Vísir - 12.03.1981, Blaðsíða 15
14
VÍSIR
Fimmtudagur 12. mars 1981
Fimmtudagur 12. mars 1981
VÍSIR
15
III
.
■
Deildar-
stióra f
stiorn
sagi uddi
AstæDan er ósamlyndi
viö varaflugmálastjóra
,,Hér meö er yður sagt upp störfum frá og með 1.
mars n.k.
Samgönguráðuneytið hefur samþykkt að greiða
yður laun úr rikissjóði i 3 mánuði frá sama tima að
telja. Hefur það einnig samþykkt uppsögn yðar.
Störfum yðar fyrir embættið lýkur 1. mars 1981”.
Nýja flugstöðin i Vestmannaeyjum er eitt þeirra verkefna, sem Hrafn Jóhannsson hafði umsjón meö i
byggingu.
Bréf þetta er undirritað af
Agnari Kofoed-Hansen, það er
skrifað á bréfsefni ílugmála-
stjóra, en stimpill embættisins
fylgir ekki undirskriftinni.
Laugardaginn 28. febrúar komu
tveir stefnuvottar heim til Hrafns
Jóhannssonar deildarstjóra ílug-
valladeildar og afhentu honum
bréfið.
Hrafn skrifaði flugmálastjóra
svarbréf 3. mars, þar sem hann
bendir á að uppsögnin sé ekki i
samræmi við ráðningu hans og
þviólöglegog hann muni mæta til
starfa sem fyrr. Hann mætti til
starfa en á fimmtudagsmorgun,
5. mars, var kominn ný læsing á
skrifstofuhurð hans.
Afrit af bréfi sinu sendi Hrafn
Samgönguráðuneytinu, formanni
flugráðs og lögfræðingi sinúm.
Sögulegur aðdragandi
Uppsögn þessi á sér all söguleg-
an aödraganda og rekur Hrafn
hann ýtarlega i bréfi, sem hann
skrifaði flugráði 3. mars þar sem
hann óskar eftir að flugráð beiti
sér fyrir að uppsögnin verði dreg-
in til baka.
bar upplýsir hann að hann hafi
verið ráðinn sem deildarstjóri
flugvalladeildar 1. ágúst 1973,
sem þá var hluti af flugöryggis-
þjónustu en var flutt undir flug-
málastjóra beint 1. april 1978,
samkvæmt ákvörðun flugmála-
stjóra sjálfs.
„Mér virðist að aðdraganda
þessa máls megi rekja til
skipunar Péturs Einarssonar i
starf „framkvæmdastjóra flug-
valla” 1. sept. 1980 en flugráði
mun kunnugt um aö sú staða var
aldrei auglýst laus til umsóknar
svo sem lög mæla fyrir um”, seg-
ir i bréfi Hrafns.
bá rekur Hrafn að Pétur kynnti
honum skipun sina i stöðu vara-
flugmálastjóra og framkv.st.
flugvalla og tjáði honum um leið
Pétur Einarsson:
„Tei að Hrafn han
veriö algjdrlega
fullreyndur"
„Aö minu áliti er starfsmanni
ekki sagt upp, nema veigamikiar
ástæöur liggi að baki”, sagði Pét-
ur Einarsson varaflugmálastjóri,
þegar fréttamaöur ræddi viö
liann um uppsögn Hrafns Jó-
hannssonar.
„betta bréf sem ég skrifa
Hrafni i nóvember, er neyðarúr-
ræði og skrifað til hans eins og ég
hef ekki dreift þvi á íleiri staði.
bað hefur hann gert sjálfur.
betta er áminningarbréf yfir-
manns til undirmanns og ég stend
við hvert orð sem i þvi er sagt”.
— 1 bréfinu segir þú að flestir
starfsmenn flugvalladeildar hafi
kvartaö viö þig undan Hrafni en
hann hefur fengið bréf frá þriðj-
ungiþeirra þar sem þeir neita að
hafa kvartað. Hvaö viltu segja
um þetta? .
„Ekki neitt. betta er min íull-
yrðing og er nú ekki þungamiöjan
i bréfinu að minu mati.
Annars vil ég litið láta hafa eft-
ir mér annað en það að þetta er
sparnaður i rikisrekstri að segja
upp ákveðnum starfsmönnum.
bað er sjaldgæft að gera þetta,
þess vegna er það sláandi”.
— Er þetta gert i sparnaðar-
skyni?
„Já, vissulega, þvi ef þú ert
með starfsmann sem þú telur
óhæfan er mikill sparnaður i þvi
aðsegja honum upp. Og hluturinn
er sá að ég tel að hann hafi veriö
algjörlega fullreyndur”.
— Var útilokað að þið Hrafn
gætuð starfað saman?
„baðeruhreinar linur. bað var
fuílreynt af minni hálfu.
Persónuleea hef ée ekkert út á
Pétur Einarsson varaflugmaia-
stjóri.
þennan mann að setja, en hann
var ekki hæfur þarna, sem hann
sat". sv
aðhann mundihalda störfum sin-
um áfram án breytinga fyrst um
sinn. betta gerðist 10. okt. s.l.
Harðort bréf
bann 20. nóv. fær Hrafn svo
bréf frá Pétri þar sem hann er
borinn þungum sökum i mörgum
liðum. bar segir m.a.
„Af 36 mönnum, sem telja má
starfsmenn flugvalladeildar, eru
þeir teljandi á fingrum annarar
handar sem ekki hafa komið að
máli við undirritaðan og kvartað
yfir störfum yðar. Umkvartanir
þeirra hafa verið: Stjórnleysi,
sambandsleysi, óvissa og
ósveigjanleiki”.
Hrafn rekur áfram i bréfi sinu
til flugráðs, að i framhaldi af
ofanritaðri klausu i bréfi Péturs
hafi hann óskað svars frá Félagi
flugvallastarfsmanna um sam-
starf sitt við þá. Stjórn félagsins
skrifar þá Pétri og fullyrðir að
enginn félagsmanna hafi kvartað
við félagið undan Hrafni en
harmar „að svo stór hópur af
félögum i F.F.R. eru með um-
ræddu bréfi dregnir órökstutt inn
i deilur um stjórnun stoínunar-
innar”.
Innanhússdeilur
Hrafn skrifar siöan hverjum
einstökum starfsmanni flugvalla-
deildar og biður þá að staðfesta
eða hrekja ummæli Péturs um
kvartanir þeirra.
bar með blossar eldurinn upp.
Pétur tilkynnir Hrafni að þeir
verði ekki báðir hjá flugmála-
stjórn, úr þvi sem komið er og
flugmálastjóri bregður við hart
og hringir til starfsmanna flug-
valladeildar og biður þá þess
lengstra orða aö svara ekki bréfi
Hrafns, það væri best að láta þá
þarna i Reykjavik um sinar
innanhússdeilur á hann að hafa
sagt og best að allir gleymi þeim.
brátt fyrir þessi tilmæli flug-
málastjóra hafa 12 svarbréf bor-
ist Hrafni. 011 eru þessi bréf á
einn veg, menn segjast ekki hafa
kvartað.
„Mér er ljúft að lýsa þvi hér
með yfir að samskipti okkar og
samstarf á undanförnum árum
hefur i alla staði verið með ágæt-
um”. „Ég hef aldrei verið
spurður álits á störfum þinum og
þvi siður kvartað að fyrra bragði
yfir þeim við nokkurn mann”.
„Mér hefur fundist þú einum of
trúr stofnuninni og sjónarmiðum
hennar en kvartanir i þá veru
hefðu sjálfsagt litinn hljómgrunn
hlotið hjá yfirboðurum þinum”.
betta eru glefsur úr nokkrum
bréfanna.
Flugráð er ekki ánægt
Flugráð ræddi bréf Hrafns fyrir
helgina og gerði eftirfarandi
samþykkt:
„Meirihluti flugráðs (Leifur
Magnússon, ólafur Haraldsson
og Ragnar Karlsson) telur
ákvörðun um uppsögn hlutaðeig-
andi starfsmanns, bera að meö
óvenjulegum hætti og rétt hefði
verið að leggja málsatvik fyrir
með eðlilegum fyrirvara, til um-
sagnar flugráðs áður en slik
ákvörðun var tekin”.
1 reglum er ákveðið að flugráð
skuli fjalla um starfsmanna-
ráðningar en ekkert er þar sagt
um uppsagnir. Meirihluti flug-
ráðs mun þó telja að eðlilegt sé að
eins sé með þær farið og áréttar
það álit með samþykkt sinni.
Hver er ástæðan til að Hrafni er
sagt upp starfi nú, eftir tæpra átta
ára vinnu hjá stofnuninni? Um
það spurðum við Agnar Ko-
foed-Hansen flugmálastjóra, Pét-
ur Einarsson varaflugmálastjóra
og Hrafn sjálfan.
SV
Hrafn Jóhannsson:
Andstaöa Agnars
gegn flugráöi
Deinist gegn mér'
„begar flugráö var skipað
sköpuðust miklir samstarfserfið-
leikar, milli Agnars og flugráðs
og það hafði áhrif á mitt starf, þvi
ég var kallaður á fundi flugráðs,
þar seni mér voru falin ýms verk-
efni og það lá við að Agnar væri
að vinna gegn þvi”, svaraði
Hrafn Jóhannsson, þegar frétta-
maður spurði hann hverjar hann
teldi vera ástæður fyrir uppsögn
hans.
Gefinn kostur á að segja
upp
„bessi andstaða Agnars gegn
flugráði beinist lika gegn mér,
vegna þess að formaður flugráðs
erfyrrverandi mágurminn og þvi
ey ég tengdur þvi á ákaflega
óheppilegan og óeðlilegan hátt”.
— A þessi uppsögn þá langan
aðdraganda að þinu mati?
„Ég álit að grundvöllurinn
skapist þegar Steingrimur Her-
mannsson skipar Pétur i embætti
framkvæmdastjóra flugvalla.
Hann fær ekki ákveðið markað
starfssvið, en það kemur fljótt i
ljós að honum er ætlað að vinna
min störf. bá lá i loftinu að ég yrði
annað hvort að breyta um starfs-
svið eða vikja úr starfi. Á fundi
með Pétri fullyrðir hann að Agn-
ar stefni að þvi að einangra mig i
starfi og gefur jafnframt i skyn að
það sé nóg að gera fyrir tækni-
fræðinga. betta gerðist á fundi 21.
nóvember.
Siðan 8. janúar, kallar Agnar
mig á fund sinn og tilkynnir mér
Hrafn Jóhannsson
fræðingur.
tækni-
að búið sé að ráða Pétur i mitt
starf og hann telji æskilegt að ég
hætti og gefur mér kost á að segja
upp, þar sem samstarf okkar sé
ekki að hans skapi”.
,,Vildi verja hendur
minar”.
— Hvers vegna valdir þú ekki
þann kost?
„Ég taldi þetta ákaflega óeðli-
leg vinnubrögð og vildi láta á
þetta reyna og sjá hvort þetta
ástand batnaði ekki. Ég tel að
þetta sé að mestu leyti runnið
undan rifjum Agnars. Nú, eftir
átta ára starf yfirgefa menn það
ekki umhugsunarlaust, þó að
skapist ástand eins og þetta.
Ég vildi lika verja hendur min-
ar ef svo mætti segja, og leitaði á
náðir Bandalags háskólamanna
og lagði fyrir það þær bréfaskrift-
ir sem farið hafa fram, eftir að
Pétur var ráðinn.
Bandalagið átaldi harðlega þá
ráðningu og taldi hana ólöglega
með öllu og ávitti ráðuneytið, en
þar með höfðu þeir ekki fleiri
vopn”.
Eini vinurinn
— Var samkomulag ykkar
Péturs afar stirt?
„bað var i rauninni ekki stirt
fyrr en Pétur tjáði mér um skipun
sina i þetta embætti, þá sagði ég
við hann að hann stefndi mark-
visst að þvi að bola mér úr starfi.
Hann viðurkenndi það ekki sagði
raunar að hann væri eini vinur
minn innan stofnunarinnar.
Hann fól mér ýms verkefni
m.a. átti ég að gera frumdrög að
næstu fjögurra ára framkvæmda-
áætlun og fól mér að sjá um bygg-
ingar flugstöðvanna á Hornafirði
og Húsavik.
1 raun og veru springur
sprengjan ekki fyrr en hann
kemstað þvi að ég hef skrifað út á
land, til samstarfsmanna minna
varðandi- samstarf mitt við þá.
Ég varð svo var við að Agnar
hringdi út á land og reyndi að
koma i veg fyrir að mér tækist að
bera þær ávirðingar af mér, sem
Pétur bar á mig”, sagði Hrafn Jó-
hannsson. SV
Agnar Kofoed-Hansen:
PP
Ráöuneytið taldi betta
verða aö fara svona’
„Paö eru engar astæöur geínar
upp fyrir hans uppsögn”, sagði
Agnar Kofoed-Hansen þegar
fréttamaður spuröi hann um
ástæðurnar fyrir uppsögn Hrafns
Jóhannssonar
— Og verða ekki?
„Neinei. Hann er lausráðinn
maöur, hefur aldrei verið fast-
ráðinn og það er engin ástæða
gefin fyrir hans uppsögn. Um
þetta er ekki annað að segja en að
þarna verður breyting á”.
„Þegar hjúin deila...”
Um bréf Péturs Einarssonar til
Hrafns sagði Agnar: „bað er inn-
anrikismál og þegar hjúin deila,
skipti ég mér ekki af þvi. Ég vissi
ekki um þetta bréf fyrr en eftirá
og það er þeirra mál”.
— Var það ekki skrifað með
þinni vitund?
„Nei, ég var erlendis, þegar
það var skrifað”.
— Er þér kunnugt um efni þess?
„Jájá, ég sá það skömmu eftir
að ég kom”.
— Ber að lita svo á að þú hafir
með þögninni samþykkt efni
þess?
Agnar Kofoed-Hansen flugmáta-
stjóri.
„Eg get ekkert sagt um það
nema verða aðili að þessari deilu
þeirra, þannig að ég úttala mig
alls ekki um það bréf. Og ef ég
gerði það væri það innan stofn-
unarinnar”.
Út um allar koppa-
grundir
— Hvað er hæft i aö þú hafir
haftsamband við flugvallastarfs-
menn og beðið þá að svara ekki
bréfi Hrafns, þar sem hann biður
þá um umsögn um samstarf
hans og þeirra?
„bað er ekki rétt, ég hef ekki
haft samband nema við örfáa
menn um þetta. Ég vildi náttúru-
lega siður að þetta færi út á land
og út um allar koppagrundir, án
þess að maður vissi nokkuð af
þessu. betta er afar óvenjulegt og
þetta á að vera innan þessarar
stofnunar, eingöngu en fara ekki
út um alltland og jafnvel inn á Al-
þingi.
Ekki i gamni gert
— Hvaða nauðsyn var á að láta
Hrafn hætta störfum strax?
„Hún var sú að það lá fyrir bréf
frá hans næsta yfirmanni, Pétri
Einarssyni framkvæmdastjóra
um að hann gæti ekki unnið með
Hrafni og hann var reiðubúinn —
og var með bréf um það — að
hann segði þá af sér störfum 1.
mars ef Hrafn yrði ekki farinn
áður. bess vegna var honum sagt
upp frá þessum tima með þriggja
mánaða uppsagnarfresti sem er
þá um leiö þriggja mánaða fri
þvi þeir gátu ekki unnið saman.
Málið er svona einfalt.
betta gerir maöur ekki að
gamni sinu og þetta gerði ég ekki
fyrr en ég hafði ráðfært mig við
ráðuneytið og þeir töldu þetta
verða að fara svona miðað við
allar aðstæður og ég geri ekki ráð
fyrir að þeir hafi verið neitt
ánægðari heldur en ég”.
Ærnar ástæður
— Eru þér kunnar ástæður þess
að Hrafn og Pétur gátu ekki
starfað saman?
„Mað.ur kemst ekki hjá þvi að
vita eitthvað um þær, en þær
skipta ekki öllu máli i þessu. bær
verða þá bara að koma seinna i
ljós, en það virðast hafa verið
ærnar ástæður, ég verð að meta
það þannig”. ,
— Var Hrafn að þinu mati ekki
hæfur til þessa starfs sem hann
hafði með höndum?
„Á þessu stigi málsins, hvorki
get ég né vil úttala mig um það.
Mat á störfum manna er afskap-
lega viðkvæmt og erfitt”, sagði
Agnar Kofoed-Hansen. SV
Lítið sýnishom af
tágu vöruveröi:
• Bú/görsk kirsuberjasu/ta 500 gr.
Verð kr. 10.25
• Bú/görsk hindberjasu/ta 500 gr.
Verð kr. 10.25
• Bú/görsk jarðaberjasu/ta 500 gr.
Verð kr. 10.25
• Sa/taðar rúllupylsur
kg.-verð kr. 25.00
• Hangiframpartur úrbeinaður
kg.-verð kr. 52.40
• Haframjöi Só/grjón 1 kg.
Verð kr. 8.00
• Perur 1/1 dósir Libby's
Verð kr. 14.75
• Biandaðir ávextir Libby's
Verð kr. 17.40
• Káifaiifur kg.-verð kr. 15.00
• Lambahjörtu, vacuumpökkuð
kg.-verð kr. 20.10
• Lambanýru, vacuumpökkuð
kg.-verð kr. 20.10
• Lambalifur, vacuumpökkuð
kg.-verð kr. 31.30
• WC-pappir 12 rúllur i pakkningu
Verð 26.10
• Coccoa Puffs 340 gr.Verð kr. 16.80
• C-11 þvottaefni 3 kg. pakkning
kg.-verð kr. 11.05
• Sykur 25 kg. Verð pr. kg. kr. 8.65
• Krakus b/áberjasu/ta 500 gr.
Verð kr. 9.55
• Krakus jarðarber 1/1 dósir
Verðkr. 18.70
• Eldhúsrúllur 4 stk. i pakka
Verð kr. 18.05
• Ananashringir 1/1 dósir
Verð kr. 12.80
• Honeynut Cheerios 397 gr.
Verð kr. 16.05
Heimsendingarþjónusta
á miðvikudögum
OPIÐ: föstudaga k/. 9—22
/augardaga k/. 9—12
í Matvörudei/d og Rafdei/d
A A A A A A
Jón Loftsson hf.
_ICKJ Jjj
jlji ímj J;
-j-juLn j n'
rrrrm
Hringbraut 121 Simi 10600
Fyrst um sinn er
opið í:
■k Byggingavörudei/d
★ Húsgagnadeiid
★ Teppadei/d
til kl. 19 á föstudögum,
en lokað á laugardögum
VORV-
KYNNINGAR
ALLA
FÖSTUDAGA
KL. 14-20