Morgunblaðið - 03.11.2003, Blaðsíða 46
46 C MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HLÍÐASMÁRI - KÓP.
Sérlega vandað verslunar- og skrifstofuhúsnæði á
albesta stað höfuðborgarsvæðisins. Húsið er sam-
tals um 4.000 fm, fyrstu 4 hæðirnar um 900 fm og
efsta hæð 540 fm. Skiptanlegt í smærri einingar.
Frábær útsýnisstaður.
GARÐABÆR - MIÐBÆR
SALA/LEIGA
Stórglæsilegt samtals 532 fm verslunar og/eða
skrifstofuhúsnæði. Grunnflötur neðri hæðar er 425
og efri hæð 107 fm. Hús í algjörum sérflokki, bjart
og opið. Húsið er skiptanlegt í smærri einingar.
Fullbúið húsnæði miklir möguleikar hér. Sjá nánar á
:www.gardatorg.is
SUMARHÚSALAÓÐIR - NÝTT
HVAMMUR Í SKORRADAL
35 nýjar lóðir að koma í sölu en um er að ræða
ótrúlega fallegar sumarhúsalóðir í landi Hvamms í
Skorradal. Lóðirnar eru margar skógivaxnar en
Hvammur hefur verið í umsjá Skógræktarinnar í 40
ár. Þeir sem vilja það besta verða að skoða þetta.
Algjört ævintýri. Sjá myndir á: www.gardatorg.is.
Hringdu strax og pantaðu skipulagsgögn, við svör-
um alltaf símanum (545 0800), alltaf.
HLYNSALIR 1-3, MEÐ BÍLA-
GEYMSLU
Húsið hlaut verðlaun fyrir hönnun og frágang. Sér-
lega glæsileg 118 fm 4ra herb. íbúðir. Íbúðirnar
skilast fullbúnar án gólfefna, lóð og sameign fullfrá-
gengin. Allar íbúðir hafa sérinngang af svölum.
Gott útsýni. Góðar suðursvalir eða sérgarður. Stutt í
alla þjónustu, verslun, golf, sund o.fl.
GARÐATORG - GARÐABÆ
Til sölu tvö samliggjandi bil, samtals 136,2 fm. Hús-
næðið liggur að Garðatorgi með stórum gluggum.
Innkeyrsluhurð. Bjart og gott húsnæði fyrir t.d.
verslun og/eða heildsölu.
SKEIÐARÁS - GARÐABÆ
Til sölu tvö bil á jarðhæð í nýlegu og góðu húsi.
Annað bilið er 375 fm og hitt er 445 fm. Hvort um
sig hefur tvær innkeyrsluhurðir. Hér má gera góð
kaup á góðum kjörum.
GOÐHEIMAR
Mjög góð og mikið endurnýjuð 129 fm auk 25,4 fm
bílskúr. Sameigninl. þvottahús í kjallara. Falleg eign
á þessum vinsæla stað. Verð 17,8 millj.
KRÓKAMÝRI - GARÐABÆ
Nýkomin í einkasölu mjög góð 92 fm íbúð á 1. hæð
í litlu frábærlega staðsettu fjölbýli. Stutt í skóla og
íþróttir. Verð kr. 14 millj.
KÖTLUFELL - BREIÐH.
Góð 68 fm íbúð í mjög góðu fjölbýli. Íbúðin er á 2.
hæð. Góðar geymslur og sameign. Verð 8,9 millj.
KÖTLUFELL Mjög góð 3ja herbergja íbúð 67,8
fm. Nýtt parket á stofu og herbergjum og flísar í
eldhúsi. Húsið nýlega klætt að utan.
AUSTURSTÖRND - M/BÍLSKÝLI -
LYFTA
Mjög snyrtileg og góð 74 fm íb. á 3. hæð auk stæði
í bílageymslu. Frábært útsýni. Þvottahús á hæðinni.
Góð sameign. Verið velkomin. Verð 11 millj.
HRÍSMÓAR - GBÆ.
Mjög björt og góð 2ja herb. íbúð á 1. hæð. Parket á
gólfum, góðar svalir. Verð 11,5 millj.
INDRIÐASTAÐIR - SKORRADAL
Mjög glæsilegt 93 fm nýtt hús. 3 svefnherb., stór
stofa. Fullbúið hús án gólfefna. Stór og mikil ver-
önd. Útsýni yfir Skorradalsvatn. „Skorradalurinn er
æði“ Verð 13,7 millj.
BORGAFJÖRÐUR
Glæslegt 85 fm nýtt hús í landi Fljótstungu í Hvítár-
síðuhreppi (rétt hjá Húsafelli). 4 svefnherb., rúmgóð
stofa, vandaðar innréttingar. Panelklæddur að inn-
an og viðhaldsfrí klæðning að utan. rafmagnshitun.
Skipti koma til greina á um 100 fm atvinnuhús-
næði. Verð 8 millj.
BIRKIHOLT - ÁLFTANESI
Glæsilegar 76,3 fm íbúðir á frábærum stað á nesinu. Þetta eru stórar tveggja herbergja íbúðir af
vönduðustu gerð. Aðeins 4 íbúðir eftir og þeir sem eru fljótir til geta enn valið gerð innréttinga.
Stutt í alla skóla og þjónustu.
Verð aðeins 10,9 millj.
Dæmi : Verð 10.900.000,-
Húsbréf 7.630.000,-
Viðbótarlán 2.100.000,-
Eftirst. 1.090.000,-
BIRKIHOLT - ÁLFTANESI
LOKSINS NÝ RAÐHÚS Á ÁLFTANESI
Glæsileg fjögur 180 fm raðhús misvæðis á Álftanesinu, Birkiholt 7, 9, 11 & 13. Húsin sem eru á
tveimur hæðum skilast fullbúin að utan en fokheld að innan (hægt að fá lengra komin). Tvennar
góðar svalir. Leikskóli, skóli, íþróttahús, sundlaug og verslun rétt við hendina. Verð kr. 15,5 - 16,2
millj.
HAUKANES VIÐ SJÓINN
Glæsilegt 401 fm tvílyft einbýli á Arnarnesinu. Hús-
ið stendur á stórri sjávarlóð með útsýni yfir Kópa-
vog. Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja glæsieign á
frábærum stað við sjóinn.
EINBÝLI Í GARÐABÆ
Eigum á skrá nokkur góð einbýli í Garðabæ sem við
getum ekki auglýst beint að svo stöddu. Upplýsing-
ar aðeins gefnar á skrifstofu Garðatorgs.
ÁSBÚÐ GARÐABÆ - ENDAHÚS
Mjög snyrtilegt og gott 166 fm endaraðhús. Fjögur
svefnherb. Innb. bílskúr. Gott skipulag. Bjart og vel
staðsett hús á rólegum og veðursælum stað. Verð
21,5 millj.
BIRKIÁS - GARÐABÆ
Glæsilegt 205 fm tvílyft raðhús á þessum frábæra út-
sýnisstað í nýjasta byggingahverfi Garðabæjar, Ásun-
um. 4 stór svefnherb. Aðalíbúðin öll á götuhæð (efri)
og tvö stór herbergi á neðri hæð. Verð 27,9 millj.
ÖGURÁS - GARÐABÆ
Glæsilegt 146 fm raðhús í Ásahverfinu í Garðabæ.
3 svefnherb. fallegar innréttingar og gólfefni. Byggt
2001. Verð 23,5 millj.
TJALDANES - GBÆ
Glæsilegt samtals 300 fm einbýli á frábærum stað
á Arnarnesinu. Þar af er bílskúr um 60 fm. Húsið
sem er byggt 1988 hefur verið mikið endurnýjað.
Aðalíbúð hússins er á efri hæð (götuhæð) og á
neðri hæð er m.a. lítil séríbúð (allt nýtt). Mjög góð-
ur bílskúr. Frábært útsýni til suðurs. Glæsilegur
verðlaunagarður. Verð 41 millj.
Reykjavík. Húsakaup er með í sölu
neðri sérhæð að Barðavogi, 104
Reykjavík. Íbúðin er í steinhúsi
sem byggt var árið 1957, íbúðin er
81,8 fermetri, henni fylgir bílskúr
sem er 28,6 fermetrar og reistur
var 1976.
„Um er að ræða mjög bjarta og
rúmgóða miðhæð í góðu steyptu
húsi. Búið er að endurnýja dren- og
skolplagnir,“ sagði Sigrún Þor-
grímsdóttir hjá Húsakaupum.
„Komið er inn í sameiginlega for-
stofu með hengi. Þaðan er gengið
inn á gang, úr honum er gengt í
aðrar vistarverur íbúðarinnar. Stof-
urnar eru tvær og samliggjandi,
báðar góðar en önnur er nýtt sem
hjónaherbergi nú. Þar eru lausir
skápar. Suðursvalir eru útfrá setu-
stofu. Gott svefnherbergi er með
gluggum á tvo vegu og góðum
skápum. Eldhúsið er bjart og gott
með góðri viðarinnréttingu og borð-
krók. Baðherbergið er flísalagt í
hólf og gólf með keri og glugga. Ut-
angengt er í snyrtilegt þvottahús.
Lítil geymsla er uppi en svo fylgir
íbúðinni mjög góður frístandandi
bílskúr með hita og rafmagni. Gólf-
efni í íbúðinni eru flísar á forstofu
og baði, spónaparket á hjónaher-
bergi en ljóst parket á öðrum her-
bergjum. Ásett verð er 13,9 millj.
kr.“
Barðavogur 42
Barðavogur 42, en þar eru Húsakaup með til sölu íbúð sem er 81,8 fermetrar ásamt bílskúr sem er 28,6 fermetrar. Ásett verð eignarinnar er 13,9 millj. kr.