Morgunblaðið - 15.09.2003, Page 22
MINNINGAR
22 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Hörður Jafetssonfæddist á Kot-
strönd í Ölfusi 12.
júní 1932. Hann lést á
krabbameinsdeild
Landspítala – há-
skólasjúkrahúss 4.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Jafet Sigurðs-
son, f. 22.1. 1907, d.
26.2. 1970, og Sigríð-
ur Narfadóttir, f.
29.11. 1897, d. 23.9.
1982. Bróðir Harðar
sammæðra var Narfi
Haraldsson, f. 13.6.
1926, d. 18.12. 1991. Systkini sam-
feðra eru: Rósa, f. 2.12. 1928,
Viktoría, f. 21.3. 1932, d. 28.12.
1998, Halldóra, f. 24.4. 1933,
Bragi, f. 20.3. 1935, Baldur, f.
11.3. 1936, d. 2.11. 1959.
Hörður var í fóstri hjá Arthúri
Guðnasyni og Sigrúnu Árnadótt-
ur á Reyðarfirði frá eins árs aldri
þar til hann var níu ára gamall, en
þá fluttist hann til föðursystur
sinnar Þórunnar Sigurðardóttur
og Sigurðar Gíslasonar manns
hennar í Hafnarfirði þar sem
hann ólst upp síðan. Uppeldissyst-
ur hans eru Sigrún Jonný og Ásta
Sigurðardætur.
Hinn 5.3. 1967
kvæntist Hörður eft-
irlifandi eiginkonu
sinni Önnu Ólöfu Að-
alsteinsdóttur frá
Borgarfirði eystri, f.
11.2. 1939, og
bjuggu þau sér
heimili á Arnar-
hrauni 22 í Hafnar-
firði. Anna er dóttir
hjónanna Aðalsteins
Ólafssonar og Jak-
obínu Björnsdóttur.
Börn Harðar og
Önnu eru: Sigurður
Þór, f. 7.9. 1966,
maki B. Snærún Bragadóttir,
barn Anna Guðlaug; Bjarnþór
Sigvarður, f. 4.1. 1968, maki:
Rósalind Sigurðardóttir, börn:
Andrea Björg og Tanja Rut; Þór-
unn Áslaug, f. 8.7. 1983.
Hörður stundaði nám í barna-
skóla Hafnarfjarðar, síðan í
Flensborg, og lauk kennaraprófi
1954 frá Kennaraskóla Íslands.
Hann var kennari í Höfnum einn
vetur strax að loknu námi en frá
1955 til 1992 var hann kennari í
Lækjarskóla í Hafnarfirði.
Útför Harðar verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku pabbi minn, pabbi sem
hjálpaði mér með fyrstu sporin,
fyrstu orðin, kenndi mér að tala
skýrt og vel. Pabbi sem lék við mig
á daginn, horfði með mér á teikni-
myndir og sá til þess að ég sæi alla
strumpaþættina. Pabbi sem pass-
aði upp á að ég borðaði matinn
minn og fengi ætíð nóg að borða.
Pabbi sem keypti handa mér hjól
og kippti sér ekki upp við það þótt
ég hjólaði strax á sjónvarpið.
Pabbi sem fann alltaf upp á ein-
hverju að gera og kippti sér ekki
upp við mikinn ærslagang í okkur
Helenu.
Pabbi sem byggði sumarbústað
og eyddi með okkur fjölmörgum
sumrum og helgum þar. Pabbi sem
spilaði með mér badminton í sveit-
inni og spilaði á spil. Pabbi sem
gróf allar holurnar fyrir plönturn-
ar, hlóð allar vörðurnar, lagði
göngustíginn í myrki með lugt sér
við hlið og gróf kjallarann af mikl-
um krafti. Pabbi sem stóð úti í
gluggunum og fylgdist með lífinu í
kring. Pabbi sem hafði gaman af
því að sjá fuglana og mýsnar borða
brauðið eða afgangana sem við
gáfum þeim.
Pabbi sem kenndi í Lækjar-
skóla. Pabbi sem hjálpaði mér að
læra að skrifa og lesa með öllum
skemmtilegu stafaköllunum sínum.
Pabbi sem var mér samferða
fyrsta veturinn í skólann og kenndi
mér á tölvur síðar. Pabbi sem
hjálpaði mér við heimalærdóminn,
las yfir ritgerðirnar og bjó til
spurningar fyrir mig úr heilu bók-
unum svo ég væri nú alveg klár
fyrir prófin.
Pabbi sem átti fullt af tölvum og
leyfði mér ósjaldan að leika mér í
bibbanum. Pabbi sem var alltaf að
segja mér frá fráföllnum ættingj-
um svo ég vissi hver ég væri.
Pabbi sem fór ósjaldan í göngutúr
á bílnum!
Pabbi sem sótti mig hingað og
þangað og kippti sér oftast ekki
upp við það þótt hann þyrfti að
sækja mig langar vegalengdir.
Pabbi sem lánaði mér bílinn þegar
ég var komin með próf og sagði
mér til við aksturinn. Pabbi sem
var svo stoltur þegar ég útskrif-
aðist úr Kvennaskólanum í
Reykjavík.
Pabbi sem stóð sig ætíð vel og
kvartaði aldrei þrátt fyrir að vera
mikið veikur.
Pabbi sem ég kveð með miklum
söknuði og þakka fyrir allt sem
hann gerði með mér og fyrir mig.
Þín dóttir,
Þórunn Áslaug.
Elskulegur tengdafaðir minn er
látinn eftir hetjulega og æðrulausa
baráttu við krabbamein. Það var
fyrir rúmum þrettán árum að ég
kom inn í fjölskylduna, er við
Baddi byrjuðum að vera saman.
Tóku þau hjónin Anna og Hörður á
móti mér opnum örmum og hafa
þau ávallt verið mér góðir tengda-
foreldrar.
Okkur Herði kom alltaf mjög vel
saman og þótti mér hann hafa
einkar skemmtilegan húmor. Hann
var alltaf fljótur að sjá spaugilegu
hliðina á öllu sem var að gerast í
kringum okkur og gátum við oft
gantast og hlegið er hann kíkti í
kaffi eða ég til þeirra. Hann gerði
mikið af því, að rétt kíkja í kaffi,
oft til að færa stelpunum sínum
einhvern glaðning, en hann var
mjög gjafmildur maður.
Afahlutverkið fór Herði ákaflega
vel og nutum við og dætur okkar
góðs af. Leituðum við oft til hans
til að passa Andreu og Tönju eða
sækja þær í leikskólann og seinna
í skólann. Honum þótti það ekki
mikið mál að passa barnabörnin
sín og lagði hann sig allan fram við
að leika og stjana við dætur okkar,
oftar en ekki lá hann á gólfinu að
kubba með stelpunum eða eitthvað
því um líkt er við komum að sækja
þær í pössun. Nú munu þessar
stundir vera þeim mjög dýrmætar.
Það var auðséð stoltið í augunum
hans er hann fylgdist með stelp-
unum sínum vaxa og dafna í leik
og skóla.
Elsku Anna, Þórunn, Baddi,
Siggi og fjölskyldan, Guð veri með
okkur í sorginni.
Við sjáum, að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóstið þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stef.)
Elsku Hörður, Guð geymi þig og
varðveiti
Þín tengdadóttir
Rósalind.
Elsku afi. Við afastelpurnar þín-
ar viljum þakka þér fyrir hvað þú
varst góður afi.
Þegar við komum í heimsókn á
Arnarhraunið varst þú alltaf til í
að leika við okkur, en þá lagðist þú
gjarnan með okkur á gólfið í stof-
unni og fórst að kubba, púsla eða
eitthvað annað sem okkur langaði
til að gera. Ef við vildum teikna
galdraðir þú fram pappír og alls
konar liti eða þá gamla stimpla
sem þú áttir einhvers staðar í
kassa. Svo var sest við sjónvarpið
og þá voru dregnar fram teikni-
myndir sem þú hafðir keypt til að
lofa okkur að horfa á með þér. Þá
var gott að skríða í fangið á afa og
kúra.
Oft sóttir þú okkur ýmist á leik-
skólann eða í skólann og passaðir
okkur þegar pabbi og mamma
voru að vinna. Þá var nú gaman
hjá okkur.
Þú gafst okkur alls konar hluti,
jafnt stóra sem smáa, sem voru vel
þegnir.
Stundum fengum við að fara
með ykkur ömmu í sumarbústað-
inn í sveitinni þar sem við bröll-
uðum ýmislegt.
Við eigum góðar minningar um
þig sem við geymum alltaf í huga
okkar.
Bless, elsku afi, og þökk fyrir
allt.
Andrea Björg, Tanja Rut
og Anna Guðlaug.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minnig er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Ég vil votta elsku Önnu, Þór-
unni, Sigga, Badda, Snærúnu,
Rósulind, Andreu, Tanju og Önnu
Guðlaugu og öðrum aðstandendum
mína dýpstu samúð. Megi góður
guð styrkja ykkur í sorg ykkar.
Megi minning um góðan mann
lifa.
Helena Guðmundsdóttir.
Kveðja frá samkennurum
í Lækjarskóla
Góður drengur er fallinn frá
langt um aldur fram eftir langvar-
andi baráttu við illvígan sjúkdóm.
Hörður hóf störf við Barnaskóla
Hafnarfjarðar sem síðar varð
Lækjarskóli haustið 1955 og
kenndi þar til vors 1992.
Kynni okkar Harðar hófust á
haustdögum 1959 þegar ég byrjaði
að kenna við Barnaskólann í Hafn-
arfirði (Lækjarskóla). Mér varð
fljótlega ljóst að Hörður var nokk-
uð sérstakur maður. Skoðanir hans
og viðhorf voru ekki alltaf þau
sömu og allur almenningur hafði á
hlutunum og hann var óragur að
fylgja þeim eftir. Þetta var ein-
kenni Harðar alla hans ævi. Segja
má að hann hafi „rekist“ heldur
illa í hópi. Þetta er ekki sagt hon-
um til hnjóðs heldur til að hnykkja
á því að því hve sjálfstæður hann
var. Oft og einatt fór hann sínar
eigin leiðir í kennslunni ef honum
hugnaðist ekki það sem aðrir
kennarar höfðu ákveðið. Fyrstu
tuttugu til þrjátíu árin var hann
umsjónarkennari bekkja og oft fór
það svo að hann tók að sér „erfiða“
bekki og fórst það vel úr hendi.
Var eftir því tekið hve margir af
nemendum Harðar voru félagslega
sinnaðir og urðu oftar en ekki for-
ystumenn í félagslífi skólans. Það
má m.a. þakka viðhorfi Harðar til
uppeldis og kennslu. Síðustu árin
sinnti Hörður sérkennslu og tók að
sér nemendur sem áttu erfitt upp-
dráttar í almennum bekkjum og
gerði oft kraftaverk með þeim. Ég
veit að margir þessara nemenda
hugsa hlýtt til Harðar í dag og
þakka honum alla þá alúð, vinsemd
og umhyggju sem hann sýndi þeim
í Lækjarskóla. Hörður tileinkaði
sér fljótt tölvutæknina og sá fyrr
en margir aðrir kennarar öll þau
tækifæri sem þessi tækni hefur
upp á að bjóða í skólastarfi, enda
fór það svo að hann var fenginn til
þess að kenna yngstu nemendum
skólans á tölvur.
Fyrir hönd samkennara Harðar
vil ég þakka honum samfylgdina
og fyrir störf hans í Lækjarskóla.
Minning um góðan dreng mun
lifa í hugum okkar.
Fjölskyldu Harðar sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Björn Ólafsson skólastjóri.
Þau urðu sterk vinaböndin sem
urðu til hjá okkur bekkjarsystk-
inunum í Kennaraskólanum fyrir
rúmri hálfri öld. Hugurinn var ör,
samkenndin sterk, hjartað heitt og
vináttan einlæg. Þetta var kraft-
mikill hópur, fullur bjartsýni og
baráttuvilja, tilbúinn til átaka og
ákveðinn í að láta gott af sér leiða,
skila framtíðinni gagnsömu verki.
Þannig var staðan hjá okkur
bekkjarsystkinunum þegar við luk-
um kennaraprófi vorið 1954. Síðan
hefur mikið vatn runnið til sjávar.
Við vorum 29 í bekknum, full af
lífsorku. Við áttum okkur vonir og
drauma. Lífið var að byrja. Í vit-
und okkar var langur ævidagur
framundan.
En stundum kveldar fyrr en var-
ir. Leiðir skilja, ævi er á enda.
Vinir standa sorgbitnir og undr-
andi. Tíminn er fljótur að líða.
Kveðjustund kemur að óvörum.
Tólf bekkjarfélagar hafa kvatt
þennan heim. Sautján situm við
eftir og syrgjum gengna vini í
skini góðra og dýrmætra minn-
inga.
Nú síðast er það Hörður Jafets-
son, sem stigið hefur yfir landa-
mæri lífs og dauða. Hann andaðist
4. september síðastliðinn.
Hörður nafni minn Jafetsson var
hljóðlátur maður og hjartahlýr.
Hann var góður félagi, traustur og
trúr í öllu sem hann tók sér fyrir
hendur. Í hópi bekkjarfélaganna
var hann ávallt á sínum stað og
það var gott að vita af honum þar.
Hann var traustur hlekkur í
vinakeðjunni, hæglátur, oft með
glampa í auga og kímni í svip.
Heill og sannur í orði og verki. En
hann var ekki allra og fór stundum
sínar eigin leiðir. Kom þá glöggt í
ljós, að þar sem Hörður fór var
einstaklingur á ferð með sterkan
sjálfstæðan vilja.
Í kennslunni reyndist Hörður
Jafetsson þeim nemendum best,
sem höllum fæti stóðu í námi eða
áttu einhverra hluta vegna erfitt
félagslega. Hann reyndist þeim
ráðhollur og gefandi kennari. Oft
myndaðist milli þeirra og hans
traust og trúnaðartengsl, grunnur
sem er nauðsynlegur ef árangur á
að nást.
Stuðningskennsla lét honum því
vel og varð æ stærri hluti af
kennslu hans eftir því sem árin
liðu. Þessir nemendur, margir
hverjir, muna Hörð Jafetsson og
hugsa til hans með hlýju, vinsemd
og þakklæti.
Hinn 5. mars 1967 kvæntist
Hörður Önnu Ólöfu Aðalsteins-
dóttur. Þau hjónin eignuðust þrjú
börn, Sigurð Þór, Bjarnþór Sig-
varð og Þórunni Áslaugu. Hjóna-
bandið varð gott og ástríkt, gjöfult
og traust. Hörður Jafetsson hafði
mikið að gefa ástvinum sínum. Svo
komu barnabörnin, þrír geislandi
telpuangar til sögunnar. Þeir voru
ófáir sólargeislarnir sem fóru á
milli Harðar afa og þeirra og lýstu
upp tilveruna.
Fjölskylda Harðar hefur mikið
átt, mikið misst og hefur margs að
sakna. En hún er líka rík af góðum
minningum frá liðnum árum og
dögum. Sársauki sorgar dvín en
minningar um góðan eiginmann og
ástríkan föður og afa lifa og lýsa
framtíðina.
Við bekkjarsystkin Harðar Jaf-
etssonar kveðjum hann með þökk í
huga og þökkum honum samfylgd-
ina. Við sendum Önnu, börnunum,
tengdadætrum og afabörnunum
innilegar samúðarkveðjur. Guð
blessi ykkur öll.
F.h. bekkjarfélagsins Neista,
Hörður Zóphaníasson.
HÖRÐUR
JAFETSSON
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og systur,
MARGRÉTAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Kársnesbraut 31,
Kópavogi.
Magnús Daníel Ingólfsson,
Guðjón Magnússon, Bjarnheiður Jana Guðmundsdóttir,
Inga María Magnúsdóttir, Magnús B. Sveinsson,
Halldóra Magnúsdóttir, Magnús Gunnarsson
barnabörn og systur.
Móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
DAGBJÖRT SIGURJÓNSDÓTTIR,
sem andaðist þriðjudaginn 9. september sl.
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mið-
vikudaginn 17. september nk. kl. 13.30.
Sigurður Guðlaugsson, Sveinbjörg Kristinsdóttir,
Þórarinn Guðlaugsson, Þóra Davíðsdóttir,
Agnar Guðlaugsson, Kristbjörg Kristjánsdóttir,
Guðmundur Rúnar Guðlaugsson,
Guðrún Ólafsdóttir, Ásbjörn Vigfússon,
Svanhildur Guðmundsdóttir, Ólafur Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.