Morgunblaðið - 03.01.2004, Side 30
Morgunblaðið/Golli
Kræsingarnar: Kjúklingabringur með fersku salati og bökuðum kartöflum.
Matargerð hefur lengi veriðáhugamál HafnfirðingsinsSveinbjörns Hólmgeirs-
sonar og ræður hann þar af leiðandi
alfarið ríkjum í eldhúsinu heima hjá
sér. Eiginkonunni Hönnu Björk Haf-
þórsdóttur líkar þessi tilhögun afar
vel enda segist hún alltaf fá eitthvað
girnilegt í matinn á hverju kvöldi.
Sjálf segist hún ekki hafa neitt sér-
stakt yndi af eldamennsku, en búi
stundum til salatið og sé mjög sátt
við að fá að raða í uppþvottavélina
eftir matinn. Saman fara þau þó yfir-
leitt í verslunarleiðangra einu sinni í
viku og þegar kemur að bakstri og
eftirréttum, er það eiginkonan sem
tekur til hendinni.
Hjónin búa í fallegri og stílhreinni
fjögurra herbergja íbúð í Áslands-
hverfinu í Hafnarfirði ásamt tveimur
börnum sínum, Ísak Erni 5 ára og
Söru Dögg 3 ára, og segist Svein-
björn vera sérlega ánægður með eld-
húsið sitt.
Í öndvegi situr vegleg gaseldavél
með fimm hellum og segist Svein-
björn ekki vilja sjá neitt annað eftir
að hafa verið kynntur fyrir gasinu
hjá mági sínum, Agli Kolbeinssyni,
sem einnig er yfirkokkur á sínu
heimili.
Sveinbjörn er vélaverkfræðingur
að mennt og starfar hjá verkfræði-
stofu Guðmundar og Kristjáns.
Hanna Björk starfar á hinn bóginn
sem tækniteiknari hjá VSB verk-
fræðistofu. „Við fluttum tvö til Ála-
borgar árið 1998 þar sem ég var að
taka mastersgráðu í vélaverkfræði,
en komum tveimur árum síðar fjögur
til baka og þá var litla 50 fermetra
íbúðin, sem við áttum, auðvitað orðin
alltof lítil fyrir fjölskylduna,“ segir
Sveinbjörn. Áhuga hans á matartil-
búningi má ef til vill rekja til upp-
vaxtaráranna, en á æskuheimilinu
var það faðir hans sem sá um matar-
gerðina. „Ætli þetta sé ekki bara í
genunum. Við höldum nefnilega að
sonur okkar geti líka orðið efnilegur í
eldhúsinu því fyrir honum er það
mjög eðlilegt að pabbarnir sjái um
matinn. Hann gaf pabba sínum meira
að segja nýja svuntu um daginn þar
sem honum fannst sú gamla orðin
eitthvað snjáð,“ segir Hanna Björk.
Sveinbjörn segist sérstaklega hafa
gaman af því að grilla á útigrilli enda
stundi hann það allan ársins hring,
þrátt fyrir kulda og trekk. Yfirleitt
segist hann styðjast við uppskriftir í
fyrstu, en fari svo gjarnan út í alls
kyns útúrdúra.
Sveinbjörn býður að þessu sinni
upp á kjúklingabringur með hvítvíns-
sveppa-hvítlaukssósu, fersku salati
og bökuðum kartöflum.
Kjúklingabringur
(fyrir fjóra)
3 msk ólífuolía
2 msk íslenskt smjör
200 g smáir sveppir, skornir þunnt
salt og nýmulinn pipar
1 stór smátt saxaður
skallottulaukur
¾ bolli þurrt hvítvín
¾ bolli kjúklingasoð
3 smátt söxuð hvítlauksrif
1 bolli þeyttur rjómi
4 meðalstórar kjúklingabringur
Hitið eina msk af ólífuolíunni og
eina msk af smjörinu á stórri pönnu á
miðlungshita. Setjið smátt skorna
sveppina á pönnuna og kryddið með
salti og pipar eftir smekk. Steikið þá í
um það bil sjö mínútur eða þangað til
þeir eru léttbrúnir. Færið sveppina
yfir í skál. Setjið skallottulaukinn og
hvítvínið á pönnuna og látið sjóða.
Bætið kjúklingasoðinu út í og látið
sjóða. Því næst er hvítlauknum og
þeytta rjómanum bætt út í og látið
sjóða. Sveppunum er þá bætt út í og
látið malla við vægan hita. Hrærið
létt í þar til sósan er orðinn þykk.
Stráið salti og pipar yfir bringurnar á
báðar hliðar. Setjið tvær msk af olíu
og 1 msk af smjörinu á pönnu. Bring-
urnar eru steiktar á pönnu í 4–5 mín-
útur á hvorri hlið eða þar til þær eru
ekki lengur bleikar að innan. Bring-
urnar bornar fram með sósunni,
klettasalati og ofnbökuðum kart-
öflum.
Klettasalat
klettasalat og jafnvel spínat til
helminga
furuhnetur ristaðar á pönnu
kirsuberjatómatar
gúrka
Feta ostur með sólþurrkuðum
tómötum
½ grófsaxaður rauðlaukur, ef vill
Kartöflur
Bökunarkartöflur skornar til helm-
inga. Þær penslaðar með ólífuolíu og
salti stráð yfir. Bakaðar við 200°C.
Morgunblaðið/Golli
Matgæðingar: Sveinbjörn Hólmgeirsson og Hanna Björk Hafþórsdóttir.
Kjúklingabringur í hvítvíni
MATARKISTAN | Hafnfirðingurinn Sveinbjörn Hólmgeirsson ræður alfarið ríkjum í eldhúsinu heima hjá sér
DAGLEGT LÍF
30 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Munið að slökkva
á kertunum
Setjið kerti aldrei nálægt tækjum sem
gefa frá sér hita s.s. sjónvarpi
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Vínframleiðendur
verða að gæta þess
hvers konar tappa
þeir nota á flöskur
sínar vilji þeir ekki
sjá á bak viðskipta-
vinum sínum, sam-
kvæmt könnun
sem breska Wine
Intelligence grein-
ingarstofnunin framkvæmdi í lok
síðasta árs. Þannig sætta 6 af hverj-
um 10 neytendum sig ekki við vín-
flöskur með skrúftappa en 99% eru
jákvæð eða hlutlaus í afstöðu sinni
til korktappans. Könnunin, sem
gerð var í Bretlandi, þykir að mati
danska blaðsins Jyllands-Posten
einnig gefa hugmynd um afstöðu
annarra evrópskra neytenda, en
ekki hefur áður verið gerð könnun
af sambærilegri stærðargráðu um
viðhorf til korktappans.
Samkvæmt könnuninni má ekki
hvað síst rekja neikvæðni neytenda
gagnvart skrúftappanum til þess að
hann gefur ekki frá
sér rétt hljóð þegar
flaskan er opnuð.
En áður hafa
nokkrir vín-
framleiðendur
reynt að fullvissa
neytendur um að
skrúftappar, sem
og plastkorktapp-
ar, reynist betur en hinn hefð-
bundni kortkappi, sem m.a. geti
haft áhrif á bragð vínsins.
Neytendur virðast hins vegar
láta sér slík rök í léttu rúmi liggja.
„Niðurstöðurnar sýna að hinn al-
menni neytandi er ekki tilbúin að
segja skilið við einn mikilvægasta
sið víndrykkjunnar, burt séð frá því
að skrúftappinn kunni að vera hag-
kvæmari,“ hafði blaðið eftir Rich-
ard Halstead forstjóra Wine Intelli-
gence. „Framleiðendur og vínsalar
eiga því á hættu að tapa stórum hóp
viðskiptavina sinna taki þeir
tæknina of hratt upp á arma sína.“
Korktappi skal það vera
VÍN