Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 21

Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 21
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Buðu rjómavöfflur í tilefni dagsins | Starfsmenn Atlantsolíu buðu um 400 at- vinnubílstjórum í afmæliskaffi í þjón- ustustöð félagsins við Kópavogsbraut á gamlársdag. Tilefnið var að einn mánuður var liðinn frá því félagið hóf almenna sölu á dísilolíu en skv. upplýsingum forsvars- manna Atlantsolíu seldust rúmlega 142 þúsund lítrar af olíu í mánuðinum. Fjöldi viðskiptavina þáði vestfirskar rjómavöfflur í tilefni dagsins. Mest bar á leigubílstjórum sem sérstaklega voru boðnir í afmæliskaffið en margir þeirra fylltu í leiðinni á tankinn fyrir eina annasömustu nótt ársins.    Morgunblaðið/Jim Smart Hið árlega jólaballMosfellsbæjar í Hlégarði, sem halda átti hinn 29. des- ember síðastliðinn, verð- ur haldið annað kvöld, fjórða janúar, klukkan hálffimm. Edda Borg og hljóm- sveit munu skemmta með kraftmikilli og skemmti- legri jóladagskrá og væntanlega munu allir finna skemmtileg jólalög við sitt hæfi. Nú er ekki seinna vænna að skella sér á jólaball, því þrettándinn er skammt undan. Miðaverð á jólaballið er 600 krónur og því ætti engum að vera ófært í gleðina. Jólaball í Hlégarði BORINN Sleipnir er nú kominn á sinn stað í Eskifjarð- ardal, en tekið verður til við að bora eftir heitu vatni þar nú með nýju ári. Heita vatnið kemur til með að hafa mikil áhrif hvað varðar búsetu, nú þegar hundruð manna eru að flytjast til Fjarðabyggðar vegna bygg- ingar álvers í Reyðarfirði. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Sleipnir tilbúinn á nýju ári Benedikt Jónssonlas grein HelguKress í Lesbók Morgunblaðsins um fyrsta bindi ævisögu Halldórs Laxness eftir Hannes H. Gissurarson og „gat ekki orða bund- ist“: Löngum talinn löstur var að lemstra, brjóta og týna. En hirðusemi Hannesar er Helgu kvöl og pína. Friðrik Steingrímsson er einn af þeim sem nota áramótin sem tilefni til að strengja áramótaheit, en er ekkert að gera sér of miklar vonir um að það beri árangur: Um áramót þó stígi á stokk og strengi heitin fögur eitt má telja öruggt nokk að efndin verður mögur. Áramótaheit pebl@mbl.is Keflavík | Íbúar við Heiðarholt og í hverfinu þar ofan við kvöddu gamla árið með miklum myndarskap, eins og venjulega á nýársnótt. Slá þeir venjulega öðrum bæjarbúum við á þessu sviði. Flugeldum var skotið á loft og blysum veifað. Fjöldi fíl- efldra karlmanna gekk í barn- dóm og fékk útrás fyrir skot- gleðina. Ekki urðu slys á fólki í flugeldaskothríðinni í Reykja- nesbæ. Hins vegar lenti einn flugeldur á bifreið og braut rúðu. Þá var töluvert að gera hjá lögreglunni vegna ölvunar á skemmtistöðum og á götum miðbæjarins. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Heiðarholtið upplýst af flugeldaljósum Árið kvatt Selfoss | Á bæjarstjórnarfundi 22. desem- ber var samþykkt ályktun þar sem stjórn- völd eru átalin harðlega fyrir seinagang og að standa ekki við gefin fyrirheit um upp- byggingu og stækkun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Ályktunin var svohljóðandi: „Bæjarstjórn Árborgar átelur harðlega að ekki skuli stað- ið við gefin loforð um framkvæmdir vegna viðbyggingar við Heilbrigðisstofnunina á Selfossi, en í nýsamþykktum fjárlögum Al- þingis liggur fyrir að ekki er gert ráð fyrir fjármagni til að hefja framkvæmdir. Við- byggingin á meðal annars að hýsa hjúkr- unardeild aldraðra sem nú er á Ljósheim- um, í húsnæði sem er algjörlega óviðunandi. Það hlýtur að teljast undarlegt að stjórnvöld skuli ítrekað brjóta reglur sem þau sjálf setja um aðbúnað á heilbrigðisstofnunum. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur nýverið gefið Heilbrigðisstofnuninni á Selfossi mán- aðarfrest til að skila tímasettri fram- kvæmdaáætlun um úrbætur á húsnæði Ljósheima. Bæjarstjórn Árborgar lýsir þungum áhyggjum af ástandinu á Ljós- heimum og skorar á stjórnvöld að grípa þeg- ar í stað til nauðsynlegra ráðstafana svo unnt verði að standa við gefin loforð um nýja hjúkrunardeild árið 2005. Átelur stjórn- völd fyrir seinagang Bæjarstjórn Árborgar Morgunblaðið/Sigurður Jósson Fjarðabyggð | Samkvæmt bráðabirgðatöl- um Hagstofu Íslands yfir íbúaþróun síð- asta árs, hefur íbúum Fjarðabyggðar fjölg- að um 53, sem er í takt við gefnar forsendur sjö ára fjárhagsáætlunar sveit- arfélagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Fjarðabyggðar. Íbúar sveitarfélagsins eru nú 3.110, karl- ar 1.600 og konur 1.510. Er þessi fjölgun væntanlega aðeins forsmekkurinn að þeirri fólksfjöldaaukningu sem koma skal á næstu árum, þegar bygging álvers hefst á Reyðarfirði. Íbúar Austurlands voru sam- kvæmt upplýsingum Hagstofunnar alls 11.889 talsins hinn 1. desember 2003. Fjölgar í Fjarðabyggð ♦♦♦ HESTAMENN eru nú í óðaönn að taka inn hesta sína enda blæs hann köldu þessa dagana og jörð er snævi þakin hvar sem drepið er niður. Að sögn Snorra Ingasonar, for- manns hestamannafélagsins Fáks, eru hestamenn heldur seinna á ferðinni í ár hvað þetta snertir. „Oft er nú fólk búið að taka inn um miðjan desember en því virðist vera að seinka því og sumir taka ekki inn fyrr en í febrúar,“ segir hann og telur að kostnaður við hestahald hafi sitt að segja um þá ákvörðun. Að sögn Snorra nýtti töluverður fjöldi fólks hátíðarnar til að ríða út en myndin er tekin af ungum hesta- manni í Víðidalnum í gær. Snorri segir ákaflega skemmtilegt að ríða út þegar harðfenni er líkt og verið hefur að undanförnu. „Það er líka gott fyrir fæturna á hestunum.“ Morgunblaðið/Rax Hestamenn viðra sig á nýju ári við Fáksheimilið í Víðidal. Riðið í harðfenni Vélsleðinn fannst í Keflavík | Vélsleði og kerra sem hann var á og stolið var á Ak- ureyri fyrir áramót eru komin í leitirnar, en lögreglu í Keflavík bárust upplýsingar um hvar þýfið væri að finna. Eftir því sem best er vitað er hvort tveggja óskemmt en af sleðanum var þó horfið nýtt Garmin GPSmap 182 litatæki. Eru menn beðnir að vera vakandi ef ein- hver reynir að koma slíku tæki í verð. Eig- andi sleðans og kerrunnar, Sigurgeir Stein- dórsson, vill koma á framfæri kæru þakklæti til þeirra fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við að dreifa upplýsingum um sleðann og kerruna en nær öruggt er að snör og hörð viðbrögð í þeim efnum leiddu til þess að málið leystist. Sparisjóður Höfðhverfinga 125 ára | LIÐIN voru 124 ár frá stofnun Sparisjóðs Höfðhverfinga nú á nýársdag, en hann var stofnaður 1. janúar 1879. Sparisjóðurinn er í hópi elstu fjármálastofnana á Íslandi. Í til- efni af þessum tímamótum hefur verið ákveðið að taka saman 125 ára sögu spari- sjóðsins. Þá verður viðskiptamönnum og velunnurum boðið að þiggja afmæliskaffi í afgreiðslu sjóðsins á mánudag, 5. janúar frá kl. 13.30 til 16. Sparisjóðurinn veitir alla almenna fjár- málaþjónustu, auk þess að annast póst- afgreiðslu á Grenivík. Afgreiðsla sjóðsins er að Ægissíðu 7 á Grenivík.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.