Vísir - 21.03.1981, Qupperneq 20

Vísir - 21.03.1981, Qupperneq 20
20 VlSIR Laugardagur 21. mars 1981. hæ krakkar Heimatilbú* in hljódfæri Margir krakkar hafa gaman af þvi að búa sér til einföld hljóð- færi., Hér koma tvær uppástungur að slikum hljóðfærum. Fyrst er það naglaborð. í það notið þið 9 nagla og spýtu eins og sést á myndinni, Neglið naglana i spýtuna, þannig að þeir séu þrir og þrir mismunandi hátt. Notið svo 10. naglann til að strjúka með hina naglana. Þá fáið þið fram hljóm úr naglaborðinu. Úr jógúrtboxum eða skyrboxum getið þið gert hljóðfæri með þvi að setja i boxin t.d. hrisgrjón, baunir, tölur, eða litlar kúlur,. Siðan lokið þið boxunum vel og limið yfir samskeytin með limbandi. 1 - I Fljúga hvítu fiörildin Getið þið fundið stystu leið i gegnum þetta farartæki? Athugaðu þessa mynd gaumgæfilega i 30 sekUntur. Leggðu síðan blað yfir myndina og reyndu að svara eftirfarandi spurningum. 1. Er annar hvor maðurinn í svörtum skóm? 2. Heldur viðskiptavinurinn á peningi? 3. Eru báðir mennirnir með gleraugu? 4. Er bót á jakka eldspýtnasalans? 5. Er viðskiptavinurinn með slaufu? Ljóðið í dag velur Haukur Harðarson, 4 ára. Hann velur sér; Kristín segir tíðindi eftir Sveinbjörn Egilson. Fljúga hvitu fiðrildin fyrir utan glugga: Þarna siglir einhver inn ofurlítil dugga. Umsjón: Anna K. Brynjiílfs- ddttir Bréf frá Depli Þið munið kannski eftir því, að ég sagði ykkur f rá því um daginn, að ég væri nú staddur í Gullfiska- búðinni ásamt tveimur öðrum köttum, pers- neskum og síams. Nú eru þeir báðir farnir. Ég var nú hissa þegar sá persneski fór. Hann beit og klóraði og kunni enga almennilega kattarsiði. En svo var það einn dag- inn, að í búðina kom kona. Hún sá okkur hérna félagana. „Æ, þarna er kötturinn, sem ég vil fá." sagði hún. Svo tók hún þann persneska og það virtistengin áhrif hafa á hana, þó að hann gæfi henni nokkrar rispur. Hún fór með hann með sér. Þá var ég orðinn einn eftir,en það breyttist nú fljótlega, því að í gær komu hingað þrír. kett- lingar. Þeir eru ósköp stilltir, greyin, enda svo litlir enn þá. Ég er nú líka kettlingur en ég er samt stærri en þeir. Mér er nú farið að leiðast hér. Ég hef það helst mér til skemmtunar að leika við nýkomnu kettlingana. Svo virði ég fyrir mér fólkið, sem kemur inn í búðina að kaupa fiska og f ugla og naggrísi. Það vill víst eriginn kaupa okkur kisurnar. Við fylgjum bara með í kaupbæti, ef eitthvað annað er keypt. Það kaupa margir fiska, enda eru þeir hér í mörgum búrum. Ég verð alltaf svo svangur, þegar ég sé alla þessa f iska. Ég held að þeir' hljóti að bragðast miklu betur en dósamaturinn, sem við fáum. Hann er sosum í fínum dósum og með mynd af kisum utan á dósunum. Jæja. ég er nú viss um, að næst þegar ég skrifa ykkur bréf, verð ég ekki lengur í Gullf iskabúðinni. Það kemur áreiðanlega bráðum einhver að kaupa hér, sem vill fá mig í kaupbæti. Ég segi ykkur kannski f rá því seinna, ef svo fer. Ykkar einlægur Depill Högnason.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.