpsam-
ari og ráðabetri mann væri vart að
finna.
Eftir að Ari lét af störfum í Lands-
banka Íslands vegna aldurs gaf hann
sig að listnámi, bæði málaralist og
ekki hvað síst útskurði. Eftir hann
liggja mjög fallegir munir, sem sýna
mikið listfengi og var alveg einstakt
hve góðum tökum hann náði á þessum
listgreinum á svo stuttum tíma.
Eitt af því besta á lífsleiðinni er að
eignast góða vini en þeim mun sárara
að skilja við þá. Nú er komið að leið-
arlokum, daginn er tekið að stytta,
haust á næstu grösum, gróskumikið
sumar að kveðja. Með söknuði kveðj-
um við kæran vin.
Svala og Jóhann.
Ari Guðmundsson, fyrrverandi
starfsmannastjóri Landsbankans og
fyrrverandi formaður Íþróttabanda-
lags Reykjavíkur, er látinn á 76.
aldursári.
Með Ara er genginn einn af for-
ystumönnum íþróttahreyfingarinnar
í Reykjavík um árabil, góður sam-
starfsmaður og félagi sem átti mikinn
þátt í að skapa betri umgjörð um starf
íþróttafélaganna í Reykjavík. Leiðir
okkar Ara lágu saman í stjórn
Íþróttabandalagsins árið 1984. Fram-
undan voru spennandi tímar, miklar
breytingar á starfsemi bandalagsins
og um leið á samskiptunum við
Reykjavíkurborg.
Gott var að eiga Ara að á þessum
árum því hann var óvenju samnings-
lipur þegar þurfti að sætta ólík
sjónarmið og þegar um endurskipu-
lagningu á skrifstofu og starfsemi
bandalagsins var að ræða. Það fór
ekki oft mikið fyrir því sem Ari var að
sinna fyrir ÍBR en aftur á móti lauk
hann þeim verkefnum sem hann tók
að sér þannig að betur varð ekki gert.
Hann var kosinn formaður ÍBR 1988
og sat sem slíkur í sex ár og alls í sam-
tals 14 ár í stjórn bandalagsins. Þar á
undan hafði hann bæði verið formað-
ur Golfklúbbs Reykjavíkur og Sund-
félagsins Ægis. Hann átti því að baki
um 25 ára starf í forystu fyrir íþrótta-
hreyfinguna í Reykjavík.
Þegar Ari tók við formennsku í
ÍBR voru framundan miklar breyt-
ingar á samskiptum Reykjavíkur-
borgar og íþróttahreyfingarinnar.
Sem borgarfulltrúi og um leið í for-
svari fyrir íþróttamál borgarinnar
kom það í minn hlut að gera tillögur
til borgarstjórnar um framtíðarskip-
an mála, bæði hvað varðar uppbygg-
ingu á aðstöðu félaganna á félags-
svæðum þeirra og um leið að semja
tillögur um endurskoðun á rekstrar-
styrkjum borgarinnar til félaganna.
Fyrir utan nánustu samstarfsmenn
mína hjá Reykjavíkurborg var Ari
einn þeirra fáu sem ég leitaði til, sem
varð til þess að hlutur ÍBR í þessari
endurskipulagningu varð stærri en
ella. Þessar breytingar tóku gildi um
1990 og eru enn megingrunnur að
samskiptum milli þessara tveggja að-
ila, bæði hvað varðar rekstrarstyrki
og framkvæmdastyrki frá borginni til
félaganna.
Fáir hafa gert sér grein fyrir því
hversu mikill hlutur Ara var í þeim
miklu breytingum sem þarna voru á
ferðinni. Styrkjakerfið sem var og
það sem við tók er eins og dagur og
nótt, svo mikill er munurinn.
Á yngri árum var Ari mikill íþrótta-
maður, átti fjölda Íslandsmeta í sundi
og tók m.a. þátt í Ólympíuleikunum í
London 1948. Hann var í framvarð-
arsveit íslenskra íþróttamanna sem
skópu „vorið í íþróttunum“ eins og
það er stundum nefnt, en á þessum
árum áttu Íslendingar afburða
íþróttamenn, m.a. í sundi, frjálsum
íþróttum, knattspyrnu og handknatt-
leik svo eitthvað sé nefnt. Að loknum
keppnisferli byrjuðu störfin í fé-
lagsmálunum hjá Sundfélaginu Ægi
og áfram með þeim árangri sem að
framan greinir.
Að leiðarlokum þakka ég góðum
vini og samstarfsmanni öll sporin sem
við tókum á sameiginlegum vettvangi.
Aldrei bar skugga á það samstarf. Ari
Guðmundsson var mikill heiðursmað-
ur, lipur og ráðagóður í öllum sam-
skiptum.
En þegar litið er yfir farinn veg þá
er það eitt öðru fremur, sem ég met
meira en annað af mörgum góðum
kostum í fari Ara, en það var dreng-
skapurinn. Hreinskilni og heiðarleiki
voru alltaf í fararbroddi, eiginleikar
sem ekki eru öllum gefnir. Íþrótta-
hreyfingin í Reykjavík kveður nú
fyrrverandi formann sinn með virð-
ingu og þökk.
Eiginkonu og ástvinum öllum sendi
ég mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Ara Guðmunds-
sonar.
Júlíus Hafstein.
Komið er að kveðjustund. Einn
ágætasti vinur okkar hjóna er fallinn
frá. Hugljúfar eru minningarnar um
samverustundir okkar en samferða-
mennirnir falla nú frá einn af öðrum.
Viðkynning okkar Ernu við þau
hjón Kötlu og Ara hafa staðið í um 40
ár eða frá því að við urðum nágrannar
í Safamýri á árunum l963-4. Ég tel að
það hafi verið mikið lán fyrir okkur að
hafa kynnst þeim hjónum og átt sem
vini síðan.
Þegar litið er yfir farinn veg koma
fram ótal minningar, allar kærar, um
ferðalög jafnt innanlands sem erlend-
is, við golfleik víða um heim, svo og
bridsspilamennsku.
Ari var mikill keppnismaður,
þekktur sem einn af bestu sundmönn-
um landsins á yngri árum, keppti m.a.
á Ólympíuleikum. Einnig var hann
góður golfleikari og laxveiðimaður
„par exellence“.
Fluguhnýting var eitt af mörgum
áhugamálum hans, sumar af flugum
hans voru löxum stórhættulegar, af
því hef ég reynslu.
Ari starfaði mikið við félagsstörf,
sérstaklega fyrir íþróttahreyfinguna,
hann var m.a. í stjórn Golfklúbbs
Reykjavíkur um árabil og formaður
um tíma, þá er uppbygging á Golfvell-
inum í Grafarholti átti sér stað. Marg-
ir ágætir menn komu þar að verki og
þá áttum við Ari þar nokkurt sam-
starf.
Ari vann mestan sinn starfsaldur
hjá Landsbanka Íslands og var far-
sæll í starfi. Á seinni árum notaði Ari
frístundir sínar m.a. til tréskurðar og
málaralistar og bera myndir hans og
tréskurður því fagurt vitni.
Það er söknuður að geta ekki staðið
við hlið þér á 1. teig lengur. Hafðu
þökk fyrir allar samverustundirnar.
Við Erna sendum Kötlu, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum inni-
legar samúðarkveðjur.
Páll Vígkonarson.
Í dag kveðjum við Ara F. Guð-
mundsson. Með Ara er genginn einn
af þessum hornsteinum íþróttahreyf-
ingarinnar, sem gjarnan er talað um á
hátíðarstundum þegar verið er að
fjalla um gildi íþrótta; maður sem
unni íþróttum og lagði sitt af mörkum
til að efla þær. Hann átti glæsilegan
feril innan íþróttahreyfingarinnar,
bæði sem keppnismaður og leiðtogi.
Ari stundaði íþróttir frá tíu ára
aldri eða frá því að Sundhöllin í
Reykjavík var opnuð árið 1937. Ari
var afreksmaður í sundi, einkum í
skriðsundi, og átti fjölda Íslandsmeta.
Hann tók þátt í Ólympíuleikunum í
London 1948 auk þess sem hann tók
þátt í Evrópu- og Norðurlandamót-
um. Ari var mikill keppnismaður,
ekki aðeins í sundlauginni heldur vildi
hann hag félags síns, Sundfélagsins
Ægis, sem mestan. Hann tók þátt í
stjórnunarstörfum í Ægi í fimmtán
ár, var kosinn í stjórn Ægis 18 ára að
aldri og var formaður félagsins um
tveggja ára skeið.
Ari lagði stund á fleiri íþróttir en
þar var einkum um að ræða golf og
brids. Hann spilaði brids á veturna en
þegar sól fór að hækka á lofti dró
hann fram golfkylfurnar. Ari gekk í
Golfklúbb Reykjavíkur og sinnti golf-
íþróttinni af sömu reglusemi og festu
og öðru sem hann tók sér fyrir hend-
ur. Ekki leið á löngu uns hann valdist
til stjórnunarstarfa hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur þar sem hann var for-
maður árin 1976-1978. Einnig sat Ari
í stjórn Golfsambands Íslands um
tíma.
Árið 1980 var Ari kjörinn í stjórn
Íþróttabandalags Reykjavíkur. Hann
sat í stjórn Íþróttabandalagsins í fjór-
tán ár, þar af formaður árin 1988–
1994.
Á formannsárum Ara varð gríðar-
leg breyting á rekstri íþróttabanda-
lagsins. Hann gerði tímamóta-
samning við Reykjavíkurborg þar
sem styrkir til íþróttafélaganna voru
stórauknir. Komið var á nýju kerfi við
styrkveitingar til íþróttafélaganna,
bæði til rekstrar og uppbyggingar, en
að þessu styrktarkerfi býr íþrótta-
hreyfingin enn í dag. Árið 1994 dró
Ari sig í hlé frá störfum innan íþrótta-
hreyfingarinnar eftir fimmtíu ára
starf innan hennar.
Að leiðarlokum kveður íþrótta-
hreyfingin í Reykjavík Ara F. Guð-
mundsson með virðingu og þakkar
honum fyrir óeigingjarnt starf í henn-
ar þágu um leið og við sendum Kötlu,
eiginkonu Ara, börnum og fjölskyldu
innilegar samúðarkveðjur.
F.h. Íþróttabandalags Reykjavík-
ur,
Reynir Ragnarsson og
Sigurgeir Guðmannsson.
Kveðja frá spilafélögum
Er við fréttum um andlát vinar
okkar og félaga, Ara F. Guðmunds-
sonar, setti okkur hljóða. Við vissum
að hann barðist við skæðan sjúkdóm
en að svo stutt væri eftir óraði okkur
ekki fyrir.
Kynni okkar og Ara hófust í
gegnum sundíþróttina fyrir meira en
hálfri öld. Þau kynni urðu að órjúfan-
legri vináttu sem aldrei brast og stað-
ist hefur allt til þessa dags.
Við hófum að spila brids saman árið
1953 og spiluðum saman vikulega alla
vetur allt til ársins 2002. En það var
fleira sem sameinaði okkur. Allir
höfðum við áhuga á veiðiskap og
ótaldar eru þær veiðiferðir, sem við
fórum í saman. Margar gleðistundir
áttum við og makar okkar saman.
Ari var valinn til margra forustu-
starfa, bæði í þágu íþróttahreyfing-
arinnar og einnig á öðrum vettvangi.
Öll þessi störf vann Ari af dugnaði og
kostgæfni.
Ari var mikill fjölskyldumaður.
Hann átti yndislega og glæsilega eig-
inkonu, þar sem Katla Ólafsdóttir
var. Hjónaband þeirra byggðist á
trausti, trúmennsku og vináttu, en
besta vininn áttu þau hvort í öðru.
Börn þeirra, tengdabörn og barna-
börn fóru ekki varhluta af elsku
þeirra og hlýju.
Nú þegar að kveðjustund er komið
sendum við og makar okkar þér,
elsku Katla, og fjölskyldu þinni okkar
innilegustu samúðarkveðjur og biðj-
um góðan Guð að styrkja ykkur í sorg
ykkar.
Kæri vinur, við þökkum þér sam-
fylgdina og allt og allt.
Blessuð sé minning Ara F. Guð-
mundssonar.
Daginn er tekið að stytta, sumrinu
brátt lokið, það minnir á gamla daga,
veiðiferðir á sólbjörtum sumardögum
með föður mínum heitnum. Fátt er
eftirminnilegra fyrir ungan dreng en
veiðiferð með góðum félögum í fallega
veiðiá. Þetta upplifði ég í Vatnsdalsá,
einni fegurstu laxveiðiá landsins. Þar
hitti ég líka Ara fyrst, en þær áttu eft-
ir að verða fleiri veiðiferðirnar sem
við Ari fórum í saman. Ari var meira
en veiðifélagi, hann var einstakur vin-
ur og ljúfmenni og æskuminningarn-
ar úr þessum veiðiferðum eru sem
greyptar í huga minn enn þann dag í
dag.
Það varð mér sannkölluð harma-
fregn að heyra af andláti Ara F. Guð-
mundssonar, af veikindum hans hafði
ég frétt en höggið er ávallt þungt þeg-
ar andlát ber að höndum.
Elsku Katla og börn, ég sendi ykk-
ur öllum hugheilar samúðarkveðjur,
megi góður Guð styrkja ykkur í sorg-
inni. Minningin um góðan dreng lifir
alltaf.
Björgvin V. Björgvinsson.
Minnst er góðs félaga eftir áratuga
samvinnu við bankastörf. Ari Guð-
mundsson vann frá unga aldri við
Landsbankann í Landsbankahúsinu
við Austurstræti, en þar liggja rætur
Seðlabankans sem undirritaður starf-
aði við meginhluta starfsævinnar. Þar
sem bankarnir deildu sameiginlegu
húsnæði leiddi það til mikilla sam-
skipta starfsmanna þeirra.
Ari hóf starfsferil sinn við Lands-
bankann ungur maður og vegna trú-
mennsku sinnar og mannkosta varð
hann á miðjum aldri yfirmaður starfs-
mannamála við bankann og hægri
hönd bankastjórnar um allt þar að
lútandi. Ari mótaði starfssamninga
bankanna með fulltrúum annarra
banka, en þar hafði Landsbankinn
leiðandi hlutverk. Í þessu samstarfi
sem öðru nutu stjórnunarhæfileikar
Ara sín vel, en hann var jafnan rétt-
sýnn og tillögugóður. Með slíka
mannkosti varð hann farsæll í vanda-
sömu og oft vanþakklátu starfi starfs-
mannastjórans.
Ara var margt til lista lagt og ber
þar helst að nefna sundíþróttina.
Hann var einn fremsti sundmaður
landsins um árabil, vann til ótal verð-
launa og hélt merki félags síns, Sund-
félagsins Ægis, hátt á loft.
Þeim fer nú fækkandi hinum sönnu
bankamönnum sem helguðu einum
vinnustað alla sína starfsævi og
starfsorku. Gamlir vinir úr Seðla-
bankanum kveðja góðan félaga með
þakklæti og senda fjölskyldu Ara
innilegar samúðarkveðjur.
Björn Tryggvason.
Ara Friðbjörns Guðmunds-
sonar er fyrst og fremst minnst
sem mesta afreksmanns í hópi
sundmanna á fimmta áratug síð-
astliðinnar aldar og fram á þann
sjötta. Þá voru flestir með tærnar
þar sem hann hafði hælana. Sund-
þjálfunin og keppnisferðir voru
kapítuli út af fyrir sig en hlýjar
voru einnig mótttökurnar og vist-
in góð á æskuheimili hans á Bar-
ónsstígnum.
Við vissum ætíð hvor af öðrum
eftir að lífsbaráttan skildi okkur
að en svo lágu leiðir aftur saman í
spilakúbbi nokkurra Oddfellowa
síðustu árin. Þá eins og fyrr var
Ari hinn trausti félagi, ákveðinn
en fágaður í framkomu, dreng-
lundaður og sannur vinur. Hinstu
kveðju til hans fylgja samúðar-
kveðjur til Kötlu og fjölskyldu
þeirra.
Atli Steinarsson.
HINSTA KVEÐJA
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRGVIN FREDERIKSEN,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ,
föstudaginn 12. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hilmar Björgvinsson, Rannveig Haraldsdóttir,
Birna Björgvinsdóttir, Bjarni Stefánsson,
Friðrik Björgvinsson, Sigrún Valsdóttir,
Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Sigurður Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
FRIÐMEY BENEDIKTSDÓTTIR,
Háaleitisbraut 123,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu föstudaginn
12. september.
Guðmundur F. Jónsson,
Ísleifur H. Guðmundsson,
Jón Guðmundsson, Renate Gudmundsson,
Gunnar B. Guðmundsson,
Guðmundur Chr. Jónsson,
Juliane Gudmundsson.
Ástkær eiginmaður minn,
HARALDUR SIGURÐSSON,
Stífluseli 9,
Reykjavík,
verður jarðsunginn í Bústaðakirkju þriðju-
daginn 16. september og hefst athöfnin
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vildu minnast hans er bent á líknar-
deild Landspítalans Kópavogi.
Fyrir hönd ástvina,
Margrét Margeirsdóttir.