Morgunblaðið - 03.11.2003, Blaðsíða 14
14 C MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fífusel - björt, falleg og rúmgóð - 4ra
herb. íbúð á 3. hæð. Suðvestursvalir. Íbúðin
skiptist í gott hol, 3 svefnherbergi, stofu,
eldhús, baðherb. og þvottahús. Hjónaher-
bergi með nýjum fataskápum og nýju park-
eti á gólfi. Parket á stofu og holi. Flísalagðar
svalir. Falleg eign Áhv, 4.7 m. Verð 12.7 m.
Svarthamrar Góð íbúð með sérinngangi á
annarri hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin er 106,0
fm. Komið er inn í forstofu, með skáp og
flísum á gólfi. Parket á stofu. Eldhúsið er
rúmgott með góðum borðkrók. Svalir eru að
hluta til yfirbyggðar og þar er gólf flísalagt.
Mjög rúmgóð íbúð og björt. Verð 13,7 millj.
Urðarstígur Vorum að fá í einkasölu 2ja
herbergja séreign á Urðarstíg. Með húsinu
er fylgieign 27,9 fm en húsið sjálft er 37,5
fm. Húsið skiptist í stofu, herbergi, salerni
og eldhús ásamt fylgieign. Skemmtileg
staðsetning í hjarta borgarinnar. Eignin
þarfnast standsetningar. Verð 9,9 millj.
Hringbraut Glæsileg og mikið endurnýjuð
2ja herb. íbúð í góðu fjölbýli á þessum sívin-
sæla stað. Parketlagt hol. Allt nýtt í eldhúsi.
Stofan er parketlögð með útgangi út á góð-
ar suðursvalir. Svefnherbergið parketlagt og
nýr skápur. Baðherbergið er flísalagt, sturt-
uklefi, ný innrétting. Glæsileg eign. Verð
11,9 millj.
Engihjalli 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í
lyftuhúsi. Gengið upp nokkrar tröppur.
Íbúðin skiptist í forstofu með parketi. Sér
sjónvarpshol. Eldhús með upprunalegri
innréttingu. Stofa með parketi. Baðher-
bergi flísalagt. Tvö svefnherbergi með
skápum og viðargólfum. Þvottahús á stiga-
gangi með tækjum. Sérgeymsla fylgir íbúð-
inni. Snyrtileg sameign. Húsið hefur verið
tekið í gegn að utan. Verð 11,9 millj.
Lautasmári Um er að ræða 3ja herbergja
íbúð á þriðju hæð. Hol með góðum skáp-
um úr beiki. Rúmgott hjónaherbergi með
stórum skápum úr beiki sem og barnaher-
bergi. Snyrting með flísum. Eldhús með
ljósri eldhúsinnréttingu með beikiköntum.
Inn af eldhúsi er þvottahús. Rúmgóð og
björt stofa með svölum í vestur. Þetta er
björt og mjög snyrtileg íbúð í góðu hverfi
þar sem leikskóli, skóli, verslanir og öll önn-
ur þjónusta er innan seilingar. Verð 12,9 m.
Kríuhólar Glæsileg 3ja-4ja herbergja íbúð í
litlu fjölbýli. Íbúðin er öll mikið endurnýjuð
með parketi á gólfum, fallegum innrétting-
um og flísalögðu baði með nuddbaðkari.
Eign sem vert er að skoða.Á eigninni hvíla
7.4 millj. Verð 12,5 millj.
Sveighús
Stórglæsilegt einbýlishús á tveimur
hæðum (þremur pöllum). Hellulagt
bílaplan, holtagrjót, verönd með heit-
um potti og gróður umlykur húsið á
alla vegu. Eign á frábærum stað þar
sem öll þjónusta er innan seilingar.
Sjón er sögu ríkari. Áhv. 6,8 millj.
Verð 31,9 millj.
Byggðarendi
Glæsilegt 234,5 fm einbýlishús á
tveimur hæðum á vinsælum stað í
rólegum botnlanga með fallegu út-
sýni yfir sjóinn og Elliðaárdalinn auk
25,3 fm bílskúrs. EIGN Í SÉRFLOKKI.
Verð tilboð
Suðurhús
Stórglæsilegt einbýlishús, 299,2 fm
ásamt ca 50 fm aukarými á frábær-
um stað í Grafarvogi. Húsið stendur
á jaðri óbyggðs svæðis og er útsýnið
óviðjafnanlegt til austurs og vesturs.
Um er að ræða skemmtilegt skipulag
þar sem forstofa, borðstofa, stofa,
eldhús og sólstofa eru á efri hæðinni ásamt bílskúr sem er innréttaður sem
íbúð. Á neðri hæð er síðan stórt baðherbergi, og a.m.k. 6 herbergi þar með
talinn tvö herbergi í ósamþykktu rými. Húsið þarfnast einhverrar stands-
etningar. Verð 35,9 millj.
Lindarberg - Hafnarf.
Glæsilegt 206,4 fermetra parhús á
tveimur hæðum með innbyggðum
bílskúr, vel staðsett, fallegt útsýni,
góð staðsetning í Hafnarfirði. Gólfefni
eru náttúrusteinn og massíft merbau-
parket. Glæsilegar sérsmíðaðar inn-
réttingar. Hellulagt bílaplan ásamt
glæsilegum garði. Verð 27,9 millj.
Þorláksgeisli
Stórglæsilegt einbýlishús á tveimur
hæðum á frábærum útsýnisstað rétt
hjá golfvellinum. Húsið skilast í nú-
verandi ástandi þ.e. fokhelt að innan
og ómúrað að utan. Nánari uppl. á
skrifstofunni.
Grænlandsleið
Glæsilegar efri og neðri sérhæðir til
sölu á frábærum stað í Grafarholti.
Húsin skilast fullbúin að utan, hraun-
uð en ómáluð. Lóð verður grófjöfnuð.
efri hæð er 111 fm en sú neðri 117,4
fm. Verð frá 17,4 millj.
Vantar í Grafarvogi
Vantar lítið sérbýli í Grafarvogi fyrir
ákveðinn kaupanda verð frá 15-25 millj.
Grænlandsleið
Stórglæsileg raðhús á tveimur hæð-
um, 215 fm að stærð auk 21 fm auk-
arýmis á neðri hæð. Raðhúsin af-
hendast fokheld að innan en fullbúin
að utan, hraunuð, með hvítmáluðum
gluggum og hurðum. Lóð er grófjöfn-
uð. Húsin eru sérlega björt og bjóða
upp á skemmtilega innanhússhönn-
un. Sjón er sögu ríkari. Verð 16,5 m.
Reykjavík. Eignamiðlun er með í
sölu núna einbýlishús að Þjórsárgötu
6, 101 Reykjavík. Um er að ræða
timburhús á steinsteyptum grunni,
byggt árið 1934. Það er 207 fermetrar
og því fylgir rösklega 20 fermetra bíl-
skúr og mjög stór garður, en húsið
stendur á eignarlóð.
„Þetta er fallegt og hlýlegt hús sem
töluvert hefur verið endurnýjað og er
á mjög góðum stað,“ sagði Magnea
Sverrisdóttir hjá Eignamiðlun.
„Komið er inn í forstofu, þaðan
sem liggur fallegur og breiður stigi
upp á loft og annar niður í kjallara. Á
aðalhæð er gengið inn í lítinn gang og
úr honum inn í stóra og bjarta stofu
og borðstofu. Í stofunni er stór og
myndarlegur arinn. Úr stofu er gengt
út á verönd og út í garð. Á aðalhæð-
inni er ennfremur eldhús og her-
bergi. Á efri hæð eru tvö herbergi og
stórt baðherbergi og geymsluris er
þar yfir. Í kjallara er tveggja her-
bergja íbúð með sér inngangi og
þvottahús. Upprunalegar gólffjalir
eru á gólfum.
Garðurinn er sem fyrr sagði mjög
stór og snýr í suður. Ásett verð er 27
millj. kr.“
Þjórsárgata 6
Þjórsárgata 6 er til sölu hjá Eignamiðlun, þetta er 207 fermetra hús með aukaíbúð í kjallara. Ásett verð er 27 millj. kr.