Vísir - 02.01.1981, Blaðsíða 8

Vísir - 02.01.1981, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 2. janúar 1981 VlSIR Ritstiórar: .ertsdóttir. Gunnar V. Andróuon. Kristján Ari Einarsson. útlittteiknan: Gunnar Ölafur Ragnarsson og Ellert B. Schram. ' Trausti Guðb|örnsson, Magnús Olafsson. Auglýsingastióri: Pall Stefánsson. Ritstiórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Sn*tand Jónsson. Fráttast|óri er- Dreifingarstióri: Sigurður R. Pótursson. lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup. Arnl Sig- Ritstjóm: Slðumúli 14. slmiáóóll 7 llnur. Auglýsingarog skrifstafur: Slðumúla 8, fússon. Frlða Astvaldsdóttir. Gylfi Kristjánsson, lllugi Jökulsson. Kristln Þor- slmaráóóll og822ó0. Afgreiðsla: StakkholtiT—4. slmi 86411. steinsdóttir. Páll AAagnússon, Sveinn Guðjónsson, Sæmundur Guðvinsson. Þórunn Gestsdóttlr. Blaðamaður á Akureyri: Glsll Slgurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Askriftargjajd kr. 70.00 á mánuði innanlands og verð i lausasölu 4.00 nýkrónur Pálsson, Sigmundur O. Stelnarsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Elin Ell- eintakið. Visir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14. Utgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson. Ef dregiö verður úr veröbólgunni í þrjá mánuði þá er þaö dýru veröi keypt: Ólafslög eru nánast afnumin, fallið er frá niöurtalningu verðbóta verðstöðvun er boöuð og horfið er til uppbótakerfis til aö halda uppi fölsku gengi. Áhöld eru um það. hvors hafi verið beðið með meiri eftir- væntingu á gamlársdag, nýja ársins eða efnahagsráðstafana ríkisstjórnarinnar. AAikil funda- höld höfðu staðið yfir hjá stjórnarsinnum síðustu daga árs- ins og það var ekki fyrr en á síðustu stundu sem samkomulag náðist um tillögur. Ekki var það traustvekjandi. Forsætisráðherra kynnti inni- hald ráðstafananna í áramóta- ræðu sinni og fórst það vel úr hendi. Ljóst var af ræðu hans að tillögurnar bera keim af mála- miðlun enda hafði ráðherrann setið í hlutverki sáttasemjara siðustu dagana og reynt að fara bil beggja hinna ráðandi afla, Framsóknar og Alþýðubanda- lags. Þetta tókst honum trúr þeim einkunnarorðum sínum að viljinn sé allt sem þarf. Ef menn virða viljann fram yfir verkið þá er hér vissulega um að ræða virðingarverða tilraun til að- gerða. Hvað sú tilraun dugar er annað mál. Athyglisverðast við þessar ráðstafanir er sú kjaraskerðing, sem ríkisstjórnin leggur til. Það sætir óneitanlega tíðindum, ef Alþýðubandalagið og verkalýðs- forystan liður 7% skerðingu á verðbótum, í upphafi ársins. Sú skerðing er þó keypt því verði að f ullar verðbætur verði greiddar á siðari stigum. Þannig verður hægt á verðbólgunni í þrjá mánuði til þess eins að setja hana á fulla ferð í níu mánuði. Slíkt getur vart talist víðtæk efna- hagsráðstöfun eða mikil stjórn- viska. Það er góðra gjalda vert að boða fast gengi næstu mánuði en slíkt mun þó reynast erfitt, ef verðbólga verður nærri 50% á ár- inu. Þá er augljóslega byggt á þeirri forsendu að fiskverði og launum sjómannsins verði haldið niðri sem er hæpin forsenda eins og á stendur. Stöðugt gengi verður greitt því verði að ríkissjóður taki lán hjá Seðlabanka að upphæð 8-10 mill- jarða króna til að tryggja af- komu samkeppnis- og út- flutningsiðnaðar. Þetta þýðir í raun að teknar verða upp milli- færslur og fölsk gengisskráning í anda þess uppbótakerf is sem verið hafa ær og kýr allra vinstri stjórna. Boðuð er algjör verðstöðvun til 1. maí en getur varla talist ný- mæli. miðað við þá staðreynd að verðstöðvun hefur verið í gildi allt frá 1970. Og ekki er byrjunin góð þegar leyfð er 10% hækkun allrar opinberrar þjónustu á sama augnabliki og verðstöðvun er tilkynnt. Horfið er frá raunvaxtastefnu og vaxtalækkanir boðaðar en sú stefna mun hafa tvíbent áhrif. Verðbólgubraski er boðið heim á nýjan leik. Margt annað stangast hvert á annars horn. Ríkisstjórnin leggur áherslu á fulla atvinnu, en áskil- ur sér rétt til að fresta opinber- um framkvæmdum. Ríkisstjórn- in lýsir yfir ströngu aðhaldi og sparnaði í opinberum rekstri en stef nir að stofnun nýs ráðuneytis efnahagsráðuneytis. Ríkisstjórnin lofar nánu sam- ráði við samtök launþega um stefnu í efnahags- og kjaramál- um, en hefur hinsvegar engin samráð haft við þau sömu sam- tök þegar þessar efnahags- ráðstafanir eru ákveðnar. Að öðru leyti er efnahags- áætlun ríkisstjórnarinnar að miklu leyti endurprentun á stjórnarsáttmála sem samþykkt- ur var fyrir tæpu ári. Niðurstaðan er sú að þær að- gerðir, sem nú eru boðaðar eru háðar margvislegum fyrirvör- um. Ólafslög eru nánast afnum- in, fallið er frá niðurtalningu verðbóta strax eftir 1. mars, at- vinnurekstrinum er tilkynnt al- gjör verðstöðvun og horfið er til millifærslna og uppbóta á kostnað réttrar gengisskráning- ar. Það er mikil hótfyndni að halda því fram, að þessum ráð- stöfunum megi líkja við upphaf viðreisnarinnar fyrir tveim ára- tugum. Mikilvægt er. ef dregið verður úr verðbólguhraðanum. Hitt er sýnu alvarlegra ef viðnám verður aðeins veitt í nokkrar vik- ur. Þá er aðeins tjaldað til einnar nætur. Hugmyndastofnun rikislns Þvi verður varla i móti mælt að leti og styrjaldir hafa átt hvað rikastan þátt i þróun vis- inda og tækni. Með þessu er þó ekki fullyrt að allir uppf inninga- menn séu latir eða hafi sérstak- an áhuga á að drepa menn. A ís- landi haf hugmyndaríkir menn komið með allskonar uppfinn- ingar sem bæði hafa létt störf og aukið afköst en auk þess komið með nýjungar til framleiðslu. Óendanlega gætu tslendingar talið upp dæmi um uppfinningar og uppfinningamenn sem starfa hingað og þangað um landið. Flestir eiga menn þessir það sameiginlegt að komi þeir með uppfinningu, þá eiga þeir fæstir þess kost að vernda hana eða og jafnvel enn siður möguleika á aö koma henni i framleiöslu. Fundnar hafa verið upp fisk- vinnsluvélar, skuttogarinn var fundinn upp hér þó aðrar þjóðir yrðu fyrri til að byggja hann, nýtt lag á skipsskrokki var fundið af Islendingi og það er þó i byggingu i Stálvik og mun væntanlega spara stórar fjár- hæðir i eldsneyti. I almennum störfum eru tslendingar býsna seigir við að firina upp aðferðir eðatækisem létta störfin og þar kemur letin til góða. Uppfinningamenn Hér eru nokkrir uppfinninga- menn sem nær stöðugt starfa að margskonar uppfinningum jafnframt öðrum störfum, landskunnir uppfinningamenn eru t.d. Fjólmundur á Hofsósi, Sigmund i Vestmannaeyjum, Jóhannes á Hvolsvelli og Jónas á Sauðárkróki. Margir munu svo kannast við einhverja upp- finningamenn i nágrenni sinu. Segja má, þó ekki sé alhæfing að flestir þessara manna eru að basla við rekstur einhverra fyrirtækja sem gengur upp og ofan sem gengur. Það versta i þessu sambandi er svo það að menn þessir eyða mestum tima sinum i framleiðslu og smiðar i stað þess aö vera bara i upp- finningum sem aðrir ynnu siðan úr. Hugmyndastofnunin Með þessum linum vil ég vekja enn á ný upp hugmynd sem þegar hefur þó komið fram hjá öðrum, að rikið stofni til hugmyndasmiðju og ráði til hennar þá uppfinningamenn sem kynnt hafa sig af þvi að koma með góðar hugmyndir i tækni og framleiðslu. Stofnun þessi þyrfti að búa yfir verk- stæði vel búnu og kaupa efni til þeirra verkefna sem samþykkt yrði að viðkomandi uppfinn- ingamenn ynnu að. Væntanlega þyrfti stofnunin að hafa ráð tæknimanna sem þyrfti hverju sinni að samþykkja að unnið yrði úr tiltekinni hugmynd. Stofnunin gæti hugsanlega starfaö með þrennskonar hætti, eða i fyrsta lagi réöi hún upp- finningamenn til starfa, sem siðan störfuðu á verkstæðinu að hugmyndum sinum eftir sam- þykki ráðsins, í öðru lagi gætu uppfinningamenn lagt hug- myndir sinar fyrir ráðið þó þeir störfuðu utan stofnunarinnar. Værihugmynd þeirra samþykkt myndu þeir starfa á verkstæði stofnunarinnar við verkefnið uns þvi væri lokiðog þá á fullum launum en stofnunin greiddi all- an kostnað. I þriðja lagi gætu uppfinningamenn lagt hug- myndir sinar fyrir stofnunina og að fengnu samþykki unnið að verkefninu á eigin verkstæði en fengju þá nánar tiltekna upphæð i styrk. Alislenskt fyrirtæki Hvernig sem svo væri unnið úr uppfinningunni yrði fram- hald málsins með likum hætti eða t.d. þeim að Hugmynda- stofnunin annaðist kaup nauð- synlegra einkaleyfa og ætti ráð- stöfunarrétt á hugmyndinni en viðkomandi uppfinningamaður nyti hagnaðar af sölu hugmynd- arinnar og svo filtekinna pró- senta af hagnaöi sem yrði af framleiðslu eða afnotum hug- myndarinnar. Einnig mætti hugsa sér að Hugmyndastofnunin fengi ein- hvern hlut af hagnaði og gæti þannig smá saman náð tekjum Kristinn Snæland vekur máls á þeirri hugmynd, aö ríkið veiti uppfinn- ingamönnum aðstoö með því að setja á fót Hug- myndastofnun, til að koma i veg fyrir „þá sóun að láta uppfinningamenn basla hvern i sínu horni". sem stæðu undir rekstrarkostn- aði. Svo hugmyndarikir sem is- lendingar eru þá er nánast sóun að rikið láti uppfinningamenn- ina ,,ganga lausa” baslandi hvern i si’nu horni. Þar sem þetta er alislenskt verkefni erekki útilokað að iðn- aðarráðherrann sýni þessu vin- semd og vitanlega ekki aðeins það heldur drifi i málinu og ég segi, sannarlega þarf ekki að skoða þetta mál, þessu máli verðurað hrinda i framkvæmd af krafti en ekki pólitiskum vöfl- um.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.