Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 14

Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 14
18 vtsm Mánudagur 29. desember 1980 •' . . n Í ‘ ‘ *! 'í ’ ’ S> t. ' 32» J Forðum okkur (rá ólðgn- uólnum B.Þórhallsson skrifar. Um fátt hefur verið meira ritaö og raett manna á meðal að undan- förnu en mál Frakkans Gervasoni sem hér hefur dvalist. Að sjálf- sögðu eru þær raddir háværari sem vilja hann i burtu enda ekki nema von þar sem það er örugg- lega vilji Islendinga yfir höfuð. Ég ætlaði ekki aðallega að gera mál Gervasoni að umræðuefni heldur þau skrif sem hafa orðið vegna beiðni nýnasistans Marc Frederiksen un að fá hér land- vist. Þetta eru ekki neinir fimleikar 2647-0870 skrifar. Það hefur áður áður i þessum dálki verið fjallað um iþróttaþátt Sjónvarpsins og uppbyggingu hans hvað efni varðar. Það siðasta sem ég sá var að einhver kona var ða svara bréfi frá manni sem gagnrýndi sýningar frá „Desembersýningu” Fimleika- sambands Islands. Taldi kona þessi að það væri ekki of mikið gert að sýna fimleika frá þessari sýningu. Ég er alveg sammála þvi að það er ekki sýndar margar myndir frá fimleikum hériendis en þeim mun meira af erlendum fimleikum. Þetta er að sjálfsögðu sökum þess að „standardinn” á fimleikaíólki okkar er ekki mjög glæsilegur. Hitt er svo annað mál og sýnir e.t.v. best hvernig þessi mál eru að hin svokölluða „Desember- sýning” er alls engin fimleika- sýning. Hún er aðallega danssýn- ing og hreyfingar við tónlist sem litið eiga skylt við iimleika eru mest áberandi ásamt flokkum sem sýna hressingarleikfimi. Ég er ekki að amast viö þessari sýningu sem slikri, hún er mjög góð fyrir þá sem áhuga hafa á henni. En að það þurfi að sýna hvert einasta atriði i iþrótta- þætti Sjónvarpsins það er hneisa. Vantar penna- vin Herra ritstjóri. Miglangar til aö biðja um hjálp i blaði þinu við að eignast penna- vin á Islandi. Ég er mikill Is- landsaðdáandi og langar til að skrifast á við þá sem eru á svip- uðu reki og ég þvi ég vil endilega fræðast meira um Island. Ég skrifa bæöi á ensku og þýsku. Susanne Pieper August-Engel Str. 5 5778 Mesehede 4 V-Þýskalandi Og það er enn meiri hneisa að það er ekki látið nægja að sýna öll atriðin, heldur eru sum þeirra sýnd oftar en einu sinni. Þvilikt og annað eins. Undir þessu mátti maður sitja i klukku- stund laugardaginn 20. desember, á meðan maður beiö spenntur eftir sýningu mynda frá leik Standard Liege i UEFA-keppn- inni i knattspyrnu, landsleik i handknattleik við Belga, úrslitum i ensku knattspyrnunni og fleiru B.K.L. skrifar. Nú er úti veður vont... — Mér duttu þessar ljóðlinur i hug er ég kom Ut einn morguninn og áá að það hafði fallið dálitil snjóföl þá um nóttina. Reyndar var það ekki tilefni þess aðumræddar ljóðlínur komu upp i hugann, heldur hitt að ég sá borgarstarfsmenn vera i óða önn að bera salt á allar götur. Mér finnst það alveg óþarfi að vera að rjúka til og saltbera göt- urnar gótt það falli hér smá snjór. Menn eiga að hafa ökutæki sin þannig útbúin að þeir komist áfram þótt eitthvaö sé að færð, og þeir sem ekki gera það eiga hreinlega ekkiað snerta ökutækin ef eitthvað er að veðri. Saltburðurinn er tvieggjað vopn, hann hjálpar að vísu þeim sem ekki búa sigog bifreiðir sinar af umhyggju undir vetrarakstur að komast áfram en það segir ekki alla söguna. Saltið skemmir nefnilcga bilana meira en orð fá lýst og skapar þvi bifreiðaeigend- um geysilegt tjón á hverju ári. Saltið er eitur fyrir lakk bifreið- anna og stuðlar að ryði og skemmdum. Nóg er fyrir vegna sjávarseltunnar sem berst með loftinu þótt ekki þurfi aö bæta á. Ég vil hér m eð skora á rétta að- ila aö hætta þessum saltaustri, en leggja það um leið til við lög- regluyfirvöld að þaugangi fram i þvi aö fylgjast með að menn útbúi ökutækin fyrir vetrarakstur. og fleiru sem var að gerast og átti erindi i þáttinn. Ég hef grun um það að um- sjónarmaður iþróttaþáttar Sjón- varpsins sé undir miklum þrýst- ingi frá ýmsum hópum sem heimta „sitt efni” inn á dag- skrána. Það hlýtur að vera skýr- ingin á þessari lágkúru. En þessa þrýstihópa þarf að kveða niður, Hinsvegar er sjálfsagt að fim- leikafólk fái inni i þættinum ef það hefur eitthvað almennilegt að bjóða, en ekki fyrr. Siððvum glugga- gæginn Húsmóðir i Hliðunum skrifar. Ég las frétt i Visi á dögunum um að „Gluggagæir” hefði verið staðinn að verki við iðju sina i Hliðunum er komið var fram á nótt, en það fylgdi frétt þessari að þvi miður heföi hann ekki náðst. Mér þykja það ill tiðindi ef maðurinn sem var við þessa iðju fyrir nokkrum árum er kominn á stjá aftur ef það er þá hann. Hvernig var það, náðist hann aldrei eða hvað? Að liggja á gluggum fólks er ör- ugglega með þvi lágkúrulegasta sem einn maður getur gert nábú- um sinum og vonandi verður fólk iHliðunum vel á veröi gegn þessu og hjálpast að svo höndum veröi komið yfir þennan ógæfusama mann og hann verði stöðvaður. Við sem eigum von á heimsókn þessa manns skulum reyna allt hvað við getum svo hann verði stöðvaður. Nú er útl Hringið í síma 86611 milli kl. 14 og 16 eða skrifið tii blaðsins Maður þessi er talinn sekur um mikia glæpi þótt þeir hafi ekki verið sannaðir á hann, og hann segist eiga hér vini, þess vegna sækir hann um að fá að koma hingað. Þetta eru ljótar fregnir. Égskil dcki það fólk sem getur haft þessi mál í flimtingum eins og J.M. gerði til dæmis i þessum dálkum. Þetta er alvarlegt mál þvi ósennilegt er að Frederikssen léti af iðju sinni ef hann kæmi hingað heldur væri öllu liklegra að hann hæfi hér einhverjar að- gerðir miður þokkalegar ásamt hinum islensku „nasistavinum” sinum. — Islendingar, stöndum saman og forðum okkur sjálfum frá þeim ófögnuði sem þessi mað- ur er. Hvílum okkur á Prúðuleikurunum B. Hannesson skrifar. Ég vil meina það að þorri is- lenskra sjónvarpsáhorfenda sé löngu búinn að fá sig fullsaddan á þeim Prúðuleikurum. Þeir hafa nú verið i Sjónvarp- inu i nokkur ár og sifellt er hamr- að á sömu tuggunni. Mér fannst þetta ágætt fyrst, en er nú eins og fleiri orðinn svo leiður á þessu að ég á ekki til orð.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.