Morgunblaðið - 03.01.2004, Side 26

Morgunblaðið - 03.01.2004, Side 26
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 26 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Selfoss | Ívar Grétarsson, handknattleiksmaður á Selfossi, var valinn íþróttamaður Árborgar fyrir árið 2003. Kjör íþróttamanns Árborgar var kynnt á sérstakri hátíðarsamkomu í íþróttahúsinu á Sel- fossi síðastliðinn sunnudag 28. desember þar sem Gylfi Þorkelsson, formaður íþrótta- og tóm- stundaráðs Ár- borgar og forseti bæjarstjórnar Ásmundur Sverrir Pálsson, afhentu íþrótta- fólki viðurkenn- ingar. Ívar Grét- arsson varð Evrópumeistari í handbolta með U18 landsliði Ís- lands og er einn efnilegasti hand- knattleiksmaður Selfyssinga og Sunnlendinga. Alls voru ell- efu einstaklingar tilnefndir til kjörs íþrótta- manns ársins í Árborg, Örn Davíðsson frjáls- íþróttamaður, Svanhvít Kristjánsdóttir hestamaður, Bryndís Eva Óskarsdóttir frjálsíþróttakona, Bjarni Bjarnason körfuknattleiksmaður, Hjalti Rúnar Oddsson sundmaður, Ómar Valdimarsson knatt- spyrnumaður, Elías Einarsson knattspyrnumað- ur, Theodór Guðmundsson knattspyrnumaður, Hrafnhildur Björk Guðgeirsdóttir fimleikakona sem varð í þriðja sæti í kjörinu, í öðru sæti varð Hlynur Geir Hjartarson kylfingur, og Ívar Grét- arsson handknattleiksmaður sem var valinn íþróttamaður Árborgar. Á hátíðarsamkomunni voru einnig afhentir styrkir til afreksmanna í sveitarfélaginu og hvatningarverðlaun íþrótta- og tómstundaráðs Árborgar en sú tilnefning kom í hlut Golfklúbbs Selfoss fyrir metnaðarfullt uppbyggingarstarf. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ívar Grétarsson handknatt- leiksmaður, íþróttamaður Ár- borgar 2003. Ívar Grétarsson valinn íþróttamaður Árborgar Selfoss | 99% af tekjum Sveitarfélagsins Ár- borgar fara til reksturs málaflokka og skuldir munu aukast um 194 milljónir ár þessu ári samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun að því er fram kemur í fundargerð bæjarstjórnar frá 22. desember. Í bókun meirihlutans kemur fram að heildarskatttekjur sveitarfélagsins eru 1.727 milljónir, þar af er útsvar 1.287 millj- ónir. Rekstur málaflokka, ásamt eignasjóði, tekur til sín 1.713 milljónir. Langstærsti ein- staki útgjaldaliður sveitarfélagsins er fræðslu- og uppeldismál með 935 milljónir eða 54% af skatttekjunum. Heildarlaunagreiðslur sveit- arfélagsins eru um 1,1 milljarður eða liðlega 66% af skatttekjum. Stærstu liðir í fjárfest- ingum á árinu 2004 eru grunnskóli í Suð- urbyggð – lok 1. áfanga 257 milljónir, nýfram- kvæmdir gatna 72 milljónir, holræsaframkvæmdir 142 milljónir, framlag v. byggingar íþróttahúss við FSu 25 milljónir og framkvæmdir á vegum Selfossveitna 55 millj- ónir.“ Í bókun meirihluta bæjarstjórar segir með- al annars: „Niðurstaða samstæðureiknings sveitarfélagsins sýnir heildareignir að fjárhæð 4,9 milljarða, langtímaskuldir 2,5 milljarða, eigið fé 1,3 milljarða og aðrar skuldbindingar þ.m.t. lífeyrisskuldbindingar að fjárhæð 1,1 milljarð. Eiginfjárhlutfall er áætlað 0,26. Handbært fé frá rekstri í heildarsamstæðunni er 320 milljónir. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er 451 milljón. Afborganir lána eru 226 milljónir og ný langtímalán eru áætluð 420 milljónir þannig að lántökur um- fram afborganir eru áætlaðar 194 milljónir. Mikil íbúafjölgun og uppbygging Í bókun meirihlutans er meðal annars bent á stöðu sveitarfélagsins og þenslu vegna fjölg- unar íbúa í sveitarfélaginu: „Þrátt fyrir það að eiginfjárstaða sveitarfélagsins sé sterk á sveit- arfélagið við vanda að stríða, eins og mjög mörg sveitarfélög í landinu, sem felst í því að tekjurnar fara að stærstum hluta í rekstur málaflokkanna. Af því leiðir að framkvæmdir verður að fjármagna með lánsfé. Þegar saman fer mikil íbúafjölgun, uppbygging og eftirspurn eftir þjónustu og slagsíða á tekjustofnun sam- fara tekjutapi vegna ýmissa stjórnvalds- aðgerða verður þyngra fyrir fæti og leiðir oft til aukinnar skuldsetningar. Yfirleitt er skulda- aukningin tímabundin og jafnast aftur þegar fjölgun íbúa og fyrirtækja fer að skila meiri tekjum. Hjá sveitarfélaginu eru framundan stór og fjárfrek verkefni sem bíða úrlausnar bæj- arstjórnar. Stærst þeirra er áframhaldandi uppbygging nýs grunnskóla, ný sniðræsi og hreinsistöð fyrir skolp. Einnig eru framundan stór verkefni í skipulagsmálum í vaxandi sveit- arfélagi. Auk þess er óvissa um þróun kaup- gjalds á árinu 2004 vegna kjarasamninga- gerðar sem í hönd fer. Það verður því að vera forgangsverkefni að ná tökum á rekstrinum. Meirihluti S- og B-lista er ákveðinn í því að taka reksturinn til gagngerrar endurskoðunar í þeim tilgangi að rekstrarafgangur aukist frá því sem nú er, án þess að þjónusta við lög- bundin verkefni versni. Til þess að það megi takast verða allir að leggjast á eitt, bæj- arfulltrúar og starfsmenn sveitarfélagsins. Samhliða framangreindum aðgerðum er óhjákvæmilegt að leiðrétta tekjustofna sveit- arfélaga, því skorar bæjarstjórn Árborgar á félagsmálaráðherra og stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga að ganga af krafti í þá vinnu að endurskipuleggja tekjustofna sveitarfélaga og skapa þeim grundvöll til að sinna lögboðnum verkefnum.“ Áætlunin er brosleg Minnihluti bæjarstjórnar, fulltrúar Sjálf- stæðisflokks, sögðu gerð og framkvæmd fjár- hagsáætlunarinnar alfarið á ábyrgð meirihlut- ans. „Í sinni fyrstu fjárhagsáætlun boðaði núverandi meirihluti aðhald í fjármálum sveit- arfélagsins og lagði mikla áherslu á aukið og bætt kostnaðarmat. Íbúum Árborgar má vera ljóst að meirihlutinn hefur misst sjónar á þess- um markmiðum sínum. Sveitarfélagið Árborg býr við sömu rekstrarlegu skilyrði og öll önn- ur sveitarfélög landsins, því er það ábyrgð- arleysi af hálfu meirihlutans að ganga þannig frá fjárhagsáætlun að rúmlega 99% af tekjum sveitarfélagsins fara í hinn daglega rekstur og lántökur munu aukast um nær 200 milljónir króna. Með sambærilegri fjármálastjórn og á þessu ári sem er að líða má reikna með því að sveitarfélagið þurfi á haustmánuðum að taka lán til þess að standa undir rekstri. Komi til þess er það grafalvarlegt mál. Öll fyrirheit um „örugga og ábyrga fjármálastjórn“ verða í besta falli næsta brosleg í ljósi þessarar fjár- hagsáætlunar,“ segir meðal annars í bókun minnihlutans. Fjárhagsáætlun Árborgar afgreidd Skuldaaukning og allar tekjur fara í rekstur málaflokka Morgunblaðið/Sigurður Jósson LANDIÐ Fagridalur | Óvenju fallegt veður var á gamlárskvöld í Mýrdalnum. Í Vík var brenna og margir mættu til að sjá hana, meðal ann- arra hljómsveitin Æði sem spilaði og söng við bálið, náttúran lét heldur ekki sitt eftir liggja og setti upp eina norðurljósasýningu yfir þorpinu en þær hafa verið mjög tíðar síðustu mánuði. Miklu var einnig skotið upp af flug- eldum, og að sögn félaga úr björgunarsveitinni Víkverja var sala á flugeldum mjög góð fyrir þessi áramót, einnig hefur björg- unarsveitin boðið mönnum að kaupa sér hlut í sýningu sem björgunarsveitarmenn sjá svo um að sprengja með rafmagni á mið- nætti og hefur þetta mælst vel fyrir hjá mörgum. Bæði náttúrulegar og útbúnar ljósa- sýningar yfir Vík Morgunblaðið/Jónas Erlendsson vegna vatnsveitu og fráveitu einnig að undanskilinni vísitöluhækkun upp á 2,5%. Sama gildir um gjaldskrá leikskóla. Álagningarprósenta fast- eignaskatts er óbreytt. Gjaldskrá tæknideildar bæjarins er endur- skoðuð. Tekjutengdur afsláttur fasteigna- gjalda til elli- og örorkulífeyrisþega sem tekinn var upp á líðandi ári mun einnig ná til holræsagjalds á næsta ári. Mest í uppeldis- og fræðslumál Stærstum hluta rekstrarútgjalda, eða rúmlega 280 milljónum, verður varið til fræðslu og uppeldismála. Nemendum við Grunnskólann hefur fjölgað um tæplega 40 frá lokum síð- asta skólaárs og ráðgert er að taka í notkun nýjan leikskóla á árinu 2004. Aðrir málaflokkar sem taka hvað Hveragerði | Bæjarstjórn Hvera- gerðis afgreiddi þann 29. desember fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2004. Áætlunin gerir ráð fyrir að heild- artekjur bæjarsjóðs og fyrirtækja sveitafélagsins verði 705 milljónir, en þar af eru skatttekjur rúmar 530 milljónir eða 75% af tekjum. Þá er gert ráð fyrir að rekstrargjöld og fjármagnsliðir verði 699 milljónir króna. Afgangur frá rekstri fyrir af- skriftir verður því um 6 milljónir. Að teknu tilliti til reiknaðra stærða í sjóðsteymi er veltufé frá rekstri áætlað 38,5 milljónir sem eru 5,5% af heildartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins hækka á milli ára um rúmlega 6% miðað við endurskoðaða fjárhags- áætlun fyrir árið 2003. Álagning út- svars er óbreytt og þjónustugjöld mest til sín í rekstri eru æskulýðs- og íþróttamál, 70 milljónir, sameig- inlegur kostnaður, 62 milljónir, fé- lagsþjónusta, 35,5 milljónir og um- hverfis-, samgöngu- og skipulagsmál, 51,5 miljónir. Á árinu 2004 er áætlað að verja 163 milljónum nettó til fram- kvæmda. Lokið verður við byggingu leikskóla við Finnmörk og leggja á gervigrasvöll (sparkvöll) við Grunn- skólann. Auk þess verður varið rúm- um 40 milljónum nettó til gatnagerð- ar í Hveragerði. Stærstu framkvæmdir í gatnagerð eru við Sunnumörk en þar er að rísa versl- unarmiðstöð. Gert er ráð fyrir að ný lántaka á árinu 2004 verði 90 millj- ónir og að afborganir eldri lána verði tæpar 80 milljónir. Skuldir bæjarins við lánastofnanir í árslok 2004 nema því um 787 milljónum króna. Heildartekjurnar um 705 milljónir króna Fjárhagsáætlun ársins 2004 afgreidd í bæjarstjórn Mývatnssveit | Fyrsti dagur nýs árs reis bjartur og fagur með hægviðri og 12° frosti en nýárs- nóttin hafði hulið jörð með fann- hvítri mjöll. Á austurlofti voru glitský í morgunskini sem endur- ómuðu í Birtingatjörn, sem er tjörn austan vatns. Þar koma upp- sprettur undan hrauni og halda auðum vökum sem ekki frjósa nema í aftökum. Gamla árið kvaddi með norðan kalda og élja- gangi sem ekki hentar sérlega vel til flugeldasýninga. Tvær brennur voru þó eftir venju og flugeldasýn- ingar hjá þeim. Um miðnætti í Rauðhólum við Álftagerði en kl 21 á Ytri-Höfða við Reykjahlíð. Aft- ansöngur var á gamlárskvöld í Reykjahlíðarkirkju en messa í Skútustaðakirkju á nýársdag. Traustur ís er á vatninu sem hent- ar vel til sleðaferða eða skíða- göngu. Nýársdagsmorgunn í Mývatnssveit

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.