Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 24
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 24 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ NÝ önn í Menntasmiðju unga fólksins hefst 14. janúar en námið er opið öllum á aldrinum 17– 26 ára og miðar að því að auka lífshæfni þeirra sem það sækja. Menntasmiðjan er nám í anda lýðháskólanna á Norðurlöndunum og nýtist vel þeim er standa á tímamótum og eru að tak- ast á við breytingar í lífinu. Það er þríþætt: Sjálfsstyrkjandi, hagnýtt og skapandi. Námið miðast sérstaklega við óskir og þarf- ir ungs fólks sem af einhverjum ástæðum hef- ur ekki fundið sig í námi eð atvinnu. Náms- þættirnir eru meira og minna samtvinnaðir þar sem sjálfstyrking og lífsleikni eru alltaf út- gangspunktarnir. Allir þættirnir hafi aukna lífshæfni til handa nemendum, að markmiði þ.e. hjálpi nemendum að takast á við lífið, al- mennt. Lýðræði ríkir í Menntasmiðju unga fólksins þ.e. að nemendur geta haft áhrif á námsefni, námstilhögun og daglegt starf. Þetta leiðir af sér meiri ábyrgð nemenda á skólastarfinu. Námið er eins konar mennt- unar-„bland í poka“ þar sem ungmennin fá innsýn inn í ýmsa námsþætti og taki þar stöð- una á sjálfum sér varðandi styrk og veikleika. Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2004. Um- sóknareyðublöð fást í Menntasmiðjunni eða í pósti ef óskað er.    Menntasmiðja fyrir ungt fólk Fleiri ákærumál | Ákærumáluum hjá Héraðs- dómi Norðurlands eystra hefur fjölgað jafnt og þétt frá 2001 en sektarboðsmálum hefur fækk- aði umtalsvert frá 2002 eftir gríðarlega fjölgun frá 2001. Ákæru- og sektarboðsmálin eru nefnd einu nafni opinber mál, og fækkaði þeim í heild- ina um 12% frá 2002. Mestu munar um sveiflur í sektarboðsmál- unum en þeim fækkaði úr 325 í 202 milli áranna 2002 og 2003 en voru 93 árið 2001. Ákærumál- unum fjölgaði hins vegar úr 216 árið 2001 í 309 árið 2002 og voru komin upp í 359 í fyrra. Einkamálum hjá héraðsdómi fækkaði þá úr 890 í 756 frá 2002 eftir mikla fjölgun frá 2001 þegar þau voru 730. Opinberu málin og einka- málin eru langstærstu málaflokkarnir hjá hér- aðsdómi en af 1528 málum voru 1317 mál úr þessum málaflokkum. Af öðrum málum má m.a. nefna gjaldþrotaskipti, rannsóknarúrskurði og aðfarabeiðnir. Gjaldþrotabeiðnum fjölgaði úr 104 í 124 frá 2002. Í heildina hefur málum hjá héraðsdómi fækkað úr 1744 í 1528 frá 2002.    Hverfakeppni skákfélagsins | Hin árlega hverfakeppni Skákfélags Akureyrar fór fram rétt fyrir áramót. Hart var barist og var eink- um mikil spenna í löngu skákunum. Þar urðu að lokum sveitir Eyrinnar/Innbæjar og Norð- urbrekku efstar og jafnar með 11 vinninga af 18 mögulegum. Eyrin/Innbær, sem var undir öruggri stjórn Gylfa Þórhallssonar sigraði hinsvegar á stigum. Á fyrsta borði fyrir Norð- urbrekku tefldi Rúnar Sigurpálsson. Sveit Glerárhverfis, sem fyrirfram var talin nokkuð sigurstrangleg undir stjórn Ólafs Kristjáns- sonar, varð svo þriðja með 8 ½ vinning og Suð- urbrekka undir stjórn Halldórs B. Halldórs- son rak svo lestina með 5 1/2 v. Í hraðskákinni hafði sveit Norðurbrekku svo sjaldséða yfir- burði, stakk af og hlaut 25 vinninga af 36 mögulegum. Áramótanámskeið | Skákskólinn á Akureyri stendur yfir um helgina, dagana 3. og 4. janúar. Þetta er í beinu samhengi við þá stefnu Skákskóla Íslands að leita eftir samvinnu við taflfélögin í landinu og miðast námskeiðshaldið við þarfir drengja og stúlkna á Norðurlandi. Það er haldið í samstarfi við Skákfélag Akur- eyrar í húsakynnum félagsins. Kostnaður við þátttöku á námskeiðinu er kr. 1000 á þáttakanda. Aðalkennari verður Helgi Ólafsson stór- meistari og skólastjóri Skákskóla Íslands. Honum til halds og trausts við kennsluna verð- ur Þröstur Þórhallsson stórmeistari.    Sykur settur í bensíntankinn | Vélsleða eigandi á Grenivík uppgötvaði á dögunum að miklu magni af sykri hafði verið bætt á bens- íntankinn á sleðanum hans. Mátti litlu muna að illa færi, segir í frétt um þennan atburði á heimasíðu Grýtubakka- hrepps. Þar eru sleðaeigendur hvattir til að at- huga bensínsíur og bensíntanka sleða sinna, „því óvíst er að „vargurinn“ hafi látið sér nægja að sykra bara einn sleða,“ eins og þar stendur. Búið er að kæra málið til lögreglu. AKUREYRI NÝLEGA var tekið í notkun fjós með mjalta- þjóni á bænum Hríshóli í Eyjafjarðarsveit. Þar búa hjónin Sigurgeir B. Hreinsson og Bylgja Sveinbjörnsdóttir. Mjaltaþjónninn, sem er frá DeLaval, er sá fyrsti sem settur er upp hér í sveit en slíkan búnað er að finna á um tug bæja hér á landi. Nýlega var tekið hús á Sigurgeiri Bjarna og hann spurður hvað hafi valdið því að hann tók þá ákvörðun að kaupa mjaltaþjóninn en slíkt tæki kostar milli 13 og 14 milljónir króna. „Ég var engan veginn ákveðinn í því hvað gera skyldi, var lengi vel að hugsa um að hafa vel tæknivæddan mjaltabás, svo hefur mér sýnst þetta ganga vel hjá þeim bændum sem þegar hafa tekið þetta í notkun og álít að þetta sé framtíðin,“ sagði hann. Þegar Sigurgeir er spurður hvort honum ofbjóði ekki kostnaður- inn, segir hann að þetta sé að sjálfsögðu mjög dýrt en á móti komi að vinnusparnaðurinn sé mikill. Einn stærsti hlutinn af fjárfestingunni er þó kaup á kvóta, þau gætu hlaupið á hærri upphæðum en sem nemur kostnaði við fjós- bygginguna sjálfa. Það væri því í sjálfu sér ekki mikið mál að koma aðstöðunni upp, verra væri að þurfa að fjárfesta annað eins eða meira til þess að fá að nota hana til fulls. Að sögn Sigurgeirs hafa kýrnar tekið þessari breytingu mjög vel, þær koma að jafnaði til mjalta þrisvar á dag, þær eru sællegar að sjá og virðist líða mjög vel í nýjum húsakynnum. Gæði mjólkurinnar á bænum eru venju fremur mikil og hafa ekki tekið neinum breytingum eftir að mjaltaþjónninn var tekinn í notkun Morgunblaðið/Benjamín Sigurgeir B. Hreinsson við mjaltaþjóninn, þann fyrsta sem tekin er í notkun í Eyjafjarðarsveit. Ekkert mál að byggja fjós ef nýta má það til fulls Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið. Miðborg | Stjórn íbúasamtaka Grjótaþorps hefur ritað borgaryfir- völdum, lögreglustjóra, Innrétting- unum ehf. og verktökum bréf þar sem mótmælt er harðlega „þeim yfirgangi og ófriði“ sem fylgt hafi í kjölfar byggingaframkvæmda í Aðalstræti 16. Ráðgert er að rísi á umræddri lóð á horni Aðalstrætis og Túngötu 90 herbergja hótel ásamt landnámsskála og er stefnt að því að framkvæmdum ljúki vorið 2005 um leið og hótelið tekur til starfa. Í bréf- inu segir að allt frá því að fram- kvæmdir hófust í sumar hafi vinnu- löggjöfin verið virt að vettugi og næturró raskað, oft á tíðum fram yfir miðnætti og auk þess um helgar. Byggingarleyfi ekki skilyrt Sverrir Guðjónsson, tónlistar- maður og íbúi við Grjótagötu, sem sæti á í stjórn íbúasamtakanna, seg- ir að íbúum hafi ofboðið fyrr í haust þegar farið var að vinna á sunnudög- um. „Auðvitað er alltaf truflun af svona framkvæmdum og við vitum það sem búum þarna í nágrenninu. Þegar við fórum hins vegar að pressa á að fá svör við því hvort það væru engin lög og reglur sem næðu yfir svona framkvæmd þá kom í ljós að byggingarleyfi af þessari stærð- argráðu eru ekki skilyrt. Það virðist þannig vera teygjanlegt hvað þú kallar næturró og hvenær þú truflar nánasta umhverfi í íbúðarbyggð, sem dæmi.“ Sverrir segist hafa leitað til lög- reglu, rætt við verktaka, rætt við Innréttingarnar ehf. sem standa að hótelframkvæmdinni og borgaryfir- völd en alls staðar mælt fyrir dauf- um eyrum. Í bréfi íbúasamtakanna til þessara aðila er á það minnt að borgaryfirvöld sitji beggja vegna borðsins í málinu, borgin sé hluthafi í Innréttingunum sem sé eigandi hótelbyggingarinnar og virðist því „hafa lítinn sem engan áhuga á þeirri brjóstvörn sem borgararnir þurfi á að halda við þessar að- stæður“. Sverrir segir að íbúar séu sam- mála um að núverandi ástand sé með öllu óviðunandi. „Þessar fram- kvæmdir eru alveg ótrúlega trufl- andi og það gleymist alveg að það býr fólk þarna í kring sem þarf að mæta til vinnu líka og er kannski að vinna heima á kvöldin. Það er eins og það skipti engu máli. Og bara til að benda á hvað þetta er fáranlegt má benda á að ef það stæði lúðrasveit fyrir utan gluggann hjá mér og spilaði daginn út og inn og langt fram á kvöld og fram yfir miðnætti þá gæti ég hringt á lög- reglu sem myndi stoppa hana en lög- reglan á í erfiðleikum með að stoppa þessa framkvæmd og bendir fyrst og fremst á að leyfið sé ekki skilyrt,“ segir Sverrir. Í bréfi íbúasamtaka til borgaryfir- valda er farið fram á að fyrirkomu- lag byggingarleyfa innan borgar- markanna verði tekið til róttækrar endurskoðunar með ósk um opinber- ar skýringar og að endi verði bund- inn á „ófrið, tillitsleysi, yfirgang og þá martröð sem íbúar í grennd við Aðalstræti 16 hafi mátt þola,“ eins og segir í bréfinu. „Þessar framkvæmdir eru alveg ótrúlega truflandi“ Oft unnið fram yfir miðnætti við nýtt hótel í Aðalstræti 16 Morgunblaðið/Jim Smart Sverrir Guðjónsson, tónlistarmaður og stjórnarmaður í íbúasamtökum Grjótaþorps, segir íbúa Grjótaþorps afar ósátta við að vinnulöggjöfin skuli virt að vettugi við hótelframkvæmdir í Aðalstræti. Kópavogur | Nýtt bóknámshús við Menntaskólann í Kópavogi var form- lega opnað á dögunum að viðstödd- um Tómasi Inga Olrich, fráfarandi menntamálaráðherra, og Gunnari Birgissyni, forseta bæjarráðs. Í til- kynningu frá skólayfirvöldum segir að um nokkurt skeið hafi húsnæði MK ekki rúmað alla starfsemi hans. Eftir að undirritaður var samningur milli menntamálaráðuneytis og Kópabogsbæjar snemma á síðasta ári um byggingu nýrrar kennslu- álmu hafi framkvæmdir gengið hratt fyrir sig og nú sé risin tveggja hæða bóknámsálma með 17 kennslustof- um, fyrirlestrasal, o.fl. Í húsinu er auk þess sérbúin kennsluaðstaða fyrir sérdeild einhverfra sem verið hefur í leiguhúsnæði í Völvufelli allt frá stofnun deildarinnar fyrir fjórum árum. Nemendum í bóknámi fjölgað „Með nýrri byggingu batnar vinnuaðstaða nemenda og kennara í MK, hægt verður að fjölga nemend- um í bóknámi og vonandi tryggir þetta viðunandi stöðu framhalds- skólamála í Kópavogi næstu árin,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Fráfarandi menntamálaráðherra og formaður bæjarráðs Kópavogs tóku húsið í notkun á dögunum. Nýtt bók- námshús form- lega opnað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.