Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 1
SJÚKLINGAR sem leituðu til
sérfræðilækna í gær þurftu að
greiða að fullu fyrir þjónustu
þeirra og ekki dugar að fá kvittun
fyrir greiðslu og ætla að fá endur-
greiðslu síðar hjá Tryggingastofn-
un að sögn Garðars Garðarssonar,
formanns samninganefndar heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins. „Það liggur fyrir að
menn eiga ekki rétt á endur-
greiðslu, því miður, en samkvæmt
núgildandi reglum er það alveg
ljóst,“ segir Garðar.
Tekið skal fram að öll öll bráða-
þjónusta, heilsugæslan, spítalarn-
ir og læknavaktir falla utan þess-
ara deilna og sama gildir raunar
einnig um Barnalæknaþjón-
ustuna.
Dýrar aðgerðir afpantaðar
Verk hjá sérfræðilæknum voru
væntanlega tiltölulega fá í gær
enda sums staðar lokað. Lítið mun
þó hafa verið um það að vinnandi
fólk hafi afboðað viðtalstíma hjá
sérfræðingum í gærdag enda
segja sérfræðingar að kostnaðar-
hlutur þess í venjulegu viðtals-
gjaldi hafi hvort eð er verið orðinn
svo hár. Öðru máli gegni hins veg-
ar um öryrkja og aldraða, þar sé
þetta erfiðara og eins þegar fólk
þurfi að fara í dýrari rannsóknir
eða aðgerðir, s.s. rannsóknir hjá
sérfræðingum í hjarta- og lyf-
lækningum, magaspeglanir, augn-
og bæklunaraðgerðir ýmiss konar
o.s.frv. Dæmi séu um að fólk hafi
afpantað tíma vegna slíkra rann-
sókna eða aðgerða en áhrifin af
deilunni eigi eftir að koma betur í
ljós í næstu viku.
Sjúklingar bera kostnaðinn
Allur gangur er á því hvað
greitt er fyrir þjónustu sérfræði-
lækna, allt eftir eðli þeirrar þjón-
ustu sem veitt er. Gunnar Ár-
mannsson, framkvæmdastjóri
Læknafélags Íslands, segir al-
gengt að reikna með 3.200–4.000
krónum fyrir fyrstu komu og hlut-
ur sjúklings af því sé í samræmi
við útgefnar reglugerðir hverju
sinni. Við aðgerðir geti upphæðin
hins vegar hlaupið á tugum og
jafnvel hundruðum þúsunda í dýr-
ustu aðgerðunum og þann kostn-
að beri sjúklingar, meðan ósamið
er.
Engir samningar í gildi milli Tryggingastofnunar og sérfræðilækna
Sjúklingar geta ekki
fengið endurgreitt síðar
Ekki tilbúnir/4
Vísa ábyrgð
á hækkun-
um til
yfirvalda
SAMNINGANEFND Lækna-
félags Reykjavíkur vísar
ábyrgð á því að greiðslu-
hlutdeild sjúklinga hækkar frá
og með áramótum alfarið yfir
á heilbrigðisyfirvöld. Í frétt
sem birt var á heimasíðu
Læknafélags Íslands í gær er
þetta áréttað og bent á að
samninganefndin hafi með
bréfum 30. nóvember og 3.
desember sl. boðið upp á
ákveðna lausn til að firra sjúk-
linga vandræðum um áramótin
ef ekki næðust samningar við
ríkið fyrir þann tíma. Þannig
var samninganefndin m.a.
tilbúin að skrifa undir ákvæði
um að börn, aldraðir og ör-
yrkjar nytu ávallt trygg-
ingaverndar samkvæmt samn-
ingi. Samninganefnd
heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytisins hafi hafnað boði
samninganefndar læknanna.
STOFNAÐ 1913 2. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Eldhúsverk-
fræðin
Tveir verkfræðingar gefa upp-
skriftir og góð ráð Daglegt líf
Lesbók og Börn í dag
Lesbók | Gottfried Semper, faðir nútímaóperuhúsa Klám,
kannabis og farandverkamenn á bandaríska svartamark-
aðnum Börn | Álfar og áramót Öðruvísi jól í útlöndum
MÚLLANN Krekar, öðru
nafni Najm al-Din Faraj Ah-
mad, trúarleiðtogi íslömsku
samtakanna Ansar al-Islam,
var handtekinn í Ósló í gær,
grunaður um að hafa tekið
þátt í samsæri um að myrða
pólitíska keppinauta sína í
Írak á árunum 2000–2001.
Að sögn Aftenposten verður krafist fjögurra
vikna gæsluvarðhalds yfir Krekar, sem búið
hefur í Noregi í rúman áratug sem flóttamað-
ur. Ansar al-Islam er hópur herskárra músl-
íma sem hafast við í fjöllum Norður-Íraks.
Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar skil-
greina hópinn sem hryðjuverkasamtök. Þjóð-
verjar gruna samtökin um að hafa reynt að
skipuleggja hryðjuverk þar í landi.
Krekar
handtekinn
Ósló. AFP.
KUNNUR þýskur listasögufræðingur fullyrti
í gær, að hann væri í fullu fjöri og heyrði alls
ekki sögunni til, en tilkynning um andlát
hans birtist í blaðinu Frankfurter Allge-
meine Zeitung á miðvikudag. „Mér líður bara
ágætlega eftir atvikum,“ sagði „hinn látni“,
prófessorinn Dethard von Winterfeld. Til-
kynningin var hrekkjabragð og send í nafni
eiginkonu hans og ættingja, blaðið hefur beð-
ist afsökunar. Þetta er í þriðja sinn á 40 ár-
um, sem það fellur fyrir slíkri blekkingu.
Ýkjufrétt um andlát
HVÍTLAUKUR getur drepið
bakteríur, sem eru orðnar
ónæmar fyrir öflugustu lyfj-
um. Kemur það fram í rann-
sóknum, sem unnar hafa ver-
ið við Háskólann í
Austur-London. Í hvítlaukn-
um er sagt efni, sem kallast allicin, og það
geti drepið fjölónæmar sjúkrahúsbakteríur á
borð við klasakokka. Yfirleitt eru þær ekki
skaðlegar heilbrigðu fólki en geta valdið
banvænni sýkingu í þeim, sem eru veikir fyr-
ir. Ron Cutler, einn vísindamannanna, segir
að kraftur hvítlauksins að þessu leyti hafi
raunar verið kunnur í aldaraðir.
Hvítlaukur gegn
ofurbakteríum
Lögreglumaður í brynvagni við
Charles de Gaulle-flugvöll norð-
an við París í gær. Í baksýn er ein
af þotum Air France. Sex af
ferðum félagsins til Bandaríkj-
anna hefur verið aflýst síðustu
tíu dagana vegna vísbendinga
um að hryðjuverkamenn ætluðu
að nota þoturnar til árása vestra.
Reuters
Í viðbragðsstöðu á Charles de Gaulle-flugvelli
„ÉG varð ástfangin af
landinu rétt áður en
ég varð ástfangin af
honum. Hann var enn
spurningarmerki í
mínum huga þegar ég
var orðin ástfangin af
Íslandi.“ Þetta segir Dorrit Moussaieff, eig-
inkona Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Ís-
lands, í löngu viðtali við ísraelska blaðið Haa-
retz um hátíðarnar. Útdráttur úr viðtalinu
birtist í Morgunblaðinu í dag. /12
Ástfangin af Íslandi
á undan Ólafi
ALLS hafa verið felldar niður sjö ferðir er-
lendra flugfélaga vestur um haf eða þeim
seinkað vegna vísbendinga um hættu á
hryðjuverkum síðan bandarísk stjórnvöld
hertu eftirlit til muna 21. desember. Frétta-
skýrendur telja að krafa Bandaríkjamanna
um vopnaða verði í vélar á leið til landsins,
telji leyniþjónustumenn vestra að þær verði
ef til vill notaðar til árása, geti gerbreytt allri
ásýnd farþegaflugs í heiminum, að sögn AFP-
fréttastofunnar.
Sir Timothy Garden, þekktur breskur sér-
fræðingur í öryggismálum, segir að ferðirnar
sem felldar voru niður um hátíðarnar bendi til
þess að trúverðugar vísbendingar hafi verið
um árásarhættu. „Hermdarverkamenn ná
markmiði sínu ef efnahagurinn hrynur vegna
þess að flug leggst af. Öruggast er að aflýsa
öllum ferðum – en það myndi augljóslega hafa
slæm áhrif.“
Vopnaðir verðir „framandi tilhugsun“
Guðjón Arngrímsson hjá Flugleiðum segir
að menn hafi í sjálfu sér ekki mestar áhyggj-
ur af því þótt fella verði niður flug stöku sinn-
um. Óbeinu áhrifin af öllum öryggisráðstöf-
unum og óttanum við hryðjuverk geti hins
vegar orðið veruleg. Tiltölulega staðbundin
mál eins og Íraksstríðið og HABL-farald-
urinn, sem herjaði nær eingöngu í Austur-
Asíu, drógu úr löngun fólks um allan heim til
ferðalaga milli landa.
„Þessi fyrirmæli um vopnaða verði eru að
sjálfsögðu framandi tilhugsun fyrir okkur Ís-
lendinga sem erum óvanir vopnaburði,“ sagði
Guðjón. „Það er þó ekki um annað að gera en
að vinna úr þeim með íslenskum og banda-
rískum yfirvöldum. Auðvitað vona allir að
þetta ástand nú standi stutt yfir og það er al-
veg óvíst hvort þess verður nokkurn tíma
krafist að vopnaður vörður verði í einhverju
tilteknu flugi héðan til Bandaríkjanna af ör-
yggisástæðum. Og þá verður væntanlega sá
valkostur einnig fyrir hendi að fella niður við-
komandi flug.“
Flug til Bandaríkjanna
fellt niður vegna
ótta við hryðjuverk
Óttast áhrif á allt farþegaflug
Frönsk/20
ÍSLENDINGURINN Sesselja
Pálsdóttir hefur náð góðum
árangri í viðskiptum í Banda-
ríkjunum með rekstri net-
verslunarinnar Senior Shops,
sem sérstaklega er ætluð
öldruðum. Þar er safnað sam-
an vörum, sem gagnast öldruðu fólki, en fást
sjaldnast allar á einum stað. Sala verslunar-
innar hefur þrefaldast á þremur árum. /14
Selur vörur fyrir
aldraða á Netinu