Vísir - 25.03.1981, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 25. mars 1981
VtSíR
Bók um
gíslamáiiö
í íran
á markað
hérlendis:
„Magnaöar
frásagnir
gíslanna”
seglr ðlafur Ragnarsson, eigandi Vöku.sem geiur bókina úl
,,Það er ætlunin að fara dálit-
ið inn á nýjar brautir i sam-
bandi við bókaútgáfu að þvi
leyti að gefa út aðrar tegundir
bóka en hér hafa verið á mark-
aði og gefa þær út á öðrum tima
ársins en venja hefur verið,
horfa ekki eingöngu á jóla-
markaðinn” sagði Ólafur
Ragnarsson fyrrverandi rit-
stjóri Visis sem hefur stofnað
fyrirtækið Vöku, bókaútgáfu og
fjölmiðlunarþjónustu.
„Meiningin er að gefa út er-
lendar bækur eins fljótt og hægt
er eftir að þær koma út erlendis
og fyrsta bókin kemur einmitt á
markaðinnilok þessa mánaðar,
en það er bók um gislamálið i
Iran og heitir „Gislar i 444
daga”. Þetta er bandarisk bók,
skrifuðaf tveimur bandariskum
blaðamönnum og kom út þar i
landi i febrúar. Þetta er bók
sem ég tel að allur almenningur
geti haft áhuga á að kaupa og
lesa, og menn muni allt eins
kaupa fyrir sjálfa sig, en ekki
eingöngu sem gjafabók, og að
þvi leyti á hún erindi á markað á
öðrum tima en á jólunum”.
„Mögnuð frásögn”
„Þetta er mjög mögnuð frá-
sögn af þeim 14 mánuðum sem
bandarikjamennirnir voru i
gislingu i Iran. Rakin er þróun
gislamálsins og grafist fyrir um
ýmis atriði sem ekki hafa komið
fram i hinum daglegu fréttum
af málinu og segja má að beitt
hafi verið mjög vandaðri rann-
sóknarblaðamennsku við samn-
ingu bókarinnar. Það sem
sennilega mun vekja mikla at-
hygli i bókinni eru viðtöl og frá-
Ólafur Ragnarsson eigandi bókaútgáfunnar og fjölmiðlunarþjón-
ustunnar Vöku, virðir fyrir sér kápu bókarinnar „Gíslar i 444 daga”
sem kemur út á næstunni. (Visism: GVA.)
sagnir af reynslu gislanna en
það eru mjög magnaðar frá-
sagnir. Margvislegar upp-
lýsingar sem þar koma fram
hafa ekki verið birtar áður, t.d.
um, hvernig farið var með gisl-
ana og sumt i frásögninni er
mjög ógnvekjandi”.
Nú er bókin unnin hér á aðeins
nokkrum vikum, kemur það
ekki niður á gæðum hennar?
„Nei alls ekki. Þótt bókin sé
unnin á meiri hraða en tiðkast
hefur hér á landi þá hefur ekk-
ert verið slakað á i sambandi
við vinnubrögð og gæði. Hún á
alls ekki aö bera það með sér að
hún sé unnin þetta hratt. Fimm
menn skiptu þýðingu bókarinn-
ar á milli sin til að stytta
þýðingartimann og við komum
honum niður i 9 daga. En siðan
var mikil vinna lögð i það að
samræma texta, nöfn og stil
þannig að það á ekki að sjást á
bókinni að fleiri en einn maður
hafi lagt þar hönd á plóginn”.
Bók um John Lennon
— Það kom fram i samtalinu
við Olaf að næsta verkefni i út-
gáfunni verður bók um æfi
bitilsins John Lennon, sem er
nýkomin út i Bretlandi.Hún er
væntanleg á markað hér i mai
og verður unnin á svipaðan hátt
og gislabókin. I þeirri bók verð-
ur sérstakur bókarauki sem
tengist íslandi, og mun Þorgeir
Ástvaldsson fjalla þar um áhrif
Lennons og bitlanna á islenska
popptónlist og Edda Andrés-
dóttir mun skrifa viðtöl við is-
lenska popptónlistarmenn um
það hvernig þeir upplifðu bitla-
timabilið og fleira i þeim dúr.
gk —•
Blöndusamnlngarnlr
„límaspursmál hvenær
samningar takast”
„Það greiðir enginn elskunni
sinni við Galtará, eftir að búið er
að setja þetta land undir vatn,”
sagði Hilmar Kristjánsson odd-
viti á Blönduósi i spjalli við
fréttamann um samningamálin
um Blönduvirkjun, en Hilmar er
einn þriggja oddvita i Húnavatns-
Tyrkir Burfa
vegabrélsárltun
Akveðið hefur verið að fella úr
gildi til bráðabirgða þar til annað
verður ákveðið, samning um af-
nám vegabréfsáritana milli ts-
lands og Tyrklands, frá og með 1.
mai 1981. Frá þeim degi verður
krafist vegabréfsáritana af tyrk-
neskum rikisborgurum, sem
ferðast til íslands. Þetta er gert
vegna nauðsynjar á samræmi i
reglum Norðurlanda um vega-
bréfabréfsáritanir samkvæmt
gildandi samningi Norðurlanda
um afnám vegabréfaskoðunar
millilandanna. Frá og með 1. mai
n.k. munu öll Norðurlöndin krefj-
ast vegabréfsáritana af tyrknesk-
um rikisborgurum, samkvæmt
frétt frá utanrikisráðuneytinu.
Hvðt með Bingo í Sigtúni
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna i
Reykjavik, heldur Stór-Bingó i
Sigtúni annað kvöld og hefst það
kl. hálf niu.
Stórglæsilegir vinningar verða i
boði m .a. þrjár sólarlandaferðir á
vegum ferðaskrifstofunnar Ot-
sýn, margskonar rafmagnsvörur
o.fl.
Spilaðar verða fimmtán um-
ferðir og húsið opnað klukkan
átta.
Fjáröflunarnefnd félagsins
stendur fyrir bingóinu, en þetta er
ein leið nefndarinnar af mörgum
til fjáröflunar fyrir Hvöt.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir, en rétt er að taka
fram aö aðgangseyrir er enginn.
sýslu, sem skipa samninganefnd
við Rarik um virkjunina.
Áætlað var að fundir skyldu
hefjast aftur með aðilum á mánu-
dag, en þeim varð að fresta vegna
veðurs og ófærðar, samninga-
mennirnir að sunnan komust ekki
norður.
Hilmar sagði að afstaða
Blönduóssbúa væri eindregin.
Þeir vilja fá Blönduvirkjun, sem
fyrst, þaðhefðimikla atvinnulega
ogefnahagslega þýðingu fyrir þá.
Hins vegar væri annað viðhorf i
sveitunurp, þar hefði virkjunin að
öllum likindum verulega búsetu-
röskun i för með sér. Mönnum
þættisárt að sjá þetta mikla land
fara undir vatn og ýmsir hefðu
vantrú á að hægt væri að rækta
jafngott land i staðinn. Hann taldi
að hefði verið hafist handa um
ræktunina strax og Blönduvirkj-
un kom til tals, væri árangurinn
kominn i ljós og ekki þyrfti um
neitt að semja núna.
Auk landnytjanna taldi Hilmar
að tilfinningar margra mörkuöu
afstöðu til málsins, þvi margir
aðrir en Jónas Hallgrimsson ættu
hlýjar minningar frá þessu land-
svæði.
En þrátt fyrir allt, taldi Hilmar
að vilji væri til samkomulags af
allra hálfu og enda þótt enn beri
nokkuð á milli, væri aðeins tima-
spursmál hvenær samkomulag
náist. SV
17
Nú er það stutt hár
og strípur fyrir vorið
Hárgreiðslustofdn
TALBÖ
Óðinsgötu 2 Simi 22138
fermingargjafa
HUSGAGNADEILD
JUi )U3j j
JJUPl
Jón Loftsson hf. FBI .......
Hringbraut 121 Simi 10600