Vísir - 08.12.1980, Blaðsíða 1
Mánudagur 8. desember 1980/ 287. tbl. 70 árg.
Agreíníngur milli verkfallsnelndar bankamanna og bankanna:
DEILT UM HVERJIR EIGA
AÐ VIHRA í VERKFALLIHU
,,Það hefur komið
upp ágreiningur milli
okkar annars vegar og
Landsbanka og
Iðnaöarbanka hins
vegar um val þeirra
sem skulu vinna i bönk-
unum á verkfallstim-
um”, sagði Gisli
Jafetsson, sem sæti á i
verkfallsnefnd banka-
manna, í viðtali við
Visi i morgun.
„Viö. teljum að við tökum
endanlega ákvörðun um, hverj-
ir megi vinna i verkialli, og
hvaða nöfn séu valin i þvi tilliti.
Landsbankinn hefur ekki viljaö
hefja viðræöur viö okkur og
raunar fariðhálf hjákátlega að i
þessum efnum, m.a. endursent
okkur bréf varðandi þetta jafn-
hraðan”.
Sagði Gisli enn fremur, að svo
virtist sem fyrst og fremst væri
verið að fylla þann kvóta, þe.
5%, sem leyft væri aö starfa á
verkfallstimum af hálfu bank-
anna. Samkvæmt þeirra tilnefn-
ingum kæmu fram deildarstjór-
ar og aðrir sem ekki heföu gegnt
húsvörslu hingaö til. „Þetta er
sem sagt ágreiningur um
hvaða nöfn eigi að vera á þess-
um lista til að fylla 5% kvót-
ann”, sagði Gisli.
„Við héldum fund meö all-
flestum aðilum, sem eiga að
vinna i verkl'allinu, i gær, og út-
skýrðum þetta mál fyrir þeim.
Þar var fólkinu gerö grein fyrir,
að það væri ákvöröun þess,
hvort þaö ynni eöa ekki og að
við styddum viö bakið á þvi.”
Þá má geta þess, aö i viðræö-
um okkar við bankana varðandi
þetta atriði, s.l. föstudag, hétu
þeir þvi að fara að okkar tilmæl-
um, en siðar um daginn kom
þessi þrjóska upp og við vitum
ekki hversu margir hafa farið
að dæmi þessara umræddu
tveggja banka", sagði Gisli.
Ekki tókst að hafa tal af
bankastjórum umræddra banka
i morgun, þar sem þeir sátu á
fúndum.
—JSS
Fríða Gylfadóttir, sem leikur Steinu, Þórður B. Sigurðsson, sem fer með hlutverk Björns á Leirum, og Jóhann Tómasson, sem leikur Jóa, f kaffi-
hléi á forsýningunni. Þetta var frumraun þeirra á kvikmyndasviðinu og ekki annað aðsjá en þauséu ánægð með útkomuna. Vfsismynd: GVA
Jólagetraun
Vísis hafin
Giæsíleglr vinningar
Jólagetraun Visis hefst i dag og
að vanda eru vinningar afar
glæsilegir. Fyrstu verðlaun eru
stereo útvarps- og kassettutæki
með tveimur innbyggöum hátöl-
urum og hljóðnemum. Tækið
koslar 330 þúsund krónur út úr
búð. Þá er íataúttekt i i'ACO fyrir
75 þúsund krónur og tiu islenskar
hljómpiötur. Verömæti vinninga
er þvi um 530 þúsund krónur.
Getraunin er einíöld og auðveld
að þessu sinni, en jafnframt
skemmtileg og ætti öll f jölskyldan
að geta haft nokkurt gaman af að
leysa hana.
Jólagetraun Visis er á blaðsiðu
tvö i blaði tvö.
íbróttir
helgarinnar
Sjá ÖIS. 11. 12. 13.14
„Sérstok unun ao norfa
á sum alriOi myndarinnar”
Halldór Laxness eftlr forsýninguna á „Paradísarheimr
- sagði
„Ég get ekki auöveldlega
hugsað mér skáldsöguna koma
betur fram i öðru formi en
þessu, sem ég hef nú séð i fyrsta
skipti i heild. Ég varð eiginlega
mjög undrandi yfir þessu verki
og hvað það er gert af mikilli
smekkvisi og skilningi”, sagði
Halldór Laxness, höfundur
„Paradisarheimtar", eftir for-
sýningu á sjónvarpskvikmynd-
mni, sem Rolf Hádrich hefur
gert eftir skáldsögunni.
Kvikmyndin verður sýnd i is-
lenska sjónvarpinu i þrennu lagi
um jól og áramót, en heildar-
sýningartimi hennar er nokkuö
á sjöttu klukkustund.
Kvikmyndin er gerö af sjón-
varpsstöövum i Vestur-Þýska-
landi, Sviss og á Norðurlöndun-
um i sameiningu og hefur þegar
verið sýnd i þýskumælandi
löndrim. Rolf Hádrich sagði eft-
ir forsýninguna, að þegar heföu
um 6 milljónir manna séð
myndina i sjónvarpi.
„Það er misjafnt hvaða til-
finningar það vekur hjá rithöf-
undi að sjá verk sitt á kvik-
mynd”, sagði Halldór Laxness.
„Stundum er það ákaflega
þægileg tilfinning. Mörg atriði i
þessu verki voru þannig alveg
sérstök unun fyrir mig sem
áhorfanda — svo mjög að ég
gleymdi þvi stundum að ég
sjálfurætti nokkurn þátt i þessu
verki”.
Halldór sagði, að auðvitað
ætti ekki allt það, sem búið væri
til i skáldsögu, jafn vel viö kvik-
myndaformið. „Stundum eru
lægðir i verkinu, kannski ekki
frá rithöfundalegu sjónarmiði
heldur sem drama, og það er
ekki hægt að bjarga þeim öðru
visi heldur en að skrölta yfir
þær eins vel og hægt er”, sagðr
hann.
Sjá nánari frásögn af forsýn-
ingunni og viðtal við Rolf
Hadrich á bls. 6.
— ESJ