Vísir - 31.10.1980, Blaðsíða 3
Föstudagur 31. október 1980
3
VÍSIR
Úlsvar á teklur barna tellt nlður I Mosfeiissvell
Fylgja onnur svellar-
félög nvf fordæmi?
Fara önnur sveitarfélög að
dæmi Mosfellssveitar og fella
niður útsvör þau, sem nýlega
voru lögð á börn á aldrinum
14—16 ára?
Þessu velta menn fyrir sér
eftir að hreppsnefnd
Mosfellshrepps tók einróma
ákvörðunum það i fyrradag, að
útsvarið yrði fellt niður. Var sú
ákvörðun tekin á þeirri
forsendu, að álagningin væri
svo seint á ferðinni, og hún hefði
komið bæði börnum og foreldr-
um i opna skjöldu.
Visir leitaði til forseta bæjar-
stjórna i nokkrum sveitarfélög-
um og spurði hvort niðurfelling
„barnaútsvaranna” hefði kom-
ið til tals hjá þeim.
Jón Sveinsson, forseti bæjar-
stjórnar i Garðabæ: .
„Persónulega finnst mér
þetta vera góður hlutur hjá
s j á 1 f s t æ ð i s m ö n n u m i
Mosfellssveit, en ég get ekkert
sagt fyrir hönd bæjarstjórnar-
innar, þar sem hún hefur ekki
rætt málið. Fljótt á litið finnst
mér rétt aö gera þetta, og ég á
von á þvi að málið verði rætt i
bæjarstjórn”.
Rannveig Guðmundsdóttir,
forseti bæjarstjórnar í Kópa-
vogi:
„Þetta hefur ekkert komið á
dagskrá hjá okkur og ég veit
ekki hvort bæjarstjórn komi til
með að fjalla um það. Ef kemur
á daginn að þarna sé um ein-
hverja skattahækkun að ræða
frá þvi sem orðið hefði sam-
kvæmt gamla kerfinu finnst
mér sjálfsagt að taka þaö upp.
Sjálf er ég hlynnt þvi að krakkar
læri, að hluti þeirra tekna sem
aflað er fer i skatta, og að ekki
sé hægt að eyða öllu vinnutekj-
unum”.
Magnús Erlendsson, forseti
bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi:
„Málið hefur ekki komið upp i
bæjarstjórninni hjá okkur, en
við munum ábyggilega skoða
það þvi ég er þeirrar skoðunar,
að þessi álagning sé altof seint á
ferðinni. Ég vil einnig benda á,
að við á Seltjarnarnesi erum nú
þegar langt fyrir neðan
nágrannasveitarfélögin
varðandi skattheimtu, — út-
svörin hjá okkur eru 17% lægri
en i Reykjavik og Kópavogi og
við veitum 25% afslátt á fast-
eignagjöldum”.
Stefán Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar i Hafnarfirði:
„Þetta er þeirra mál hvað
þeir gera i Mosfellssveit, en
þetta hefur ekkert verið rætt hér
hjá okkur. Ég fæ ekki séð á
hvaða grundvelli ætti að fella
þetta niður, — þetta er bara pip
oghræðsla. Ég séekki ástæðu til
þess að segja Visi hvað mðr
finnst persónulega um málið, ég
segi mina skoðun á sinum stað
og sinum tima”.
Freyr ófeigsson, forseti
bæjarstjórnar á Akureyri:
„Ég skal ekkert um það segja
hvort þetta verður rætt i bæjar-
stjórninni, en það hefur ekki
verið gert ennþá. Sjálfur get ég
ekki séð, að það sé neinn hagur i
þvi fyrir foreldra að tekjur
barna séu lagðar ofan á þeirri
eigin tekjur og fá þetta þá i
hæsta skattstiga. Hins vegar
fynndist mér að sumu leyti við-
kunnanlegra, að skatturinn yrði
lagður á foreldrana, en þá i
þeim skattstiga sem börnin
hefðu annars lent i”.
— P.M.
óveniu-
líllll hafls
Hafisrannsóknadeild Veður-
stofu Islands mun eins og i fyrra-
vetur láta fjölmiðlum i té upplýs-
ingar mánaðarlega um hafisinn i
íslandshafi, en svo hefur verið
nefnt hafsvæðið milli Islands,
Grænlands og Jan Mayen. Kortin
eru gerð eftir veðurtunglmynd-
um, athugunum sem landhelgis-
verðir gera i gæsluflugi og til
kynningum sjófarenda um hafis i
nánd.
Hafis við Grænland er minnstur
i september og var i sumar vel
sjófært inn i hinn mikla fjörð,
Scoresbysund og is óvenjulitill
enn norðar. 1 október hefur sem
vænta má stór svæði lagt suður
með austurströnd Grænlands, en
myndin sýnir i stórum dráttum,
hvernig umhorfs var 29. október
sl. útbreiðslan er eðlileg.
Heildregna linan sýnir jaðar
nýs lagnaðariss, en nær
Grænlandi er isinn þykkri og er
sjór þar alþakinn.
KVENFÉLAGIÐ HRINGURINN OPNAR SINN ÁRLEGA BASAR
LAUGARDAGINN I. NÓVEMBER KL 14 í IÐNSKÓLANUM Á
SKÓLAVÖRÐUHÆf) (INNGANGUR FRÁ VITASTÍG).
Á BASARNUM VERÐA M.A. HANDAVINNA, KÖKUR, JÓLA-
KORT.PLATTAR OG LEIKFÖNG.TILVALIN TIL JÓLAGJAFA
ALLUR ÁGÓÐI RENNUR TIL LÍKNARMÁLA BARNA.
BASARNEFNDI N
V
■
pQSQ -
er ný líno í húsgognaiðnaðinum
Útsölustaðir:
j.L. húsið
J.L. húsið
J.L. húsið
Reykjavtk
Borgarnesi
Stykkishólmi
Borgarhúsgögn Reykjavík
T.M. húsgögn — Reykjavík
Tréborg — Hafnarfirði
Vinnufélagar
hittumst i hádeginu á
BIUARD
Skipholt 37, simi 85670