Morgunblaðið - 03.01.2004, Qupperneq 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 17
EGILL Ólafsson blaðamaður segir
að fáir í Georgíu efist um að Míkha-
il Saakashvili muni bera sigur úr
býtum í forseta-
kosningunum á
morgun. „Það
eru sex í fram-
boði en þeir sem
eru að keppa við
Saakashvili eru
allir minnihátt-
ar spámenn í
stjórnmálum, ef
svo má að orði
komast,“ segir Egill.
Egill er einn þriggja Íslendinga
sem munu fylgjast með framkvæmd
kosninganna í Georgíu fyrir hönd
Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu (ÖSE). Auk hans eru við
kosningaeftirlit þau Drífa Hjart-
ardóttir alþingismaður og Finnbogi
Rútur Arnarson sendifulltrúi.
„Þegar maður talar við fólk
hérna þá er það þannig að margir
bera þá von í brjósti að kjöri Saa-
kashvilis muni fylgja einhverjar
breytingar,“ segir Egill. „Þó eru
ekki allir sannfærðir um að hann
verði einhver bjargvættur. Þeir eru
sem sé til sem gagnrýna hann.“
Til að kosningarnar teljist gildar
verður kjörsókn að ná 50% og sig-
urvegarinn síðan að tryggja sér
minnst 50% greiddra atkvæða.
„Menn telja engan vafa leika á því
að Saakashvili mun ná 50% mark-
inu, það er kannski meira spurning
hvort nægilega margir koma á
kjörstað. Í síðustu forsetakosn-
ingum var kjörsókn hins vegar 78%
þannig að pólitískur áhugi er tals-
verður þrátt fyrir allt,“ sagði Egill
Ólafsson.
Fáir efast
um sigur
Saakashvilis
Egill ÓlafssonEITT af fyrstu verkefnum nýs for-
seta Georgíu, sem kosinn verður á
morgun, sunnudag, verður að tryggja
pólitískan stöðugleika í landinu og
koma í veg fyrir að það leysist upp.
Óttast er að leiðtogi Ajaria, sem er
eitt af sjálfstjórnarhéruðum Georgíu,
muni segja skilið við stjórnina í Tbil-
isi, en það gæti leitt til þess að
Georgía liðaðist í sundur.
Mikil óvissa hefur ríkt í stjórnmál-
um í Georgíu frá því að Eduard Shev-
ardnadze, fyrrum forseti landsins,
sagði af sér í nóvember sl. en afsögnin
kom í kjölfar mótmæla sem enduðu
með því að mótmælendur réðust inn í
þinghúsið. Forsetakosningar fara
fram á morgun og er búist við að
Míkhail Saakashvili, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar, verði kjörinn forseti.
Ekki er þó sjálfgefið að pólitískur
stöðugleiki komist á með kjöri nýs
forseta. Leiðtogi Ajaria-héraðs, Asian
Abashidze, hefur lýst yfir neyðar-
ástandi í héraðinu og hefur mátt
skilja yfirlýsingar hans að undan-
förnu á þann veg að hann útiloki ekki
að slíta öll tengsl við stjórnina í Tbil-
isi.
Abashidze er stjórnmálamaður af
gamla skólanum líkt og Shevar-
dnadze og keppti á sínum tíma við
hann um völd í landinu. Honum stóð
hins vegar ógn af stjórnarandstöð-
unni og studdi við bakið á Shevar-
dnadze undir lok valdaferils hans. Nú
þegar Shevardnadze er farinn frá
völdum hefur Abashidze í hótunum
við nýja valdhafa. Saakashvili hefur
lagt áherslu á að friðmælast við
Abashidze og sagt að Abashidze muni
áfram gegna þýðingarmiklu hlutverki
í stjórnmálum í Georgíu.
Erfiður viðskilnaður
Ef nýjum valdhöfum í Tbilisi og
Abashidze mistekst að leysa ágrein-
ingsefni sín er talin ástæða til að ótt-
ast að leiðtogar í héruðunum Abkhaz-
iu og Suður-Ossetiu slíti endanlega
tengslin við Georgíu. Abkhazia hefur í
reynd verið sjálfstætt ríki frá því að
stríð var háð í héraðinu á síðasta ára-
tug þar sem um 10 þúsund manns létu
lífið. Suður-Ossetia hefur sterk tengsl
við Norður-Ossetiu sem er innan
landamæra Rússlands og stjórnend-
ur Suður-Ossetiu líta ekki á Georgíu
sem sjálfstætt ríki, sem það þó hefur
verið frá árinu 1991.
Það bíða því erfið verkefni nýs for-
seta. Stjórnmálaskýrendur eru sam-
mála um að pólitískur stöðugleiki sé
forsenda fyrir efnahagslegri upp-
byggingu landsins, en pólitískur
óstöðugleiki og spilling hafa einkennt
stjórnmálalíf Georgíu frá því landið
öðlaðist sjálfstæði. Ekki er ofmælt að
efnahagslíf landsins sé bágborið. Á
árunum 1990–94 eftir hrun Sovétríkj-
anna dróst framleiðsla í Georgíu sam-
an um 70%. Ekkert lýðvelda fyrrum
Sovétríkjanna er talið hafa farið eins
illa út úr viðskilnaðinum við Rússland
og Georgía. Þó að vöxtur hafi verið í
efnahagslífi landsins síðan 1994 er
framleiðslan enn aðeins um 40% af því
sem hún var árið 1989. Lífskjör hafa
versnað mikið og atvinnuleysi í land-
inu er núna í kringum 20%. Það er því
illa komið fyrir efnahag landsins, sem
eitt sinn var kallað ávaxtakarfa Sov-
étríkjanna.
Flestir ganga út frá því að Míkhail
Saakashvili verði kjörinn forseti
Georgíu í forsetakosningunum. Saa-
kashvili er aðeins 35 ára gamall,
menntaður lögfræðingur frá Banda-
ríkjunum. Hann dvaldi einnig um
tíma í Frakklandi og er kvæntur hol-
lenskri konu. Shevardnadze skipaði
hann dómsmálaráðherra árið 2000, en
hann sagði af sér árið 2002 með þeim
orðum að hann teldi siðlaust að vera
hluti af þeirri ríkisstjórn sem fór með
völd í landinu.
Hann stofnaði í kjölfarið stjórn-
málaflokk og fór fyrir stjórnarand-
stöðunni þegar Shevardnadze var
knúinn til að segja af sér í friðsam-
legri byltingu. Frá því að byltingin
var gerð hefur Nino Burjanadze stýrt
landinu. Hún er 39 ára gömul, pró-
fessor í lögum frá háskólanum í Tbil-
isi. Hún ákvað hins vegar að bjóða sig
ekki fram í kosningunum nú.
Tímamót
í Georgíu
AP
Stúlka að leik í Tbilisi við spjöld með mynd Mikhails Saakashvili.
’ Lífskjör hafaversnað mikið og
atvinnuleysi í
landinu er núna
í kringum 20%. ‘
Forsetakosningar fara fram í Georgíu á
sunnudag. Nýr forseti landsins stendur
frammi fyrir margvíslegum vanda.
Efnahagsástandið er bágborið og hugs-
anlegt er talið að landið liðist í sundur.