Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er alltaf hollt að gæta að málum þegar
sú staða er uppi að mikil sam keppni er á fjár-
málamarkaði eins og nú er. Alþjóðleg og inn-
lend reynsla sýnir að þegar mikill uppgangur
er á mörkuðum verða oft til hugsanleg útlána-
vandamál og því rétt að sýna aðgæslu.
Þetta segir Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, um ummæli forsætis-
ráðherra sem sagði í áramótagrein sinni í
Morgunblaðinu að taumlaus erlend lántaka
bankanna væri áhyggjuefni.
Bankerfið hefur verið að styrkjast
„Íslenska bankakerfið hefur hins vegar
verið að styrkjast verulega, einingar að
stækka og alhliða áhættustýring er orðin
mjög virk,“ segir Halldór. „Bankarnir eru því
vel í stakk búnir til að mæta þessum vexti.
Arðbær og traustur vöxtur er af hinu góða því
það dreifir föstum kostnaði á dreifðara eigna-
safn og gefur bönkunum færi á að lækka
vaxtamun sem kemur öllum viðskiptavinum
til góða. En vegna mikils vaxtamunar á milli
erlendra mynta og íslensku krónunnar er eft-
irspurnin af hálfu viðskiptavina okkar nánast
einvörðungu í lán í erlendri mynt. Útlána-
aukningin er því að miklu leyti í erlendum
myntum og það er í sjálfu sér algerlega eðli-
legt þegar í hlut eiga fyrirtæki með tekju-
myndun beint eða óbeint í erlendri mynt. Þá
mega menn ekki skilgreina það of þröngt.“
Halldór segir ennfremur að hluti útlánaaukn-
ingar sé vegna erlendra verkefna bæði bank-
anna sjálfra og viðskiptavina þeirra. Slík
verkefni liggi að baki verulegum hluta útlána-
aukningar Landsbankans á nýliðnu ári.
Halldór segir Landsbankann leggja
áherslu á að skynsamlegt jafnvægi sé á milli
tímalengdar erlendra lánveitinga bankans og
tímalengdar erlendrar lántöku.
„Við erum sammála ábendingum seðla-
bankans og forsætisráðherra að vegna örygg-
is í fjármögnun sé rétt að bankarnir fjár-
magni sig til eitthvað lengri tíma en útlán
þeirra segja til um þannig að við fjármögnum
hluta af okkar erlendu skammtímaútlánum
hér heima og erlendis með lengri erlendum
lánum. Landsbankinn tók mjög stórt erlent
lán til fjögurra ára í haust og eins og staðan
er í dag teljum við að það sé mjög eðlilegur
endurgreiðsluferill á okkar lánum. Við höfum
fjármagnað okkur að hluta til meira með
lengri lánum en við höfum lánað út og það er
gert í öryggisskyni. Ég er því mjög sáttur við
okkar stöðu eins og hún er núna.“ Halldór
segir það einnig vera öryggisatriði í fjár-
mögnun að taka ekki bara lengri tíma lán
heldur koma einnig oftar á alþjóðlega mark-
aðinn með skemmri lánstíma t.d. 2 ára
skuldabréf. Það að bankarnir komi tiltölulega
ört á hina alþjóðlegu markaði með útgáfum til
skemmri tíma eykur sýnileika og treystir eft-
irspurn eftir íslenskum bankabréfum. Þetta
er því jafnvægislist og ég held að allir átti sig
á því að nauðsynlegt er að gæta að heild-
arstöðunni hverju sinni. Ein jákvæð þróun
hefur orðið á nýliðnu ári og það er vöxtur inn-
lánsstarfsemi erlendis og Landsbankinn hef-
ur lagt aukna áherslu á innlánaþjónustu t.d. í
dótturfélagi okkar í London, Heritable Bank.
Þannig er meginhluti starfseminnar í Eng-
landi nú fjármagnaður með innlánum breskra
viðskiptavina. Við stefnum að því að auka
þennan þátt í erlendri fjármögnun og það
eykur einnig öryggi í erlendri fjármögnun
verulega,“ segir Halldór.
Erlend lánastarfsemi
nú mun meiri
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslands-
banka, segist reikna með að forsætisráðherra
sé m.a. að vísa til þess að erlendar skuldir
þjóðarbúsins hafi farið vaxandi.
„Orð forsætisráðherra eru ágætis áminn-
ing til allra sem taka lán í erlendri mynt um
að fara varlega. Vöxtur er af hinu góða en
kapp er að sjálfsögðu ætíð best með forsjá.
Hvað Íslandsbanka varðar hefur vissulega
verið vöxtur í útlánum til viðskiptamanna
bankans. Annars vegar er um það að ræða að
við erum í vaxandi mæli að lána til erlendra
viðskiptamanna og tæplega 20% af eignasafni
bankans eru til erlendra aðila, hlutfallið hefur
vaxið úr nánast engu á síðastliðnum fimm ár-
um og hefur þannig valdið stækkun á efna-
hagsreikningi. Sömuleiðis hefur Íslandsbanki
verið að ná til sín verkefnum og fjármagna
verkefni sem áður voru í höndum erlendra að-
ila. Þetta eru meginskýringarnar hvað okkur
varðar,“ segir Bjarni. Sólon Sigurðsson,
bankastjóri Búnaðarbankans, segir bankann
auðvitað taka lán erlendis til þess að lána við-
skiptavinum þannig að ekki sé við bankann að
sakast í því efni. „Við erum bara að reyna að
þjónusta okkar viðskiptavini. Þannig að það
er mjög rangt að tala um taumlausa lántöku
bankanna, það eru viðskiptavinir þeirra sem
taka lán í erlendri mynt.“ Sólon segir það út
fyrir sig geta verið áhyggjuefni að erlendar
skuldir þjóðarbúsins séu orðnar of miklar en
það sé önnur saga. „En fyrir fyrirtækin og þá
einstaklinga sen hafa þekkingu til þess að
taka erlend lán er það í lagi. Ég hins vegar
vara við því að allur almenningur fari að taka
erlend lán, þ.e. fólk sem ekki getur tekið
áhættu og kann það ekki heldur,“ segir Sólón.
Meðallánstími að lengjast
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Spari-
sjóðabankans, segir Sparisjóðabankann með
mun minni umsvif á þessu sviði en viðskipta-
bankana þrjá. Meðallánstími erlendra lána
bankans hafi auk þess verið að lengjast á und-
anförnum misserum. Finnur segir að vænt-
anlega séu menn að hugsa um skammtímalán
viðskiptabankanna enda hafi þeir verið að
fjármagna sig til skamms tíma með erlendum
lánum en lánað til lengri tíma. „ Þá getur orð-
ið þarna ákveðið ójafnvægi og ef aðgangur að
þessu erlenda fé verður allt í einu erfiðari
geta bankarnir lent í miklum erfiðleikum. En
Sparisjóðabankinn er tiltölulega umsvifalítill
á þessu sviði í samaburði við viðskiptabank-
ana. Lán okkar erlendis hafa verið að lengjast
þannig að við teljum okkur vera í góðum mál-
um,“ segir Finnur.
Ummæli forsætisráðherra í áramótagrein um miklar erlendar lántökur viðskiptabankanna
Mikil eftirspurn viðskiptavina
„FYRIRHUG-
AÐAR breyt-
ingar á hinu op-
inbera
húsnæð-
islánakerfi eru
mjög til bóta,“
segir Tryggvi
Þór Herberts-
sonar, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands. Hann segir að
hægt verði að skrá hin nýju skulda-
bréf, þ.e. íbúðabréfaflokkana sem
fyrirhugað er að Íbúðalánasjóður
gefi út, erlendis. Bréfin verði á
formi sem sé þekkt sé erlendis og
þau verði mun gjaldgengari á er-
lendum mörkuðum en hús- og hús-
næðisbréf hafi verið.
Hann segist ekki viss um að það
sé rétt sem fullyrt hafi verið að
áhætta sú sem fólgin hefur verið í
mismiklum afföllum af húsbréfum
verði úr sögunni með væntanlegri
kerfisbreytingu. Áhættan verði ná-
kvæmlega eins og verið hefur þeg-
ar fólk muni standi frammi fyrir
því að Íbúðalánasjóður muni bjóða
út skuldabréf í hinu nýja pen-
ingalánakerfi. Vaxtakjörin verði
ákvörðuð í útboði og gagnvart
fólki verði áhættan eins varðandi
það að vaxtakjörin í hinu nýja kerfi
geti breyst eins og afföllin í hús-
bréfakerfinu í dag.
Tryggvi Þór segir að Íbúðalána-
sjóður muni væntanlega bjóða út
eins mikið af skuldabréfum og
sjóðurinn mun þurfa á að halda til
að standa undir fyrirséðum lánveit-
ingum. Miðað við núverandi að-
stæður og lánakjör ætti því að hans
mati ekki að vera hætta á að biðröð
myndist eftir húsnæðislánum, eins
og áður en húsbréfakerfið kom til.
„Ég sé ekki að þessi kerfisbreyt-
ing muni ýta undir þenslu á fast-
eignamarkaði,“ segir Tryggvi Þór.
Tryggvi Þór Herbertsson
Gjaldgengari
skuldabréf
erlendis
JÓHANNA Sig-
urðardóttir,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar,
segist ekki
skilja hvað búi
að baki boð-
uðum breyt-
ingum á hús-
næðislánakerfinu. Hún segir að
sátt hafi ríkt um húsbréfakerfið
og að það komi sér því á óvart að
taka eigi upp peningalánakerfi.
„Þessar breytingar hljóta að
vera undanfari þess að færa eigi
íbúðalánakerfið inn í bankakerf-
ið,“ segir hún. „Og bankarnir
munu auðvitað mala gull á því.“
Hún segir að það þýði að rík-
isábyrgð á hinu opinbera húsnæð-
islánakerfi verði fyrr eða síðar
afnumin. Það verði síðan til þess
að vextir af húsnæðislánum muni
hækka. „Þá finnst mér líklegt að
bankar og Íbúðalánasjóður muni
bæta sér upp lægri vexti, sem nú
er talað um, með auknu vaxta- og
áhættuálagi.“ Hún segir að sér
finnist því allsendis óvíst hvort
umræddar breytingar bæti hag
íbúðakaupenda þegar upp verði
staðið. „Ég hef því allan fyr-
irvara á þessari kerfisbreytingu á
húsnæðislánakerfinu. Mér finnst
þessi breyting minna óþægilega
mikið á biðraðakerfið sem var
tekið upp árið 1986 en það var
peningakerfi sem átti eftir að
hrynja. Húsbréfakerfið leysti það
síðan af hólmi.“ Hún segir einnig
að nýja kerfið geti leitt til þess
að biðraðir myndist eftir lánum,
t.d. ef útboð mistakast.
Jóhanna tekur hins vegar fram
að hún fagni því að vextir viðbót-
arlána og peningalána eigi að
lækka – og segir þær lækkanir
löngu tímabærar. Ennfremur seg-
ist hún fagna hækkun hámarks-
lánanna. Þau hafi ekki hækkað í
þrjátíu mánuði. „Þetta nær þó
ekki þeim hækkunum sem orðið
hafa á íbúðum á höfuðborg-
arsvæðinu.“ Jóhanna segir að
tveggja til fjögurra herbergja
íbúðir á höfuðborgarsvæðinu hafi
hækkað um 18% á sl. tveimur ár-
um og 120 til 150 fermetra íbúðir
hafi hækkað um 21,6% á þeim
tíma. Hámarkslán Íbúðalánasjóðs
vegna nýrra íbúða hækki hins
vegar ekki nema um 7,8% og há-
markslán vegna notaðra íbúða
hækki ekki nema um 15%. „Þess-
ar hækkanir ná því ekki einu
sinni verðlagsbreytingum,“ ítrek-
ar hún.
Standi ekki við
loforð um 90% lán
Jóhanna segir að framsókn-
armenn hafi verið sáttir við hús-
bréfakerfið og því virðist „sem
framsóknarmenn hafi eina ferð-
ina enn beygt sig fyrir Sjálfstæð-
isflokknum sem vilja almenna
húsnæðiskerfið inn í bankana og
afnema ríkisábyrgðina.“ Jóhanna
bætir því við að svo virðist sem
framsóknarmenn séu jafnframt
með breytingunum að reyna að
komast hjá því að standa við lof-
orðin um 90% húsnæðislán. „Ég
lít svo á að með þessum breyt-
ingum sé verið að koma öllu
þessu kerfi inn í bankana og að
með þeim eigi að taka upp hreint
markaðskerfi, með engum fé-
lagslegum innviðum sem voru þó
í húsbréfakerfinu, t.d. varðandi
landsbyggðina.“
Að lokum segir Jóhanna að til-
gangur húsbréfakerfisins hafi
verið þríþættur. Í fyrsta lagi hafi
verið hægt að selja húsbréfin á
markaði, í öðru lagi hafi verið
hægt að nota húsbréfin sem
skiptimynt í fasteignaviðskiptum
og í þriðja lagi hafi verið hægt að
nota húsbréfin sem sparnað. Með
breytingunum verði hvorki hægt
að nota húsbréf í fasteigna-
viðskiptum né sem sparnað. Það
telur Jóhanna afar slæmt.
Jóhanna Sigurðardóttir
Undanfari
þess að lánin
verði færð
inn í banka-
kerfið
Skiptar skoðanir á afnámi húsbréfakerfisins
Ákvörðun félagsmálaráðherra um að gerðar verði grundvallarbreytingar á húsnæðislánakerfinu mælist mis-
jafnlega fyrir. Nokkrir viðmælendur segja breytinguna löngu tímabæra og hafa ýmsa kosti. Aðrir lýsa undr-
un sinni og segjast hafa fyrirvara á þessari kerfisbreytingu.
MAGNÚS Þór
Hafsteinsson,
varaformaður
Frjálslynda
flokksins, tekur
vel í boðaðar
breytingar á hús-
næðislánakerf-
inu, sem Árni
Magnússon fé-
lagsmálaráðherra kynnti á gaml-
ársdag. Magnús segir það til dæmis
jákvætt ef hægt verði að losna við
húsbréfin úr fasteignaviðskipt-
unum því húsbréfunum hafi fylgt
ákveðin áhætta vegna affalla. Hann
kveðst þó hafa áhyggjur af því að
hækkun hámarkslána geti leitt til
aukinnar skuldasöfnunar heim-
ilanna.
„En við teljum það þó mjög já-
kvætt ef breytingarnar munu leiða
til lægri vaxta. Það er líka jákvætt
ef breytingarnar verða til þess að
ungt fólk geti átt auðveldara með
að eignast þak yfir höfuðið.“ Minnir
hann á að Frjálslyndi flokkurinn
hafi lengi mælst til þess að gang-
skör verði gerð að því að auðvelda
ungu fólki að eignast eigið húsnæði.
Magnús Þór Hafsteinsson
Tekur
vel í breyt-
ingarnar
BJÖRN Þorri
Viktorsson, for-
maður Félags
fasteignasala,
segir að almennt
séu breyting-
arnar mjög til
góðs og löngu
tímabært er að
hans sögn að
hækka upphæð hámarkslána eins
og nú hefur verið gert. „Ef menn
hins vegar ætluðu að hækka há-
markslánin til samræmis við það
sem var um 1990 þyrftu lánin að
fara í 13–14 milljónir króna, þannig
að enn er nokkuð í land.“
Björn Þorri segir að einnig sé já-
kvætt að fá inn peningalán í stað
húsbréfa þar sem afföllin hverfi og
áhættan fyrir seljendur fasteigna
þar með. „Það má reyndar segja
sem svo að áhættan sé flutt frá selj-
andanum til kaupandans, þar sem
nú verður það hann sem verður að
laga sig að markaðsaðstæðum en
ekki seljandinn eins og nú er, þar
sem vextir lánanna verða mismun-
andi frá einu tímabili til annars í
samræmi við eftirspurn.“
Spurður um áhrifin á markaðinn
sjálfan sagði Björn að breyting-
arnar myndu ekki hafa í för með
sér neinar kollsteypur. „Það hefur
um langt skeið verið mikið fjár-
magn í boði til húsnæðiskaupa og
nú þegar er einn þriðji af öllum lán-
um með 90% lánshlutfalli þar sem
viðbótarlánin koma við sögu. Þetta
verður kannski ekki eins mikil
breyting og margir hafa haldið.“
Björn Þorri Viktorsson
Löngu
tímabært