Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ FERÐIR FELLDAR NIÐUR Felldar hafa verið niður alls sjö flugferðir alþjóðlegra flugfélaga til Bandaríkjanna síðan örygg- isráðstafanir voru hertar vestra 21. desember sl. Bandarískar herþotur eru sagðar hafa verið sendar á loft til að fylgjast með tveimur frönskum farþegaþotum á leið til Los Angeles fyrr í vikunni. Fréttaskýrendur álíta að krafa Bandaríkjamanna um vopn- aða verði í vélar sem vísbendingar eru um að hryðjuverkamenn ætli að nota til árása geti orðið til að ger- breyta ásýnd flugs í heiminum. Greiða þjónustuna að fullu Sjúklingar sem leituðu til sér- fræðilækna í gær þurftu að greiða að fullu fyrir þjónustu þeirra og ekki dugar að fá kvittun fyrir greiðslu og ætla að fá endurgreiðslu síðar hjá Tryggingastofnun. Gunnar Ár- mannsson, framkvæmdastjóri Læknafélags Íslands, segir ljóst að sjúklingum sé heimilt að greiða sér- fræðingum úr eigin vasa þótt þeir fái síðan ekki endurgreitt frá Trygg- ingastofnun. Ekki komin þíða Íranar báðust í gær undan því að bandarísk mannúðarnefnd kæmi til landsins að svo stöddu. George W. Bush Bandaríkjaforseti segir að sú ákvörðun stjórnvalda að veita Írön- um aðstoð vegna jarðskjálftanna í borginni Bam merki ekki að komin sé upp þíða í samskiptum ríkjanna. Bush hefur aflétt í þrjá mánuði við- skiptaþvingunum gagnvart Íran vegna hamfaranna en segir að vilji klerkastjórnin bæta samskiptin verði hún meðal annars að framselja liðsmenn al-Qaeda í Íran og koma á stjórnarfarsumbótum. 23 dóu í umferðarslysum Alls létust 23 einstaklingar í 20 umferðarslysum á nýliðnu ári. Er fjöldi látinna nokkru minni en á árinu 2002 þegar 29 manns létust. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 36 Viðskipti 14/15 Umræðan 36/37 Erlent 16/20 Kirkjustarf 38 Höfuðborgin 24 Minningar 40/47 Akureyri 24 Myndasögur 50 Suðurnes 25 Bréf 50 Árborg 26 Dagbók 52/53 Landið 26 Íþróttir 54/55 Listir 27/28 Leikhús 56 Ferðalög 29 Fólk 56/61 Daglegt líf 30/31 Ljósvakamiðlar 62 Forystugrein 32 Veður 63 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir blað frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Blaðinu er dreift á SV-landi. Blaðinu í dag fylgir einnig blað frá Salnum í Kópavogi. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@m- bl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÞRETTÁN nýir lögreglumenn taka til starfa hjá lögreglunni í Reykjavík um þessar mundir og verða á vöktum í útkallsliði lögreglunnar. Í lögregluliðinu fjölgar í raun um fjóra menn þar sem um endurnýjun starfsliðs er að ræða í sumum tilvikum. Langflestir hinna nýju lögreglumanna voru að ljúka námi frá Lögregluskóla ríkisins í desember og segir Karl Steinar Valsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn að hópurinn lofi góðu miðað við vitnisburð frá skól- anum. Lögreglumennirnir voru boðnir velkomnir til starfa í gær og segir Karl Steinar að þessi liðsstyrkur sé mikilvægur fyrir lögregluna. „Það er mjög jákvætt að fá nýtt fólk til starfa og þeir lögreglumenn sem valdir voru til starfa að þessu sinni eru greinilega geysilega hæfir,“ segir hann. „Ég held að þeir séu góð viðbót við þann góða hóp sem lögreglan hefur yfir að ráða.“ Morgunblaðið/Júlíus Aðalvarðstjórarnir Grímur Grímsson (t.v.) og Ágúst Svansson bjóða nýja lögreglumenn, þær Eyrúnu Eyþórsdóttur og Maríönnu Said, velkomnar til starfa. Þrettán nýir lögreglumenn til starfa TÓMAS Helgason, fyrrverandi prófessor og yf- irlæknir geðdeildar Landspítalans, segir í grein í nýjasta tölublaði Læknablaðsins að sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík hafi verið knúin fram með sveltistefnu og hafi misheppnast. „Sameining spítalanna var knúin fram með sveltistefnunni,“ segir Tómas í grein sinni. „Fjár- veitingavaldið og margir sem ekki þekktu nægj- anlega til starfsins inni á sjúkradeildunum héldu að hægt væri að spara útgjöld með sameiningunni. Ýmsir læknar trúðu því að með sameiningu mætti bæta þjónustu við sjúklinga og nemendur og auka fræðilegar rannsóknir. Engin gögn sýna að þjón- usta við sjúklinga hafi batnað eða faglegur styrkur aukist. Enn ætlar fjárveitingavaldið að nota svelti- stefnuna til að knýja fram einhverjar breytingar í von um að spara útgjöld. Valdhafarnir hafa ekki sagt hverju eigi að breyta eða hvernig og því ætlar stjórn spítalans að skera niður þjónustu og draga úr kennslu og rannsóknum. Núverandi landlæknir og ríkisendurskoðandi voru talsmenn sameiningar og telja að ekki sé enn fullreynt, þrátt fyrir að nið- urstöður úttektar beggja sýni að tilraunin með sameiningu sjúkrahúsanna hafi mistekist.“ Telur þjónustu ekki batna Í greininni vísar Tómas til þess að í skýrslu ráð- gjafarfyrirtækis frá 1997 hafi meðal annars komið fram að hugsanlega mætti fækka um 500 störf og að nýta mætti þá fjármuni sem spöruðust til þró- unar og bættrar þjónustu, en í skýrslu Ríkisend- urskoðunar, „Sameining sjúkrahúsanna í Reykja- vík. Mat á árangri“, bendi engin gögn til þess að þegar til lengri tíma sé litið gefi sameining sér- greina kost á markvissari og betri þjónustu við sjúklinga og meiri möguleikum á kennslu og vís- indastörfum, eins og að hafi verið stefnt. „Ekki hefur enn tekist að auka umfang þjónustu. Legum og legudögum hefur fækkað, dag- og göngudeild- arþjónusta hefur aukist lítillega og fjöldi skurð- aðgerða er svipaður og fyrir sameiningu,“ segir Tómas. Hann bendir einnig á að gera hafi átt starfsemina skilvirkari og ódýrari en annað hafi komið á daginn eins og skýrslan beri með sér. Betra ef spítalarnir væru tveir „Spítalaforstjórinn fullyrðir að vandinn væri meiri án sameiningar og hefur þá eflaust í huga sveltistefnuna, sem rekin var í hans tíð í fjármála- ráðuneytinu og virðist nú blómstra á nýjan leik,“ skrifar Tómas. „Líklegra er þó að vandinn væri minni og þjónustan betri ef spítalarnir væru tveir og veittu hvor öðrum aðhald, en hefðu hæfilega samvinnu.“ Margir töldu unnt að spara útgjöld með sameiningunni Fyrrverandi prófessor segir sameiningu spítalanna misheppnaða EMBÆTTI skattrannsóknarstjóra getur vísað til ríkislögreglustjóra skattsvikamálum, ef grunur leikur á að brotin séu meiriháttar vegna eðlis þeirra eða umfangs. Ríkisskattstjóri og efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra hafa nú til meðferðar meint skattsvik Jóns Ólafssonar, fyrrum eiganda Norðurljósa hf. Ríkislög- reglustjóri fékk málið frá skattrann- sóknarstjóra á gamlársdag til ákvörðunar um hvort ákært verði fyrir lagabrot vegna skattsvika. Skúli Eggert Þórðarson skatt- rannsóknarstjóri segir tilgang rann- sókna embættis síns tvíþættan. Ann- ars vegar að ganga úr skugga um það hvort opinber gjöld kunna að hafa verið vanálögð og hins vegar hvort hafa eigi uppi refsimeðferð vegna slíkra ætlaðra brota. Hann segir að yfirleitt sé sá hátt- urinn hafður á að við lok rannsóknar sé tiltekið mál sent ríkisskattstjóra til endurákvörðunar. „Á sama tíma er undirbúin refsimeðferð sem felst í því að viðkomandi aðilum er gefinn kostur á að tjá sig um niðurstöðu skýrslu skattrannsóknarstjóra,“ segir hann. „Að gættum andmæla- rétti er tekin ákvörðun um eitt af þrennu; í fyrsta lagi hvort málinu verði vísað til opinberrar rannsóknar hjá ríkislögreglustjóra, í öðru lagi hvort málinu verði vísað til lokaðrar stjórnsýslumeðferðar hjá yfirskatta- nefnd og í þriðja lagi hvort refsimeð- ferð falli niður.“ Skúli Eggert segir að skattrannsóknarstjóra beri að vísa máli til opinberrar rannsóknar ef aðili vill ekki sæta lokaðri stjórn- sýslumeðferð hjá yfirskattanefnd. „Almennt séð getur skattrannsókn- arstjóri vísað máli til opinberrar rannsóknar ef líkur eru á ætluðu undanskoti á verulegum fjárhæðum sem varða við almenn hegningarlög, ef rökstuddur grunur er um að verknaður hafi verið framin með sér- staklega vítaverðum hætti eða við aðstæður sem auka saknæmi brots- ins, ef aðili hefur áður orðið uppvís að skattsvikum eða ef aðili er grun- aður um meiriháttar brot gegn lög- um um bókhald og lögum um árs- reikninga.“ Ríkisskattstjóri hefur mál Jóns Ólafssonar til meðferðar að því er varðar endurákvörðun vegna álagn- ingar opinberra gjalda. Indriði Þor- láksson ríkisskattstjóri segir að sama gildi um það og önnur mál; það verði unnið eins og tilefni er til og reynt að hraða því eins og unnt er. Skattamálum vísað til lögreglu ef grunur er um meiriháttar brot
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.