Vísir - 15.12.1980, Qupperneq 3

Vísir - 15.12.1980, Qupperneq 3
Mánudagur 15. desember 1980. Ragnar S. Halldórsson forstjóri ÍSAL: „Þótt aörir fullvinni ál ann- ars staðar, þá er ekki þar meö sagt, aö viö getum ekki vei unaö viö þaö vinnsluviröi, sem viö höfum upp úr aö nýta okkar orkulindir”. Takmarkaðir möguleikar tll pess að vinna úr áli hérlendis segíp Ragnar S. Hallflórsson forstjóri fslenska álféiagsins „Möguleikar okkar Islend- inga á að vinna úr áli eru tak- markaðir”, telur Ragnar Hall- dórsson, forstjóri Álversins i Straumsvik. Hann sagði, að fullunnar vörur úr áli væru fyrirferðamiklar og d'ýrar i flutningi og hvorki Norðmönn- um né Kanadamönnum hefði tekist að koma upp hjá sér ál- iðnaði nema sem svaraði til þarfa heimamarkaðar, en i þeim löndum væri orkuverð til áliðnaðarins svipað og hér. „Þótt það hljóti að koma að þvi, að við vinnum að einhverju leyti úr áli, þá held ég, að það verði ákaflega erfitt að brjótast út úr þessum markaðsmála- hring, enda ekki endilega nauð- synlegt. Við erum alls ekki með neina annars flokks fram- leiðslu, þótt við flytjum út hráál, sem kallað er. Ef það ætti að vera einhver allsherjarregla, að það væri unnið úr hverju hráefni á þeim stað, sem það er framleitt og flutt út eins og neytendavörur, þá væri enginn áliðnaður á ts- landi, þvi að við fáum okkar hráefni frá Ástraliu. Þótt aðrir fullvinniál annars staðar, þá er ekki þar með sagt, að við getum ekki vel unað við það vinnslu- virði, sem við höfum upp úr að nýta orkulindir okkar. Ég vil gjarnan láta koma fram, að menn geta ekki búist við, að hér verði farið að framleiða ál- pappir, álplötur, prófila og hvað það nú er, sem hægt er að fram- leiða úr áli, og siðan verði þessu dreift um allan heim. Það er ekki svo einfalt, eins og okkar aðalkeppinautar, Norðmenn og Kanadamenn. hafa reynslu af. Varðandi álsteypu. sem lengi vel var haldið, að væri auðveld- ast fyrir okkur að byrja á, hefur komið i ljós, að það er hægar sagt en gert, af tveim ástæðum. 1 fyrsta lagi er notað mest brotaál, allt að 70%, i álsteypu. Slikt ál höfum við ekki nema i mjög litlum mæli, og þó viö vild- um kaupa það, hefur sýnt sig, að þess er ekki kostur, þvi að þau lönd, sem mestál nota hafa sett hömlur á útflutning þess. Hin ástæðan er i sambandi við hluti ibila, bilablokkir, bilahedd eða annað. Það hefur sýnt sig, að svo náin samvinna er á milli þeirra, sem framleiða þetta og hinna, sem nota þaö, að á milli þeirra má ekki vera löng vega- lengd, og það er talið vonlaust að ætla sér að flytja slika hluti yfir heimshöf. Milli þessara að- ila eru að heita má dagleg sam- skipti. Frá þessu eru þó til undan- tekningar, eins og bilafelgur, sem eru framleiddar úr hrááli og það standa vonir til, að það geti orðið fyrsta skrefið hjá okk- ur að steypa þær og koma þeim á markað”. Ragnar sagði að tveir aðilar væru að velta fyrir sér mögu- leikunum á álvinnslu, en hann vissi ekki hvað hefði út úr þvi komið enn sem komið væri. —SV. vtsm Jafnan fyrirliggjandi í miklu úrvali RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI 1437 H Heimilisborvél Mótor: 320 wött Patróna:10mm Stiglaus hraöabreytir í rofa: 0-2600 sn./mín. 1417 H. Heimilisborvél Mótor: 420 wött Patróna: 13mm Stiglaus hraðcibreytir i rofa og tvær fastar hraöastillingar: 0-900 eöa 0-2600 sn./mín. Við SKIL heimilisborvélar fæst gott úrval hagnýtra fylgihluta svo sem hjólsög, stingsög, smergel, pússikubbur og limgerðisklippur. Alla þessa fylgihluti má tengja við borvélina með einkar auðveldum hætti, svonefndri SNAP/LOCK aðferð, sem er einkaleyfisvernduð uppfinning SKIL verksmiðjanna. Auk ofan- greindra fylgihluta eru á boðstólum hjólsagarborð, láréttir og lóðréttir borstandar, skrúfstykki, borar, virburstar, skrúfjárn og ýmislegt fleira sem eykur stórlega á notagildi SKIL heimilisborvéla. Eigum einnig fyrirliggjandi margar fleiri gerðir og stærðiraf SKIL rafmagnshandverkfærum. ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI, VELJA SKIL Einkaumboö á Islandi fyrir Skil rafmagnshandverkfæri. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670 Komið og skoðið, hringið eða skrifið eftir nánari upplýsingum. Athugið hvort SKIL heimilisborvél og fylgihlutir eru ekki hagnýt gjöf til heimilis ykkar eða vina ykkar. AORIR ÚTSÖLUSTAÐIR: REYKJAVÍK: SÍS Byggingavbrudeild. Suðurlandsbraut 32. Verslunin Brynja, Laugavegi 29. HAFNARFJÖRÐUR: Rafbúðin, Alfaskeiði 31.. KEFLAVIK: Stapafell h/f. ÞINGEYRI: Kaupfélag Dýrfirðinga ÍSAFJÖRÐUR: Straumur h/f. HÓLMAVÍK: Kaupfelag Steingrimsfjarðar. BLÖNDUOS: Xaupfélag Húnvetninga SIGLUFJÖRÐUR: Rafbær h/f. AKUREYRI: Verslunin Raforka Handverk, Strandgötu 23. HÚSAVÍK: Kaupfélag Þingeyinga VOPNAFJÖRÐUR: Kaupfélag Vopnflrðinga EGILSTAÐIR: Verslunin Skogar SEYÐISFJÖRÐUR: Stalbúðin NESKAUPSSTAÐUR: Eirikur Ásmundsson HÖFN: Kaupfélag Austur-Skaftfellinga VÍK: Kaupfélag Skaftfellinga Fullkomið hjónaband Nýja Philips myndsegulbandið, með átta klukkustunda kassettunni, og Philips 26" litsjónvarpið, eru aðdáunarvert parl Tærir litir og skýr mynd gera sjónvarpsþættina þægi- lega og ánægjulega fyrir áhorfandann. Philips 2000 er eina kassettan á markaðnum, sem býður upp á 8 klst. af skýrum og áferðar- fallegum myndum, sem eru einkenni nýja Philips kerfisins. Philips kann tökin á tækninni! heimilistæki hf Hafnarstræti 3 — Sætúni 8. PHIUPSJ

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.