Morgunblaðið - 03.01.2004, Qupperneq 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 37
eða sinna hlutverki sínu, þegar
ráðherrann sjálfur hefur lýst fjálg-
lega fögnuði sínum með þessa þró-
un.
Verjum sparisjóðina
– stöðvum sölu SPRON
Sú lagasetning sem Alþingi beitti
sér fyrir haustið 2002 virðist ekki
ná yfirlýstum markmiðum að
tryggja framtíð og stöðu sparisjóð-
anna. Þingflokkur VG brást við
þegar fyrirhuguð yfirtaka Kaup-
þings Búnaðarbanka á SPRON var
kunngerð og krafðist fundar í
Efnahags- og viðskiptanefnd al-
þingis svo hægt væri að fara yfir
lagalegar forsendur sölunnar og
þær afleiðingar sem hún hefði í för
með sér fyrir sparisjóðina í land-
inu, næði hún fram að ganga. Hlut-
verk sparisjóðanna hefur verið
mjög þýðingarmikið í íslensku at-
vinnulífi og mörgum byggðarlögum
mikilvæg lyftistöng enda voru þeir
settir á stofn með félagslegu átaki.
Grunnhugsjón sparisjóðanna er að
starfa með hag sparifjáreigenda og
almennings fyrir augum en að há-
marka arð stofnfjáreigenda. Mark-
miðið með rekstri þeirra er því að
stuðla að almannahag. Hluta-
félagavæddur banki hefur engar
samfélagskyldur eða staðbundnar
þjónustukvaðir. Markmið með
rekstri slíks banka er það eitt að
hámarka arð hluthafanna og hefur
það sjónarmið komið rækilega
fram að undanförnu. Þörfin fyrir
öfluga sparisjóði hefur því sjaldan
verið meiri en nú.
Höfundur er þingmaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs.
Í TÚNINU heima, höfundar-
réttur, sæmdarréttur og gæsa-
lappir eru orð sem nú er oft hamp-
að í bókmenntaumræðum:
Halldórs rétti Hannes kaus
hér og þar að gleyma,
treður gæsalappalaus
Laxnesstúnið heima.
Hallgrímur Pétursson krafðist
þess höfundarréttar að menn
breyttu ekki sálmum hans. Hins
vegar er enn erfiðara fyrir hann
en Halldór að fylgja því banni eft-
ir. Fyrir næstu jól gæti því komið
út fræðirit þar sem 8. erindi 16.
passíusálms verður birt gæsa-
lappalaust á eftirfarandi hátt, en
trúverðugleikans vegna með staf-
setningunni sem Hallgrímur not-
aði heima í Saurbæjartúni:
Grundvöllur grofra lasta
grædgis vædinginn er,
fromleika fra sier kasta
fiarplogs menn agiarner,
sem freklega elska fied,
kuotafisk, benzin, banka,
billionum ad sier sanka,
seilast i Simann med.
Páll Bergþórsson
Orðaleppar
Höfundur er veðurfræðingur og
rithöfundur.
KYRRÐ nýársnætur og sá friður
sem kann að fylgja henni, nálgast
helgi þeirrar systur hennar, sem þó
ríst hæst í huga flestra, það er jóla-
nætur. Ég sit hér í ró þess sem ekki
er hlaðinn athöfnum eða undirbún-
ingi fyrir verkefni og bíð þess, að í
stað helgrar kyrrðar komi þörf fyrir
hvíld svefnsins. En langar þó til
þess áður en hann er
boðinn velkominn og
rekkjuvoðir hlúa að
líkamanum að líta að-
eins til baka og þá til
þess að þakka.
Mér þótti sem
kvöldið nýliðna,
gamlaárskvöld risi
undir nafni með ríku-
legri hætti en oft hefur
verið. Vissulega sáum
við eldingar leiftra um
himin af þúsundum
litsprengja og bregða
birtu yfir fölan snæinn
og gátum ekki annað en látið
nokkra ógn fylgja hugsun um fjár-
muni, sem þannig fuðra upp. En nú
heyrist ekki lengur hljóð frá
sprengju og himinn fær að vera í
eigin mætti og fegurð án þess
mannshönd og hugur leggi þar sitt
fram. Og ég lít til þess, sem mér
þótti gefa kvöldinu sérstakt vægi,
svo djúpt, að ég get ekki annað en
tjáð mig og þakkað.
Það var gott að snúa heim eftir
góða stund í guðsþjónustu í Fella-
og Hólakirkju. Gott að ganga að
gamalkunnu borði og njóta kræs-
inga, sem konan er þekkt fyrir. Enn
gott að ganga síðan að sjónvarpi og
bíða ávarps forsætisráðherrans. Og
sú ræða er annar hvati þess, að ég
leyfi mér að skrá orð á blað og túlka
hugsanir í annarra áheyrn. Það var
svo gott að hlýða á Davíð Oddsson,
og ekki svo sem í fyrsta skiptið.
Boðskapur hans hefur oft náð eyra
mínu og vakið hugsanir, sem annars
hefðu ekki náð til vitundar. En nú
þótti mér honum takast þann veg
upp, að var í ríkulegu samræmi við
helgi þessa kvölds, sem krefst síns
og rís ekki undir nafni nema vel sé
að því hugað, sem boðið er fram og
boðað. Vissulega fundust ekki í orð-
um forsætisráðherra efni í
sprengjufyrirsagnir handa blöðum
að moða úr og jafnvel skrumskæla
þá þau berast aftur í póstkassann.
Sem betur fer flýti ég
mér að bæta við. Þetta
kvöld býður upp á það
margar sprengjur, að
þeir sem annars gætu
bætt við slíkt, ættu að
forðast það, eins og
Davíð sveigði frá í
ræðu sinni. Hann
leiddi okkur til baka,
lengra en nam upp-
rifjan í annálum sjón-
varps, að þeim áfanga,
þegar fyrsti ráð-
herrann tók við stjórn-
artaumum og engum
duldist lengur, að Ísland var sjálf-
stætt ríki og hlaut að búa að sínu og
bæta þar við. Davíð gerði þetta á
svo smekklegan hátt, að unun var á
að hlýða en um leið upplýsti hann
um það sem nær er og alveg að
þeirri stundu, sem senn var talin á
„eilífðar braut“ við klukkuslögin
tólf. Gott er að liðnu að hyggja og af
að læra, hafi forsætisráðherra þökk
fyrir að snerta nú þegar þá strengi,
sem hærra munu þó óma, er nær
dregur þeim degi, þegar öld er liðin
frá upphafi innlendrar stjórnar.
En annað er það líka, sem hvetur
mig til skrifta. Það var framlag út-
varpsstjórans í því vandasama og
vanþakkláta hlutverki að ná til þjóð-
ar rétt um tímamótin miklu og leiða
frá hávaða og ljósagangi að friðsælli
viðveru. Þetta er einhver mesti
vandi, sem ræðumaður, fyrirlesari
eða fjölmiðlamaður gengur undir.
Og sjá, Markús Örn Antonsson skil-
aði sínu hlutverki með þeim ágæt-
um, að það er ekki annað unnt og
ekki annað maklegt en tjá þakklæti
sitt og túlka þannig án nokkurs vafa
hug þeirra mörgu – vonandi – sem
gáfu sér tóm í mínútur dýrmætar til
að nema staðar og hlýða og hugsa.
Markús Örn leiddi okkur vestur á
firði, Snæfjallaströndin og eyjar úti
fyrir, fjöll og jöklar og sjálfur Un-
aðsdalur að ógleymdu Kaldalóninu,
sem tónskáldið snjalla kenndi sig
við. Útvarpsstjórinn bauð Sigvalda
Kaldalóns inn í stofur til okkar og
opinberaði enn snilli hans. Ég hafði
aðeins einu sinni litið hann augum,
ungur drengur á tröppum barna-
skólans í Keflavík, þegar Sigvaldi
gegndi þar héraðslæknisstörfum og
ég fékk ásamt öðrum skólasystk-
inum mínum ákúrur skólastjórans
fyrir að hafa þúað lækninn. Það var
ekki aðeins læknir, sem kom í
skólavitjun, sagði Guðmundur
skólastjóri af þunga, það var tón-
skáldið mikla, sem bjó yfir svo þýð-
um ómi, að snart hvert hjarta, en
gat líka kveðið ákveðið að svo áhrif
hurfu seint.
Markús Örn gerði vel í því að
leiða okkur um vestfirska staði og
minnast læknisins, sem var svo vel
metinn, að ekki þótti búandliði of
mikið, þótt slegið væri saman í fag-
urt hljóðfæri til að auðvelda honum
tónsmíðar. Og enn kom annað til og
gerði stundina upphafna. Lengi hef-
ur farið orð af tónlist tengdri Ísa-
firði, tónskáldum og flytjendum –
og nú fengu landsmenn að hlýða á
og sjá það, sem hæst ber í bænum
við lygna fjörðinn fagra. Kamm-
erkór og kirkjukór, einsöngvarar og
organistar, hljóðfæraleikarar og
helgidómar komu í vitjan til okkar
og sá má hafa haft harða skel og
kælt viðkvæmt hjarta, hafi ekki ver-
ið svo sungið og leikið og myndir
sýndar, að ekki fylgdu því áhrif,
sem lengur vara en andartaks hug-
hrif.
Vegna sjálfs mín festi ég orð á
blað, þótt áliðið sé helgrar nætur, er
tengir í margra huga liðið við ókom-
ið. Óvíst hvort fleiri líta og skiptir
ekki öllu. En þeim Davíð og Mark-
úsi Erni ásamt listamönnum að
vestan og lækninum snjalla færi ég
í eigin nafni djúpa þökk og tjái virð-
ingu mína með óskum um farsæld á
nýju ári og leiðsögn sem vel gagnar.
Helgi næturinnar
Ólafur Skúlason skrifar um
gamlárskvöld ’Og ég lít til þess, semmér þótti gefa kvöldinu
sérstakt vægi, svo
djúpt, að ég get ekki
annað en tjáð mig og
þakkað.‘
Ólafur Skúlason biskup
Höfundur er biskup.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Fréttasíminn
904 1100
Ferðanámskeið
Ingólfs - Nýtt!
40 fegurstu, frægustu,
einstöku staðirnir!
Það sígilda í ferðamenningu
heimsins er dýrmætt innlegg í
líf þitt! Staðir, sem þú verður
að sjá. Auðgaðu lífið og lærðu
að skoða heiminn í áföngum.
Í nafni áhugaklúbbs um vandaðar ferðir
efnir brautryðjandinn og ferðafrömuður-
inn Ingólfur Guðbrandsson, fyrrv. forstj.,
síungur og ólgandi af lífskrafti, til 5 vikna
námskeiðs á mánudagskvöldum frá 9. feb.
kl. 20.15-22.15.
Umfjöllun spannar 30-40 eftirsóknarverða ferðastaði
í 5 heimsálfum í vönduðu máli og myndefni.
Kjöraðstæður í „Setri,“ fundasal GRAND HOTEL.
Uppdrættir, skýringarmyndir, námsefni innifalið í
námskeiðsgjaldi aðeins kr. 11.500, makar og
nem. hálft gjald, sé greitt við pöntun.
Tryggið þátttöku strax - fjöldi takmarkaður.
Menntandi námskeið, sem opnar nýja sýn á heiminn.
Þekkingin gerir ferð þína árangursríkari, dýrmætari.
Innritun næstu daga:
Sími/fax: 581 4610 eða fyllið út eftirfarandi:
UMSÓKN UM
FERÐANÁMSKEIÐ
Undirritaður óskar þátttöku í
ferðanámskeiði Ingólfs. Skv. augl.
Nafn ......................................................................................
Kt. ......................................................................................
Nafn ......................................................................................
Kt. ......................................................................................
Heimili ......................................................................................
Staður ......................................................................................
Starf: ......................................................................................
Sími: ......................................................................................
Netfang ......................................................................................
Greiðslutilhögun:
Visakortn. .................................................. Gildistími .........
Eurokortn. .................................................. Gildistími .........
Bankaávísun - Gíró
Sendist í umslagi
merkt: FERÐANÁMSKEIÐ,
Laugarásvegi 21,
104 Reykjavík.
ATVINNA mbl.isMoggabúðin
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.
ATVINNA
mbl.is