Vísir - 29.12.1980, Síða 15
Mánudagur 29. desember 1980
VÍSIR
Siðasta myndin af Lennon, tekin á sjúkrahúsinu i New Vork skömmu efttr aO hann test.
Ég er ekki bitur
99
segir Yoko Ono i fyrsta viðtalinu eftir dauða Lennons
„Mitt hlutverk nú er að koma i veg fyrir fleiri ofbeldisverk vegna dauða
Johns”, sagði Yoko Ono i fyrsta viðtalinu sem hún gaf eftir dauða Lennons.
„Ég er ekki bitur vegna morðsins og þetta er ekki rétti timinn til að láta
hatrið ná tökum á sér”, sagði hún i viðtalinu, sem fram fór i einni ibúðinni
sem þau hjón áttu i Dakota-ibúðabiokkinni. Hún var föl og þreytuleg og tal-
aði i hálfum hljóðum, þannig að söngur aðdáenda og syrgjenda Lennons,
úti fyrir, heyrðist greinilega inn um gluggann.
„Það myndi aðeins auka á
harmleikinn ef fólk sneri nú frá
þeim boðskap sem John gaf þeim
með tónlist sinni”, sagði Yoko og
það var greinilegt að hún barðist
við grátinn, þvi að þótt hatrið
hefði ekki náð tökum á henni
hafði sorgin gert það.
„Nei, ég er ekki bitur”, endur-
tók hún og bætti svo við: „Fólk
segir að það hljóti eitthvað að
vera að hér i New York en John
elskaði þessa borg. Hann myndi
verða fyrstur til að segja að New
York borg ætti ekki sök á þessu.
Það má alls staðar l'inna andlega
brenglaða menn”.
Hún starði niður fyrir sig og
beygði svo af er hún hélt áfram:
„Við höfðum ráðgert svo margt
sem við ætluðum að gera i fram-
tiðinni. Við töluðum um að við
ættum svo mörg ár eftir saman.
Við höfðum jafnvel gert lista yfir
allt það sem við ætluðum að gera
á komandi árum. En nú er allt bú-
ið....”
Hún herti sig upp um leið og
hún hélt áfram: „En það þýðir
ekki, að boðskapurinn hafi liðið
undir lok. Tónlistin lifir áfram og
boðskapurinn með henni”.
t næsta herbergi var fimm ára
sonur þeirra Sean, að leika sér og
Göfug-
lyndi
Kimberley Santos, sem nýlega
varð fegurðardrottning heims,
eftir sögulega keppni i London
nýverið hefur sýnt, að hún á
ymislegt gott til. Hún var beðin
um að arita mynd af sér sem
selja átti i ágoðaskyni fyrir
stofnun sjóðs til hjálpar hinum
lamaða boxara Al Allotey. En i
stað þess að láta þar við sitja á-
kvað ungfrú Santos að fara til
Englands og árita myndirnar i
eigin persónu, sem að sjálfsögðu
jók áhrifin um allan helming. Og
þetta gerði hin nýbakaða drottn-
ing obeðin og án þess að taka aur
fyrir....
John ogYokoíNew York fyrr á þessu ári,
Yoko Ono: „Þetta er ekki rétti
timinn til að iáta hatriö ná tökum
á sér....”
i öðru var sonur John af fyrra
hjónabandi, Julian, að horl'a á
sjónvarp, en hann hafði komið til
New York frá Englandi um leið
og morðið spurðist út.
. Náinn vinur þeirra hjóna,tón-
listargagnrýnandinn Robert Hil-
burn/hefur verið Yoko mikill
styrkur á þessum siðustu og
verstu ti'mum og hann og fleiri
hafa áhyggjur hennar vegna. Að
þeirra sögn er hún ekki sú sterka
persóna sem almenningsálitið
hefurskapað. „Hún og John voru
eins og tviburar tilfinningalega
og nú hefur hún misst annan
helminginn af persónuleika sin-
um”, er haft eftir Hilburn, sem
bætir þvi við, að hún sé nú veru-
lega hjálparþurfi á þessum erfiðu
timum.
Umsjón:
Sveinn
Guöjónsson.