Morgunblaðið - 02.11.2003, Blaðsíða 15
Morgunblaðið í 90 ár 1913 ∼ 2003 ∼ 15
miðið er að eiga jafnan 3ja til 4ra vikna
birgðir á lager.
Í árslok 2002 var gengið frá samn-
ingum við Ferag í Sviss um kaup á pökk-
unarvélum.
„Það hafa orðið gífurlegar framfarir í
innskotsbúnaði og búnaði til að vinda
upp og geyma blöð sem síðan fara í inn-
skot í aðalblaðið. Þá fáum við líka búnað
til að hreinskera blöð ásamt öðrum nýj-
ungum.
Flutningur fer með færiböndum á
milli véla á fullri ferð.
Heimilisföng á blaðapakkana eru
skrifuð út í tölvu og fara sjálfvirkt á
pakkana og tölvulesari skilar hverjum
pakka í réttan útkeyrslubíl.
Við setjum þarna líka böggunarpressu
sem pressar allan pappírsúrgang. Þegar
við förum að skera utan af blöðum þarf
að vera hægt að hemja afskurðinn og auk
hans verður allur annar pappírs-
úrgangur settur í þessa pressu og fluttur
út til endurvinnslu.“
Kostnaðinn við þennan prentvéla- og
pökkunarbúnað segir Örn vera um hálf-
an annan milljarð.
„Á síðasta ári kepptu Íslandsbanki og
Landsbankinn um fjármögnun þessara
framkvæmda og voru fjármögn-
unarsamningar undirritaðir við Íslands-
banka.
Samhliða því fengum við Ráðgjöf og
efnahagsspár ehf. til að annast fjárstýr-
ingu.“
Þegar prentun hefst í nýju prentsmiðj-
unni, verða prentun og pökkun aftur á
öðrum stað en aðrar deildir blaðsins.
Þegar Morgunblaðið var í Aðalstræti og
prentvélin í Skeifunni og síðar Kringl-
unni, voru plöturnar fluttar með leigubíl-
um í milli. Nú mun þeirra ekki þurfa við,
því ljósleiðaratenging verður á milli
Kringlunnar og Hádegismóa.
Prentvélin í Kringlunni og pökk-
unarvélar hafa verið seldar erlendis, en
ekki er ákveðið hvað gert verður við
prentsmiðjuhúsið í Kringlunni.
Samkvæmt samningum á allt að vera
tilbúið í nýja prentsmiðjuhúsinu 29. sept-
ember 2004.
„Menn voru svona að grínast með það
hvort við vildum fá klukkan 9 eða 10 inn í
samninginn.
En við ákváðum að vera ekki með
neina smámunasemi og láta bara daginn
ráða!“
Prentsmiðjuhúsið við Hádegismóa er þriðja byggingin sem
Árvakur hf. reisir yfir prentsmiðju sína en prentvélin þar
verður sú fjórða í eigu félagsins. Fyrstu þrjá áratugina var
Morgunblaðið sett og prentað í Ísafoldarprentsmiðju; á vélar
sem Ísafold átti.
Fyrsta prentvélin, sem blaðið var prentað í, var flatpressa,
keypt til landsins 1896, og fyrst og fremst ætluð til bóka-
prentunar; prentaði á arkir sem síðan voru unnar í sérstakri
brotvél. Þegar blaðið var stækkað í átta síður haustið 1927
þurfti til þess tvær prentvélar en ganghraði þeirra var um
1.500 eintök á klukkustund.
Útgáfufélag Morgunblaðsins, Árvakur, keypti sína fyrstu
prentvél 1943; frá Bandaríkjunum og var henni komið fyrir í
Ísafoldarsalnum við Vallarstræti. Þar hafði rýmkast um þeg-
ar Ísafoldarprentsmiðja flutti í nýtt hús við Þingholtsstræti.
Samvinna Árvakurs og Ísafoldarprentsmiðju um prentun
Morgunblaðsins hélzt til 1. júlí 1948 að Árvakur tók við allri
prentvinnslu blaðsins.
Bandaríska vélin var rúlluprentvél af tegundinni Goss.
Hún gat prentað 16 síðna blað og afkastaði 3.500 eintökum á
klukkustund.
Árið 1948 keypti Árvakur byggingalóð; Aðalstræti 6 og
þar byggði félagið hús í samstarfi við Vélsmiðjuna Héðin. Um
líkt leyti og lóðin var keypt keypti Árvakur nýja rúlluprent-
vél frá Gossverksmiðjunni í Chicago og kom vélin til landsins
1949. Það var þó ekki fyrr en vorið 1956 að Morgunblaðið
flutti alla starfsemi sína í nýja húsið; Aðalstræti 6, Morg-
unblaðshúsið. Þar var þá tekin í notkun prentvélin sem hafði
beðið í kössum í sjö ár eftir að fá fast þak yfir höfuðið. Hún
gat prentað 24 síður í einu og afkastaði 11 þúsund eintökum
á klukkustund.
Árið 1973 tók Morgunblaðið offsetprenttæknina í sína
þjónustu með nýrri prentvél; Harris-Cotrell, sem gat prentað
48 síður í einu, en 32 síður ef um fjögurra lita blað var að
ræða. Prentvélin afkastaði 25 þúsund eintökum á tímann.
Með offsettækninni varð prentsmiðjan aftur viðskila við aðra
starfsemi blaðsins en prentvélin og afgreiðslan voru til húsa í
leiguhúsnæði að Skeifunni 19.
Fjórða prentvél Morgunblaðsins var tekin í notkun sum-
arið 1984 í nýju 2.500 fermetra prenthúsi að Kringlunni 1.
Það prenthús var fyrsti áfangi nýs Morgunblaðshúss og aðr-
ar deildir blaðsins fluttu í sinn hluta á páskum 1993.
Prentvélin í Kringlunni er af tegundinni Koenig und
Bauer; Express 60 og getur prentað 128 síður í einu; fyrst að-
eins 16 síður í fjórum litum og 16 síður með einum aukalit en
með viðbótum getur hún nú prentað 64 síður í lit. Afköstin
eru 30 þúsund eintök á tímann en geta farið upp í 60 þúsund
ef blaðstærðin er takmörkuð við 64 síður. Skipti á papp-
írsrúllum fara fram á meðan vélin er á fullri ferð og allar
stillingar eru fjarstýrðar frá sérstöku stjórnborði.
Auk prentvélarinnar hýsir prenthúsið pappírsgeymslu; þá
fyrstu sem Morgunblaðið á, og pökkunarsal.
Þriðja húsið og fjórða pressan