Vísir - 31.10.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 31.10.1980, Blaðsíða 5
Föstudagur 31. október 1980 VÍSIR Michael Manley. Horfir til aö stjörn Manleys koitaiii í kosn- ingum Jamaíka Hinn ihaldssami verkamanna- flokkur (JLP) á Jamaika stefnir undir forystu Edwards Seaga til yfirburðarsigurs i kosningunum, en stjórn Michaels Manleys, for- sætisráðherra og þjóðarflokksins (PNP) sýnist kolfallin. Talningu var ekki lokið i morgun, en þó það langt komið, að horfði til sigurs JLP i 50 kjör- dæmum af 60. 1 þeim 24 kjör- dæmum, þar sem talningu var lokið, hafði JLP unnið 17 þing- sæti, en PNP 7 Eins og talning stóð hafði JLP forystu i 34 kjör- dæmum til viðbótar, en PNP i aðeins 2. Þetta voru róstursömustu kosn- ingar, sem fram hafa farið á Jamaika frá þvi að landið fékk sjálfstæði 1962. Tveir voru skotnir til bana i gær og tveir særðir, og sagt var, að menn vopnaðir byssum hefðu sést ógna kjós- endum við kjörstaði og jafnvel ræna kjörkössum. — Frá þvi i byrjun þessa mánaðar hafa 125 menn látið lifið i pólitiskum skærum, en mannfailið er komið yfir 700 á þessu ári. Manley tókst að halda kjör- dæmi sinu i austurhverfi King- ston, en tapaði miklu fylgi. Hugh Small, fjármálaráðherra stjórnar hans, og Percival Patterson, utanrikisráðherra, töpuðu báðir sinum kjördæmum. EBE-rlkln: Lögboðlnn samdráttur í framleiðslu stáls Blökkumannabörn að leik Innan um kumbalda i úthverfi Jóhannesar- borgar, en ný lög eru ídeiglunni.sem rétta eiga kjör blökkufólks. Efnahagsbandalagsriki Evrópu hafa gert með sér samkomulag um að skylda stáliðnað sinn til þess að draga úr framleiðslunni. Er það liður i áætlun, sem mið- ar að þvi að bjarga iðnaðinum frá grimmdarlegu verðstriði, en stál- iðnaður EBE á mjög i vök að verjast. Gert er þarna ráð fyrir 13-20% samdrætti i framleiðslu á hálf- unnum stálvörum á siðasta f jórð- ungi yfirstandandi árs. V-Þýskaland vildi. að fram- leiðsla á gæðastáli til vélsmiða yrðu undanþegið kvótafyrir- komulaginu, sem sett verður upp. En Bretar kviðu þvi, að slik undanþága mundi grafa undan á- ætluninni. 011 aðildarrikin gengust inn á þessa áætlun, nema V-Þýskaland. Hefur Helmut Schmidt kanslari tekið upp beinar viðræður við Margaret Thatcher forsætisráð- herra til að ná fram málamiðlun um þetta eina ágreiningsatriði. Suður-Afríka veitir blðkkum ferðalrelsi borganna og krefja þá persónu- skilrfkja og sönnunar á þvi, að þeir hafi rétt til að vera þar eða heimsækja þann borgarhluta. Brot á þessu ákvæði hafa leitt til 700.000 málsókna árlega, en með nýju lagabreytingunni fyrir- huguðu verða blökkumenn frjáls- ir ferða sinna, ef þeir eru ekki atvinnulausir eða heimilislausir. Fyrr i þessum mánuði skipti Botha forsætisráðherra um sjö ráðherra i stjórn sinni og er litið á það sem undanfara þessara fyrir- huguðu lagabreytinga. Stjórn Pieter Botha, forsætis- ráðherra S-Afriku, steig i morgun fyrstu skref sin til efnda loforða um að bæta sambúð kynþáttanna i landinu. Voru þá lögð fram þrjú frumvörp um afnám eða breyt- ingar 62 skilnaðarákvæða lag- anna. Þessi frumvörp, ef fram ná að ganga, þykja bæta kjör blakkra verkamanna i úthverfum stór- borganna. Þar er t.d. gert ráð fyrir afnámi laga, sem veita lög- reglunni heimild til að stöðva svarta vegfarendur úr úthveríum PÚLSKU LEDTOGARN- IR KOMNIR HEIM Leiðtogar „Einingar” — sjö milljón manna verkalýðssam- taka Póllands — eiga i dag fund með Jozef Pinkowski, forsætis- ráðherra, sem kemur til viðræðn- anna nánast beint frá Moskvu. Þar áttu þeir Stanislaw Kania, leiðtogi pólska kommúnista- flokksins, viðræður við Leonid Brezhnev, sem virðist styðja for- ystumenn Póllands. Samkvæmt fréttum pólska sjónvarpsins lýsti Brezhnev yfir sannfæringu sinni um að „pólska verkalýðshreyf- ingin mundi fær um að leysa þau aðkallandi vandamál, pólitisk og efnahagsleg, sem blöstu við”. Er ekki ljóst, hvort túlka beri ummæli Brezhnevs sem beinan stuðningeða veittan frest fyrir ráðamenn Póllands til að ná tök- um á ástandinu. Verkaíyðsleiðtogar kviða þvi, að eftir viðræðurnar i Moskvu verði stjórnarfulltrúar ósveigjan- legri við samningaborðið. Krafa þeirra er, að losna undan skyldu til að hafa ákvæði i stofnlögum hinna nýstofnuðu verkalýðssam- taka um forræði kommúnista- flokksins. Hyggjast þeir skjóta til hæstaréttar úrskurði borgardóms i Varsjá, sem gerði þeim kleift að bæta sliku ákvæði inn i stofnskrá samtakanna, áður en hún fengi löggildingu. Krónprins Reza Pahlavi undir stýri i ökuferð meö systur sinni fyrir nokkrum árum, meöan aiit lék í lyndi. LÝSTUR KEISARI ÍRANS - EINS AÐ Hinnútlægikeisarasonur Irans, Reza Pahlavi, heldur uppi á tvi- tugsafmæli sitt i Kairó i dag, en verður um leið lýstur keisari af fjölskyldu sinni. Keisarafjölskyldan, eftir að hafa ráðfært sig við Egyptalands- stjórn, sem skotið hefur yfir hana skjólhúsi, ætlar að setja krón- prinsinn i páfuglshásætið. Verð- ur það þó aðeins að forminu til, þvi að enn eiga þau ekki aftur- kvæmt til Irans og engar horfur á þvi, að keisarasonurinn taki viö riki sinu I bráð. Prinsinn, sem er þjálfaöur or- rustuflugmaður (af Bandarikja- mönnum), bauð sig fram til þjón- ustu i Iranska flugherinn, þegar striðið braust út milli Irans og Iraks, en stjórnin ITeheran hefur hundsað tilboö hans. Hann hefur stundaö nám I austurlenskum stjóornmálafræð- um við ameríska háskólann i Kairó að undanförnu. kemur i þingncfndarskýrslu i Washington. Tölvurnar gáfu við- vörunarmerki um, að hafin væri eldflaugaárás á Bandarikin. Fjðrum sinnum voru viövör- unarmerkin svo alvarleg, að kallaöi á snör viðbrögð til að vérnda USA gegn kjarnorkuárás. Talsmenn landvarna segja, að gabbið hefði aldrei verið svo alvarlegt, að heimsfriðnum hefði veriö hætt meö fumkenndum viðbrögöum. Eitt sinn reyndist flugskeytiö, sem stefndi á Bandarikin, vera útbrunniö þrep i geimflaug. Hjartadeganum hrakar Sænski hjartaþeginn, átján ára gamli, sem fékk grætt i sig nýtt hjarta i Kaliforniu fyrir hálfum mánuði og þótti hafast vel við, er nú sagöur þungt haldinn. Það mun þó ekki vera nýja hjartað, sem erfiðleikum veldur, heldur einhver fylgikvilli, sem veldur þvi, aö nýrun starfa ekki vel. Hann gekkst undir aðgerðina ÍKaliforniu, þvf að hjartaigræðsla er ekki leyfð i Sviþjóð, en heilbrigðisyfirvöld og sjúkrasam- lagsyfirvöid i Stokkhólmi hafa samt ákveðið að greiða kostnað- inn af sjúkravist hans I Bandarikjunum. — Heilbrigðisyf- irvöld litu nefnilega svo á, að þeim bæri skylda til þess að reyna að viðhalda iifi I sjúklingum, jafnvel þótt til þess þyrftu aögeröir, sem ekki eru heimilar samkvæmt sænskum lögum. Sérfræðingar sjúkrahúss Stanford-háskóla i Palo Alto, þar sem Svlinn liggur, hafa grætt hjörtu i 196 sjúklinga frá þvi 1968 og eru 76 þeirra enn á lifi. I öllum tilvikum var um að ræða sjúklinga, sem þóttu dauða- dæmdir, vegna þess að öll önnur ráð þrutu. Ky tækni i orkulramlelðslu Vestur-Þýskaland og Kina hafa gert með sér samkomulag um samvinnu I tilraunum og þróun tækni, sem virkjar sól, vind og Iff- rænan úrgang til orkufram- leiöslu. Var þetta samþykkt á þriggja daga fundi sérstakrar nefndar Kina og V-Þýskalands, sem stendur að visindalegu samstarfi þessara rikja. Fyrstu tilraunir^mcð þetta verða geröar I smáþorpi, sem reisa skal á næstu tveim árum i nágrenni Peking. Mannrán á sikiley Bankafulltrúi, sem rænt var á Sikiley fyrir tveim vikum, fannst myrtur i brunni skanimt utan við bæinn Katania. Hann hafði veriö skotinn þrem skotum i höfuðið. — Bfll hans hafði fundist fljótlega eftir ránið, en blóðflekkir á sætis- áklæði vakið með mönnum illan grun um örlög þess rænda. — Ekkert hefur komið fram um, hvi manninum var rænt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.