Vísir - 12.03.1981, Blaðsíða 19
■
— hrópaði eiginkonan þegar eiginmaðurinn
var dæmdur fyrir að myrða elskhugann
Hin átján ára gamla Brenda Fleming brotnaði niður og grét er eigin-
maður hennar, Stephen Fleming, var dæmdur i sex ára fangelsi fyrir að
myrða besta vin sinn Brian Pickard. Brian hafði verið svaramaður i brúð-
kaupi þeirra Brendu og Stephens i mars á siðasta ári og skömmu eftir brúð-
kaupið varð hann staðgengill eiginmannsins i hjónarúminu.
Þegar Stephen var leiddur
kjökrandi út úr réttarsalnum i
Leeds á föstudaginn sl. hrópaði
Brenda, sem einnig flóði i tárum:
— ,,Ég tek á mig sökina, þetta er
allt mér að kenna". Og er lög-
fræðingur hennar leiddi hana út
úr réttarsalnum bætti hún við:
„Égmun biða eftir honum þvi að
núgeri ég mér grein fyrir að hann
er sá eini sem ég elska". En áður
höfðu þeir sem viðstaddir voru
réttarhöldin heyrt i smáatriðum
hvernig hún gerði eiginmanninn
brjálaðan úr afbrýðisemi vegna
sambands sins við svaramanninn
og besta vin Stephens.
Fjórum mánuðum eftir brúð-
kaupið komst Stephen að sam-
bandi þeirra Brendu og Brians og
reyndi að binda endi á það. En
elskendurnir voru tregir til að
slita sambandi sinu og m.a. kom
það fram i réttarhöldunum að
Brenda hafði stungið upp á þvi að
þaubyggju öll þrjú saman. Brian
mun hins vegar hafa gert litið úr
Stephen og hælt sér af ástarsam-
bandi sinu og eiginkonunnar upp i
opið geðið á honum. í réttinum
sagði Stephen, að sér hefði veriö
nóg boðið þegar Brian sagði
honum að barn það sem Brenda
gekk þá með væri sitt en ekki
Stephens. Hann varð sér úti um
búrhnif, sem hann framdi verkn-
aðinn með, eftir að hafa gert mis-
heppnaðar tilraunir til að fyrir-
fara sér.
Ekki voru allir á einu máli um
dóminn sem Stephen hlaut fyrir
Eiginmaðurinn Stephen Fleming,
24. ára, var ær af afbrýðisemi og
hafði áður gert tilraunir til að
fyrirfara sér.
morðið og urðu mikil hróp og köll
i réttarsalnum þar sem sumir
heimtuðu að Stephen yrði
hengdur en aðrir hrópuðu svivirð-
ingar að Brendu og kenndu henni
um.
Elskhuginn, svaramaðurinn og
besti vinurinn, Brian Pickard,
var 22 ára er hann var myrtur i
september sl.
« 1 :o á söl ki m i r la”
Fyrsta opinbera
skyldustarfið
- klæðnadur laf ði Diönu vakti umtal
Fyrir nokkrum dögum kom
lafði Diana Scnccr f fyrsta skipti
fram opinbcrlega sem með-
limur bresku konungsfjölskyld-
unnar. Var það i Goldsmith-
salnum i London á samkomu
sem haldin var til styrktar
konunglegu óperunni og aö
sjálfsögðu kom hún þar fram
ásamt unnusta sinum, Karli
Bretaprins.
Var til þess tekiö hversu
glæsileg þau voru, hann i
„smoking" cn hún i dökkum
siðum samkvæmiskjól og hefur
breskum blöðum einkum orðið
tiðrætt um klæðnað ungfrúar-
innar. En þótt flestum beri
saman um giæsilcik lafðinnar
gátu nokkrar „púritanskar”
sálir ekki látið hjá líða að nöldra
svolítið vegna þess að þeim
fannst kjóllinn of fleginn. Þær
raddir hljómuðu þó sem
hróp i eyðimörkinni
innan um það flóð
lofsamlegra
ummæla sem
klæðnaður
Diönu fékk i
press-
unni.
Lögfræðingur Brendu leiðir hana grátandi út úr réttarsalnum i Leeds
siðastliðinn föstudag.
IKIæönaður lafði
Diönu vakti
mikla athygli
gfrúin^
°S f*Im- ^
stjarnan \
Stúlkan á meðfylgjandi mynd Wk.
heitir Sian Adey-Jones og var Nx:.
hún kjörin ,, Ungfrú Wales" á sið- ■
asta ári. Hún var nýlega stödd i 1
Hollywood sér til andlegrar og 1
líkamlegrar upplyftingar og '
kvöld eitt er hún sat á veitinga-
stað settist Clint nokkur
Eastwood við næsta borð við
hana. Þar sem hún er mikill
aðdáandi leikarans varð ung-
frúnni að vonum mjög starsýnt á
hetjuna sina sem svaraði i sömu
mynt, snortinn af fegurö stúlk
unnar. Og það þarf ekki að
spyrja að leikslokum þvi
auðvitað yfirgáfu þau veitinga-
staðinn saman betta kvöld.... A