Vísir - 02.01.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 2. janúar 1981
VÍSIR
1981
RLÞJOB-
LEGT AR FATLABRA
Hua Guofeng, formaöur, sást
hvergi viö nýárshátiöarhöid
Pekingstjórnarinnar.
Jóhannes Páll páfi skoraði á
mannkyn i áramótaræðu sinni aö
„sigrast” á þvi sem hann kallaði
„djöfulleg vélabrögð”, sem
vinna i „þágu styrjalda”, og
sagði, að allur heimurinn þráði
frið.
An efa lögðu landar hans i Pól-
landi við hlustirnar, en þar var
minna um dansleikjahald en vant
er, og kyrrlátt i kaffihúsum.
Kirkjunnar menn lögðust allir á
bæn um þjóðareiningu.
Líða Gkki frélta-
mönnum að manga
við hryðjuverkaöfl
Itölsk yfirvöld hyggjast taka
hart á fréttaflutningi fjölmiðla af
hryðjuverkastarfi Rauðu her-
deildarinnar, eftir morð hennar á
lögregluforingja og ráni á
dómara.
Einn blaðamaður hefur verið
handtekinn, sakaður um hlutdeild
i glæpum Rauðu herdeildarinnar,
eftir að birtist grein hans með
viðtali við mannræningjana, sem
hafa dómarann á valdi sinu.
I
Rauða herdeildin hefur einnig
lýst á hendur sér morðinu á
Enrico Galvaligi, hershöfðingja
og yfirmanni lögreglunnar.
Ritstjórar L ’Espresso hafa
látið i ljós áhyggjur sinar vegna
ákærunnar á hendur blaðamanni
þeirra, en Forlani forseti hafur
lýst þvi yfir, að baráttan við
hryöjuverkaöflin væri skylda
hvers italsks borgara, og einkan-
lega þá þeirra, sem móta al-
menningsálitið.
Fyrr á þessu ári var italskur
blaðamaður dæmdur i 4 mánaða
fangelsi fyrir að birta játningar
fyrrverandi foringja i Rauðu her-
deildinni.
Sprenging (hóteli
höluðborgar Renva
Oflug sprenging olli miklu tjóni
á helsta lúxushóteli Nairóbi i gær-
kvöldi, og fórust i henni 16 manns,
en 85 særðust. Enginn vafi þykir
leika á þvi að sprengingin hafi
verið af völdum vitisvélar.
Þakið rifnaði af Norfolk-hóteli i
sprengingunni, sem bergmálaði i
allri höfuðborg Kenya, og voru þá
margir gestir staddir i matsölu
hótelsins. Um ástæður þessa
hryöjuverks veit enginn enn sem
komið er.
1 áramótaræðum þjóöhöfðingja
viðast bar mjög á áhyggjum af ó-
friöarástandi og óvissum lifskjör-
um á örðugleikatimum i efna-
hagsmálum.
Páfinn vakti sérstaka athygli á
þvi, að nú er runnið upp það ár,
sem Sameinuðu þjóðirnar til-
einka fötluðum. Sagöi hann, að
litið brot af þvi fjármagni, sem
varið er til vopnakaupa, gæti orð-
ið til mikillar liknar andlega og
likamlega fötluöum, ef varið væri
i staðinn til læknisfræðilegra
rannsókna.
Það ætlar aö bera á ýmsum
vandamálum fyrra árs strax
núna i byrjun 1981. Einn af klerk-
um Irans lýsti þvi yfir um ára-
mótin, að bandarisku gislarnir 52,
sem þrefað hefur verið um allt
siðasta ár, væru njósnarar og
verðskulduðu að veröa dregnir
fyrir rétt. Jafn ótæpilega og
dauðarefsingum er beitt i Iran
hljómar slikur boöskapur ó-
neitanlega sem ógnun, keimlik
hótunum allra mannræningja,
sem krefjast lausnargjalda.
Sýrlendingar skýrðu frá þvi, að
tvær herþotur þeirra hefðu verið
skotnar niður i loftbardögum við
israelskar flugvélar yfir Suöur-
Libanon.
Afturkom til götuóeiröa i tveim
borgum V-Þýskalands, þar sem
sló i brýnu milli húsnæðis-
leysingja og lögreglu. Þrettán
lögreglumenn og nokkrar tylftir
mótmælaseggja meiddust i átök-
um i Göttingen, þar sem efnt var
til mótmælaaögerða til stuðnings
húsnæðisleysingjum i V-Berlin.
Frændur okkar á Norðurlönd-
unum lögöu áherslu á að vara viö
vigbúnaðarkapphlaupinu i ára-
mótaræðum sinum. Odvar
Nordli, forsætisráðherra Noregs,
hvatti til þess, að lýst yrði yfir
kjarnorkuvopnafriu svæöi, sem
tæki til Austur- og Vestur-
Evrópulanda. Kekkonen Finn-
landsforseti lagði til að teknar
yrðu upp afvopnunarviðræður
Evrópulanda. Sagði hann, að
kjarnorkuvopnabirgðir i heimin-
um i dag samsvöruðu að sprengi-
magni 4 smálestum af venjulegu
sprengiefni á hvern ibúa jarðar.
Brezhnev forseti Sovétrikjanna
sagði Sovétmenn mundu leita á-
fram eftir alþjóðafriði, meðan
þeir viðhéldu þó varnarmætti sin-
um. — Ronald Reagan, verðandi
forseti Bandarikjanna, sagðist
vona, að 1981 yröi ár friðar.
Aramótaboðskapur Kinverja
vakti mesta athygli af þvi, aö
hann var fluttur af Hu Yaobang,
aðalritara kinverska kommún-
istaflokksins, en ekki Hua Guo-
feng, formanni, sem hvergi var
sjáanlegur við nýárshátiðarhöld
Pekingstjórnarinnar. Hua hefur
ekki sést opinberlega siðan 27.
nóvember.
TASS Rennir verka-
ivðshreyflngunni um
vðruskort í Póllandl
Sovéska fréttastofan, TASS,
sagði i gær, að „andsósalisk öfl” i
Póllandi leituðust við aö nota sér
„Einingu”, hin nýstofnuðu verka-
lýðssamtök til þess að skapa póli-
tiska andstöðu og ýta landinu út i
efnahagsringlureið.
Þessi viðvörun er af flestum
túlkuð sem viðleitni til þess aö
þrýsta að forystu kommúnista-
flokksins pólska, og kemur fram,
að Sovétstjórnin þykir hafa sýnt
töluvert umburöarlyndi yfir
þróun mála i Póllandi.
Frétt TASS birtist undir fyrir-
sögninni „ögrandi kröfur”, og
þykir vera ströng áminning til
verkaiýðsforystunnar i Póllandi
um aö reyna ekki að hrófla við
einokun kommúnistaflokksins á
völdunum.
Tass hélt þvi fram, að stjórnar-
andstöðuöflin spilltu vinnu-
hraðanum og afköstum til þess að
hindra að neysluvörur kæmust I
verslanir, og reyndu þannig að
koma á efnahagslegri ringulreið i
von um, að hún fleytti mark-
miðum þeirra áfram.
Burtkallað-
ir 1980
John Lennon,
fertugur Bitill,
myrtur i New
York af einum
aðdáenda
smna.
Alfred Hitch-
cock, áttræður
kvikmyndaleik-
stjóri, andaöist
upp úr veikind- |
um.
Steve McQueen,
fimmtugur
kvikmyndaleik-
arí, andaðist af
krabbameini i
Mexikó.
Reza Pahlavi,
sextugur, fyrr-
um íranskeis-
ari, andaöist i
útlegð i Egypta-
landi eftir löng
veikindi.
PeterSelIers.54
kvikmyndaleik-
ari, andaðist af
veikindum.
Stundum kall-
aöur maður
hinna þúsund
andlita.
Jean-Paui
Sartre, 74 ára
rithöfundur og
heimspekingur
(existential-
isti), andaðist i
Paris eftir veik-
indi.
Josip Broz Tito,
88 ára forseti
Júgóslaviu,
andaöist eftir
langvarandi
veikindi.
Andrei
Amalrik, 42 ára
útlægur sovésk-
ur andófsmaður
og sagnfræðing-
ur, fórst i bil-
slysi.
Alexei Alexei
Kosygin, 76 ára
forsætisráð-
herra Sovét-
rikjanna, and-
aðist eftir veik-
indi.
Strið írans og íraks
í september braust Ut strið milli iraks og lrans og stöðvaðist nær
allur oliuútflutningur frá þessum löndum. Bardagar hafa fjarað út,
en enginn friður verið saminn enn.
Regan forseti
Eftir viðburðarikt kosningaár
hlaut Ilonald Kegan óvænta yfir-
burði og fleytti meö sér
repúblikanaflokknum til
meirihluta i Bandarikjaþingi. —
Hann þykir hafa slakað á mestu
ihaldssemi sinni og hefur kjör
hans mælst viðast vel fyrir.
Ólympiuleikar
ólympiuleikarnir voru haldnir i
Lake Placid um veturinn og
sumarleikarnir i Moskvu i júli, en
á þá skyggði fjarvcrta fjölda
alreksmanna, eins og t.d. frá
USA, vegna mótmæla við
innrásinni I Afghani'stan.
Oliuslys
1 mars hvolfdi norska oliu-
borpallinum Alexander Kíelland
og fórust með honum 128 menn.
Þará mcðal var einn tslendingur.
Siðar á árinu voru gerðar tilraun-
ir til þcss að rétta hnrpallinn við I
sjónum, en gefist upp við þaö I
bili.