Morgunblaðið - 03.01.2004, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 03.01.2004, Qupperneq 29
FERÐALÖG MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 29 Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna. Geymið auglýsinguna. www.gistinglavilla16.com sími 004532975530 • gsm 004528488905 Kaupmannahöfn - La Villa Síðumúla 6, 108 Reykjavík. Sími 552 5744. Fax 562 5744. www.lhs.is LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA Fjöldi útgefinna miða er 15000. Vinningaskrá verður birt í dagblöðum, á bls. 280 í textavarpi Rúv, Lögbirtingarblaðinu og á www.lhs.is. Dregið verður 6. janúar Meðal vinninga: Sólarlandaferðir með Úrval-Útsýn, ferðatölvur og farsímar. Hjálpið okkur að hjálpa öðrum Happdrætti ára 1983-200 3 Þeir sem ferðast um Bretlands-eyjar, einkum þeir sem faraum á Írlandi og í Skotlandi verða þess vísari að víða eru rekin vönduð gistihús í fornum kastölum. Víðast hefur verið kappkostað að halda við óbreyttu útliti til að stemmning fyrri tíma svífi sem best yfir vötnunum og vissulega votta þeir sem gist hafa í slíkum höllum, að stemmingin er einstök. Kastalar þessir eiga sér yfirleitt ríka og magnaða sögu sem tengist horfnum kynslóðum. Ekki er óal- gengt að draugar eigi þar bústaði, en oftar en ekki er það óskilgreint hvenær þeir létu síðast á sér kræla. Ferðamálaskrifstofa Írlands veitti þær upplýsingar sem hér að neðan koma, er Morgunblaðið leitaði eftir upplýsingum þar á bæ. Fyrirspurnin byggðist á því að vitað var um fjögurra manna fjöl- skyldu sem ætlar að ferðast akandi um Írland á komandi sumri. Hjá Ír- um fengust þessar upplýsingar: Fimm stjörnu lúxuskastalar á borð við Dromolandhöll og Ashford- höll eru dýrir og myndi ódýrasta nóttin kosta frá um 30.000 krónum yfir sumarmánuðina, en valið stend- ur líka um marga, minni þekkta smærri og ódýrari kastala. Abbeyglenkastali í Cliften (s. 00- 353-95-21201), á vesturströnd Ír- lands er t.d. fjögurra stjörnu hótel. Kastalinn var byggður 1832 og þar eru 38 herbergi. Þar kostar nóttin að jafnaði um 13.000 krónur . Einnig má nefna Cabrakastala frá 1760 (s. 00-353-42-966-7030). Hann er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá Dublin og herbergin þar kosta frá 10.000 krónum. Kilkeakastali í Castledermot nærri Dublin (s. 00-353-59-91-45156) var smíðaður árið 1180 og er sagt að kastalinn sé sá elsti á Írlandi þar sem byggð hefur haldist frá upphafi. Þar eru 36 herbergi og kostar nóttin frá 20.000 krónum. Að ofan Cabra-kastalinn frá 1760 er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá Dublin. T.v. Abbeyglen-kastali í Cliften á vesturströnd Ír- lands var byggður 1832. Kastaladvöl á Írlandi  GISTING TENGLAR .............................................. www.abbeyglen.ie www.cabracastle.com www.kilkeacastle.ie www.kinnittycastle.com www.ballynahinch-castle.com www.tourismireland.com Icelandair mun á næstunni gerabreytingar á þjónustu um borðí vélum félagsins sem fela í sér aukna áherslu á létta rétti og gegnsæi í verðlagningu. Tekið verð- ur aukið tillit til þess á hvaða tíma sólarhringsins flogið er og réttirnir verða fram bornir í nýstárlegum og þægilegum umbúðum, að sögn Guð- jóns Arngrímssonar, upplýsinga- fulltrúa Flugleiða. Einn helsti styrkur Icelandair í alþjóðasam- keppni á flugmarkaði hefur um ára- bil verið framúrskarandi þjónusta, að sögn Guðjóns. Með breytingun- um nú er félagið að styrkja þennan þátt starfseminnar og veitir sem fyrr fulla þjónustu, en breytingar- nar eru jafnframt liður í að svara kröfum markaðarins um lág far- gjöld. Farþegar vilja mat Grunnþáttur veitingaþjónustu um borð í vélum Icelandair er að öllum farþegum í almennu farrými er boðið án endurgjalds upp á mál- tíð sem hæfir þeim tíma dags sem flogið er á, þ.e. morgunverð, hádeg- isverð, síðdegissnarl, kvöldverð og kvöldhressingu. Með matnum er borið fram vatn, kaffi og te án end- urgjalds. „Það hefur margsýnt sig í skoð- anakönnunum okkar að í meira en tveggja klukkustunda löngu flugi, eins og allt flug til og frá Íslandi er, þá vill fólk fá að borða á leiðinni. Við teljum það því sjálfsagðan þátt í þjónustu okkar og mikinn styrk í harðri samkeppni að bjóða öllum farþegum góðan mat um borð“, segir Sigurður Skagfjörð Sigurðs- son, forstöðumaður farþegaþjón- ustu Icelandair. Safinn nú seldur Breytingarnar nú munu eiga sér stað í áföngum frá áramótum og fram í apríl. Frá og með 1. janúar 2004 verða gosdrykkir, ávaxtasafi, bjór, vín og sterkir drykkir, þ.e. all- ir drykkir fyrir utan vatn, te og kaffi, seldir um borð. Á sama tíma verður gerð sú breyting að Flug- eldhúsið á Keflavíkurflugvelli mun framleiða mat fyrir flug til og frá Bandaríkjunum,en hingað til hefur maturinn að hluta til verið keyptur vestan hafs. Sú breyting er gerð til að auka gæði og stöðugleika þjón- ustunnar. Aðrar breytingar á matarþjón- ustu á almennu farrými, þar sem aukin áhersla verður á létta rétti, taka gildi í febrúar og frekari breytingar á veitingaþjónustu á við- skiptafarrými og í flugi til og frá Bandaríkjunum í apríl.  BREYTINGAR | Nýjar áherslur í þjónustu um borð hjá Icelandair Léttir réttir og gegn- sæi í verðlagningu Morgunblaðið/Sverrir Kröfur markaðarins: Breytingarnar á þjónustunni eru jafnframt liður í að svara kröfum markaðarins um lág fargjöld.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.