Morgunblaðið - 03.01.2004, Side 31
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 31
Upplýsinga- og margmiðlunarsvið
Svið sem verður stöðugt áhrifameira í samfélaginu og enginn getur sniðgengið sem vill
vera með á nótunum. Fjarnámið er til vitnis um það.
Tölvusvið
Hér er einn öflugasti tölvuskóli landsins í leiðandi hlutverki í fjarnámi.
Þökk sé tölvutækninni sem þér er hér með boðið að taka í þjónustu þína.
Rafiðnasvið
Hér býðst þér að sveigja nám í grunndeild rafniðna, rafvirkjun og rafeindavikrjun
að þínum aðstæðum, vinnu eða öðrum skyldum.
Meistaraskóli
Löng hefð er fyrir því að frumherjar atvinnulífsins komi úr iðnaðarmannasétt.
Þeir mega engan tíma missa og þurfa því að laga sitt viðskipta- og stjórnunarnám
að ströngum vinnudegi. Fjarnám er góð leið fyrir meistaraefni sem vilja láta að sér kveða.
Skoðaðu möguleikana og smelltu þér
á vefslóðina:http://fjarnam.ir.is
með áherslu á starfstengt nám!
Fjarnám
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK
Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500
www.ir.is • ir@ir.isInnritun lýkur 6. janúar
Notalegustu stundirnar ogbesta matinn fæ ég heimahjá mér þegar eiginmað-
urinn eldar,“ segir Jónína A. Sand-
ers, starfsmannastjóri Eimskips, um
eiginmanninn Þorberg Karlsson
verkfræðing. „Hann er alveg ein-
stakur kokkur. Við gerum mikið af
því að bjóða vinum okkar í mat og
síðan auðvitað fjölskyldunni, en
samtals eigum við þrjá syni.
Í uppáhaldi hjá okkur eru ítalskir
og japanskir réttir, en japanskri
matargerðarlist kynntumst við fyrir
um það bil tveimur árum þegar við
fórum til Japans í hópi skólafélaga
minna úr MBA-náminu. Í hinni
fögru borg Kyoto áttum við eft-
irminnilegt kvöld þegar við borð-
uðum rétt sem heitir Sukiyaki. Við
höfum síðan verið að prófa okkur
áfram við að elda japanskt, eða rétt-
ara sagt Þorbergur með örlítilli að-
stoð frá mér. Ég hef mikla unun af
því að fylgjast með Þorbergi elda,
þar sem hann nálgast viðfangsefnið
eins og sönnum verkfræðingi sæmir,
fer vandlega eftir uppskriftum og
vílar ekki fyrir sér að keyra bæinn á
enda til þess að ná í rétta hráefnið.
Það má eiginlega segja að þessi
elska nálgist uppskriftirnar eins og
hverja aðra verklýsingu.“
Jónína segir að Þorbergur hafi
fyrst eldað aðalréttinn, alveg ótrú-
lega góðar lambalundir í berjasósu,
þegar von var á góðum vinum í mat
en forréttinn, sjávarrétti á teini, um
jólin 2001.
Sjávarréttir á teini
(fyrir 4)
¼ bolli extra virgin ólífuolía
¼ hvítkálshöfuð, skorið í strimla
frisée-kál
salt
1 tsk sykur
¼ bolli hvítvínsedik
16 stk hörpudiskur
8 humrar (litlir)
pipar
1 nektarína, skorin í tvennt og síð-
an í þunnar sneiðar. Hafið hýðið á
Hitið 2 msk. af olíunni á pönnu og
setjið hvítkálið og frisée-kálið á
pönnuna, lok sett yfir og eldað í
u.þ.b. 4–5 mínútur. Takið lokið af og
saltið. Sykri og ediki bætt í og eldað
þar til kálið er sykurbrúnað eða
u.þ.b. 10 mín. Pannan tekin til hliðar.
Humarinn og hörpudiskurinn
þræddir á teina til skiptis. Ólífuolía
borin á fiskinn og síðan saltað og
piprað. Steikt á grillpönnu í u.þ.b. 2
mínútur á hvorri hlið. Snúið aðeins
einu sinni.
Setjið nektarínuna saman við kál-
ið og skiptið á diska. Grillaðir sjávar-
réttirnir (á teininum) settir yfir og
borið fram.
Lambalundir í berjasósu
(fyrir 4)
Extra-virgin ólífuolía
¼ bolli hindber
¼ bolli bláber
1 laukur, skorinn gróft,
1 sellerístilkur, smátt skorinn
1 tómatur, skorinn í bita
1 msk sykur
1⁄3 bolli balsamic-edik
salt og pipar
500 g lambafile (án fitu)
1 grein ferskt timian
1 grein ferskt marjoram
Olía sett í pott og hituð. Berin,
laukurinn, selleríið, tómaturinn, syk-
urinn, edikið og pipar sett út í og lát-
ið krauma í um það bil 30 mínútur
eða þar til sósan er orðin nokkuð
þykk.
Á meðan er lambið kryddað með
salti og pipar. Hitið olíu á pönnu og
setjið timian og marjoram út í olíuna
og látið vera í um það bil 1 mínútu.
Fjarlægið kryddið og setjið lamba-
kjötið út í, brúnið og snúið varlega.
Stingið ekki gaffli í kjötið. Kjötið á
að vera rauðbleikt (rosa) miðjunni.
Setjið berjasósuna á fat. Skerið kjöt-
ið í u.þ.b. tommu þykkar sneiðar og
leggið á berjasósuna.
Borið fram með heimabökuðu
brauði og fersku grænu grænmeti
sem ólífuolíu hefur verið dreypt yfir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eldhússtörfin: Jónína A. Sanders og Þobergur Karlsson yfir pottunum heima.
Notalegast og best
að elda heima
MATUR | Lambalundir að hætti Þorbergs Karlssonar
C-VÍTAMÍN í of miklu magni kann
að auka líkur á að konur fái brjósta-
krabbamein samkvæmt danskri
könnun sem greint var frá í blaðinu
Berlingske Tidende nú á dögunum.
Rannsóknin var unnin á vegum
danska krabbameinsfélagsins, en
hún nær yfir 5 ára tímabil og nær til
29.876 kvenna sem komnar voru á
breytingaskeiðið. Alls greindust 418
kvennanna með brjóstakrabba.
„Rannsóknin er sú fyrsta af sinni
gerð og hún sýnir að eftir að breyt-
ingaskeiðinu er náð búa konur við
aukna hættu á að fá brjóstakrabba
ef þær taka inn C-vítamín í miklu
magni,“ segir vísindamaðurinn
Anna Tjønneland sem stóð að rann-
sókninni. „Helsta ráðið sem við get-
um gefið á þessari stundu er að forð-
ast neyslu C-vítamíns í stórum
skömmtum.“
Ekki eru allir sáttir við niðurstöð-
urnar sem birtust í tímaritinu Can-
cer – Causes and Control, og hefur
m.a. Claus Hancke formaður danska
bætiefnaráðsins, hvatt til niðurstöð-
urnar verði yfirfarnar á ný, þar sem
flestar rannsóknir hafi bent til að C-
vítamín neysla væri af hinu góða.
HEILSA
Varað við of miklu C-vítamíni