Vísir - 02.01.1981, Blaðsíða 4
var 1980 vendipunktur og upp-
haf hnignunar Sovétveldisins?
Barátta pólsks verkalýös,
menntamanna og bænda til þess
aö losa sig undan þyngsta oki
kommúnistaflokksins eru þeir at-
buröir, sem mest mark setja á
áriö 1980.
Akvarðanir stjórnar Giereks,
sem leitt heföu til veröhækkana á
matvöru, kveiktu andófsbáliö i
brjóstum Pólverja, sem svöruöu
meö þvi að leggja niöur vinnu.
Fljótlega kom i ljós, að baráttan
var ekki um matvöruverð, heldur
snerust kröfurnar um réttindi
sem sjálfsögö þykja með lýöum i
hinum „kapitalisku’’ rikjum. Um
verkfallsréttinn og um réttinn til
aö stofna stéttarfélög, sem
óbundin væru beislistaumum
flokksræðis kommúnista.
Kom þar berlega fram, að
verkalýöurinn og aðrar öreiga-
stéttir telja eftir margra ára-
tuga reynslu af stjórn social-
isku skipulagi og kommúnistiskri
stjorn hag sinum engan veginn
best borgiö i valdsmannshendi
þess flokks, sem byggir þó hug-
myndafræði sina á alræði öreig-
anna. Af viöbrögðum annarra
„öreigastjórna” kommúnista-
rikja austantjalds varð samtimis
ljóst, hve mikill stuggur þeim
stóö af þvi, ef „niðurrifs- og gagn-
byltingaröfl”, eins og verkalýður
Póllands var stimplaöur i ræöum
valdahafa, fengi fram komið
kröfum um rétt til verkfalls, rétt
til aukins málfrelsis, rétt til að
hlýða á guösþjónustuc i útvarpi,
rétt til þess aö koma saman, án
þess aö erindrekar kommúnista-
flokksins stýröu framkomunni.
Um nokkurra vikna bil stóöu
menn á vesturlöndum á öndinni,
meöan „varömenn öreigabylt-
ingarinnar” söfnuöu vigvélum og
herliði aö landamærum Póllands,
þess albúnir aö merja undir
skriðdrekabeltunum djörfung og
einhug Pólverja. Eins og gert var
á sinum tima i Ungverjalandi, i
Tékkóslóvakiu og viöar og viðar
þar sem veldisfáni hamars og
sigðar blaktir við hún.
Undir það er jólahelgin gekk i
garö gátu menn andað léttar,
þegar hjá sýndist liöin i bili hætt-
an á þvi, aö til blóösúthellinga
kæmi, eftir aö hörö viðbrögö á
vesturlöndum og strangar viö-
varanir til Sovétstjórnarinnar,
auk svo loforöa pólskra valda-
hafa, sem tekiö höföu viö af
Gierek, um aö heppilegra mundi
aö reyna aörar leiöir.
Málalok biöa þvi framtiöar-
innar. Þótt pólskur verkalýöur
undir handleiöslu nýs foringja,
Lech W. Walesa, hafi fengiö
mörgum helstu kröfum sinum
fram komiö i bili, trúir þvi eng-
inn, sem séö hefur hið rétta eöli
kommúnismans, að unnin hafi
verið fullnaðarsigur.
Ár Reagans.
Ariö 1980 var kosningaár i
Bandarikjunum og voru þær
annaö mesta umfjöllunarefni
fjölmiðla. Þess veröur minnst
sem uppgangsárs repúblikana-
flokksins og Ronalds Reagans,
sem tekur við forsetaembættinu
siðar i þessum mánuði.
1 kjölfari kosningasigurs upp-
gjafaleikarans sigldi repúblik-
anaflokkurinn til meirihluta i
Bandarikjaþingi eftir nokkurra
áratuga minnihlutaaöstööu þar.
Kosningabaráttan, sem stóö
allt áriö meö sinum venjulega
undanfara i forkosningunum, var
full óvæntra tiöinda. Þá fyrst hve
litla samkeppni Reagan haföi af
öðrum flokksbræörum sinum til
þess aö hljóta útnefningu til for-
setaframboðsins. Einnig hitt hve
óvinsældir stjórnar Jimmy Cart-
ers forseta dugðu þó Edward
Kennedy, átrúnaðargoöi margra
demókrata, litt til þess aö keppa
við hann um útnefningu demó-
krataflokksins. Sjálf kosningaúr-
slitin komu þó langmest á óvart i
yfirburðum Reagans yfir Carter,
þegar flestir höföu búist við mik-
illi tvisýnu i vali kjósenda milli
frambjóöenda, sem enga sér-
staka hrifningu höföu vakið.
Vegna sinna miklu áhrifa i al-
þjóðamálum eru Bandarikin að
vonum miöpunktur i athygli
manna, og menn velta mjög fyrir
sér, hvort Reagan eigi eftir aö
valda straumhvörfum sem mjög
hægrisinna forseti, og ólikur
fyrirrennara sinum. t upphafi
sinnar kosningabaráttu og áður i
keppninni viö Jerry Ford fyrrum
forseta kom Reagan flestum fyrir
sjónir, sem afar ihaldssinnaður
og fylgjandi vofeiflega haröri
stefnu i hermálum. Eftir þvi sem
nær dróg kosningunum, og siöan
eftir aö úrslitin voru kunn, hefur
mönnum sýnst Reagan fara sér
gætilegar i öllu tali og val hans á
embættismönnum væntanlegrar
stjórnar sinnar þykir benda til
þess, aö róttæknin muni ekki
standa þeirri stjórn fyrir þrifum.
Austurlönd nær.
Erjur Israelsmanna og araba
hurfu i skuggann af brambolti Ir-
ana undir handleiöslu ofstæk-
innar holdiklæddrar i Khomeini
æðstapresti. Fyrst ögrun þeirra
viö eitt mesta hernaöarriki ver-
aldar meö þvi að halda áfram
föngnum gislunum, sem þeir tóku
um leið og þeir rufu diplómata-
helgi bandariska sendiráðsins
fyrir jólin 1979. Tókst trönum hiö
nær þvi ómögulega, þegar þeir
vöktu samúð umheims með
Goliat gegn Daviö, enda mál-
staðurinn umsnúinn.
Siöan sýndist kviknað hafa i
sjálfri púðurtunnunni, þegar
braust út strið milli Iraks og Ir-
ans og eldarnir loguöu viö gjöful-
ustu oliusvæöi heims. Ef ööruvisi
hefði staöiö á, heföi mannkynið
aldrei þótt fyrr hafa staðið nær
þriöju heimsstyrjöldinni. Báöa
striösaöila skorti þó bolmagn til
lengri ófriðar og undir hátiöar
fjaraöi út baráttuþróttur beggja,
og vigmæöin lagöi þá i dróma i
bili.
Póskir kolanámumenn i Sélesiu á verkfallsverði horfa djarfleitir út
um giröingu hins sósialiska skipulags.
Afghanskir skæruliöar standa á sovéskri herþyrlu, sem þeir hafa grandaö, og er myndin um leið tákn-
ræn fyrir baráttukjark dvergsins, sem býöur risanum byrginn.
Afghanistan.
Söguskýrendur munu siöar
meir vafalitið þakka það, að
ófriöarbáliö við oliukatlana
skyldi ekki leiða til enn hrikalegri
átaka, hversu vant Sovétmenn
voru látnir við aö binda aðra
hnúta. Þeir eiga viö sitt Vietnam
aö glima i Afghanistan, þar sem
innrásarliði þeirra hefur ekki á
einu ári tekist að brjóta mót-
spyrnu landsmanna á bak aftur.
Um leið varpaöi andófsstormur-
inn i Póllandi þeim öldum á
stjórnskútu austantjaldsvaldsins,
að þar var um ærið nóg að hugsa
á meðan.
Hvort munum við fá að upplifa
það aö sjá, hvar sovéska heims-
veldið kemur á þá endastöð, sem
þeir Alexander mikli, Napóleon
mikli og Hitler luku heimsdrottn-
unarferðum sinum á? Þegar þeir
höföu gleypt yfir meiru en svo, aö
þeir fengju haldið utan um það
allt. Þorir maöurinn að vona, aö
áriö 1980 marki þann áfangann,
sem hillir loks undir þau tima-
mót?
NOKKRIR
SVIPIR
hRSINS,
SEM LEIÐ
-1980-
Jarðskjálftar
Miklir jaröskjálftar uröu I
Alsir, og var taliö, aö um 25
þúsund manns heföu farist. Aður
en mánuöurinn var liöinn, haföi
annar öflugur jaröskjálfti svipt
hundruö þúsunda heimilum sin-
um á ítaliu og er myndin hér fyrir
ofan þaöan.
Eldgos
i mal varð gifurlegt sprengigos
I eidfjallinu S.t Helen I Washing-
ton-riki i USA. Hlaust af mikið
öskufall. eins og sést á innskotnu
myndinni hér fyrir neöan af
bifreiö hálfgrafinni i ösku. Ekki
varðgos þetta mannskætt, en olli
miklu tjóni á aðliggjandi byggö.
Tiu fórust og flestir fyrir ógæti-
legar forvitnisferöir um gos-
stöövarnar.
Geimvisindi
Sovétmenn héldu áfram aö
senda geimfara sina upp I
Saljuttgeimstöö sina og tókust
þær feröir vel. Voyager l-geimfar
Bandarikjamanna hélt áfram
könnunarferö sinni út t geimnum,
og fór franthjá Satúrnusi.
Upplýsingar og myndir sem
bárust frá geimfarinu, þóttu koll-
varpa fyrri hugmyndum stjarn-
fræöinga um plánetuna.