Morgunblaðið - 03.01.2004, Síða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Öldungadeild Menntaskólans
við Hamrahlíð
Er ekki kominn tími til að hefja nýtt
nám, rifja upp eða bæta við fyrra nám?
Það getur þú gert hjá reyndum kennurum Menntaskólans við Hamrahlíð.
Öldungadeild hefur verið starfrækt við MH síðan í ársbyrjun 1972. Við höfum því
yfir þrjátíu ára reynslu í að kenna fólki með ólíkan bakgrunn bóknám til
stúdentsprófs.
Er þetta ekki eitthvað fyrir þig?
Í boði er fjölbreytt nám í raungreinum, tungumálum og samfélagsgreinum.
Af um sjötíu námsáföngum eru tólf áfangar í dreifnámi.
Þeir, sem hafa lokið skilgreindu starfsnámi, athugið að hægt er að fá það nám
metið sem heild inn í námsferil til stúdentsprófs.
Innritun er að hefjast fyrir vorönn 2004!
Innritun í Öldungadeild MH fyrir vorönn 2004 stendur yfir laugardaginn 3. janúar
nk. frá kl. 10.00 til kl. 14.00 og 5. og 6. janúar nk. frá kl. 13.00 til kl. 18.00.
Hægt verður að hafa samband við námsráðgjafa 5. og 6. janúar nk.
frá kl. 15.00 til kl. 18.00.
Upplýsingar um innritun í gegnum síma eða vefinn eru í Fréttapésa
öldunga (vefriti öldungadeildar) á heimasíðu skólans undir „Öldungadeild“.
Mikilvægt er að þeir nemendur, sem vilja láta meta fyrra nám, leggi þau
gögn inn á skrifstofu.
Greitt er sérstaklega fyrir mat á fyrra námi.
Skólagjöld ber að greiða við innritun.
Komdu í heimsókn á heimasíðu okkar!
Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um starfsemina, s.s. stundatöflu
vorannar, almanak vorannar, kennsluáætlanir einstaka áfanga,
innritunareyðublað fyrir símainnritun o.fl.
HLUTABRÉF hækkuðu almennt
mikið í verði í kauphöllum heimsins á
síðasta ári og er það breyting frá ár-
unum 2000 til 2002 þegar hlutabréfa-
verð fór almennt lækkandi. Heims-
vísitala Dow Jones hækkaði um
þriðjung, sem er mesta hækkun inn-
an árs frá því vísitalan var tekin upp
árið 1992.
Eins og sjá má í töflunni hér til
hliðar, sem sýnir helstu vísitölur ým-
issa landa, var hækkunin almenn yfir
heiminn og hlutabréf lækkuðu ein-
ungis í tiltölulega fáum löndum.
Nikkei-hlutabréfavísitalan í Japan
hækkaði um 24,5% og lokagildi henn-
ar í fyrra var 10.677 stig. Í The Wall
Street Journal segir að þetta hafi
gerst eftir að merki hafi sést um bata
í efnahagslífinu og áframhaldandi
endurskipulagningu hjá fyrirtækj-
um. Eftir margra ára efnahagserfið-
leika er vísitalan þó enn langt frá
hæsta gildi sínu, en fyrir rúmum ára-
tug var hún í um 40.000 stigum.
Bandaríska hlutabréfavísitalan
Dow Jones International hækkaði
um 25% í fyrra og er nú rúmlega eitt
þúsund stigum undir fyrra hámarki
sínu, sem var tæplega 12.000 stig fyr-
ir þremur árum. Vísitalan hefur
hækkað um meira en 40% frá því hún
var lægst í október 2002.
Vísitala Dow Jones fyrir Evrópu,
DJ STOXX 600, hækkaði um tæp
14% í fyrra, og vísitala Dow Jones
fyrir evrusvæðið hækkaði heldur
meira eða um 18%. Innan Evrópu var
þó mikill munur á einstökum löndum.
Þýskaland hækkaði til að mynda um
37% en Holland aðeins um tæp 5%.
The Wall Street Journal segir þró-
un hlutabréfaverðs hafa verið góða í
öllum heimshlutum, en það sé helst
Evrópa sem hafi valdið vonbrigðum.
Blaðið segir suma kenna sterku
gengi evrunnar um að hlutabréf hafi
hækkað minna í Evrópu en annars
staðar. Sterkt gengi hafi orðið til
þess að evrópsk framleiðsla hafi orð-
ið síður samkeppnishæf og það hafi
komið niður á hagnaði fyrirtækja
þar.
Svipuð viðhorf og árið 1999
Mikil hækkun síðasta árs hefur
ekki orðið til að draga úr bjartsýni
fjárfesta, ef marka má könnun sem
fjármálafyrirtækið Merrill Lynch
gerði meðal sjóðstjóra og birti um
miðjan desember. 71% svarenda
taldi að hlutabréf í heiminum myndu
hækka árið 2004. Þar af bjuggust
tveir af hverjum þremur við innan við
10% hækkun og sjötti hver taldi að
hækkunin yrði yfir 10%. Væntingar
til Kína eru miklar og 78% sjóðstjór-
anna telja að landið verði á þessu ári
uppspretta vaxtar fyrir hagkerfi
stóru iðnríkjanna.
Þeir markaðir sem svarendurnir
binda mestar vonir við á þessu ári
eru minna þróaðir markaðir og
markaðurinn í Japan. Þeir markaðir
sem sjóðstjórarnir hafa minnsta trú á
að muni hækka á næsta ári eru Bret-
land og Bandaríkin.
„Við erum nú loks komin út úr
myrkviðunum,“ hefur The Wall
Street Journal eftir sérfræðingi í al-
þjóðlegum fjárfestingum hjá eigna-
stýringu Citigroup, sem telur erfið-
leikana vegna tækni- og
fjarskiptabólunnar að baki. Blaðið
ræðir einnig við sjóðstjóra hjá Pion-
eer Investment Management, sem
segir að áhuginn á því að taka áhættu
sé orðinn eins og hann hafi verið árið
1999. „Það er nokkuð sem ástæða er
til að óttast,“ er haft eftir sjóðstjór-
anum.
Hlutabréf
hækkuðu
Bjartsýni um
hlutabréf heimsins
á þessu ári
!"
#$ !
% &
'
('
)
*"
'!!"
+,
-
.
-/0"1-% 2
-313 4(" -.
5
'
"
!
&6 6.
7!!889
(
-
: !!
;<
(
&6
==
) ".&6-+>%%?<<
:+-)@<<
-313 4A !
B
'
:
C
($.3
!
DAGBLAÐIÐ The New York Times
sagði fyrir stuttu frá netversluninni
Senior Shops en þar fást ýmsar
vörur ætlaðar eldra fólki. Í greininni
er rætt við aðaleiganda verslunar-
innar, Íslendinginn Sesselju Páls-
dóttur, eða Sellu Palsson eins og
vitnað er til hennar í greininni. Sess-
elja hefur rekið Senior Shops frá
árinu 1999, fyrst eingöngu á Netinu
en síðar bættist ein verslun í Salt
Lake City við að ósk viðskiptavina.
Stærstur hluti tekna fyrirtækis
Sesselju, 95%, kemur í gegnum Net-
ið. Hún segir söluna hafa þrefaldast
á þremur árum, eða frá árinu 2000.
Fimm manns eru í fullu starfi hjá
Senior Shops. Hugmyndin að baki
fyrirtækinu kviknaði þegar Sesselja
var að leita að vörum fyrir aldraða
móður sína til að létta henni dagleg
störf. Hún komst að því að nóg var
til af vörum ætluðum eldra fólki en
þær sjaldnast seldar á sama stað. Því
datt henni í hug að opna verslun á
Netinu sérstaklega ætlaða eldra
fólki.
Gerir sér grein fyrir að
þjóðin er að eldast
Sesselja segir markaðinn fyrir
slíkar vörur hafa þróast á ýmsan
hátt frá því hún hóf rekstur Senior
Shops í Salt Lake City. „Sumir fram-
leiðendur tæknivara eru farnir að
sjá að það borgar sig að framleiða
sérstaklega fyrir aldraða. Þá hefur
verslunum sem selja vörur fyrir
aldraða fjölgað á Netinu,“ segir
Sesselja við
Morgunblaðið.
Sesselja bendir
á að bandaríska
þjóðin er að eld-
ast. Blaðamaður
New York Times
tekur undir það í
sinni grein og
segir dagvöru-
framleiðendur oft
ekki hugsa út í það þegar þeir hanni
vörur. Hann lýsir ánægju sinni með
það að til séu verslanir eins og Seni-
or Shops og segir Sesselju tilheyra
hópi athafnafólks sem geri sér grein
fyrir þeim breytingum sem eru að
verða á aldurssamsetningu þjóð-
arinnar.
Meðal þess sem í boði er hjá Seni-
orShops eru símar fyrir heyrn-
arskerta, sérstök tól til að opna
krukkur og talandi klukkur svo eitt-
hvað sé nefnt. Blaðamaðurinn segir
að margar þessara vara sé hægt að
fá í stórverslunum, en þær séu þá
ekki á sama stað og því geti verið
erfitt að finna þær. Með Senior-
Shops sé þeim hins vegar safnað
saman á einn stað sem einfaldi málið
töluvert.
Sesselja Pálsdóttir er alíslensk en
hefur að mestu leyti verið búsett í
Bandaríkjunum undanfarna þrjá
áratugi. Hún rak lengst af veitinga-
hús í New York borg auk þess sem
hún framleiddi hina feikivinsælu
sýningu Forbidden Broadway sem
gekk í hálft sjötta ár í borginni.
Sérhæfð netversl-
un fyrir aldraða
Rekstur SeniorShops.com, sem er í
eigu Íslendings í Utah, gengur vel
Sesselja Pálsdóttir
GANGI kaup bresku matvörukeðj-
unnar Morrison á Safeway-keðjunni
eftir, gæti það margfaldað tekjur ís-
lenska hugbúnaðarfyrirtækisins HB
International eða Hugbúnaðar hf. en
Morrison er stærsti viðskiptavinur
fyrirtækisins. Matvörukeðjan, sem
er sú fimmta stærsta á breskum
markaði, notast við afgreiðslukerfi
frá Hugbúnaði hf. á 4.000 af-
greiðslukössum verslana sinna. Í
kjölfar kaupa Morrison á Safeway,
sem er fjórða stærsta keðjan á
breskum matvörumarkaði, gæti far-
ið svo að 19.000 afgreiðslukassar til
viðbótar tækju upp kerfi Hugbún-
aðar hf.
Að sögn Sigurðar Elíasar Hjalta-
sonar, stjórnarformanns Hugbún-
aðar hf., er ekki vitað fyrir víst hvort
Morrison hyggst fella verslanir Sa-
feway undir sitt merki við kaupin og
taka þar með upp afgreiðslukerfi
Morrison hjá Safeway-verslunum
einnig. Miðað við umfjöllun í bresk-
um fjölmiðlum er það þó talið líklegt.
Safeway verslanirnar eru 480 tals-
ins en Morrison þarf að selja 52
þeirra frá sér aftur til að fullnægja
kröfum samkeppnisyfirvalda í Bret-
landi. Sigurður Elías segir 19 þús-
und afgreiðslukassa vera í notkun í
þeim verslunum sem Morrison má
halda eftir, alls 428 verslunum.
95% tekna koma erlendis frá
Hugbúnaður hf. var stofnað árið
1981, þá sem Hugbúnaður sf., og er
með elstu hugbúnaðarfyrirtækjum
landsins. Fimmtán manns starfa hjá
fyrirtækinu. Morrison-keðjan er
langstærsti viðskiptavinur fyrirtæk-
isins en meðal annarra sem nota af-
greiðslukerfi frá Hugbúnaði hf. má
nefna Burger King í Þýskalandi.
Velta fyrirtækisins á síðasta ári
var um 100 milljónir króna, en að
sögn Sigurðar kemur 95% veltunnar
erlendis frá. Taki Safeway-
verslanirnar upp kerfi fyrirtækisins
á afgreiðslukassana 19 þúsund fær
Hugbúnaður 5–600 milljónir króna í
tekjur af leyfisgjöldum einum sam-
an. Þá eru ótaldar tekjur af sérsmíði
og annarri þjónustu sem jafnan
fylgir sölu hugbúnaðar af þessu tagi.
Nítján þúsund
afgreiðslukassar
Kaup Morrison á Safeway gætu haft
góð áhrif á Hugbúnað hf. sem sér um
afgreiðslukerfi fyrir Morrison-keðjuna
Reuters
Ef Morrison kaupir Safeway-matvörukeðjuna er líklegt að afgreiðslukerfi
frá Hugbúnaði hf. verði komið upp á 19.000 kössum Safeway.