Morgunblaðið - 13.11.2003, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2003 B 11
NFRÉTTIR Einu gildir hversu flung sending flín er, DHL mun koma henni hratt á áfangasta›. fia› sem kom okkur á toppinn í alfljó›legum hra›flutningum skilar
bæ›i skjölum flínum og tollskyldum vörusendingum hratt á lei›arenda.Alfljó›legt dreifikerfi okkar gerir okkur kleift a› bjó›a flér heilsteypta fljónustu um
allan heim. Í lofti og á jör›u ni›ri.Veldu flví DHL fyrir fyrsta flokks flutningsfljónustu. Kíktu á www.dhl.is e›a hringdu í síma 535 1100.
Meiri flutningsgeta fyrir sendingar flínar.
Allar nánari upplýsingar veitir söludeild ÍAV í síma 530 4200
ÍAV - Íslenskir aðalverktakar hf.
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík,
sími 530 4200, www.iav.is
Til sölu í Borgartúni
Á sérlega góðum stað við Borgartún 25 í Reykjavík
er til sölu glæsilegt skrifstofuhúsnæði. Húsið er í
byggingu og er á átta hæðum samtals um 6.500
fermetrar að stærð. Húsinu verður skilað
fullfrágengnu að utan með fullfrágenginni lóð. Að
innan verður húsinu skilað óinnréttuðu en sameign
fullbúin. Hægt er að fá húsnæðið lengra komið.
SAMSKIP eru að hasla sér völl í
flugfrakt á alþjóðamarkaði og hafa
opnað skrifstofu á Schiphol-flugvelli
í Amsterdam.
Rekstur skrifstofunnar á Schip-
hol-flugvelli heyrir undir Samskip
BV, dótturfyrirtæki Samskipa í
Rotterdam. Hefur Hollendingurinn
Edwin Bastemejer, sem hefur starf-
að í mörg ár hjá ítölsku flutninga-
miðluninni Mezario, verið ráðinn til
að stýra starfseminni.
„Opnun skrifstofunnar á Schiphol
er bara fyrsta skrefið okkar inn á
þennan markað,“ segir Björn Ein-
arsson, framkvæmdastjóri Sam-
skipa BV, í fréttatilkynningu. „Nú
getum við boðið viðskiptavinum okk-
ar hér á meginlandi Evrópu heild-
arlausnir í flutningum á þeirra
markaðssvæði auk þess sem starf-
semin á Schiphol-flugvelli fellur vel
að allri annarri flutningaþjónustu
Samskipa,“ að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Samskipum.
Samskip
með skrif-
stofu á
Schiphol
Bílasmáauglýsingar
með mynd
995 kr.
fyrir áskrifendurbílar
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing frá Aco-
Tæknivali:
„Eins og fram kemur í frétt í
Morgunblaðinu 11. nóvember beinir
erlent stórfyrirtæki, Apple Com-
puter Inc., nú kröftum sínum að Ís-
landi með það fyrir augum að útrýma
samkeppni og skapa þannig einok-
unarstöðu á markaðnum. Reynslan
margsannar að einokun vinnur gegn
hagsmunum íslenskra neytenda og
leiðir til hærra vöruverðs.
Réttur til að
íslenska hugbúnað
Í fyrsta lagi hefur Ríkissaksóknari
eftir kæru Apple Computer Inc. lagt
fyrir ríkislögreglustjóra að hefja
rannsókn á meintum höfundarrétt-
arbrotum Aco-Tæknivals hf. Sam-
kvæmt kærunni á Aco-Tæknival að
hafa staðið fyrir dreifingu á ólög-
mætri útgáfu af svokölluðum stað-
færsluhugbúnaði við Macintosh-tölv-
ur, en um er að ræða hugbúnað sem
íslenskar notendaumhverfi í Apple-
tölvum. Aco-Tæknival er þessu al-
gerlega ósammála og telur sig hafa
verið í fullum rétti til að íslenska not-
endaumhverfið, auk þess sem ís-
lenskun hugbúnaðar er í samræmi
við áherslur íslenskra yfirvalda. Aco-
Tæknival mun fylgja rétti sínum og
viðskiptavina sinna fast eftir í þeim
farvegi sem málið nú er.
Réttur yfir skráðu léni
Í öðru lagi hefur Samkeppnisráð
bannað Aco-Tæknivali alla notkun
lénsins apple.is, sem Aco-Tæknival
hefur átt árum saman, og leggur fyr-
ir félagið að afskrá lénið innan
tveggja vikna. Bannið kemur í kjöl-
far kvörtunar Apple Computer Inc.
25. júlí sl, en áður hafði nefnd sú, sem
er stjórn Internet á Íslandi hf. til
ráðuneytis um skráningar á lénum
.is, hafnað beiðni Apple Computer
Inc. um að umskrá lénið „apple.is“ af
nafni AcoTæknivals á þeim grunni
að slíkt væri utan valdsviðs nefnd-
arinnar. Það er sorglegt að verndari
hagsmuna neytenda, Samkeppnis-
stofnun, sé notuð til þess að bregða
fæti fyrir virka samkeppni á mark-
aðnum, því að viðkomandi lén hefur
að sjálfsögðu fest sig í sessi sem mik-
ilvægur þáttur í markaðsstarfi Aco-
Tæknivals.
Frelsi til að gera
hagstæð innkaup
Í þriðja lagi rekur Apple Computer
Inc. nú dómsmál á hendur Aco-
Tæknivali hf. vegna innflutnings
Aco-Tæknivals á Apple-vörum frá
Bandaríkjunum annars vegar og
hins vegar skaðabótamál vegna inn-
flutningsins. Þetta eru dapurleg tíð-
indi fyrir íslenska tölvunotendur
sem hafa notið þess að verð á Apple-
vörum hefur farið lækkandi með
virkri samkeppni á undanförnum
mánuðum. Þar vegur þyngst að Aco-
Tæknivali hefur tekist að gera hag-
stæð innkaup í Bandaríkjunum og
lækka þannig verð til neytenda, en
nú á greinilega að setja undir þann
„leka“.
Aðgerðir, sem miða að því að
hindra virka samkeppni á tölvu-
markaði, eru í hróplegu ósamræmi
við þá sigra sem unnist hafa í neyt-
endamálum undanfarin ár og birtast
meðal annars í lagaumhverfi innan
EES/ESB,“ að því er fram kemur í
yfirlýsingu frá ATV.
Yfirlýsing
frá Aco-Tæknivali