Vísir - 21.03.1981, Side 23

Vísir - 21.03.1981, Side 23
Laugardagur 21. mars 1981. VISIR 23 okkur — þau sem þá voru komin i fangelsi, þau gátu ekki verið samþykk ööru eins”. Sendur burt Sp: „Hvers vegna ekki? Þetta var jú allt gert til aö ná þeim út úr fangelsinu”. B: „Ég held að þau i Stamm- heim (hér er verið að tala um þau Baader, Ensslin og Raspe, sem frömdu sjálfsmorð þegar flugvél- inni hafði verið náð ur höndum terroristanna í Mogadischu) hefðu verið á móti þessu af hug- myndafræöilegum ástæð- um — frelsi mátti ekki vera á kostnaö hvers sem var. Þau höföu sagt: Ekkert má gera, sem skaðar utanaðkomandi, fólkið i landinu og ég held þau hafi meint það”. Sp: „En þaö hafði þó gerst áöur aö „fólkiö í landinu” mátti þola lýmislegt t.d. þegar 34 verkamenn 'voru særðir i átökunum 1972”. (Arásin á Springer útgáfufyrir- tækið) B: „Og þá var lika rætt um það i hópnum og það gagnrýnt. Það var lika i siöasta sinn sem sjálfs- gagnrýni var oröuð i hópnum og þaö er einkennandi fyrir hug- myndafræðilegt ástand okkar”. Sp: „Eftir Mogadischu — varð ykkur sýnt, að nú þýddi ekki lengur að ná föngum út eða heimta hitt og þetta með þvi að taka gisla?” B: „Ég veit ekki hvaö hugsaö var. Sjálfur þóttist ég vita að gislataka væri ekki lengur til gagns”. Sp: „En þú varst nú talinn i hópi þeirra vantrúuðu”. 1 B: „Já, eða mér var alla vega ekki hægt að treysta lengur. Það kom fleira til en ósamþykki um stefnu eöa aðgeröir — ég var á kafi i dópi. Ég var i öllu heroini, dolantini, morfini, kokaini. Arið . 1977 tók ég 4—8 sprautur daglega. Þaö var álitið best að ég kæmi mér úr landi. Og ég fór skömmu eftir að Schleyer var rænt, hann var enn lifandi þegar ég fór”. Á flótta Boock komst til Brussel, og flaug þaöan til Bagdad. Þar var hann nokkurn tima en fór siðan aftur til Evrópu. Mai 1978 var hann i Júgóslaviu ásamt þremur öðrum félögum sinum. Þau voru öll handtekin af júgóslavnesku . lögreglunni og Boock var settur i rækilega afvötnun, eða afeitrun öllu heldur. Honum var þá orðiö ljóst að hann átti ekki lengur samleið meö RAF-félögum sinum og var efst i huga hvernig hann gæti losað sig úr samtökunum. Eftir að ekki náðust samningar milli júgóslavneskra og þýskra yfirvalda um framsal fanganna, flaug Boock frá Belgrad til Jeman og þar var hann frá nóvember 1978 til ársloka 1979. Eins og hann segir sjálfur: „1 Jeman hafði ég tima til að hugsa, en þar var enginn sem ég gat tal- að viö um vandamál min og þaðan komst ég ekki frjáls maður. Ég gat ekki gefið upp hugsanir minar vegna ótta um lif mitt”. Sp: „Hvernig komstu þaöan burt? B: „Ég var sóttur. Ég var yfir- heyrður og tékkaður vandlega áður en ég fór og ég sagöi þaö sem ég vissi aö þeir vildu heyra”. Sp: „En var ekki einmitt ágætt að hafa þig i Jeman, langt i burtu og hættulausan?” B: „Ég gat komið aö notum heima. Þá vantaði mann með tækniþekkingu, i sprengjugerö o.fl.”. Sérstaklega eftir að árásin á Alexander Haig misheppnaðist Frá Jeman fór Boock til Parisar þar sem hann var sendur i stofufangelsi eins og áður var lýst. Endaö á kamikaze — „Lokaverk” R.A.F. Peter Júrgen Boock neitaði að segja nokkuð við þýsku lögregl- una eftir að hann hafði verið handtekinn i janúar s.l. Þess i stað kvaðst hann vilja að tima- ritið Der Spiegel hefði við sig við- tal sem allur almenningur gæti lesið. Hvers vegna? Hann hafði i huga að segja frá væntanlegri aðgerð þýska terror- istahópsins. Með þvi að birta við- taliöi viðlesnutimariti, gæti hann hvort tveggja i senn: aðvarað sin fyrri skoðanasystkini og gert yfirvöldunum viðvart. Þar með hefði hann komið i veg fyrir hroöalegt ofbeldisverk. Þýsk yfirvöld gátu ekki hafnað tilboði Boocks og Spiegel tók viðtalið. Þvi skilyrði Boocks, að lögregl- unni yrði ekki gert kleift að sjá viðtaliðáður en það yrði prentað, var enn fremur fullnægt. Sá möguleiki hefði annars veriö fyrir hendi, að lögreglan gæti hafist handa án vitneskju terroristanna, jafnvel komið i veg fyrir birtingu svo hægt yrði að leggja gildru fyrir hópinn. Og hver var svo þessi væntan- lega aðgerð? Nafn hennar var „Finale Aktion” — Lokaverkið. Lesum nú hvað Boock haföi þýsku blaðamönnunum að segja: Engin leið að ná turn- inum aftur „Það má gera ráð fyrir árás á Heidelberg höllina. A hverju ári er þar haldið ball fyrir Banda- rikjamenn á vegum Vináttusam- bands Bandarikjanna og Þýska- lands eða annars álika félags. Þarna eru samankomnir allir helstu kallarnir úr ameriska hernum og fjölmargir meiri háttar menn þýskir. Þetta fólk stendur til að taka i gislingu þangað til kröfum árásarmann- anna hefur verið fullnægt. Til stendur að drepa gislana verði þeim kröfum ekki fullnægt”. Sp: ,í)n hvers vegna er þetta kallað „Lokaverkiö?” B: ,,Það er gert ráð fyrir að allir félagar úr RAF (þýsku terroristasamtökin) taki þátt i þessu. Og það er siður en svo gert ráð fyrir að kröfum hópsins verði fullnægt um það var rætt að svo yrði ekki. Færi svo, myndi höllin og allir i henni verða, terrorist- arnir lika, verða sprengd á loft upp. Hluti hópsins er reiðubúinn til að fremja sjálfsmorð á þennan hátt. Það er einfalt að hertaka höll- ina. Það er aðeins ein leið að henni og innan hennar eru staðir sem nær ómögulegt er að komast að t.d. turninn. Þar gæti maður haft allt upp i 60 manns innilok- aða og á valdi ekki fleiri en 5 terrorista”. Sp: „Hvað lengi, marga daga jafnvel?” B: „Um það var ekki rætt. En ef fólkinu væri smalað inn i turn- inn sem ég minntist á áðan væri einfaldlega hægt að sprengja tröppurnar upp og þá er engin leið að ná turninum úr höndum árásarmannanna”. Sp: „Hvenær er þetta ball?” B: „Mig minnir það sé á vorin”. Sp: „Hvenær var þessi atlaga skipulögð? ” B: ,,1 árslok 1979. En aögerðir eru alltaf planaðar langt fram i tímann, upp i eitt og hálft ár —það tók alltaf u.þ.b. svo langan tima að úthugsa máliö. Það gerðist aldrei neitt i einu vet- fangi”. Sp: „Var gert ráð fyrir að þessi árás yröi gerð árið eftir , þ.e. 1980?” B. „Nei, Aætlunin gerði ekki ráð fyrir timasetningu, aðeins möguleikanum sjálfum. Sá möguleiki er aðeins fyrir hendi einu sinni ár hvert. Ég veit ekki hvort svipaðar samkomur eru i haldnar annars staðar, ef svo er gætu þeir hafahallast aö þeim nú, þetta getur breyst eftir kringum- stæöum. En hugmyndin sjálf lifir”. 1978 voru tveir terror- istar á ballinu Sp: „Hvernig ætluöu terrorist- arnir að komast inn á þetta ball? Þekkja þeir aðstæöurnar. Hvaða öryggisráðstafanir eru á þessum böllum?” B: „Siðast þegar ég vissi, þ.e.e. árið 1978, voru alls engar öryggis- ráðstafanir. Kaninn notar þetta ball til að brjóta isinn ef svo má segja — Þjóðverjum yfirhöfuð er frjálst að koma, Kaninn gleöst yfiröllum gestum. Ég veitað árið ‘ 1978 voru 2 terroristar þarna. Yfirmaöur ameriska heraflans i Þýskalandi og allt hans lið var á staðnum og terroristarnir sátu mjög nálægt þeim. Annar þeirra var kona og henni var m.a.s. boöið upp af einum Kananna”. Sp: „Hvernig fengu þau miða á ballið?” B: „Ekkert mál. Þau fóru bara á skrifstofu nefndarinnar I þess- um félagsskap. Vináttusamband- inu, gáfu upp nöfn og heimilisföng sem þau höfðu valið af handahófi úr simaskrá og sögöust endilega vilja fá að sýna bandariska hern- um vináttu sina og þau fengu miðana. Kannske hefur þetta breyst siðan og kannske þurfa þau núna að komast inn meö ein- hverju valdi en þannig var þetta — það þurfti ekkert til að fá miöa”. Sp: „Ef það þyrfti aö halda gislunum I lengri tima, hvaö þá með matvæli?” B: „Enginn vandi, það verður einfaldlega krafist þess að matarpakkar verði lagðir fyrir utan eða sendir inn”. Sp: „Geta örfáar manneskjur haldið svo mörgum i skefjum?” B: „Það hefur gerst, t.d. i Vin begar OPEC ráðstefnan var tekin. Svo væri e.t.v. hægt að leyfa nokkrum aö fara strax i byrjun”. Sp: ,,0g á svo að sprengja höll- ina i loft upp?” B: ,,Já, skipulagið gerir ráö fyrir þvi”. Sp: „Og þetta er semsagt allt úthugsað og undirbúiö?” B: „Já, endaerþað litill vandi. Það er jú lika hægt að skoða alla höllina þrisvar á dag undir leið- sögn svo aöstæöur þar eru vel kunnar. En ég vil koma I veg fyrir svona aðgerð”. Mörgum kann að þykja þessi saga Boocks heldur vafasöm og að hér sé aðeins tilraun til að koma sér i’ mjukinn hjá yfirvöld- unum. Ýmislegar staðreyndir benda þó til að hann segi rétt frá. 1 júli á slðasta ári létu tveir menn lifið i bifreiðaárekstri, karl ogkona, sem reyndust hafa skráð sig undir fölskum nöfnum og leigt sér ibúð I Heidelberg. Þetta voru terroristarnir Juliane Plambeck og Wolfgang Beer. 1 ibúð þeirra 1 Spiegel viötalinu var Boock spurður um tilganginn að baki hryðjuverkunum. Áttu þau að breyta þýsku þjóöfélagi, trúðu þau að slikar aöferðir gætu breytt einhverju til batnaöar? Alitu þau aö þörf væri á byltingu eða voru þau að reyna að búa til byltingar- kennt ástand. Var markmiöiö jafnvel að fá stjórnvöld til að skerða frelsi þegnanna i það rik- um mæli að uppreisn yrði nauð- synleg til aö heimta aftur frjáls- ræði i landinu. Hryðjuverk RAF gerðu það vissulega aö lögregla og rlkisstjórn hertu á öryggisráö- stofunum ýmiss konar I Þýska- landi. Er þaö vilji RAFað Þýska- land breytist úr frjálsu réttarriki ilögregluveldi? Hvað hafði Boock að segja um þetta? „Ég veit þaö ekki. Hugmynda- fræði hópsins varð til fyrir áriö 1975. Siðan hefur ekkert gerst á þeim vettvangi” Boock heldur þvi fram að aðeins litill hluti hópsins taki ákvarðanir, hafi einhver hugmyndafræöileg markmið bak við eyrað. Að RAF sé skipt niður i örfáa foringja og svo óbreytta liðsmenn sem ekki viti hvað þeir eru að gera, geri það af ótta viö aðra meölimi hópsins, séu i sjálf- heldu og vilji jafnvel margir hverjir gefast upp bæði gagnvart félögum sinum og yfirvöldum en þori þvi ekkj af ótta við afleiðing- arnar. Eins og hann sjálfur var eru þeir milli steins og sleggju. Boock vill að þýsk yfirvöld komi til móts við_þessa uppgjafa hryðuverkamenn láti af of- sóknum sinum. „Meö séraö- geröum, sérfangelsum og sér- stökum lagabálkum ýta stjórn- völd aðeins undir frekari hryðju- fundust bréf um væntanlega árás á herstöövar Bandarikjamanna i Þýskalandi. Meðal bréfanna voru ( teikningaraf Nato-flugvöllum ná- lægt Heidelberg kort af herstöðv- um i Mannheim og flugmyndir af Heidelberg. Og hvaða ball? 1 tólf ár hefur verið haldið gri'muball i Konungssal Heidel- berg hallarinnar laugardaginn fyrir sprengidag. Sá laugardagur féll i ár á þ. 28. febrúar, viku aöur en viðtal Spiegel viö Boock kom út. Félagssamtökin sem standa aödansleiknum heita raunar ekki Vináttusambandið, heldur Ame- ricanLegion Post, en það skiptir ekki öllu máli. A þessum dansleik eru ævinlega mjög háttsettir menn Ur bandariska hernum. þekktir Þjóðverjar auk annarra gesta. Miðinn kostaöi 10 Mörk, eða u.þ.b. 3000 krónur islenskar. 1 verk. Haldi þau áfram aö gera þá sem reyna að aðstoða „fyrrver- andi” hryðjuverkamenn að glæpamönnum haldi þau áfram að ofsækja þá sem eru að mót- mæla kjarnorkuverum, hús- næðisskorti eða vopnabúnaöi eins og þetta væru terroristar, þá hlúa yfirvöldin aöeins að nýjum upp- gangi hryöjuverkasamtakanna. Eina ráðið er að slaka á, þá brestur grundvöllurinn fyrir of- beldi og öfgahópum”. //Þröngsýni og fáviska" Fyrrverandi félögum sinum sendir Boock þessa kveðju: Þið hafið hlaöið um ykkur múr þröngsýni og fávisku. Þiö vitiö ekki eins og ég veit nú, að i þessu landi er enn til ást og möguleiki á betra lifi. Ég veit að mörg ykkar eru full af efasemdum um tilgang ykkar og ég ráölegg ykkur aö kryfja þær efasemdir til mergjar. A þessu ári, sem ég fékk að lifa eins og venjulegur maður kynnt- ist ég tilfinningum sem ekki er hægt að lesa um i blöðum. Eg kynntist nýjum stjórnmálasam- tökum, nýjum hi-eyfingum sem eiga sér breiðan grundvöll. Þessar hreyfingar fela i sér möguleika á breytingum i betri átt. möguleika sem okkar hreyf- ing hafði aldrei. Allt sem þið geriö vinnur á móti þessum mögu- leikum. Þiö getiö drepiö nýjar stjórnmálahreyfingar — rænt þær .trúverðugleika sinum, spillt fyrir þeim. Brjálæöisleg „Loka-- aögerð” væri aðeins staðfesting á i einangrun ykkar og slik aðgerð yrði ekki aðeins ykkar eigin enda- lok heldur margra annarra”. Auglýst eftir hryðjuverkamönnum. 1 E til ni l í A < ísi zr t... Vvarp til fyrri félaga |

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.