Vísir - 15.12.1980, Blaðsíða 16
VERSLUNIN
Jurtin Lækjargötu 2 hefur á boðstólum allt
sem tilheyrir baðinu, allt vörur unnar úr jurt-
um.
Nefna má baðilmsápu, jurtashampoo, ilmböð,
og ilmsölt og einnig náttúrulega svampa.
Þá fást einnig í Jurtinni allskyns kryddvörur
sem eru ekki á boðstólum í öðrum verslunum
og skemmtilegar kryddkvarnir. Þú ættir að
líta við í Jurtinni, þegar þú ferð í jólagjafainn-
kaupin.
í versluninni Jurtin Lækjargötu 2 fást ilmjurt-
ir, ilmpúðar og ilmsápur í mjög miklu úrvali.
Þetta er ákaflega skemmtileg gjafavara til
jólagjafa,sem fólk ætti að skoða, en ilmjurt-
irnar t.d. eru á sérlega góðu verði eða frá að-
eins 3.400 krónum í gjafakössum.
LAUS STAÐA
Tryggingalæknis við
Tryggingastofnun ríkisins
Laus er til umsóknar staða tryggingalæknis
við Tryggingastofnun ríkisins. Staðan veitist
frá og með 15. janúar 1981.
Umsóknir ásamt upplýsingum um læknis-
menntun og störf sendist ráðuneytinu fyrir 9.
janúar 1981.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
11. desember 1980.
LAUS STAÐA
heilbrigðisráðunauts
(dýralæknis)
við Heilbrigðiseftirlit ríkisins
Laus er til umsóknar staða heilbrigðisráðu-
nauts við Heilbrigðiseftirlit ríkisins. Umsækj-
endur skulu hafa dýralæknamenntun.
Staðan veitist frá og með 1. apríl 1981.
Umsóknir ásamt upplýsingum um dýra-
læknismenntun og störf sendist ráðuneytinu
fyrir 10. janúar 1981.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
11. desember 1980.
VÍSIR
Mánudagur 15. desember 1980.
jún Þórðarson
Það mál sem hefur verið mik-
ið til umfjöllunar i dagblöðum
undanfarnar vikur, er mál
Frakkans Patrick Gervasoni
sem kom ólöglega inn i landið á
fölsuðu vegabréfi og baðst hælis
sem pólitiskur flóttamaður. Mál
þetta hefur verið blásið mikið
upp, sérstaklega af vinstri
hreyfingunni sem krefst þess að
Gervasoni verði veitt land-
vistarleyfi. Margir forystumenn
verkalýðshreyfingarinnar hafa
krafist þess að honum verði
veitt hæli, og nú upp á siðkastið
hafa þingmenn Alþýðubanda-
lagsins og ráðherrar þess sett
þessa kröfu fram. En fæstir
hafa litið raunsæjum augum á
málið heldur svifið i loftinu eins
og oft vill verða þegar vissir
vinstri menn innan Alþýðu-
bandalagsins og fylgifiskar
þeirra þeirra eiga i hlut. Það er
staðreynd sem menn verða að
sætta sig við hvar i flokki sem
þeir eru, að Gervasoni er ekki
„pólitiskur flóttmaður” eins og
stuðningsmenn hans hafa haldið
fram, heldur er Gervasoni lið-
hlaupi úr franska hernum og
hefur þvi gerst brotlegur
frönskum lögum.
Reynsla Kanada-
manna
Það hefur oft verið erfitt fyrir
vissamenn innan Alþýðubanda-
lagsins og aðra meðlimi i vinstri
hreyfingunni að skilja stað-
reyndir, heldur er reynt að
,,heilaþvo"almenning á sögum,
sem eiga ekki við nein rök að
styðjast. Þaðer staðreynd aö ef
Gervasoni verður veitt land-
vistarleyfi mun það hafa slæmt
fordæmi eins og sumar
nágrannaþjóðir okkar ráku sig
illilega á er þær fengu yfir sig
liðhlaupa úr ýmsum herjum,
Tökum t.d. Kanadamenn sem
neyddust til að loka landamær-
um sinum fyrir ungum piltum
úr bandariska hernum sem
komu i stórum hópum yfir
landamærin þegar
Vietnam-striðið stóð sem hæst.
Og ekki hafa Sviar betur farið út
úr sinum málum þegar þeir
hafa hleypt inn fólki ,bæði
afbrotamönnum og flóttamönn-
um og hefur þeim gengið illa að
ráða við þann fjölda fólks sem
streymir inn i landið. Þetta get-
ur orðið hlutskipti okkar, þvi nú
strax hafa 450 ungmenni frá
Frakklandi beðið um hæli hér
sem pólitiskir flóttamenn. Og
getum við neitað þeim ef viö
leyfum Gervasoni að dveljast
hér. Fáum við ekki yfir okkur
fullt af fólki sem komist hefur i
kast við lögin i sinu heimalandi.
Hvaða tryggingu höfum við
fyrir þvi að eftir nokkur ár verði
hér ekki allt fullt af mönnum
sem virða hvorki lög og rétt
heimalanda sinna.
Þrýstihópar æpa
Þetta eru staðreyndir, en
stuðningsmenn og vinstri hreyf-
ingin loka bara augunum fyrir
þeim, og ætlast til að ibúar
þessa lands eigi að trúa
þvilikum þvættingi. Svo þegar
Friðjón Þórðarson, dómsmála-
ráðherra, einn af fáum þeim
skynsömu mönnum er virðást
gera sér fullkomlega grein fyrir
hversu alvarlegt mál þetta er
og gæti orðið fyrir þjóðina á
ókomandi árum, hyggst
senda hann til Danmerkur, þar
sem honum verður tryggð land-
vist, þá ætlar allt vitlaust að
verða. Þrýstihópar kommúnista
koma hrópandi og æpandi og
neöanmóls
,,Þaö hefur oft verið
erfitt fyrir vissa menn
innan Alþýðubandalags-
ins og aðra meðlimi i
vinstri hreyfingunni að
skilja staöreyndir heldu'
er reynt að ,,heilaþvo" a,
menning á sögum sem
eiga ekki við nein rök að
styðjast" segir Haraldur
Hermannsson.
krefjast þess að ráðherra breyti
ákvörðun sinni. Þrýstihópar i
þessu þjóðfélagi eru oft
öfgakenndir, sérstaklega ef þeir
eru innan Alþýðubandalagsins
og meðal fylgifiska þeirra.
Almenningur
ekki spurður
Stuðningsmenn Gervasoni
hafa lýst þvi yfir,. að verði hann
sendur úr landi verði það mikil
hneisa fyrir ísland og segjast
ekki bera ábyrgð á mótmælum
sem gætu fylgt i kjölfarið. Þvi er
til að svara að aðeins fámennur
þrýstihópur styöur Gervasoni,
en almenningur i landinu er
ekki spurður álits á þessu máli.
Alþýðubandalagið hefur aldrei
þurft að spyrja þjóðina um eitt
eða neitt, heldur gera þeir
verkin eins og þeim sýnist og
spyrja svo þjóðina eftir á. Það
er furðulegt að þessi fámenni
hópur ætlar sér að vaða uppi
með einhverjar hótanir gegn
þjóðinni og enn er furðulegt að
vissir þingmenn og ráðherrar
styðja þessar aðgerðir þrátt
fyrir blákaldar staðreyndir sem
blasa við fólki. En
Alþýðubandalagið hefur aldrei
þurft að viðurkenna staðreynd-
ir, það yrði eitthvað nýtt ef þeir
tækju upp á þvi. Og þegar menn
eru komnir i Alþýðubandalagið
og vinstri hreyfinguna þá þurfa
menn ekki að virða lög og rétt
annarra þjóða, lög sem þar
rikja.heldur hafa þeir sin lög,
sem eiga að gilda yfir allar
þjóðir.
Vantar nýjan forystu
mann
Fyrsta mótmælaaldan hófst
með þvi að nokkrir unglingar
40—50 manns, réðust inn i dóms-
málaráðuneytið og lögðu ganga
þess undir sig. Fyrir þessum
hópi fór Þorlákur Kristinsson
sem barist hefur mikið fyrir
kjörum farandverkafólks. Hon-
um hefur litið orðið ágengt i
þeim efnum, enda er það
skiljanlegt að atvinnurekendur
hlusti ekki á slika menn ef bar-
áttuvopn þeirra eru hótanir,
yfirgangur, skemmdarverk og
ofbeldi. Það er skiljanlegt að
maðurinn þurfi að ná sér niðri á
einhverjum þegar enginn vill
hlusta á hann. Atvinnurek-
endur, verkalýðshreyfingin og
nú siðast ASI-þingið hafa lokað
öllum dyrum á Þorlák Kristins-
son. Nema kannski Þjóðviljinn,
sem hefur birt einstaka greinar
um aðbúnað farandverkafólks
og þá yfirleitt skýrt frá hinum
verri hliðum málsins. Það væri
þörf á þvi fyrir farandverkafólk
að finna sér annan forystumann
ef það ætlar sér að fá réttlætis-
málum sinum framgengt, sem
vissulega er þörf á, en að hafna
slikum manni sem með sinu at-
hæfi er hneisa fyrir þjóðfélagið.
Þjóðin að baki Friðjóni
íslensk lög og islenskt réttar-
kerfi verða fyrir miklu áfalli ef
þessir öfgafullu þrýstihópar fá
sinu framgengt. Það yrði mikil
„hneisa” fyrir land og þjóð, en
það má fullvist telja að Alþýðu-
bandalagið og vinstri hreyfingin
með Guðrunu Helgadottur,
Guðmund J. Guðmundsson og
Svavar Gestsson i fararbroddi
muni brosa sinu bliðasta ef
Gervasoni fengi landvistarleyfi,
þvert gegn vilja þjóðarinnar.
Þvi það er synd að meirihluti
þjóðarinnar skuli þegja þunnu
hljóði yfir yfirgangi þrýstihópa.
Stattu þig Friðjón Þórðarson,
þú hefur þjóðina á bak við þig,
— hugsandi fólk sem horfir til
framtiðarinnar. Láttu ekki fá-
menna öfga- og þrýstihópa þjóð-
félagsins neyða þig til að breyta
ákvörðun þinni.
Haraldur Hermannsson
Stuöningsmenn Gervasonis í dómsmálaráöuneytinu á dögunum.
Stattu Þlg Frið-