Morgunblaðið - 13.11.2003, Page 15
Til sölu Skeifan 3, 108 Reykjavík
Guðmundur Valtýsson
Sími 865 3022,
gudmundur@remax.is
Heimilisfang: Skeifan 3
Stærð eignar: 377,2 fm
Afhendingartími: Laus
Verð: 28,5 millj.
Vel staðsett iðnaðar- og verslunar-
húsnæði í endahúsi í Skeifunni sem
hefur gott auglýsingagildi. Húsnæðið
er á jarðhæð að stærð 254 fm og 2.
hæð, 123,2 fm að stærð, alls 377,2
fm. Jarðhæðin hefur alla tíð verið nýtt
sem iðnaðar- og lagerhúsnæði en á
henni eru mjög góðir gluggar og stór
innkeyrsluhurð. Efri hæðin er með
sérinngangi og hefur verið nýtt sem
skrifstofur. Jarðhæðin hentar sér-
staklega vel fyrir verslun og þjónustu
eða iðnað. Einingin selst í einu lagi.
Nánari upplýsingar gefur sölufull-
trúi Remax Búa, Guðmundur Val-
týsson, í gsm 865 3022.
Elías H. Ólafsson
lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN BÚI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2003 B 15
NFRÉTTIR HAGNAÐUR svissneska bankans
UBS var 1.673 milljónir svissneskra
franka, um 94 milljarðar króna, á
þriðja fjórðungi ársins. Í fréttatil-
kynningu vegna uppgjörs bankans er
haft eftir forstjóra hans að fjórðung-
urinn hafi verið sá besti í þrjú ár og
allar deildir hafi skilað betri afkomu
en í fyrra. Financial Times hefur eftir
forstjóranum að góður árangur nú sé
skýrt merki um að slæmar markaðs-
aðstæður séu að baki. Fjöldi starfs-
manna hefur engu að síður dregist
saman um 4% frá áramótum og var
rúmlega 66 þúsund í lok september.
Í fréttatilkynningu bankans segir
einnig að án afskriftar viðskiptavild-
ar hafi hagnaðurinn numið jafnvirði
109 milljarða króna, sem sé 53%
aukning frá sama fjórðungi í fyrra og
2% meira en á öðrum fjórðungi þessa
árs.
Kostnaðarhlutfall bankans, hlutfall
rekstrargjalda af rekstrartekjum,
var 72,2% ef afskrift viðskiptavildar
er undanskilin og hefur kostnaðar-
hlutfallið ekki verið lægra í þrjú ár.
Góður
hagnaður
hjá UBS
MARGRÉT Sæmundsdóttir, sem
stundaði meistaranám í viðskipta-
stjórnun, MBA, við Edinborgarhá-
skóla og Margrét Harðardóttir sem
stundaði meistaranám í viðskipta-
fræði við Háskóla Íslands hlutu
námsstyrki fjármálaráðuneytisins í
ár. Fengu þær 250 þúsund króna
styrk hvor um sig.
Fjármálaráðuneytið hefur um
nokkurra ára skeið veitt styrk/
viðurkenningu vegna lokaverkefnis
á meistarastigi í hagfræði eða við-
skiptafræði.
Viðurkenningarnar í ár eru veitt-
ar fyrir verkefni sem unnin eru á
skólaárinu 2002/2003. Skilyrði fyrir
viðurkenningu er að viðfangsefnið
sé á sviði efnahags- eða fjármála hjá
hinu opinbera, að því er segir í til-
kynningu frá fjármálaráðuneytinu.
Meistararitgerð Margrétar Harð-
ardóttur fjallar um árangursstjórn-
un og stefnumiðað árangursmat í
opinberri stjórnsýslu þar sem
Reykjavíkurborg er tekin sem
dæmi.
Ritgerð Margrétar Sæmunds-
dóttur fjallar hins vegar um kenn-
ingu Michaels E. Porter um demanta
og þyrpingu, sem m.a. fjallar mikið
um hlutverk ríkisins og hvernig ríki
getur stutt við fyrirtæki og bætt
samkeppnisstöðu sína á alþjóðlegum
markaði og þar með aukið hagvöxt í
landinu, og skoðar hvort sú kenning
eigi við um smáríki eins og Ísland.
Fjármála-
ráðuneytið
veitir styrki
Margrét Sæmundsdóttir, Geir H. Haarde og Margrét Harðardóttir.
♦ ♦ ♦
Vátryggingafélag Íslands, Ármúla 3, 108 Reykjavík, sími 560 5060, www.vis.is
þar sem tryggingar
snúast um fólk
VÍS býður fyrirtækjum og einstaklingum
með atvinnurekstur samsetta vátryggingar-
vernd. Þarfir fyrirtækja eru breytilegar og
með fyrirtækjatryggingum VÍS velja
fyrirtæki sér vernd sem sniðin er að þeirra
þörfum.
Þjónustufulltrúar, sérhæfðir í fyrirtækjatrygg-
ingum, annast fyrirtækin sem tryggja hjá VÍS
og aðstoða við val á þeirri vernd sem hæfir
viðkomandi rekstri.
Hringdu í síma 560 5060 og kannaðu hvað við
getum gert fyrir fyrirtækið þitt eða sendu
fyrirspurnir á upplysingar@vis.is
Fyrirtækjatryggingar VÍS tryggja öruggara
starfsumhverfi.
Fyrirtækjatryggingar
VÍS eru sérsniðnar að
þínum atvinnurekstri
F
í
t
o
n
F
I
0
0
8
2
5
1