Morgunblaðið - 10.11.2003, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2003 C 47
Fjöldi kaupenda á skrá -
Átt þú réttu eignina?
Óskum eftir öllum
gerðum eigna.
Verðmetum samdægurs.
Byggðarendi - einbýli Sérlega
vandað og glæsilegt 234 fm tvílyft einbýlis-
hús auk 25 fm bílskúrs. Húsið er mjög mikið
endurnýjað að innan. Ný eldhúsinnrétting.
Góð stofa, sjónvarpsherbergi. Tvö nýlega
flísalögð baðherbergi. Nýlegt eikarparket.
Arinn. Sauna. Gróinn garður, glæsilegt út-
sýni. Frábær staðsetning. Eign í algerum
sérflokki.
Strandgata Hafnarfj.
Falleg 113 fm neðri sérhæð í þríbýlishúsi.
Stór stofa, borðstofa og þrjú svefnherbergi.
Eldhús með „sixties“ innréttingu. Suðursval-
ir. Útsýni yfir Hafnarfjarðarhöfn. Hús talsvert
endurnýjað. Áhv. 6,5 millj. húsbréf. Verð
13,9 millj.
Sólheimar
Vorum að fá í sölu mjög skemmtilega og vel
skipulagða 4ra herb. 90 fm íbúð á 1. hæð í
sex íbúða húsi. Stórar saml. stofur með
suðursvölum. Tvö svefnherbergi. Eldhús og
bað endurnýjað. Skipti á minni eign í hverf-
inu möguleg. Verð 13,8 millj.
Seilugrandi
4ra herb. 87 fm íbúð á efstu hæð í góðu fjöl-
býli. Íbúðin er á tveimur hæðum, stofa, eld-
hús, svefnherb. og baðherb. á neðri hæð.
Uppi eru tvö svefnherb. og hol, leikloft er yf-
ir herbergjum. Stórar suðursvalir. Glæsilegt
útsýni til suðurs. Stæði í bílageymslu. Áhv.
2,5 millj. Bygg.sj. rík. Verð 13,8 millj.
Sólvallagata Glæsileg 127 fm hæð í
nýlegu þríbýlishúsi. Stórar stofa, 3 svefnher-
bergi. Suðursvalir. Opið bílskýli. Einstaklega
skemmtilega frágenginn garður sem snýr í
suður. Eign í sérflokki.
Ránargata
Glæsileg 6 herb. 140 fm íbúð á tveimur
hæðum með sérinngangi á þessum vinsæla
stað. Á hæðinni eru saml. stofur, glæsilegt
eldhús með massífum innréttingum frá Ha-
bitat og SMEG tækjum úr stáli og baðher-
bergi með hornbaðkari. Á efri hæð eru 4
svefnherbergi. Íbúðin var öll endurnýjuð að
innan á síðasta ári. Gler, gluggar, vatns- og
raflagnir endurn. Verð 19,8 millj.
Háaleitisbraut
Mjög góð 100 fm 4ra herbergja endaíbúð á
þriðju hæð í góðu fjölbýlishúsi. Aðeins ein
íbúð á hverri hæð. Stórar samliggjandi stof-
ur með eikarparketi. Svalir í suðvestur með
fallegu útsýni. Tvö góð svefnherbergi. Flísa-
lagt baðherbergi með nýlegri innréttingu.
Stórt eldhús með borðkrók. Gler endurnýj-
að. Laus í desember
Eskihlíð Einstaklega falleg 125 fm mikið
endurnýjuð íbúð á 4. hæð í góðu fjölbýlis-
húsi með glæsilegu útsýni yfir borgina. Stór-
ar saml. stofur, suðvestursvalir. 2 góð
svefnherbergi. Rúmgott eldhús. Aukaher-
bergi í kjallara með aðgangi að snyrtingu.
Gler endurnýjað. Nýlegt eikarparket á gólf-
um. Húsið nýtekið í gegn að utan.
Framnesvegur Mjög góð fimm her-
bergja 122 fm íbúð á 1. hæð. Hol með fata-
hengi. Stórar samliggjandi stofur í suður,
svalir út af borðstofu. Eldhús, massíf eikar-
innrétting, gluggi og góður borðkrókur. 3
rúmgóð svefnherbergi með góðum skápum.
Baðherbergi nýlega tekið í gegn, flísalagt
með góðri innréttingu. Hús nýlega lagfært
og málað. Stutt í alla þjónustu, skóla og
verslun. Verð 15,9 millj. Áhv. 6,3 millj.
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir,
löggiltur fasteignasali.
Ægisíða - einbýli
Glæsilegt og mikið endurnýjað 275 fm ein-
býlishús, tvær hæðir og kjallari á þessum
eftirsótta stað. Þrjár samliggjandi stofur, 3
stór svefnherbergi, baðherbergi, og gesta-
snyrting. Massift eikarparket á gólfum, góðar
innréttingar, gifslistar og rósettur í loftum.
Tvennar svalir. Geymsluloft yfir húsinu. Í
kjallara er sér 2ja herbergja íbúð, þvottahús
o.fl. 58 fm bílskúr. Fallegur garður, skjólgóð-
ur hellulagður bakgarður. 12 fm garðhús.
Góð staðsetning, fallegt útsýni. Eign í sér-
flokki.
Mávahraun - einbýli
Fallegt og vel skipulagt 275,1 fm tvílyft ein-
býlishús auk 33,5 fm bílskúrs. Húsið skiptist
í stórar stofur með arni, 4 svefnherb. eldh.
baðherb. snyrt. og þvottahús. Í kjallara eru
tvö herb. og baðherb. með sérinng. Að auki
stór og nýlega innréttuð stúdíóíbúð með sér-
inngangi í kjallara. Húsið er byggt á 767 fm
hraunlóð sem snýr í suður. Ýmsir möguleik-
ar. Skipti á minni eign möguleg.
Til sölu eða leigu í Hveragerði
Til sölu eða leigu stórt einbýlishús í Hvera-
gerði alls um 230 fm á einni hæð. Þar er
m.a. mjög björt vinnustofa 77 fm, íbúð með
sólskála 154 fm Mjög fallega staðsett á jað-
arsvæði með stórum garði og útsýni. Mikil
lofthæð, listaverk á 2 baðherbergjum og í
eldhúsi. Nánari uppl. á skrifstofu (og myndir
á www.islandia.is/jboga undir tenglinum stu-
dio-gallery)
Skólavörðustígur
Skemmtilegt og nýlega endurnýjað 125 fm
húsnæði á götuhæð sem skiptist í verslun-
arhúsnæði og íbúð með sérinngangi. Arinn,
flísar á gólfum. Verslunarleyfi fyrir hendi.
Verðtilboð
Auðbrekka Björt 140 fm hæð (3. hæð),
sem í dag er nýtt sem 4ra herb. íbúð. Hús-
næðið hentar einnig sem skrifstofuhúsnæði
eða fyrir listamann. Stórir gluggar til suðurs
og norðurs. Gott útsýni. Laus strax. Verð
12,5 millj.
Listhúsið Glæsilegt verslunar- og þjón-
ustuhúsnæði á tveimur hæðum. Bjart og að-
gengilegt. Ýmsir möguleikar á nýtingu.
Næg bílastæði. Laust strax. Verð 8,7 millj.
Auðbrekka
Glæsilegt 152 fm atvinnuhúsnæði á götu-
hæð. Allt nýlega endurnýjað. Rúmgóð mót-
taka. 5-6 skrifstofuherb. Parket á gólfum.
Hentar undir léttan iðn., skrifstofur, heild-
verslun o.fl. Góð aðkoma og bílastæði.
Laust fljótlega.
Nýbýlavegur
Vorum að fá í sölu sérstaklega góða 85 fm
íbúð á 2. hæð ásamt 21 fm bílskúr. Stofa,
parket, vestursvalir. Eldhús, flísar, nýlegar
innréttingar. Tvö svefnherbergi, parket.
Rúmgott baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf.
Mjög góður bílskúr með rafmagni og hita.
Verð 14,8 millj.
Suðurgata
Vorum að fá í sölu glæsilega 90 fm íbúð á 3.
hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu. Stórar
stofur og fallegt eldhús, flísar á gólfi. Vestur-
svalir þar útaf. Vandað eldhús. Tvö góð
svefnherbergi. Baðherbergi flísalagt í hólf og
gólf. Sérinngangur af svölum. Stæði í bíla-
geymslu. Laus strax. Verð 16,9 miilj.
Barmahlíð - risíbúð Ein af þessum
vinsælu risíbúðum í Hlíðunum. Íbúðin er 58
fm og skiptist í gott eldhús, 2 svefnherb.
stofu og baðherb. Getur losnað fljótlega.
Verð 10,2 milj.
Sólvallagata Vorum að fá í sölu mjög
fallega risíbúð með glæsilegu útsýni yfir
borgina. Eldhús, hvítar viðarinnréttingar.
Björt og rúmgóð stofa. Svefnherbergi, góðir
skápar, útgengt á vestursvalir. Parket á allri
íbúð. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf.
Eign sem er vert að skoða. Verð 10,7 m.
Jöklasel
Sérlega falleg 70 fm íbúð á 1. hæð í litlu fjöl-
býlishúsi á rólegum stað. Stór stofa með
suðursvölum. Parket. Þvottaherb. í íbúð.
Hagstæð Íbúðasjóðslán áhv.
Kötlufell
Mjög góð 69 fm íbúð á 3. hæð í fjölbhúsi.
Rúmgóð stofa með yfirbyggðum suðvestur-
svölum. Blokk nýklædd að utan. Fallegt út-
sýni. Sérmerkt bílastæði. Verð 8,5 millj.
Gaulverjabæjarhreppur - Fasteignamiðstöðin er með í
sölu núna jörðina Syðri-Gegnishóla í Gaulverjabæjar-
hreppi. Um er að ræða 170 hektara bújörð með tvílyftu
íbúðarhúsi, steinsteyptu, sem byggt var 1973 og er það
277,8 fermetrar. Einnig eru á jörðinni útihús af ýmsu
tagi.
„Syðri-Gegnishólar eru ágæt bújörð með mikla rækt-
unarmöguleika í viðbót við tún sem er um 40 hektarar,
hér er um að ræða bújörð með allri áhöfn og framleiðslu-
rétti á góðum stað á Suðurlandi,“ sagði Magnús
Leopoldsson hjá Fasteignamiðstöðinni.
„Girðingar eru flestar í lagi. Í íbúðarhúsi er íbúðin uppi
en niðri eru geymslur og bílskúr, rafmagnskynding er í
húsinu. Kalt vatn kemur frá vatnsveitu sveitarinnar.
Fjósið er frá 1958, þar er mjaltakerfi. Áburðargeymsla
er undir fjósinu. Hlöðu við fjósið er búið að breyta í hjarð-
hús. Geymsla er undir fjósi einnig.
Vélageymsla, byggð árið 2000, er 200 fermetrar og auk
þess er á jörðinni 12 hesta hesthús frá sama tíma. Jörðin
selst með bústofni, u.þ.b. 25 mjólkandi kúm og 25 geld-
neytum á ýmsum aldri, sem og 7 nautkálfum. Vélar fylgja
einnig til rekstrar, flestar þeirra eru nýlegar eða nýjar og
í góðu standi og umhirðu. Fullvirðisréttur í mjólk fylgir
einnig – nú tæplega 124.000 lítrar.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Fasteignamið-
stöðvar. Ásett verð á jörðina með öllu er 65 millj. kr.“
Syðri-Gegnishólar í Gaulverjabæjarhreppi eru til sölu hjá Fasteignamiðstöðinni. Þetta er 170 hektara bújörð með áhöfn og fullvirðisrétti. Ásett verð 65 millj. kr.
Syðri-Gegnishólar