Vísir - 31.10.1980, Síða 1

Vísir - 31.10.1980, Síða 1
Föstudagur 31. október 1980, 255. tbl. 70. árg. HðrO gagnrýni Sslensku útflutningsmiöstðövarinnar: „SÖLUSAMTÖKIN BEITA HðTUNUM OG ÞNNGUNUM 99 ,,Ég hef áþreifanleg dæmi um öll þessi atriði, sem hægt er að benda á, ef til þess kemur”, sagði Óttar Yngvason, fram- kvæmdastjöri islensku utflutn- ingsmiðstöðvarinnar, i samtali við blaðamann Visis I morgun, en óttar lagði fram þungar ásakanir á hendur stóru sölu- samtakanna i útflutningi sjáv- arafurða, á námsstefnu Stjörn- unarfélagsins i gær. Óttar sagði, að reynt heföi „verið að beita erlenda kaup- endur hotunum til þess að fæla þá frá viöskiptum við aðila utan stóru sölusamtakanna hér á landi. Þegar þessar hótanir hafa ekki dugað, hefur verið reynt að egna fyrir erlenda kaupendur með hagstæðari við- skiptakjörum og hagstæðara verði. Skipafélög hafa verið þvinguð til að taka ekki vörur til flutn- ings og ekki eru nema svo sem 2-3 ár síöan minna varð á bandarisku hringalögin til að fá islenskt skipafélag til aö taka vörur til flutnings á Bandarikja- markað. Framleiðendum er hótað og reynt að beita þá sektum, ef þeir leyfa sér að láta aðra en stóru sölusamtökin selja fyrir sig — jafnvel þótt þau hafi ekki getað selt. Reynt hefur verið að beita stjórnmálamenn þrýstingi og þvingunum, ráöherra og rikis- stjórnir, til þess að bregöa fæti fyrir sölu annarra aöila en „hinna stóru”. Umbúðaafgreiðslu til fram- leiðenda hefur verið lokað og hvers konar þjónustu hætt. Jafnvel hefur verið reynt aö beita áhrifum i gegnum einn stærsta viðskiptabanka lands- ins”. Visirhafði i morgun samband viðEyjólf Isfeld Eyjólfsson, for- stjóra Sölumiöstöðvar hrað- frystihúsanna, en hann vildi ekkert um málið segja. — P.M. Vlsir hefur harðsnúið liö blaöbera á Akureyrl, sem bjöða Akureyrarblað Vlsls, ásamt Helgarblaðinu, fyrir 300 kr. I hverju húsi á Akurevri á morgun. jBf j í ÍW, / JKmS [ f " IJ 1 WM/m \\ \ feiás ^jKbBm |ij:l ■5 -'l t . 1, f ly Visir 64 síöur á morgun: AKureyrar- blaö fylgir Helgarblaöínu Visir verður 64 siður á laugar- daginn, i tveimur helgarblöðum og eipu Akureyrarblaöi, sem er 24 siöur. Útbreiðsla Visis hefur löngum verið meö miklum ágætum á Akure.yri og hefur aukist á undan- förnum mánuöum. Siðan i vor hefur Visir verið meö fastráðinn blaöamann, Gisla Sigurgeirsson, staðsettan á Akureyri, sem les- endur hafa séð á efni þaöan. Til- gangurinn með Akureyrarblaðinu er aö gefa ör'.itla mynd af bæjar- lifinu á Akureyri, auk þess sem Visir kynnir sig og sina á Akur- eyri. Meðal efnis í blaðinu má nefna viðtal við Jón Hlöðver Askelsson, skólastjóra Tónlistarskólans, frá- sögn af hringborðinu á„Teriunni”, viðtal viö Pálma i blaðavagnin- um, viðtal við Benedikt ólafsson og Mariu Pétursdóttur og snjó- korn aö norðan, svo aö nokkuð sé nefnt. Flugleiðamálið hjá flárhags- og viðskipta- nefnd Alpingis: VM EH8IHH SEM VILDI AFRAMHALD a fluginu? - Flugleiöir segja ekki ég og steingrímur segir bað sama „Við munum í dag senda Flugleiðum skriflegar fyrir- spurnir í dag þar sem viö mun- um meðal annars biðja um sundurliðaða rekstraráætlun fyrir Atlantshafsflugið og spyrja forsvarsmenn fyrir- tækisins, hverja þeir telji vera ábyrga fyrir áframhaldandi flugi, auk ýmislegs til viðbótar vegna þessara 12 milljón dollara rlkisábyrgðar,” sagði Ólafur Ragnar Grimsson al- þingismaður I samtali við Visi I morgun. Fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar Alþingis — en þar er Ólafur formaður, hélt þrjá fundi I gær um Flugleiðafrumvarpiö ogkomu meöal annarra Sigurð- ur Helgason forstjóri og eftir- litsmennrfkisins meöfélaginu á fund nefndarinnar. Sú spurning hefur vaknað, hver þaö sé, sem hafi beöið um, aö áframhald yrði á fluginu milli Luxemborg- ar og Bandarikjanna og mun nefndin leggja áherslu á að fá þetta á hreint. „Við reyndum aö ganga á Sig- urð Helgason i gær um þaö, hvern hann teldi ábyrgan fyrir áframhaldandi flugi og það var alveg ljóst, að hann færöist und- an þvi að vera ábyrgur. Stein- grfmur Hermannsson lýsti þvi yfir á Alþingi fyrir þremur dög- um, að rikisstjórnin hefði aldrei sett fram ósk um áframhald flugsins. Þaö eina, sem stjórnin hefði gert, væri að veita ákveöna fyrirgreiöslu, ef flug- inu yröi haldið áfram,” sagði Ólafur Ragnar Grimsson. Hann sagði ennfremur, aö þaö yrði að liggja ljóst fyrir, hver vildi lýsa sig ábyrgah fyrirflugi þessu og Steingrimur Her- mannsson hefði óskað að mæta á fundi nefndarinnar, sem hófst klukkan 10 i morgun. Nefndin mun óska eftir þvi við Flugleiðir að fyrirtækið sendi svör við spurningum hennar strax eftir helgi. 1 skýrslu samgönguráðherra um Flugleiðir, sem lögö var fram á Alþingi, segir orðrétt um framhald Atlantshafsflugsins á einum staö: ...,,var rikisstjórn- in sammála um það, að tilraun bæri að gera til þess að halda Noröur-Atlantshafsfluginu áfram fyrst um sinn.” Þetta var i framhaldi af ákvörðun Flugleiða að hætta þessu flugi frá 1. nóvember, þrátt fyrir boö Luxemborgara um 90 milljdn franka aöstoö.—SG i

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.