Morgunblaðið - 03.01.2004, Side 11

Morgunblaðið - 03.01.2004, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 11 30-70% afsláttur Útsalan hefst í dag Opi› í dag laug. 10-16 og sun. 13-17 ÚTSALAN HEFST Í DAG! Kringlunni - Sími 581 2300 S M Á R A L I N D Sími 517 700720-40% afsláttur ÚTSALAN HEFST Í DAG Ein glæsilegasta undirfataverslun landsins GYLFI Arn- björnsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segir að það komi ASÍ al- gjörlega í opna skjöldu að unnið hafi verið að því að leggja hús- bréfakerfið niður. „Við höfum talið mikilvægara að endurskoða og endurreisa hið félagslega húsnæð- iskerfi áður en það verður end- anlega lagt af.“ Hann segir að ASÍ eigi þó eftir að kynna sér boðaðar breytingar betur, en þær hafi ekk- ert verið kynnta fyrir samtökunum og ekkert samráð hafi verið haft við þau um fyrirhugaðar breyt- ingar. Gylfi segir að vitað hafi verið að það séu ákveðnir hnökrar á út- færslu húsbréfakerfisins, sem geri m.a. að verkum að allar líkur séu á því að þær haldi erlendum fjár- festum frá því að koma að kerfinu. Þar sé verðtryggingin kannski stóra málið því það sé fyr- irkomulag sem aðrir þekki ekki og passi illa inn í uppgjörskerfi er- lendis. Full ástæða hafi því verið til að skoða hvort tæknilegar við- skiptahindranir haldi vöxtum hærri hér en þeir þurfa að vera. Að það kalli hins vegar á það að öllu húsnæðiskerfinu verði varpað fyrir róða sé nokkuð sérstakt og án þess að um það sé breitt sam- ráð. Gylfi segir að fólk búi við þann mikla vanda hér á landi að eiga ekki fyrir húsaleigu í félagslega húsnæðiskerfinu. ASÍ hafi viljað sjá vinnu og lausnir í þeim efnum, sem myndi færa húsaleiguna niður í það sem var áður. Vextir af fé- lagslegum húsnæðislánum hafi verið hækkaðir úr 1% í 3,5%, sem sé mjög mikil hækkun. Sá hópur fólks sem eigi við þessi vandamál að stríða sé allt of stór en ekkert sé verið að gera til að taka á þess- um vanda. Þá vinnu hefði ASÍ frekar viljað sjá en boðaða nið- urlagningu húsbréfakerfisins. Gylfi Arnbjörnsson Kemur ASÍ í opna skjöldu Í GÆR höfðu um 4,6 milljónirkróna safnast í söfnun Rauða kross Íslands vegna jarðskjálft- anna í Íran, að sögn Þóris Guð- mundssonar, upplýsingafulltrúa Rauða krossins. Þórir segir að peningarnir fari í að kaupa hjálpargögn. Áhersla sé fyrst og fremst á að útvega tjöld, teppi, hitunartæki, matvæli, vatn og lyf, en í vikubyrjun lentu fimm flugvélar fylltar hjálp- argögnum frá Alþjóða Rauða krossinum í Bam auk þess sem þangað komu 15 vörubílar hlaðn- ir hjálpargögnum. Hjálparstarfið í Bam, þar sem jarðskjálftinn olli mestri eyði- leggingu, hefur gengið ágætlega en tugþúsundir manna hafast við í tjöldum sem íranski Rauði hálf- máninn hefur dreift á skjálfta- svæðinu. Íranski Rauði hálfmán- inn hefur komið upp færanlegu sjúkrahúsi á flugvellinum í Bam og hafa um 30.000 manns fengið þar aðhlynningu en auk þess er komið færanlegt sjúkrahús til borgarinnar sem er mannað fólki frá finnska, þýska og norska Rauða krossinum. Söfnunin heldur áfram næstu daga. Fyrst og fremst hefur safn- ast inn á söfnunarsímann 907 2020 og á vef Rauða kross Ís- lands, www.redcross.is, en að sögn Þóris kemur til greina að Rauði kross Íslands taki á ein- hvern hátt þátt í uppbyggingunni sjálfri í Bam. Söfnun Rauða krossins vegna jarðskjálftanna í Íran gengur vel Um 4,6 milljónir hafa safnast

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.